Dagblaðið - 09.07.1977, Blaðsíða 12
'úL
mmmmm
DAGBLAÐIÐ. LAUCARDACJUR 9. JÍJLt 1977.
Aðrir tfmar nú
—en þegar heimurinn hneykslaðist á ástarsambandi
Ingrid Bergman og Rossellinis
— Hann er nú látinn í Rómaborg af hjartaslagi
Þeir sem Kotnmr eru á miðj-
an aldur muna vel eftir ástar-
ævintýrinu sem Ingrid Berg-
inan átti með ítalska leikstjór-
anum Roberto Rossellini árið
1949. Ástarævintýri þetta
hneykslaði Bandaríkjamenn
svo gífurlega að Ingrid Berg-
man var ekki vært þar í landi í
nokkuð mörg ár!
Nú er Roberto Rossellini
dáinn. Hann fékk hægt andlát i
ibúð sinni í Róm eftir að hafa
fengið hjartaáfall.
Ingrid og Rossellini hittust í
fyrsta sinn í París árið 1949.
Áður hafði hún skrifað honum
eftir að hafa séð tvær af mynd-
um hans í Hollywood. t bréfinu
bauð hún fram þjónustu sína.
Þar sagði m.a.:
,,Ef þig vantar sænska leik-
konu sem talar ensku ágætlega,
kann svolítið í þýzku en getur
ekki sagt annað en ,,Eg elska
þig" á ítölsku, er ég reiðubúin
til þess að koma og vinna fyrir
Þig“
Það var nú ekki eins og peua
væri bréf frá óþekktri leikkonu
og Rossellini skrifaði henni um
hæl og bauð henni hlutverk.
Pia
Peter-lngrid-Alltaf
Þegar þetta var hafði Ingrid
þegar unnið hug og hjörtu
Bandaríkjamanna. Hún var
þrjátíu og fjögurra ára gömul
og hafði þegar fengið Öskars-
verðlaunin fyrir leik sinn í Gas-
ljósi. Hún var gift Peter Lind'
ström, sænskum tannlækni, og
átti níu ára gamla dóttur, PiuM
(Dóttirin var skýrð Pia, sem
átti að standa fyrir Peter Ingrid
Alltaf, P I A).
Hún virtist vera hamingju-
söm, en var það ckki. ,,Ég átti
dásamlegadótturog ágætaneig-
inmann," sagði hún I viðtali við
bandarískt blað. „Við elskuðum
ekki hvort annað lengur. En
svona eru mörg hjónabönd, —
þau halda bara áfram af göml-
um vana.“
Lindström hjónin bjuggu í
fallegu húsi í Hollywood og
höfðu að sjálfsögðu eigin sund-
laug í garðinum. Ingrid segist
hafa velt því fyrir sér hvers
vegna hún væri svona óliam-
ingjusöm en komst ekki að
neinni niðurstöðu.
Það var því ekki að undra
þótt hún gripi fegins hendi til-
boði Rossellinis til þess að.
koma til Parísar til þess að
ræða við hann um frekari við-
skipti þeirra í milli.
En eins og góðri eiginkonu
sæmir tók Ingrid Peter með sér
til Parísar.
Nokkrum mánuðum slðar
bauð Rossellini sjálfum sér til
Kaliforniu. Hann settist að I
gestahúsi Lindström hjónanna.
Þau áttu saman langar viðræð-
ur um kvikmyndagerð og eftir
því sem þau kynntust, því betur
samdi þeim. Þau voru orðin ást-
fangin hvort af öðru.
A meðan allt lék I lyndi milli
Ingrid og Peters Lindström ár-
ið 1947.
Rossellini hafði ekki mikið
álit á þeim kvikmyndum sem
Hollywood framleiddi. Hann
sneri aftur heim til Rómarborg-
ar og nókkrum vikum síðar fór
Ingrid á eftir honum
Endurfundum þeirra á Italíu
hefur verið lýst sem róman-
tísku atriði úr kvikmynd. Þau
féllust I faðma og hann tjáði
henni ást sfna. Sfðan fóru þau 1
skoðunarferð um Italfu.
Þau voru elt
á röndum
Nú beindust allra augu að
þeim. Blaðamenn eltu þau á
röndum frá Róm til Kaprí og
ioks til eldfjallaeyjarinnar
Stromboli, þar sem kvikmynda-
taka fyrstu myndar þeirra átti
að fara fram.
Ingrid hneykslaði heiminn og
Þó sér i lagi Bandarikjamenn
með því að fara að „halda við“
italska leikstjórann Rossellini
árið 1949.
Þau hlutverk sem Ingrid
hafði getið sér bezt orð fyrir
hingað til voru þess eðlis að
fólk átti erfitt með að hugsa sér
hana sem venjulega dauðlega
veru af holdi og blóði. Hún
hafði m.a. leikið heilaga Jó-
hönnu og nunnu f annarri kvik-
mynd.
Það hneykslaði allan heim-
inn og ekki sfzt Bandarfkja-
menii að Ingrid skyldi leýfa
myndatökur af sér og elskhuga
sínum án þess að reyna að
leyna ástarsambandi þeirra á
nokkurn hátt. Bréf sem hún
skrifaði Peter Lindström var
birt f dagblöðunum. Það var
mjög hugnæmt og sagði þar
m.a. að það hefði ekki verið
ætlun hennar að verða ástfang-
-
’ Mœtti ég trufla þig
andartak, dulúðugo
frú?
Akkúrat! Við seljum hana aðeins
jAkki
broti af þeim sem rétt ílafa ó!
-------V
Ég er að kynna einstaka framleiðslu!
Húnler svo einstök að við seljum
hana ekki hverjum sem er! /
Kk MWV \