Dagblaðið - 09.07.1977, Page 6
6
Starf við Mjólkórvirkjun
Starf raftæknis við Mjólkár-
virkjun er laust til umsóknar
Utnsóknir með upplýsingum urn
tnenntun, fyrri störf, aldur og fjöl-
skyldustærð sendist fyrir 15. júlí nk.
til Rafmagnsveitna ríkisins Laugavegi
116, Reykjavík og þar eru veittar
nánari upplýsingar um starfið og hjá
rafveitustjóra Vestfjarðaveitu, Aage
Steinssyni, ísafirði.
Starfskraftur óskast
í breytingar á fatnaði
Verzlunin VICTORIA
Laugavegi 12 - Sími 12370 eða 14160
Norræna menningarmalaskrifstofan
íKaupmannahöfn
Norræna menningarmálaskrifstofan í
Kaupmannahöfn (Sekretariatet for
nordisk kulturelt Samarbejde) er
skrifstofa Ráðherranefndar Norður-
landa, þar sem fjallað er um samstarf
á sviði vísinda, fræðslumála, lista og
annarra menningarmála á grundvelli
norræna menningarsáttmálans.
í skrifstofunni er laus til umsóknar
staða
deildarstjóra
í deild þeirri er fjallar um almenn
menningarmál. Verkefni deildarinnar
eru m.a. varðandi styrki til þýðinga á
bókmenntum nágrannaþjóðanna
framhaldsmenntun leiklistarstarfs-
manna, styrki til norræns æskulýðs-
samstarfs, uppbyggingu norrænnar
menningarmiðstöðvar í Færeyjum,
norrænt samstarf á sviði útvarps- og
sjónvarpsreksturs o.fl.
Deildarstjórinn sér um gerð fjárhags-
áætlana á þessu sviði og fjallar um
hugmyndir að nýjum samstarfsverk-
efnum
Einnig er laus í skrifstofunni staða
upplýsinga fulltrúa
Starfið felst í að sjá um útgáfu ýmiss
konar rita og hafa samband við fjöl-
miðla, auk þess skal hann hafa frum-
kvæði um að koma á fratnfæri upp-
lýsingum um norrænt samstarf á sviði
menningarmála.
Stöðurnar verða veittar til 2-4 ára frá
1. janúar 1978. Launagreiðslur eru í
samræmi við kjarasamninga danskra
ríkisstarfsmanna.
Umsóknir skulu stílaðar til Nordisk
Ministerrád og sendar til
Sekretariatet for nordisk kulturelt
samarbejde, Snaregade 10, 1205
Köbenhavn K fyrir 5. ágúst nk.
Nánari upplýsingar veita Ove
Stenroth skrifstofustjóri og Klas
Olafsson, framkvæmdastjóri norrænu
menningarmálaskrifstofunnar í Kaup-
mannahöfn.
DAOBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 9. JCLt 1977.
ALLT ER FERTUGUM
p pT Rekstur Ferðaskrifstofu ríkisins
|#wlm I stendur meðmiklumblóma
Kjartan Lárusson settur forstjóri Ferðaskrifstofunnar, Ingóifur Pétursson sem sér um Edduhótelin og
Halldór Sigurðsson forstöðumaður hópferðanna.
(DB-invnd BH)
Ferðaskrifstofa ríkisins
hefur starfað í rúni fjörutíuár,
stofnuð árið 1936 og tók til
starfa af fullum krafti árið
eftir. Eins og svo margt annað,
lá starfsemi Ferðaskrifstofu
ríkisins niðri meðan á seinni
heimsstyrjöldinni stóð en hún
síðan endurvakin strax eftir
striðið. Upphaflegt hlutverk
ferðaskrifstofunnar var að sjá
um allar ferðir inn og út úr
landinu og til skamms tíma
skipulagði ferðaskrifstofan
hópferðir íslendinga til
útlanda. Var því hætt fyrir
nokkrum árum og skipuleggur
ferðaskrifstofan nú eingöngu
ferðir einstaklinga til útlanda
og færist það stöðugt I aukana.
Aðalstarfsemi Ferðaskrifstof-
unnar nú sem fyrr er móttaka
erlendra ferðamanna og skipu-
lagning ferða þeirra um landið.
Er þar um að ræða bæði
einstaklinga sem koma hingað
á eigin vegum og hópferðir.
Hópferðirnar geta staðið allt
frá n kkurra klukkustunda
skoðunarferðum um Reykjavík
eða nágrenni til margra daga
ferða í kringum landið.
