Dagblaðið - 16.08.1977, Síða 1
Harmleik-
urinn í
Rauðhólum
Enn er allt óljóst um tildrög
harmleiksins í Rauðhólum síð-
degis í gær, þegar Einar
Hjörtur Gústafsson, 22ja ára,
varð jafngamalli unnustu sinni,
Halldóru Astvaldsdóttur, að
bana með nokkrum riffilskot-
um i háls og höfuð.
Einar Hjörtur liggur nú á
gjörgæzludeild Borgarspítal-
ans, en hann reyndi að ráða
sjálfum sér bana með riffilskoti
undir hjartað og slagæða-
skurðum á úlnliði. Skotið geig-
aði og fór í gegnum Einar Hjört
án þess að valda honum alvar-
legu sári.
Rannsóknarlögregla ríkisins
gat í morgun ekki gefið upplýs-
ingar um hvernig þennan voða-
atburð bar að, enda hefur lítið
verið hægt að yfirheyra Einar
Hjört, sem er illa haldinn bæði
andlega og líkamlega. Er því
óvist hvort Halldóra lét lífið í
bílnum sem þau voru á, eða
hvort lík hennar var flutt
þangað eftir skotárásina.
Tildrög voðaverksins í
Rauðhólum enn óljós
Það var laust fyrir kl. 17.30 í
gær að eldri hjón úr Reykjavik,
sem dvalizt hafa á sumrum við
Elliðavatn, komu að ljósblárri
Peugeot-bifreið með sænsku
skrásetningarnúmeri við fjár-
girðingu við afleggjarann að
Rauðhólum. Sat Einar Hjörtur f
framsæti bifreiðarinnar og var
mjög af honum dregið. í fram-
sætinu við hlið hans var lík
Halldóru, sem hann hafði
sveipað teppi. Skömmu síðar
bar þar að Reyni bónda Sveins-
son á Elliðavatni með 14 ára
gamalli dóttur sinni. Sáu þau
þegar hvers kyns var og þegar
þau komu að Peugeot-
bifreiðinni stundi Einar
Hjörtur upp: „Ég skaut mig.“
Þriðja bílinn bar þar að í
sömu svifum og sendi Reynir
hann þegar af stað til að gera
viðvart á Arbæjarstöð lögregl-
unnar. Gerði Reynir sfðan ráð-
stafanir til að hefta blóðrásina
úr úlnliðum Einars Hjartar, en
Þarna sátu Einar Kjörtur og Halldóra þegar að var komið siðdegis i
gær. Hún var þá látin og mjög af honum dregið.
DB-myndir: Ragnar Th. Sig.
Rannsóknariögreglumenn vinna að
hélt sfðan heim að Elnoavatni
og itrekaði hjálparbeiðni til lög-
reglunnar og sjúkraliðs. Komu
lögreglumenn og sjúkraliðar að
örskömmu sfðar og fluttu lfk
Halldóru burtu og Einar Hjört..
Þegar lögreglumenn komu að
var Einar með 22ja kalibera
riffil, með 6 skota magasfni, 1
höndunum, en veitti enga mót-
spyrnu og leyndi engu um það
sem gerzt hafði, að sögn rann-
sóknarlögreglunnar í morgun.
Þau Halldóra og Einar
Hjörtur hafa verið búsett í
Nyköping f Svíþjóð síðan í maí í
fyrra. Þau komu hingað til
lands með Smyrli sl. laugardag,
en bflinn keypti Einar Hjörtur í
Nyköping 14. júní í sumar, skv.
upplýsingum lögreglunnar í
Stokkhólmi. Ætluðu þau að
halda aftur utan næstu daga, en
akstursleyfi bifreiðarinnar hér-
lendis á sænsku númerunum
rennur út 15. september næst-
komandi. -ÓV/BS-
við Rauðhóla f gær.
Skotvopnið, 22ja kalibera, rússneskur riffill, settur i farangurs-
geymslu bifreiðar Rannsóknarlögreglu ríkisins.
Skattskrárnar á Austurlandi og Norðurlandi vestra:
SKOTARí
EFSTU SÆTUM
hæstu gjöld einstaklinga á þvf skatt-
svæði. Hann vildi ekki gefa upp tölur, en
kvað þær sendar Skýrsluvélum rfkisins,
þar eð um útlending væri að ræða. Coop-
er veiðir f Vfðidalsá. Gjöldin eru áætluð
á þá báða.
Skattskrár Austurlands og Norður-
lands vestra komu út í dag. Nánar verð-
ur greint frá hæstu gjaldendum í Dag-
blaðinu á morgun.
-AT/JH-
Skozkir laxveiðikóngar bera hæstu
gjöld einstaklinga á Austurlandi og
Norðurlandi vestra þetta árið. Brian
Booth major og gestgjafa Karls rfkisarfa
Bretlands er gert að greiða 13.340.098
krónur f heildargjöld, þar af 9.857.600 f
tekjuskatt. — Booth veiðir f Hofsá f
Vopnafirði.
Ragnar Jóhannesson skattstjóri Norð-
urlands vestra staðfesti f samtali við DB
f morgun að J.A. Cooper bæri að greiða
Stórslysíveltu
á Skúlagötu
Einhver óskiljanleg sfysa-
alda reið yfir umferðina f
Reykjavfk f gær. Árekstr-
arnir og óhöppin urðu yfir
20 talsins og slys og meiðsli
urðu I nfu tilfellum.
Alvarlegast varð slys á
mótum Kalkofnsvegar og
Skúlagötu. Þar var rúmlega
fimmtugur maður á ferð f
Chevrolet bfl sfnum. Öku
hraðinn var gffurlegur og
missti hann vald á bflnum á
beygjunni, lenti á Fiskifé-
lagshúsinu og síðan á staur.
Maðurinn er mikið slasaður
og þvi fáar skýringar enn á
slysinu. Er maðurinn i gjör-
gæzludeild, m.a. mjaðma-
grindarbrotinn. -ASt.
Iríálst
úháð
dagUað
3. ARG. — ÞRIÐJUDAGUR 16. AGtJSTi 197Í 176. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMCLA 12. AUGLÝSINGAR ÞVERHOLTI 11, AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 2 — {\ÐALSlMI 2702_2,
DB-strákar á
æfingu hjá meist-
urum Vals—sjá n>r<ttir