Dagblaðið - 23.06.1977, Qupperneq 15
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 23. JÚNl 1977.
15
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
NU SYRTIRIALINN HIA
GAMLA VESTURBÆJARUÐINU
— eftir tapleik gegn Víking á Laugardalsvelli í gærkvöld.
Víkingar léku vel í fyrri hálf-
leik gegn KR á rennblautum
Laugardalsvellinum í 1. deild í
gærkvöld. Það nægði til sigurs,
því Víkingar skoruðu þá tvivegis,
en KR, án tveggja lykilmanna,
Ottós Guðm.sonar og Hálfdáns
Örlygssonar, náði sér ekki á strik
fyrr en rétt undir lokin. Þá fengu
KR-ingar allgóð tækifæri til að
skora — en tókst ekki að koma
knettinum í markið hjá Diðrik
Ölafssyni utan einu sinni. Þá var
að því er virtist gott mark dæmt
af KR. Diðrik meiddist í þeim
átökum — ofan á meiðsli fyrir,
því strax i byrjun leiksins fékk
hann stuð. Lék haltur það, sem
eftir var. Lokatölur í leiknum.
Vikingur 2 — KR 0 og staða KR
er nú mjög alvarleg hvað fall-
hættuna snertir.
Víkingar, sem endurheimtu
Róbert Agnarsson, miðvörðinn
sterka'eftir meiðsli frá fyrsta leik
mótsins, voru miklu ákveðnari í
fyrri hálfleiknum. Strax á lO.mín.
skoruðu þeir og vel var að þvi
marki unnið. Eiríkur Þorsteins-
son gaf fallega út á Ragnar Gisla-
son bakvörð, sem var á auðum sjó
á hægri kanti. Ragnar lék nær
KR-markinu. Gaf síðan vel fyrir
til Viðars Elíassonar, sem skallaði
I markið framhjá Sverri Haf-
steinssyni, markverði.
Víkingur lék með þremur mið-
vörðum, Kára Kaaber, bezti
maður liðsins í leiknum, og Helga
Helgasyni auk Róberts — en
Magnús Þorvaldsson og Ragnar,
bakverðir, studdu vel við sókn
Víkings. Vörnin var mjög sterk
framan af — það svo, að KR-ingar
fengu ekki marktækifæri í fyrri
hálfleik. Hætta var á stundum við
KR-markið. Hannes Lárusson,
miðherji Víkings, sem er i mikilli
framför sgm leikmaður, lék i
gegnum lŒ-vörnina á 22 mín., en
spyrnti framhjá í opnu færi. Níu
mín. síðar sendi Jóhannes Bárðar-
son knöttinn með góðu skoti neðst
í markhorn KR-marksins, en flest-
um áhorfendum til furðu var
markið dæmt af vegna rangstöðu
tugum metra í burtu — rang-
staða á leikmann, sem engin
áhrif hafði á leikinn. Tvö góð
mörk voru því dæmd af í þessum
leik þannig, að segja má, að dóm-
gæzlan hafi haft sömu áhrif gagn-
vart báðum liðum. En leiðinlegt
er þó að sjá slík mistök dómara og
línuvarða.
Á 37 min. skoruðu Víkingar
annað mark sitt. Gull af marki.
Eftir innkast gaf Róbert vel inn
í vítateig KR — sp.vrnti knettin-
um að stönginni fjær, og þar
gnæfði Kári Kaaber yfir KR-inga
og sneiddi knöttinn með höfðinu i
bíáhornið neðst. 2-0.
I síðari hálfleiknum dalaði
leikur Víkings mjög — en KR-
ingar voru þó lengi að ná sér á
strik. Leikurinn var mjög daufur
lengi framan af hálfleiknum.
Sáralítið, sem gladdi augað. Þö
brunaði Örn Oskarsson í gegnum
Víkingsvörnina um miðjan hálf-
leikinn. Átti aðeins Diðrik eftir
og hugðist vippa knettinum yfir
hann. En Diðrik varði snilldar-
lega — og skömmu eftir horn-
spyrnuna barst knötturinn að KR-
markinu. Kári spyrnti knettinum
i stöng KR-marksins og síðan var
bjargað á marklínu. Nokkru síðar
fékk Kári aftur gott færi, sem
honum tókst ekki að nýta.
Lokakaflann sóttu KR-ingar —
en mestur vindur var úr
Víkingum. Vörn þeirra opnaðist
nokkrum sinnum en aðeins einu
sinni lókst KR að koma knettin-
um í mark Víkings. Það var Árni
Guðmundsson, sem sendi knött-
inn í markið eftir að Diðrik hafði
varið hörkukskot Arnar. En
dómarinn Grétar Norðfjörð
dæmdi markið af — og það var
ekki að sjá, að sá dómur hefði
nokkra stoð í veruleikanum.
