Dagblaðið - 09.07.1977, Blaðsíða 7
l).\(iBI,AÐIÐ. LAUCiARDAOUR 9. ,lULl 1977.
FRJOSEMIMINNKAR STODUGT A
ISLANDI — Nema íyngsta aldurshópi kvenna, þ.e. undir20 ára
Margir telja sig ekki hafa efni á að eiga nema tvö börn og telja að
fleiri börn muni skerða lífskjörin að einhverju leyti.
Töluverðar breytingar hafa
orðið á frjósemi kvenna á Is-
landi undanfarna áratugi og
einnig hafa orðið töluverðar
breytingar í ákveðnum aldurs-
hópum kvenna, samkvæmt
skýrslu áætlanadeildar Fram-
kvæmdastofnunar ríkisins.
Mælikvarði heildarfrjósemi
er fjöldi fæddra barna á ári
hverju miðað við 1000 fbúa. Sú
tala var milli 30 og 40 fram
undir síðustu aldamót en hefur
farið lækkandi síðan. Hún var í
lágmarki, um 20, árin 1936-
1940 en hækkaði síðan og náði
hámarki 1956-1960, er hún var
um 28. Síðan hefur fæðingum
fækkað hlutfallslega og var ár-
ið 1975 20 á hverja 1000 íbúa.
Fæðingartalan hér á landi er þó
Glöggt má sjá hvernig fæð-
ingum fækkar áberandi eftir
1966 og koma þar aðallega til
áhrif pillunnar margfrægu sem
hærri en f nágrannalöndunum.
Þar hefur hún lækkað hraðar
en hér og verið á bilinu 12-15
undanfarin ár.
Frjósemi hefur aukizt í
yngstu aldursflokkunum, 15-24
ára, sem væntanlega er að
nokkru leyti afleiðing lækkandi
giftingaraldurs. I aldursflokk-
unum 25 ára og eldri hefur
frjósemin á hinn bóginn minnk-
að, hlutfallslega mest í elztu
aldursflokkunum.
Bent hefur verið á ýmsar
ástæður fyrir minnkandi frjó-
semi, svo sem lága giftingar-
tíðni sem leiðir til færri fæð-
inga. Þá fæðast börn fyrr í
hjónabandi, þar sem foreldr-
arnir vilja ljúka barneignum
sem fyrst svo móðirin geti aftur
dró mikið úr barnsfæðingum.
Sú þróun hefur haldið áfram og
er spáð áframhaldandi fækkun
fram til aldamóta. Er talið að
tekið þátt I atvinnulífinu ut-
an heimilis. Þess vegna hefur
mæðrum 30 ára og eldri, farið
fækkandi.
Aukin meðvitund almenn-
ings um kostnað við að eiga og
ala upp börn hefur haft áhrif
til lækkunar fæðinga. Sama má
segja um bætt lífskjör. Foreldr-
ar vilja ekki fórna tómstundum
og tekjuöflunarmöguleikum
fyrir barnauppeldi, sem er ef
til vill hlutfallslega kostnaðár-
samara riú en áður fýrr, þegar á
heildina er litið.
Á eftirforandi töflu sést
aldursbundin frjósemi
kvenna á sl. áratugum.
heildarfrjósemi, þ.e. börn á
hverja konu, verði komin niður
í 2.7 á hverja konu um aldamót-
in á móti 3,5 nú. -JH.
