Dagblaðið - 29.10.1977, Blaðsíða 7
i) ACBI.AÐIÐ. LAUGARDAC.UR 29. OKTÓBER 1977.
7
Tryggingastofnun tekur fyrir fyrirframgreiðslur — jafnvel þótt mikið liggi við:
SPARNAÐURINN NEMUR
TVEIM RÁÐHERRAVEIZLUM
—segir háttsettur starf smaður
stofnunarinnar
Fyrirframgreiðslur á trygginga-
bótum verða ekki leyfðar frá og
með næstu áramótum, þrátt fyrir
tilmæli tryggingaráðs og
Tryggingastofnunar rikisins um
að þær verði leyfðar eins og verið
hefur.
„Með þessari ráðstöfun kunna
að sparast vextir sem nema tveim
til þrem ráðherraveizlum á ári“,
sagði háttsettur starfsmaður þess-
arar stofnunar er fréttamaður
spurði um ástæður fyrir þessari
ákvörðun stjórnarráðsins.
Um langt skeið hefur það
tíðkazt, að lífeyrisdeild
Tryggingastofnunarinnar hefur
hlaupið undir bagga með bótaþeg-
um trygginganna með nokkurri
fyrirframgreiðslu tryggingabóta.
Þessar fynrframgreiðslur bóta
hafa verið leyfðar þegar bótaþegi
hefur þurft að leysa brýn fjár-
hagsvandkvæði. Hefur þetta eink-
um átt sér stað þegar leysa hefur
þurft húsnæðisvandamál eða
aðrar mjög aðkallandi þarfir.
Slík fyrirgreiðsla hefur þó ekki
l
verið í stærri stil en svo að fyrir-
framgreiðsla til hvers bótaþega
hefur verið dregin frá bótúm
hans á yfirstandandi ári og skuld
þvi ekki staðið um áramót.
Nú hefur ríkisendurskoðunin
gert athugasemd við þessa fram-
kvæmd. Bent er á að engin laga-
heimild sé fyrir því að slík fyrir-
greiðsla sé veitt. Bein lagaheimi’d
bannar hana heldur elcki og
liggur löng hefð að baki þessarar
aðstoðar þegar bótaþegi hefur
ekki átt í önnur hús að venda.
Nú hefur Tryggingastofnunin
og umboð hennar fengið fyrir-
skipun um að hætta fyrirfram-
greiðslu bóta, sem fyrr segir.
„Þurfa þeir, sem i hlut eiga, þess
vegna að vera við þvi búnir að
leita annarra ráða til þess að
mæta þeim vanda sem áður hefur
verið mætt með fyrirframgreiðslu
bóta,“ segir í bréfi sem
Tryggingastofnunin hefur sent
nokkrum bótaþegum um þetta
mál.
Oft er þröng á þingi í afgreiðslusal Tryggingastofnunar ríkisins,
enda veitir bótaþegunum víst ekki af peningunum.
Kiwanismenn:
Vinna að málefnum geðsjúkra
þjóðarinnar í málefnum geð-
sjúkra og þess vegna er áfram
unnið að málefnum þeirra á
vegum Kiwanishreyfingarinnar.
Fulltrúar Islands hafa gegnt
æðstu embættum innan Evrópu-
hreyfingarinnar. Á starfsárinu
sem er að ljúka hefur Bjarni B.
Ásgeirsson verið Evrópuforseti
hreyfingarinnar. Um siðustu
mánaðamót urðu stjórnarskipti í
umdæmisstjórninni á íslandi. Þá
lét Bjarni Magnússon útibússtjóri
af starfi en við tók Ölafur Jens-
son. Fulltrúar í Evrópustjórn
verða á næsta ári þeir Eyjólfur
Sigurðsson, Bjarni Magnússon
og Olafur Jensson.
Staða rafveitustjóra
Skagafjarðarveitu
með aðsetrí á Sauðárkróki er laus til
umsóknar
RafvirKja- og framhaldsmenntun æskileg.
Umsóknum með upplýsingum um aldur, menntun og
fyrri störf sé skilað til Rafmagnsveitna ríkisins, Lauga-
vegi 116, Reykjavík fyrir 15. nóv. nk. A sama stað eru
veittar allar nánari upplýsingar um starfið.
Rafmagnsveitur ríkisins
Laugavegi 116
Reykjavík
Vikan
Sölubörn óskast Uppl. ísíma 36720
i eftirtalin hverfi á Seltjarnarnesi og íReykjavík
Hverfi 2:
LÁTRASTRÖND
FORNASTRÖND
SELSTRÖND
SKOLABRAUTREST
MELBRAUT REST
SUÐURBRAUT
UNNARBRAUT
BAKKAVÖR
Hverfi 8:
SELJAVEGUR
FRAMNESVEGUR
HOLTSGATA
VESTURGATA
BREKKUSTÍGUR
SJAFNARGATA
BAKKASTÍGUR
HRINGBRAUT AÐ
HOFSVALLARGÖTU
VESTUR AÐ
BRÆÐRABORGARSTÍG
Hverfi 9:
BRUNNSTÍGUR
MÝRARGATA
NÝLENDUGATA
RANARGATA
BARUGATA
STÝRIMANNASTÍGUR
UNNARSTÍGUR
MARARGATA
HRANNARSTÍGUR =
ÖLDUGATA = ÆGISGATA
Hverfi 11:
SUÐURGATA
STURLUGATA
ODDAGATA
ARAGATA
LÖUGATA
ÞRASTARGATA
FÁLKAGATA
SMYRILSVEGUR
GRÍMSHAGI
LYNGHAGI
STARHAGI
Hverfi 12:
EINARSNES
GNITANES
BAUGANES
AUSTURNES
SKILDINGANES
FÁFNISNES
SKELJANES
SHELLSTÖÐIN
Vikan
Hverfi 13:
BALDURSGATA
VÁLASTÍGUR
NÖNNIJGATA
HAÐARSTÍGUR
FREYJUGATA
BRAGAGATA
FJÖLUGATA
SÖLEYJARGATA
Hverfi 17:
SÆTC V
STEINTUN
BORGARTUN
SKULATUN
HÖFÐATUN
LAMBTUN
MIÐTUN
hátun
Hverfi 18:
STAKKHOLT
MJÖLNISHOLT
BRAUTARHOLT
NÖATUN
SKIPHOLT AÐ
NÖTATUNI
STANGARHOLT
STÖRHOLT
FLÓKAGATA
MEÐALHOLT
EINIIOLT
ÞVERHOLT
HATEIGSV. AÐ
LÖNGUHLÍÐ
Bjarni Magnússon afhendir Ólafi Jenssyni. arftaka sínum sem
umdæmisst.iora, takn embættisins, fundainamar og bjöilu. Bjarni B.
Asgeirsson, forseti Evrópustjórnarinnar, var viðstaddur athöfnina.
Tólf hundruð félagar starfa nú
í 32 Kiwanisklúbbum á íslandi,
eru fleiri félagar hér á landi en
víðast hvar annars staðar ef
höfðatölureglan er notuð. 1 dag er
K-dagur, dagur Kiwanis-
hreyfingarinnar.
Eins og fram kom í blaðinu í
gær munu félagar nota daginn til
að vinna að málefnum geðsjúkra,
fólksins, sem ekki hefur stofnað
félög sér til stuðnings.
Teiur hreyfingin að mikil þörf
sé á að vakning verði meðal