Edduhótelin og rekstur
þeirra er nú orðinn snar þáttur
í rekstri Ferðaskrifstofu ríkis-
ins. Takmark Ferðaskrifstof-
unnar í náinni framtíð er að
lengja ferðamannatímann hér á
landi umfram sumarmánuðina
þrjá og þá einna helzt með
auknum áróðri fyrir því er-
lendis hversu gott sé að halda
ráðstefnur hér á vorin og
haustin. Er þá tilvalið að nota
Edduhótelin til þeirra hluta
þar sem aðstaðan til ráðstefnu-
halds er eins og bezt verður á
kosið.
Fyrsti forstjóri Ferðaskrif-
stofu rikisins var Eggert Briem
og starfaði hann allt til 1945 er
Þorleifur Þórðarson tók við.
Gegndi hann starfinu allt til
1973. Sigurður Magnússon tók
þá við forstjórastarfinu en
gegndi því aðeins í níu mánuði.
Var þá Björn Vilmundarson
skipaður forstjóri Ferðaskrif-
stofunnar og gegndi hann
starfinu þar til í fyrrahaust er
Kjartan Lárusson var settur
forstjóri og gegnir hann
starfinu enn. BH
Ferðamannastraumurinn:
r
BANDARIKJAMENN
FLESTIR
en Þjódverjar staldra lengst við
Langsamlega mest kemur af
Bandaríkjamönnum til tslands
ár hvert, en þeir hafa fæstir langa
viðdvöl, koma sem „stopover" far-
þegar á leiðinni til Evrópu. Hins
vegar eiga Þjóðverjar .metið í
lengd dvalar hvers ferðamanns,
þeir hafa hér lengsta viðkomu.
Komu þessar upplýsingar fram
hjá Kjartani Lárussyni, settum
forstjóra Ferðaskrifstofu ríkisins,
nýlega.
í fyrra komu til landsins alls
24095 Bandaríkjamenn á móti
10147 Þjóðverjum. Má reikna með
því að þessi tala verði ekki lægri í
ár, löngun mannsins til að skoða
heiminn breytist ekki þó svo
afturkippur hafi komið í ferðalög
Vesturlandabúa eftir olfukrepp-
una 1973.
TBH
JóhannG.sýnir I
íBorgarnesi:
Seldi
fjórðung
fyrsta
daginn
Borgnesingar kunna
greinilega vel að meta list
Jóhanns G. Jóhannssonar,
listmálara og hljómlistar-
manns með meiru, því
fjórðungur verka hans
seldist fyrsta daginn sem
hann hafði opna málverka-
sýningu í hótelinu um þar
síðustu helgi.
Jóhann sýnir þar rúmlega
40 m.vndir, olfu- og vatnslita-
myndir. Að sögn heimildar-
manns blaðsins hefur verið
skemmtilegur blær yfir
sýningunni og verður hún
opin fram á sunnudags-
kvöld. Sagði sá hinn sami
enga ..fisk undir steini"
stemmningu vera þar á
staðnum.
GS.
Borgarráð neitar að
styrkja skákmenn
—til farar á Norðurlandamótið í
Finnlandi
Borgarráð Reykjavíkur telur
sér ekki unnt að styrkja níu
islenzka skákmenn tii þátttöku
á Norðurlandamótinu, sem
haldið verður í Finnlandi í
næsta mánuði. Taflfélag
Reykjavíkur sótti um 25
búsund krónur handa
hverjum skákmanni til að
lækka þann kostnað sem skák-'
fólkið þarf að greiða fyrir
ferðina.
,,Það hefur nú enginn orðið
að hætta við þátttöku i Norður-
land amótinu vegna þessarar
synjunar," sagði Stefán Björns-
son formaður Taflfélags
Reykjavíkur í samtali við
Dagblaðið. Hann sagði að
meðal þeirra sem tefldu fyrir
tslands hönd, yrðu Jón L. Árna-
son íslandsmeistari, Helgi
Ölafsson Reykjavikurmeistari
og Ólöf Þráinsdóttir Reykja-
víkur- og Islandsmeistari
kvenna.
Stefán gat ekki sagt um
hversu mikið hver þátttakandi
þ.vrfti að greiða f.vrir að fara til
Finnlands. Hann kvaðst eiga
von á að Skáksamband tslands
styrkti tslandsmeistarann og
Taflfélag Re.vkjavikur Revkja-
vikurmeistarann. ,\T