Dagblaðið - 28.01.1978, Page 3
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 28. JANUAR 1978.
BORGA BANKARNIR OPINBER
GJÖLD EINS OG ÖNNUR FYRIRTÆKI?
Borgari hringdi:
A undanförnum árum hefur
oft verið rætt um í blöðum og
manna í milli að einstakling-
arnir í landinu séu látnir bera
alltof þungar skattabyrðar.
Jafnframt hafa einstaklingar
bent á að fyrirtæki ættu að taka
meira á sig en þau hafa gert.
Eigendur fyrirtækjanna eru
vitaskuld á öðru máli.
Nú skilst mér að bankarnir
greiði enga ,,skatta“ eða önnur
ámóta gjöld? Langar mig til
þess að biðja lesendasíðuna um
að upplýsa mig og aðra les-
endur um staðreyndir í málinu:
Greiða bankarnir ekki opin-
ber gjöld eins og önnur fyrir-
tæki. Ef ekki, þá hvers vegna?
Ef þeir væru látnir greiða
opinber gjöld eins og önnur
•fyrirtæki hvað yrði þessi
upphæð þá há?
DB ræddi við Kristján Ö.
Jónasson skrifstofustjóra
ríkisskattstjóraembættisins.
Hann sagði að bankar
greiddu til dæmis launaskatt og
önnur gjöld sem tengd eru
launagreiðslum, eins og önnur
fyrirtæki.
Þeir greiða aftur á móti ekki
tekju- og eignaskatt.
Bankar eru í hópi þeirra
fyrirtækja sem greiða svo-
kallað landsútsvar.
Er það 1% af mismuni
heildarútlánsvaxta banka og
heildarinnlánsvaxta.
Meðal þeirra fyrirtækja, sem
greiða landsútsvör auk banka
eru til dæmis Sementsverk-
smiðja ríkisins, Aburðarverk-
smiðjan, Síldarverksmiðjur
ríkisins, Ríkisprentsmiðjan
Gutenberg og olíufélögin.
Vantar frekari upplýsingar
— umfærðá vegumí
Mér finnst báðir þulir
morgunútvarpsins alveg
ágætir, —annar er þó kannski
skemmtilegri en hinn. En ég lít
hins vegar ekki á að morgun-
útvarp eigi að vera til skemmt-
unar eingöngu og sá útvarps-
tími tilvalinn vettvangur fyrir
fréttir af veðri og færð. En lík-
lega er ekki hægt að saka
þulina um að þessar
upplýsingar vantar, — það er
líklega álíka vizkulegt og ásaka
Verðið á
rauðkálinu
þrefaldaðist
á leiðinni frá
Danmörku
Sveinberg Laxdal, Svalbarðs-
strönd hringdi:
Mikið hefur verið blásið út í
DB hve miklu betra væri að
fl.vtja inn öll matvæli frekar en
að framleiða þau hér. Ég er hér
með litla krukku af dönsku
rauðkáli sem ég keypti á dögun-
um í Kaupfélaginu. Danski
verðmiðinn er utan á krukk-
unni en á honum stóð kr. 3,50.
Miðað við gengi ætti krukkan
að kosta kr. 120 en hún kostar
343,00. Þannig er þetta litla ílát
selt á íslandi á næstum því
þreföldu verði miðað við það
sem hún kostar erlendis.
Nú langar mig til þess að fá
skýringu á þvf hvernig þetta
verð myndast á leiðinni til neyt-
andans frá Danmörku.
flp—rtl—rs-rtt—ai1 i
Takið eftir!
Einstakt
tœkifæri
ÉTÖISKU
bobos
GAHABUXURNAR
FYRIR DÖMUR 0G
HERRA
•
STÓRKOSTIEGT
ÚRVAL AF KJÓLUM.
PLÍSERUÐ PILS, KÖFL-
ÓTT 0G EINLIT, PEYS-
UR, PEYSUKÁPUR,
SÍÐ VESTI, SKYRTUR,
MðSSUR, FLAUELS-
BUXUR 0G MARGT
FLEIRA.
•
f w- —
s
r =-
Bi !XF&R
Jrrr ~m'
30-70%
AFSLÁTTUR
IPUAIIKW
Sendum i póstkröfu Sími 18046 Laugavegi
morgunútvarpið
0317—3852 skrifar:
Mig langar til þess að koma á
framfæri skoðunum mínum á
því sem mér finnst að mætti
gjarnan og ætti kannski að vera
fastur liður í morgunútvarpinu.
En það er að segja frá færðinni,
bæði .á götupi Reykjavíkur,
Akureyrar og annarra staða þar
sem einhver umferð er að ráði.
Sömuleiðis fyndist mér að
segja ætti frá færð á Suður-
lands. og Vesturlandsvegi og
ekki má gleyma Reykjanes-
brautinni.
Á þessum síðasttöldu vegum
er bæði mikil umferð og að öllu
jöfnu mjög hröð, þannig að
mikið er í húfi að ekki verði þar
umferðaróhöpp. Flestir sem'
þurfa að aka þessa síðasttöldu
vegi á leið til vinnu eru yfirleitt
komnir á fætur fyrir allar aldir
og d.vggir hlustendur morgun
útvarpsins.
afgreiðslufólkið í búðinni fyrir
of hátt verðlag!
Vilja nú ekki forráðamenn
umferðar- og vegamála taka sig
til og biðja morgunþulina að
koma upplýsingum áleiðis til
hlustenda.
Oft gætu komið sér vel upp-
lýsingar um færð á vegum i
morgunútvarpinu.
UTSALAN
HEFSTA
MANUDAG
------V
Spurning
dagsins
i--- h
3
HEFURÐU HEIMILISLÆKNI?
Lára Benediktsdóttir, sjúkraliói
og húsmóðir: Já, það hef ég. Mér
gengur mjög vel að ní í hann.
enda er læknirinn minn lika
kvenkyns. Annars hef ég nú ekki
þurft að ónáða lækninn nema
tvisvar sinnum heim til mín í
ellefu ár, Guði sé lof.
Andrea Þorleifsdóttlr, vinnur hjá
Flugleiðum: Jú, ég er skráð með
heimilislækni. En sem betur fer
þarf ég sárasjaldan á honum að
halda.
Sigriður Gestsdóttir, vinnur hjá
Flugleiðum: Nei, ég hef engan
heimilislækni. Guði sé lof þá hef
ég ekki þurft mikið á lækni að
halda. Því hefur þá verið bjargað
í gegnum kunningsskap. En það
er auðvitað þrautalending að
þurfa að vera að ónáða kunningja
sina. sem hafa nóg með sig.
Eyjölfur Sigurðsson. starfsmaður
Flugleiða: Já. og það er m.jög gott
að ná í hann. Eg hef bara ekki
þurft á honum að halda sem betur
fer.
Gerður Gunnarsdóttir, vinnur hjá
Flugleiöum: Já. Það gengur vel
að ná i hann þegar ég hef þurft á
honum að halda en það er sem
betur fer mjög sjaldan.
Kristín Guðjohnsen, vinnur hjá
Flugleiðum: Nei, það hef ég ekki,
því miður. Ég var hraust og þurfti
ekki á lækni að halda en nú hef ég
verið lasin undanfarið og hef
hugsað mér að nota göngudeild-
ina á Landspítalanum. Einnig er
mér kunnugt um að að minnsta
kosti tveir læknar taka á móti
heimilislæknalausum sjúkling-
um.