Dagblaðið - 16.08.1977, Side 15
DAGBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. AGUST 1977
15
Þeir detta um koll
af undrun þegar þeir
heyra að ég sé að
verða hundrað og eins
—segir kona sem fjdrum sinnum hefur
verið skorin upp fyrir krabbameini og
lætur ekki eftir sér að vera þunglynd
„Mér llður alls ekki eins og
ég væri hundrað ára, miklu
frekar svona álika og þegar ég
var sextíu og fimm,“ sagði frú
Vinona Melick, sem búsett er í
Long Beach i Kaliforníu. Hún
verður hvorki meira né minna
en hundrað og eins árs 22. októ-
ber næstkomandi.
Frúin er með eindæmum
heilsuhraust og þakkar hún
langlífi sitt og frábæra heilsu
að hún hefur alla tið stundað
líkamsæfingar, borðað hollan
og gððan mat, aldrei horft á
sjónvarp, drukkið áfenga
drykki, kaffi eða te, né reykt
sigarettur.
Á hverjum morgni gerir frú
Melick kröftugar leikfimi;æf-
ingar og hún gengur hjálpar-
laust til kirkju á sunnudögum.
Frú Melick býr ein á annarri
hæð og hugsar algjörlega um
sig sjálf, fer meira að segja
sjálf I búðir til að kaupa inn
það sem hún þarf á að halda.
Hún segist aldrei hafa haft
neina ánægju af sjónvarpinu.
„Eg hef aldrei horft á sjón-
varp,“ segir hún. „En mér er
alveg sama þótt fólk vilji eyða
tíma sínum 1 að horfa á það. Ég
hef bara ekki tima til þess.“
Frú Melick hefur i staðinn
ofan af fyrir sér með þvi að lesa
nokkur dagblöð á hverjum degi
og siðan hlustar hún mikið á
útvarpið. Hún tekur einnig
virkan þátt í stjórnmálum.
Ekki nóg méð að frú Melick
sé orðin svona gömul og sé enn
v-ið þessa góðu heilsu, heldur
hefur hún fjórum sinnum þurft
að gangast undir skurðaðgerðir
vegna krabbameins.
Fyrsta aðgerðin var gerð árið
1918 en þá þurfti að fjarlægja
stóran hluta af smáþörmunum
vegna krabbameins. Var það
gert af hinum frægu Mayo
bræðrum á spltalanum þeirra 1
Rochester í Minnesota, Mayo
Clinic.
„Ég geri ekki ráð fyrir að ég
væri á lifi í dag ef ég hefði ekki
gengizt undir þessa aðgerð sem
var mjög sjaldgæf í þá daga,“
segir frú Melick.
Krabbameinið gerði næst
vart við sig árið 1966 og þá
reyndist nauðsynlegt að fjar-
lægja annað brjóst frú Melick.
Þriðja meinið var fjarlægt úr
smáþörmunum árið 1968 og
loks þurfti hún að gangast
undir aðgerð á nefi vegna
krabbameins árið 1973.
Þrátt fyrir allar þessar að-
gerðir segir frú Melick að hún
láti aldrei eftir sér að vera
þunglynd.
„Ef þér finnst þú vera niður-
Hún er aldeills spræk þessi hundrað ára gamla kona, frú Meiick tra
Ksdiforniu. Hún hefur eignazt tvö börn um svina en er fyrir löngu
orðin ekkja. Hún fæddist 22. október 1876!
dregin skaltu bara rísa á fætur
og finna þér eitthvað til þess að
gera til þess að dreifa hugan-
um,“ segir hún. Eitt af þvi sem
hefur reynzt henni vel i barátt-
unni gegn þunglyndi er að baka
brauð.
Frú Melick segir að það fari i
taugarnar á sér þegar hún hitti
fólk sem sé kveinandi og kvart-
andi þótt það sé ekki nema t.d.
áttatíu og fimm ára.
„Það ætla allir að detta um
koll af undrun þegar þeir heyra
að ég sé að verða hundrað og
eins!“ segir hún og þykir kann-
ski engum mikið! Sú gamla
hefur gaman af því að koma
fólki svona á óvart.
Þýtt A.Bj.
BERGMAN,
ULLMANN OG
BERGMANN
Ihgrid Bergmann
íngmar Bergman
Liv Ullmann
Eftir nokkrar vikur byrjar
Ingmar Bergman að taka nýja
mynd í Noregi. Hefur hann
fengið til liðs við sig þær Liv
Ullmann og Ingrid Bergmann.
Fara þær með hlutverk móður
og dóttur enda passar aldur
þeirra vel saman, Liv er þrjátíu
og átta ára og Ingrid sextíu og
tveggja.
Ingmar sjálfur er núna i frii
á eyju sinni undan strönd Fárö,
en býr sig undir að koma til
Noregs i byrjun september.
Liv Ullmann segist hlakka til
þess að leika á móti Ingrid
Bergmann.
„Ég hitti hana nýlega í New
York,“ sagði hún i viðtali við
sænska Aftonbladet. „Ég hef
alltaf borið mikla virðingu fyrir
henni. Þetta verður i fyrsta
skipti sem ég fæ tækifæri til
þess að leika á móti henni.
Handrit Ingmars er mjög gott
eins og að likum lætur. Það
minnir að mörgu leyti á Myndir
úr hjónabandi, nema hvað i
myndinni verður sagt frá sam-
skiptum móður og dóttur,“
sagði Liv.
Hún lék í mynd sem Ingmar
Bergman stjórnaði og tekin var
1 fyrrahaust I Miinchen, Egg
maðksins. Sú mynd verður
frumsýnd nú mjög bráðlega.
Ingrid Bergmann hefur aftur
á móti ekki leikið i kvikmynd í
Evrópu sl. fjörutíu ár. t sumar
hefur hún leikið i leikhúsum i
Englandi.
Siðasta kvikmynd Ingrid
Bergmann var talin eitt mesta
hneyksli áttunda áratugsins.
Það var þó enginn annar en
Vincent Minelli sem stjórnaði
og Liza, dóttir hans, var með
eitt aðalhlutverkið.
Ingritj Bergmann þarf ekki
að vera smeyk um að slíkt
endurtaki sig þegar nafni henn-
ar stendur bak við kvikmynda-
tökuvélina. Má alveg gera ráð
fyrir að þetta verði ein af síð-
ustu stórmyndum sem hún
leikur í, segir i Aftonbladet.
Eftir að lokið verður við
þessa kvikmynd hyggst Liv Ull-
mann snúa sér að leikhúsleik
heima í Þrændalögum. Henni
hafa borizt fjölmörg gylliboð
frá Bandaríkjunum en þar
vakti hún geysilega athygli I
hlutverki önnu Christie.
Suzie Burton á
Costa Del Sol
Suzie Burton brá sér til Costa del Sol á Spáni um daginn. Ekki höfum við frétt af neinum fslenzkum
sóidýrkanda sem hitti hana þar, en hver veit.
Annars hefur Suzie unnið sér það helzt tll frægðar að vera gift Jim Hunt heimsmelstara f kappakstrl
en sfðan skildi hún við hann og giftist Richard Burton, þeim sem áður var eiginmaður Elizabetar
Taylor.
Nýkomið:
Kvenbuxur,
stórar stærðir,
margirlitir
Elízubúðin
Skipholti 5