Lifandi börn fœdd af hverjum 1000 konum að meðaltali ó ári
Fædd börn
að meðal-
15-19 20-24 25-29 30-34 35-39 40-44 45-49 Heildar- tali á ævi
ára ára ára ára ára ára ára frjósemi hverrar konu
1926-1935 21 122 170 164 124 67 7 3,4 3,8
1936-1945 32 142 159 133 97 46 5 3,1 3,4
1946-1955 62 193 195 152 101 41 4 3,8 3,0
1956-1960 83 235 209 158 104 36 3 4,2 2,9
1961-1965 84 225 193 144 92 26 3 3,9 3,1
1966-1970 81 186 152 110 71 19 2 3,1 3,3
1971-1975 70 177 152 100 54 16 1 2,9 3.5
n/
Sprengt fyrir neðanjarð-
arbyggingum f Heiðmörk
Þetta er ékki eftirlíking af Al-
mannagjá, þó manni komi Þing-
yellir óneitanlega í hug er gengið
er um þetta mannanna verk, sem
gert hefur verið í norðausturjaðri
Heiðmerkur. Þetta er hluti af
mannvirkjagerð Vatnsveitu
Reykjavíkur við framtíðarvatns-
ból höfuðborgarinnar.
Þessi feiknagjá er skammt
sunnan við Gvendarbrunna. Þar
liggur hún vinkillaga inn í hraun-
bergið og sést hér inn í opna enda
gjárinnar, sem veit út að Gvend-
arbrunnasvæðinu. I botni þessar-
ar gjár. sein liggur til vinstri út úr
þessum legg iiennar, mun i fram-
tíðinni verða byggt aðalstöðvarhús
Valnsveitunnar. Þar uin mun allt
vatn fara á leið sinni frá öllum
brunnum vatnasvæðis P.'ykjavík-
ur á Jaðars- og Myllulækjarsvæð-
inu. Þar verða dælur aðalæðar og
stjórnstöð vatnsrennslis til höfuð-
borgarinnar.
I gjánni má hæglega „fela“
tveggja til þriggja hæða hús, enda
mun það ætlun Vatnsveitunnar
að ganga svo um Heiðmörkina að
þar sjáist vart eða ekki til mann-
virkja — að minnsta kosti engra
sem setja ljótan blett á umhverf-
ið. -ASt/DB-mynd Hörður.
ATTA HUS10LFUSB0RG-
UM AUÐ YFIR HÁSUMARIÐ
— Ástæðan sennilega peningaleysi og stöðug rigning
Yfirleitt eru surnarhús
slarfsmannafélaga mjög ásetin
allt sumarið, langt fram á haust
og því vakti það athygli okkar
að í sfðastliðinni viku voru átta
hús af þrjátíu og sex auð.
Húsin eru i eign einstakra
verkalýðsfélaga, sem leigja sín-
um félagsmiinniiin húsin.
Dagblaðið hafði sainband við
Karl Sæmundsson umsjónar-
inann ineð Ölfushorgum og
spurði hann hverju þetta sætti.
,,Eg hugsa að þetta stafi í fyrsta
lagi af peningaleysi sem var
samfara yfirvinnubanninu.
Fólk hefur ekki árætt að leigja
sér bústaðina meðán allt var í
óvissu.
í iiðru lagi er fólk skilhrætt
við rigninguna hér sunnan-
lands. Það er eðlilegt að fólk
hugsi sig um tvisvar áður en
það fer i sumarleyfi í nokkuð
örugga rigningu.
Annars er það svo einkenni-
legt að þessi vika, um mánaða-
mótin júni, júlí, er alls ekki
vinsæl. Það stóðu hér líka auð
hús i fyrra á sama tíma og árið
þar áður líka, ef ég man rétt.
Þetta hefur breytzt þegar í
þessari viku og það má gera ráð
fvrir að fullbókað verði fram á
haitsl
-JH
2ja hásinga sturtuvagn
fyrir traktor, nýr eða notaður, óskast
tilkaups.
Burðargeta 6-8 tonn.
Uppl. i síma 97-1129.
Mercedes Benz
vörubíll, 5-8 tonna, með framdrifi
óskast tilkaups.
A ðeins góður bíll kemur tilgreina.
Uppl. í síma 97-1129.
Iþrótta-
töskur
Stutt-
erma-
bolir
Sweater-
peysur, þykkar
ýs
Póst-
sendum
Sportvöruverzlun
m
Ingólfs Oskarssonar
Klapparstíg 44,
Reykjavík, sími 11783