Dagblaðið - 19.11.1977, Page 15
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 19. NDVFMBKR 1977.
15
JÁ, FYRR MÁ NÚ ALDEILIS FYRRVERA
Nýjasta hljómplata Halla og Ladda var kynnt í veitingahúsinu
Oðali síðastiiðinn þriðjudag,— einmitt sama dag og útgefandi
plötunnar, Hljómplötuútgáfan hf. varð tveggja ára gömul. I tilefni af
því boðaði Jón Ölafsson framkvæmdastjóri Hijómplötuútgáfunnar
til blaðamannafundar. Jón var sá eini af aðaleigendunum sem var
viðstaddur. Magnús Kjartansson var staddur á fiskiskipi út af
Vestfjörðum og Vilhjálmur Viihjáimsson var í Kenya.
Á meðfylgjandi mynd eru þeir Haili og Laddi samankomnir ásamt
nokkrum þeirra sem aðstoðuðu við gerð plötunnar. Upptökustjóri
hennar var Tómas M. Tómasson, Björgvin Halldórsson söng miili-
raddir með þeim bræðrum, Þórður Arnason sá um gítarleik og
Sigurður Karisson barði bumbur. Það er Jón Ólafsson sem Halli
heldur í járngreipum sínum.
Plata þeirra bræðra, sem ber nafnið Fyrr má nú aldeiiis fyrrvera,
kemur í verzlanir á mánudaginn. DB-mynd Arni Páll.
Hve margar
hljóm-
plötur
koma út
fyrirjólin?
Hversu mikill skyldi
hann vera, samdrátturinn
frá því í fyrra? Alkunna
er, að útgáfa og saia á
hljómplötum hefur dregizt
saman frá því sem var í
fyrra. Góðærið er liðið.
Fyrir jólin í fyrra komu
á markaðinn um þrjátíu
stórar hljómplötur. 1 Dag-
biaðinu á mánudaginn
verða allar plöturnar
taldar upp, sem fólki gefst
kostur á að velja úr að
þessu sinni. A undan-
förnum þremur til fjórum
árum hefur það færzt
stórum í aukana að hljóm-
plötur séu í jólapakkanum,
svo að tilvalið er að semja
óskaiistann sem fyrst.
Gkki er ráð nema í tima sé
tekið.
Nýja ABBA-
platan kemur
fyrir jól
Nýja stóra platan með ABBA
kemur eftir allt saman út á
jólamarkaðinn. Nýjustu áætl-
anir eru miðaðar við að 12. des-
ember komi hún í búðir í Sví-
þjóð. Fyrri fréttir sögðu að plat-
an yrði ekki tilbúin fyrr en í
febrúar í fyrsta lagi og að hún
ætti að vera tvöföld. Plata'n
verður hips vegar einföld.
Reynt var að ná sambandi við
Stikkan Anderson fram-
kvæmdastjóra ABBA-veldisins
og afla upplýsinga hjá honum
um nýju plötuna en hann var
ekki við látinn. Einkaritari
hans var hins vegar til í að
segja það sem hún vissi. Hún
var fyrst spurð að því hvort
nýja platan væri hin dæmi-
gerða ABBA-plata eða hvort
einhverjar breytingar væru
gerðar frá fyrri plötum.
„Ja, hvað á maður að segja,“
svaraði hún. „Það er náttúr-
lega auðheyrt að þarna eru
ABBA á ferðinni. En það er
líka auðheyrt að þau hafa þró-
azt mikið frá þvi að síðasta
plata, Arrival, var gerð.“
Ekki vissi einkaritarinn
hversu margir stúdíótímar
hefðu farið i að taka nýju plöt-
una upp, en sagði að mörg lög
og textar hefðu orðið til þar,
svo að ekki hefði verið horft í
þá. Hún var fremur treg til að
segja frá því hve mikið upptak-
an hefði kostað, — vissi ekki
hvort hún mætti það. Að lokum
viðurkenndi hún að heildar-
upphæðin hgfðiverið um 150
þúsund sænskar krónur.
Hljómplatan Arrival, sem
kom út í fyrra, hlaut prýðis-
góðar viðtökur víða um heim. í
Svíþjóð einni seldust 700 þús-
und eintök af henni og talan
fyrir allan heiminn er einhvers
Síðasta LP plata ABBA hlaut geysilega góðar viðtökur um allan heim. Hún seldist í milli fimm og sex
miiijónum eintaka. Fróðlegt verður að sjá, hvort nýja platan hlýtur aðrar eins vinsældir. — DB-mynd:
Ragnar Th. Sigurðsson.
staðar á bilinu fimm og sex
milljónir.