Verst KR-inga fór Örn að ráði
sínu rétt á eftir, þegar hann
sp.vrnti knettinum framhjá fyrir
niiðju Víkingsmarkinu alveg inn
við markteig. Víkingar sluppu því
með skrekkinn — en slakur og
kæruleysislegur leikur þeirra
lokakaflann hlýtur að verða þeim
sjálfum umhugsunarefni. Gegn
markheppnari mótherjum en KR-
ingar voru að þessu sinni hefði
það getað haft slæmar
afleiðingar.
Þetta var aldrei neinn stór-
leikur, enda erfitt að leika á gler-
hálum vellinum í úðanum i
Laugardal. Víkingar voru mun
sterkari framan af og mikill
munur er f.vrir liðið, að hafa
fengið Róbert með á ný. Sá ungi
piltur er ákaflega sterkur leik-
maður, þó svo Kári skyggði á
hann sem aðra Víkinga í þessum
leik. Þá eru miðherjarnir Hannes
og Viðar að verða hættulegir
sóknarleikmenn. Báðir bráðflínk-
ir með knöttinn.
Nú eru meiðslin — ofan á allt
annað — farin að hrjá KR-inga
alvarlega. Tveir sterkustu menn
liðsins, Ottó og Hálfdán, meiddir
og gátu ekki leikið. Við fjarveru
þeirra mynduðust geigvænleg göt
í KR-liðið, einkum i vörnina, þar
sem Ottós naut ekki—en hann
hefur verið traustasti ieikmaður
KR í íslandsmótinu hingað tii. Og
enn á Magnús Guðmundsson
langt í land ineð að leika á ný í
KR-markinu eftir meiðslin, sem
hann hlaut í leiknum gegn Val
fyrir tæpum mánuði. Við slíkum
áföllum má ekkert lið í fallhættu.
Utlitið er því dökkt hjá KR.
Aðeins sex stig úr tíu leikjum —
en KR-ingar eru baráttumenn,
sem alltaf hafa bjargað sér, þó
útlitið hafi a stundum verið
dökkt, jafnvel kolsvart. Nú reynir
á — og í liði KR eru nokkrir ungir
piltar, sem gætu hafið merki
gamla Vesturbæjarliðsins á loft i
þeim átta leikjum, sem liðið á
eftir. hsím.
Leikurinn við Norð-
menn verður erfiður
— segir Tony Knapp, landsliðsþjálfari.
Landsleikurinn við Norðmenn
nk. fimmtudag verður
áreiðanlega erfiður — jafnvel
erfiðari en gegn Norður-írum i
HM-keppninni. Eg sá norska liðið
leika gegn Svíum í vor og það er
allgott, sagði Tony Knapp, lands-
liðsþjálfari, þegar Dagblaðið
ræddi við hann í morgun.
Sennilega verður líka erfiðara að
ná upp stemmningu meðal
íslenzku leikmannanna en gegn
Írum, bætti Knapp við.
Tveir úr landsliðshópnum eru
meiddir, þeir Guðmundur Þor-
björnsson, Val, og Einar Þórhalls-
son, UBK, og geta ekki leikið
gegn Norðmönnum — en nokkrir
af ísl. atvinnumönnunum verða
með í leiknum, sagði Knapp. Það
hefur verið ákveðið, að þeir
Matthías Hallgrímsson og Teitur
Þórðarson komi frá Svíþjóð, en
ákvörðun verður tekin í kvöld
hvort Jóhannes Eðvaldsson
leikur. Hann er að koma úr
sumarfríi. Þeir Marteinn Geirson,
sem hefur æft með Fram að und-
anförnu, og Guðgeir Leifsson eru
hér heima i fríi. Þeir hefja æfing-
ar hjá mér í dag.
Annars er vandamálið, agði
Knapp að lokum, að landsliðið
verði fastmótað. Það skapar
vandamál , þegar leikmenn eru í
fríum — og aðrir í leikjum er-
lendis, svo maður veit ekki hvort
þeir verða heilir, þegar að lands-
leiknum kemur, auk þess sem það
veikir íslenzka landsliðið, að
Ásgeir Sigurvinsson getur ekki
tekið þátt i leiknum.
LT
VAÐ-
STÍGVÉL
Stærðir:
27-34
BREIÐHOLT
Strigaskör
Verð frá513.-
Fótboltar
frákr.440.-
Viðleguútbúnaður t.d.
svefnpokar frá kr. 4.800.-
Fótboltaskór
Sportvöruverzlun Póstsendum
Ingólfs Oskarssonar uuhóium 2-6 - símí 75020
Vörur fyrir
hestamenn
Vöðlur kr. 7.990.-
Klofstígvél kr. 4.730,-
Veiðivörur!
