Dagblaðið - 16.08.1977, Page 6
6
DA(.HLAtJlt), l'KIÐJUDAGUR 16. ÁUUST 1977.
Grænlandsmið:
Eriend fiskiskip stela
afia fyrir milljaröa
Norðmenn, Vestur-
Þjóðverjar og Portúgalar
veiddu helmingi meiri þorsk
við Grænland en þeir höfðu
samið um. Þetla kemur niður á
veiðum Grænlendinga og fisk-
vinnslu þar, að því er danska
hlaðið Politiken segir. Itundruð
manna eiga það á hættu að
verða atvinnulaus ef veiðum
þessara þjóða verður ekki
þrengri stakkur skorinn.
1 Grænlandi er mikið rætt og
ritað um þetta mál og i léiðara
grænlenzka blaðsins Atuagag-
dliutit segir að þessar þrjár
þjóðir hafi hreint og beint
stolið afla af Grænlandsmiðum
sem er virtur á tæpa fimm
milljarða íslenzkra króna.
Grænlenzka blaðið segir að
við Vestur-Grænland hafi Norð-
ntenn, Vestur-Þjóðverjar og
Portúgalar veitt um 2600 tonn-
um of mikið af þorski.
Leyfilegt er að veiöa 31 þús-
und tonn við Grænland í ár. Nú
hefur verið gengið svo á þenn-
an .kvóta að eftir er að veiða
3000 tonn. Það er þvi ekki
mikið eftir fyrir Grænlendinga
og þess vegna horfir fólkið
fram á mikið atvinnuleysi.
Það tók ekki langan tima
fyrir þessar þjóðir að veiða upp
í kvótann sinn. Vestur-
Þjóðverjar hættu veiðum í mai
og Portúgalar í júni, en samt
hafa þeir verið búnir að veiða
miklu fyrr upp í kvótann sinn
ef þeir hefðu veitt mikið fram
yfir hann. Þau 3000 tonn, sem
nú á eftir að veiða af kvótanum,
eru ætluð litlum grænlenzkum
bátum. Togarar mega ekki eiga
neinn hlut í því að koma þess-
um afla á land. Þessa ákvörðun
tóku stjórnvöld í Danmörku
eftir að hafa fengið upplýsing-
ar um hversu mikið var veitt
fyrri hluta þessa árs.
Kvóti fyrir rækjuveiðar við
Grænland var 36 þúsund tonn á
þessu ári. Þrátt fyrir það hve
stór þessi kvóti er hafa skip
næstum veitt upp allt leyfilegt
magn. Rækjuveiðar eru stund-
aðar á Diskóflóa. Það getur því
vel farið svo að það þurfi einnig
að hætta þeim áður en árið er'
liðið.
Hvað Grænlandsmálaráðu-
neytið hyggst gera til að bæta
úr fyrirsjáanlegu atvinnuleysi
er ekki ljóst ennþá en það er
útséð um það að ekki geta ráða-
menn setið auðum höndum í
kóngsins Kaupinhöfn.
New York:
Fetar í fótspor
Sonar Sams
og skýtur á fólk
— myrti feðgin þar sem þau sátu í
bíl sínum
Kona og maður voru myrt í
New York og halda mætti að
þar væri að verki Sonur Sams.
Morðóður maður virðist þvi
vera á ferðinni í borginni og
hann fer að á sama hátt og
Sonur Sams, eða David Berko-
witz, eins og hann heitir réttu
nafni. Maður um fimmtugt og
dóttir hans,.24 ára, urðu fórnar-
dýrin, en þau voru skotin af
stuttu færi þar sem þau sátu í
bil á Long Island. Lítill drengur
var einnig í bílnum en morðing-
inn þyrmdi lífi hans. Fórnar-
dýrin voru með mikla peninga
á sér og hirti morðinginn þá, en
David Berkowitz rændi aldrei
fórnardýr sin. Enginn veit
hvort fleiri eiga eftir að falla
fyrir riffli mannsins, en hans er
nú leitað.
Sonur Sams kemur varla til
með að svara til saka fyrir
glæpi sína, vegna þess að full-
víst er talið að hann verði
dæmdur ósakhæfur. Eins og
fram hefur komið sagði Berko-
witz að hann hefði fengið skipan-
ir um verknaðinn frá hundi
sem nágranni hans á.
David Berkowitz ieiddur til yfirheyrslu í New York stuttu eftir að hann náðist.
Reynir að gera það gott
— lögfræðingur reyndi að selja upptökur sem gerðar voru
af yfirheyrslum yfir Syni Sams
Eins og 350 fótboltavellir. Nýlega var lekin í notkun sla'rsla skiplistöð fyrir járnbrautir í
Kvrópu. Slöðin er nálægl Hamborg í Veslur-Þýzkalandi. Sú umferð sem fer um stöðina fór áður uni
fiinm aðrar slöðvar í nágrenni Hamhorgar. Það tók sjö ár að byggja stöðina og hún mun hafa kostað
um 800 milljón mörk. Járnhraularstöðin er álíka slór og 350 fólboltavellir og það þurfli að leggja um
300 kílómclra af járnbraularleinum Ii 1 að koma stöðinni i gagnið.
Lögfræðingur sá sem yfir-
heyrði Son Sams, eða David
Berkowitz, sem gekk um New
York borg og skaut fólk, hefur nú
reynt að selja segulbandsupptöku
sem gerð var meðan á yfirheyrsl-
um stóð. Hann bauð New York
Daily News spólurnar til kaups á
50 þúsund Bandaríkjadali. Tals-
maður blaðsins hefur sagt að það
hafi ekki viljað ganga að tilboði
lögfræðingsins, Philip Peltz.
Unnið er stöðugt að yfirheyrsl-
um yfir Berkowitz, en það hefur
komið fram að hann hefur aðeins
verið ákærður fyrir að hafa myrt
konu þá sem hann skaut til bana
þar sem hún sat i bíl ásamt unn-
usta sínum í Brooklyn í New
York.
Nepal:
Með glóandi
málmþynnu í
lófanum
— ef þií brennir þig þá ertu sekur um glæp
Það er eldurinn sem ákveður
hvort fólk er sekt eða saklaust í
samfélagi steinsmiða i Siddharth-
anagarhéraði i súövesturhlula
Nepal. Þar er glóandi málmplata
lögð t lófa hins grunaða en undir
henni eru höfð þrjú laufblöð sem
.eru smurð með feiti. Ilinn grun-
aði er svo látinn halda á rauðgló-
andi málmpliitunni og ganga í
hægðum sinum upp þrjú stein-
þrep. Ef lófi hins grunaöa er
brenndur eftir að hann hefur
komizt upp þrepin þrjú er liann
sekur, ef ekki er viðkomandi sak-
laus.
í frétt frá fréttastofu Nepal seg-
ir að fyrir skömnni hafi fimmtug
kona gengizt undir þessa þolraun
og liafi kotnið alveg óbrennd úr
rauninni. Hún var þvi dæmd sak-
laus. Ekki eru þorpsbúar þó alveg
sáttir við það vegna þess að sann-
anir fyrir því að hún hafi stolið
ýmsum hlutum eru fyrir hendi.
Þvi er nú svo koinið að þorpsbúar
telja þetta ekki eins óskeikula að-
ferð og forfeður þeirra en saint er
henni beitt enn þann dag i dag.