Meðlimir Abba hyggjast
halda að mestu leyti kyrru fyrir
í Svíþjóð í vetur. Engin
hljómleikaferðalög eru áætluð
hvorki um Sviþjóð né aðra
hluta heimsbyggðarinnar.
- Ragnar Th. /AT -
Bee Gees eru enn á ferðinni
— komnir á topp tíu á
báðum vinsældalistum
How Deep Is Your Love nefn-
ist nýjasta lag hljómsveitarinn-
ar Bee Gees. Þessa vikuna
kemst það inn á topp tiu bæði í
Englandi og Bandaríkjunum. t
Englandi er það i sjöunda sæti
og því sjötta hinum megin við
hafið.
Að öðru leyti er enski vin-
sældalistinn þessa vikuna
blanda af formúlutónlist og
öðrum, sem hægt er að flokka
yfir meðallag músíklega séð.
Þar ber að sjálfsögðu hæst lag
hljómsveitarinnar Queen, We
Are All Champions.
Vert er að vekja athygli á
laginu í níunda sæti í Englandi.
Þar er á ferðirffii brezka hljóm-
sveitin Showaddywaddy með
lag sem nefnist Dancing Party.
Showaddywaddy er bezt þekkt
fyrir tónlist, sem kalla má
satírurokk, það er háðslegar
eftirlíkingar af tónlistinni, sem
flutt var fyrir 1960. Meðlimir
hljómsveitarinnar eru einir
átta talsins og á sviði eru þeir
klæddir samkvæmt tízkunni
fyrir 15—20 árum, með
brilljantín í hárinu og sviðs-
framkomu í stíl.
Bandarfski vinsældalistinn
er einnig mjög blandaður, 'en
öllu öðruvísi en sá enski. Þar er
skiptingin grjóthörð soul/disco
tónlist og síðan róleg, hugljúf
sönglög. Tvö efstu lögin eru
ágætt dæmi um þetta. Debbie
Boone — dóttir Pats gamla
Boone — er í fyrsta sæti með
rólegt fallegt lag, You Light Up
My Life. Enska soulhljómsveit-
in Heatwave er síðan í öðru
sæti með bezta lag sitt til þessa,
Boogie Nights. íslenzkum sjón-
varpsáhorfendum gafst kostur
á að sjá Heatwave á skjánum
fyrir nokkrum vikum.
Ef litið er á vinsældalista
annarra landa þá er Baccara í
efsta sæti í V-Þýzkalandi með
lagið Sorry, I’m A Lady. Þetta
lag hefur notið mikilla vin-
sælda þar um langt skeið. Hoi-
lendingar eru þjóðlegir þessa
vikuna. Þar er lagið Het
Smurfenlied númer eitt. Flytj-
endur eða flytjandi þess nefn-
ist Vaderabraham. (Skyldi það
þýða Faðirabraham á ís-
lenzku?)
I Hong Kong er Steve Milier
Band í efsta sæti með Jungle
Love.
- AT-
ENGLAND — Melody Maker 1. (1) NAME OF THE GAME 2. ( 4 ) ROCKIN' ALL OVER THE WORLD ABBA
3. ( 2 ) YOU'RE IN MY HEART 4. ( 3 ) 2-4-6-P MOTORWAY 5. ( 5 ) WE ARE THE CHAMPIONS 6. ( 6 ) YES SIR, 1 CAN BOOGIE ROD STEWART TOM ROBINSON
7. (13) HOW DEEP IS YOUR LOVE 8. ( 9 ) CALLING OCCUPANTS OF INTERPLANETARY CRAFT 9. (21) DANCING PARTY 10. (18) LIVE IN TROUBLE CARPENTERS SHOWADDYWADDY
BANDARÍKIN — Cash Box 1. (1) YOU LIGHTUP MY LIFE 2. ( 3 ) BOOGIE NIGHTS DEBBY BOONE
3. ( 5 ) DON'T MAKE MY BROWN EYES BLUE 4. ( 2 ) NOBODY DOES IT BETTER CRYSTAL GAYLE CARLY SIMON
5. ( 6 j STAR WARS THEME MECO
6. (14) HOW DEEP IS YOUR LOVE BEEGEES
7. ( 8 j IT'S ECSTASY WHEN YOU LAY DOWN NEXT TO ME . 8. ( 9 ) HEAVEN ON THE SEVENT FLOOR BARRY WHITE
9. (11) BABY, WHAT A BIG SURPRISE CHICAGO
10. (10j JUST REMEMBER 1 LOVE YOU FIREFALL