Iþróttir
Staðan
Breiðablik — Akranes 1-0
ÍBV — FH 4-1
KR — Víkingur 0-2
Staðan i 1. deild íslandsmótsins
er nú: Akranes 10 7 1 2 17-6 15
Valur 9 6 1 2 15-8 13
Víkingur 9 4 4 1 9-7 12
Breiðablik 10 4 2 4 13-12 10
Keflavík 9 4 2 3 12-13 10
ÍBV 9 4 1 4 10-9 9
Fram 9 2 3 4 11-13 7
FH 10 3 1 6 12-19 7
KR 10 2 2 6 14-16 6
Þór 9 2 1 6 10-20 5
í kvöld fara fram tveir leikir.
Valur mætir Keflavík í Laugardal
og á Akureyri eigast við Þór og
Fram.
Markahæstu leikmenn í 1.
deild eru nú:
Ingi Björn Albertsson, Val, 6
Kristinn Björnsson, ÍA, 6
Pétur Pétursson, í A, 6
Sigurlás Þorleifsson, ÍBV, 6
Sumarliði Guðbjartss, Fram 5
Bezti heims-
árangurinn
í 4 greinum
Mörg frábær afrek voru unnin
á frjálsíþróttamóti í Köln í gær.
Komar, Póllandi, sigraði i
kúluvarpi með 20.30 m. Al
Feuerbach, USA, varpaði 20.19 m
og Tcrry Albritton. USA, 19.49 m.
Bezti heimsárangurinn í ár náðist
í fjórum greinum. Karl Fleschen,
V-Þýzkalandi, hljóp 3000 m á
7:41.21 mín. Tólf hlauparar hlupu
innan við átta min. Ari Paunon-
en, Finnlandi, setti piltamet
7:43.2 min., sem er frábær tími
pilts innan við tvítugt. Varð
þriðji. Kathy Schmidt, USA, kast-
aði spjóti kvenna 64.06 m. Irena
Szerwinska, Póllandi, hljóp 200 m
á 22.61 sek. og sveit USA hljóp
4x100 m boðhlaup karla á 38.87
sek. Þar hlupu McTear, Jones,
Glance og Riddick.
Athygli vakti, að Houston
McTear sigraði í 100 m á 10.13
sek. á undan Don Quarrier,
Jamaíka, 10.21 sek. Jones 10.23 og
Riddick 10.28 sek. voru á undan
Steve Williams, sem varð fimmti
á 10.29 sek. Glance fékk sama
tíma. Quarrie varð einnig aðeins i
öðru sæti í 200 m. Riddick
sigraði á 20.44 sek. Quarrie hljóp
á 20.65 sek.
Earl Bell, USA, stökk 5.55 m í
stangarstökki. Edwin Moses hljóp
400 m grindahlaup á 48.73 sek.
Mike Boit, Kenýa, 800 m á 1:44.35
mín. Mark Enyeart, USA, varð
annar á 1:44.84 mín. en John
Walker, N-Sjálandi, aðeins
fimmti á 1:46.22 mín. Eamon
Coghlan, írlandi, sigraði i 1500 m
á 3:38.95 mín. á undan Harald
Hudak, V-Þýzkalandi, 3:39.36
mín. og Dwight Stones, USA,
stökk 2.18 m í hástökki.
Skotargegn Brasílíu
Skozka landsliðið i knattspyrnu
leikur sinn síðasta leik i Suður-
Ameríku-ferðinni i kvöld gegn
Brasilíu. Fyrirliði Skota,
Bruce Rioch, Everton, getur ekki
leikið vegna meiðsla. Archie
Gemmill, Derby, kemur í hans
stað. Skozka liðið verður þannig
skipað, Rough, McGrain, Forsyth,
Buchan, Donachie, Gemmill,
Hartford, Masson, Johnston,,
Macari og Dalglish, en lið,
Brasilíu verður þannig skipað.
Leao, Ze Maria, Luis Pereira, Am-
aral, Marinho, Terezo, Rivilino,
Gil, Paulo Isidoro, Reinaldo og
Paulo Cesar.
Danskur badminton-
þjálfari á Akranesi
Danskur . badmintonkennari,
Peder Jensen, kennir nú á Akra-
nesi og verður þar fram á laugar-
dag. Æfingar hjá honum eru
mjög vel sóttar. Æft tvisvar á dag,
byrjendur og þeir sem lengra eru
komnir í íþróttinni. Badminton-
ráð Akraness gaf félögum kost á
að senda þátttakendur á æfing-
arnar og eru þar meðal annars
sex frá Siglufirði.
Peder Jensen þjálfaði einnig
um vikutíma á Akranesi í fyrra
með mjög góðum árangri eins og
vel hefur komið fram hjá Akur-
nesingum i badminton.
'