Dagblaðið - 09.07.1977, Blaðsíða 24
Yfír 20 milljón kr. launa-
krafa á SUÐRA enn ógreidd
Fyrrum skipverjar á flutn-
ingaskipinu Suðra, sem selt var
á nauðungaruppboði í Rotter-
dam í byrjun júní síðastliðins,
hafa enn ekki fengið greidd
vinnulaun sín. Samkvæmt upp-
lýsingum Ingólfs Ingólfssonar,
formanns Vélstjórafélags Is-
lands, eru launakröfur nokkuð
yfir 20 milljónir krðna í heild.
—
Ögreidd laun hafa forgang
fram yfir flestar aðrar kröfur
þegar skip er seld nauðungar-
sölu.
Ingólfur Ingólfsson sagði að
150 milljónir hafi verið
ógreiddar af kröfum á Suðra.
þegar söluandvirðið var uppur-
ið.
„Vafalaust eru margir því
harðir á því að vefengja ann-
arra kröfur sem á undan þeim
eru í kröfuröðinni,“ sagði Ing-
ólfur.
Ekki taldi hann þó neinn
vafa á að sjómennirnir fengju
laun sín greidd en sagði að mál-
ið hefði dregizt meira en búizt
hefði verið við í fyrstu.
Lögmenn Alþjóða flutninga-
verkamannasambandsins hafa
málið til meðferðar fyrir Is-
lendingana. Dagblaðinu er
kunnugt um að kröfur ein-
stakra sjómanna á hendur
Suðra nema allt að tveim
milljónum.
-ÓG
—
YFIR100 SOLUBORN HAFA NAÐ
1000 BLAÐA SÖLUM ARKINU
DB-myndir R. Th.Sig.
Guðmundur Kristmundsson, 12
ára gamall .blaðsölustrákur,
hreppti þriðju verðlaun í sölu-
happdrætti Dagblaðsins en þau
eru tennisspaðasett frá verzlun-
inni Útilífi. Guðmundur var alveg
klár á því hvernig ætti að nota
spaðana. „Ég hef sko spilað með
svona tennisspöðum áður og veit
allt um þetta.“
JH
— Hér er samankominn fyrsti
hópur sölubarna Dagblaðsins sem
fær Tinnabauk og eitt þúsund
krónur í verðlaun fyrir að selja
meira en eitt þúsund eintök af
Dagblaðinu sl. mánuð. Þegar hafa
nær eitt hundrað börn náð þessu
marki og fá þau sín verðlaun
strax og næst í þau. Það er sama
hvenær börnin byrja að selja því’
sölukeppnin miðast við þann dag
sem byrjað er að' selja en ekki
mánaðamót, þvi er um að gera
fyrir krakkana að vinda sér i
slaginn strax í dag.
II
frfálst, óháð dagblað
LAUGARDAGUR 9. JÚLl 1977.
Af hassmálum:
Rannsóknin
velá
veg komin
Rannsókn fíkniefnamál-
anna, sem staðið hefur yfir
hjá fíkniefnadeild lögregi-
unnar i Reykjavík og Saka-
dómi í ávana- og fikniefna-
málum, er nú vel á veg
komin, að sögn Arnars
Guðmúndssonar, fulltrúa
við dómstólinn.
Þrír ungir menn sitja nú í
gæzluvarðhaldi vegna rann-
sókna málanna, sem virðast
helst vera tvö aðskilin mál.
Þriðja málið sem rannsakað
var jafnhliða þessum
tveimur, virðist nær upplýst
ef marka má af því að vegna
þess situr nú enginn í gæzlu-
varðhaldi. Einn ungur
maður var úrskurðaður í
gæzluvarðhald í fyrradag og
tveir losnuðu úr gæzlu í gær.
Arnar Guðmundsson sagði
að rannsókn þessara mála
næði yfir mjög Iangan tíma
en færðist að öðru leyti
undan því að ræða málið.
Eins og DB hefur áður
skýrt frá mun talsvert magn
fíkniefna —hass og amfeta-
míns — hafa verið gert upp-
tækt. Rannsóknarmenn hafa
engar tölur viljað nefna í
þessu sambandi. ÓV
Boltinn sendur
ríkisstjórninni
Verðlagsnefnd afgreiddi
fyrstu málin eftir nýja
kjarasamninga til rikis-
stjórnarinnar á fundi sem
lauk um hádegi í gær. Ekki
var neitt gefið upp hvernig
ýmsum beiðnum um hækk-
un á seldri þjónustu hefði
verið tekið. Ríkisstjórnin
hefur því fengið sendan
fyrsta verðhækkunarbplt-
ann og á næsta leik. -ÓG
Hitabylgja og 20 stiga hiti
á Austfjörðum:
„Þetta köllum við
bara venjulegt
sumarveður”
„Við k.öllum þetta nú bara
venjulegt sumarveður hjá okk-
ur,“ sagði Bjarni Arthúrsson á
Egilsstöðum í viðtali við DB er
hann var inntur eftir hitabylgj-
unni sem kom þar nú rétt fyrir
helgina. „Það var tuttugu stiga
hiti í morgun, glampandi sól-
skin og hægur andvari," hélt
Bjarni áfram og kvað sólskinið
og hitann vera skrifstofufólki
og innisetumönnum til sárra
leiðinda. Þó væri bót í máli að
helgi væri í nánd og færi gæfist
þá á sólböðum og útiveru. Aust-
firðirnir verða krökkir af túr-
istum í hverri viku eftir komu
Smyrils en skipið kemur á
hverjum laugardegi til Seyðis-
fjarðar.
„Jú það er hitabýlgja hjá
okkur," sagði Vigfús Olafsson á
Reyðarfirði í samtali við DB.
„Fólk gengur um léttklætt og
nýtur góða veðursins.“ Vegur-
inn inn að Reyðarfirði spilltist i
rigningunum um síð’istu helgi
en strax var gert við hann svo
nú er hann öllum bílum fær.
Ferðamenn sem aka um Aust-
firði athuga ekki að aka frekar
fjarðaleiðina, þ.e. meðfram
ströndinni, í stað þess að fara
heiðarnar. Fjarðaleiðin er fær
allt árið og mun skemmtilegri
að aka hana, miklu meira að sjá
og sú leiðin alls ekki lengri.
Flestir Reykvíkingar myndi
sennilega óska þess núna að
komast austur á firði meðan við
Sunnlendingar verðum að kúr-
ast undir þykkum skýjabökk-
unum og sjáum aldrei til sólar.
-BH
Fósturjöröin lét sig við Flúðasel
Það er ekkert sináræðis fyrirtæki að koma steypubil á hjólin þegar hann hefur sokkið í fósturjörð-
ina og lagzt á hliðina. Slíkt gerðist við Flúðasel í Breiðholti skömmu f.vrir hádegi í gærmorgurt.
Bíllinn. sem er frá Ste.vpustöð B.M. Vallá, var fullur af steypu þegar gljúpur jarðvegurinn lét sig
skyndilega. Fullhlaðnir vega þessir bílar um 25 lestir svo ekki veitti af kranabíl og tveimur
steypubílum til viðbótar til að koma honum á réttan kjöl aö nýju. —ÁT/DB-mynd: Ragnar Th.
Sigurðsson. ®