Dagblaðið - 29.10.1977, Síða 4
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 29. OKTOBER 1977.
Kl. 14,00 Fmnland — Svíþjdð á Akranesi
Kl. 16,00 ísland — Danmörk í Laugardalshöll
—------------Handknattleikssamband íslands
Nú liggja Danirnir!
Læstir eldhússkápar ættu
að vera á hverju heimili
í Iðnaðar-
mannahiisinu við
Hallveigarstíg
og hefst
— ungbarnahjúkrunarkonurnar
leiðbeina f oreldrum um slysavarnir
íheimahúsum
„Svíar segja að heimilin séu
hættulegasti staðurinn fyrir börn
á forskólaaldri,-' sagði Bergljót
Líndal forstöðukona Heilsuvernd-
arstöðvar Reykjavíkur í samtali
við DB.
,,Nú stendur til að fara að gefa
gaum að slysavörnum barna í
heimahúsum, sem við höfum
nánast ekki rækt sem skyldi á
undanförnum árum. Ætlunin er
að hjúkrunarkonurnar sem
heimsækja heimilin á vegum ung-
barnaeftirlitsins hafi meðferðis
blað, þar sem athygli er vakin á
helztu slysagildrunum sem eru á
heimilinu. Við vonumst til þess að
foreldrar taki þessu vel, en sam-
vinna ungbarnadeildarinnar við
foreldra hefur verið prýðilega
góð. Hjúkrunarkonurnar munu
leiðbeina foreldrunum um ýmsar
fyrirbyggjandi ráðstafanir sem
hægt er að gera,“ sagði Bergljót.
A listanum sem útbúinn hefur
verið eru talin upp tólf atriði, sem
geta verið hættuleg. Má þar nefna
t.d. föt, skartgripi, plastdúka, og
■poka, eldavél, potta og pönnur og
lyf.
„Fólki finnst kannske skrítið
að föt geti verið hættuleg. En það
geta þau svo sannarlega verið og
nægir að minnast á dúska, háls-
bönd og húfur, sem ná kannske
allt of langt fram á andlitið og
byrgja útsýn til hliðanna. Það á
þó aðallega við um eldri börn. Það
er svo margt sem hægt er að gera,
sem er í rauninni sáralítil fyrir-
höfn af eins og t.d. að hafa
snúruna I hraðsuðukatlinum
ekki nema örstutta. Mjög æskilegt
er, ef ekki nauðsynlegt, að hafa
læstan skáp I eldhúsinu, þar sem
hægt er að geyma hreinlætis-
vörur, svo ekki sé talað um læstan
lyfjaskáp. Mér til mikillar ánægju
sá ég á heimilissýningunni í
sumar að nokkrar eldhús-
innréttingar, sem þar voru sýnd-
ar, höfðu læstan skáp. Mér finnst
blátt áfram að það ætti að gera
slíkt að algjörri skyldu,“ sagði
Bergljót Líndal.
-A.Bj.
Munið
Ijósa-
stillingu
1977
Bílatún hf.
Sigtúni3
Sími27760
Reykjavík
210 þús. tonn af loðnu
Góður síldaraf li og allt
fullt af f iskimjöli
Nú er talið að um 210 þúsund
tonn hafi veiðzt af loðnu á
miðunum og eru 32 skip nú á
veiðum 130 mílur í hánorður af
Siglufirði.
Hafa flest skipin landað þar
að undanförnu og eru miklir
uppgripatímar fyrir Sigl-
firðinga um þessar mundir.
Sigurður RE er enn afla-
hæstur, en þeir hjá Loðnu-
nefnd treystu sér ekki til þess
að segja nákvæmlega hvað
hann væri búinn að fá, eða þau
skip sem núna eru að veiðum,
þar eð þau væru að fylla sig og
ekki vitað nákvæmlega hvað
þau væru með mikið.
Höfn í Hornafirði er hæsti
sildarlöndunarstaðurinn á þess-
ari vertíð, þar hafa verið
saltaðar um 5200 tunnur. Eitt-
hvað hefur verið um landanir
syðst á Austfjörðum, en Vest-
mannaeyjar koma í kjölfar
Hafnar, hvað tunnufjölda
snertir. Þar er talið að búið sé
að salta í um 5000 tunnur, en
annars eru Vestmannaeyingar
önnum kafnir þessa dagana við
útskipun á alls kyns fiskimjöli.
Allar skemmur eru þar fullar
af mjöli, bæði loðnumjöli og
öðrum tegundum, og liggja
fimm flutningaskip í höfninni.
Annar afl. hefur verið
tregur, en þeir eru að flytja sig
af spærlingnum yfir í nótina
þessa dagana og auk þess hefur
verið leiðindaveður undanfarið
á miðunum undan Suðurlandi.
Bolfiskafli hefur verið
lélegur á Suðurnesjum að und-
anförnu og sömu sögu var að
segja um Vestfjarðakjálkann.
Þar hafa flestir togaranna verið
i slipp og bræla verið tíð.
Segja þeir fyrir vestan, að
þetta sé nú sá tfmi árs sem
veðurfar er hvað óheppilegast
og bjuggust við, að þar myndi
aflinn glæðast upp úr ára-
mótum. -HP.
I flestöllum eldhúsum eru stðr-
hættulegir hreingerningarvökvar
í skápum, sem litlir krakkar eiga
auðvelt með að komast í. Flest
slys á börnum í heimahúsum
verða einmitt í sambandi við að
börnin borða annaðhvort lyf eða
einhverjar hreingerningarvörur.
DB-myndir Sveinn Þormóðsson.
Einföld varúðarráðstöfun er að Gætið þess að hafa sköftin á
hafa snúruna á hraðsuðukatlin- pottunum ekki út fyrir elda-
um örstutta þannig að hún lafi vélina.
aldrei út fyrir borðröndina.