Dagblaðið - 28.01.1978, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 28.01.1978, Blaðsíða 12
Gauks- hreiðrið í Tónabíói: Ken Kesey, höfundur sögunnar uin (laukshreiórið hefur farið á mis við alla þá peninsa sem mokað hefur verið inn á kvikm'vndina sem nerð var eftir söj>u hans. Þefjar Kesey skrifaði söítuna í byrjun síðasta áratu^s naut hún þegar mikilla vinsælda — en aðeins í lirönfíum hópi mennta- oft lista- inanna á vesturströnd Banda- ríkjanna. Kesey var þegar — af þessu fólki — settur á bekk með Jack Kerouac. Það dugði honum skammt. Kesey barðist í bökkum á þessum tíma ( og gerir raunar enn), átti ekki nenta rétt ofan í sig að éta og varð þvi að afsala sér útgáfurétti bókarinnar fyrir smánarupphæð. Það var síðan bókaútgefandinn sem seldi Fantas.v Films og United Artists kvikmyndaréttinn. Ken Kesey frétti fyrst af þessari Látið ekki happ DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 28. JANUAR 1978. úr hendi sleppa upphefð sinni þegar hann sá í blöðunum. að Jack Nicholson hefði fallizt á að leika R.P. McMurph.v í kvikmyndinni um Gaukshreiðrið. Hins vegar hefur Kesey sagt frá því að sér hafi þótt gaman að sjá myndina. ,,Mér þótti að vísu súrt að þurfa að borga mig inn,'“ sagði Kesey í viðtali vestra. Nú, en hvað segir maður svo, aumur amatörinn, um kvik- m.vnd, sem hlotið hefur fimm Óskarsverðlaun? Maður segir að myndin sé góð. Liklega sú bezta sem hér hefur verió sýnd — og jafnvel gerð — í marga áratugi. í prógrammi Tónabíós Jack Nicholson og Will Sampson í hlutverkum sínum í One Flew Over the Cuckoo’s Nest. segir urn Jaek Nicholson að hann sé einn helzti núlifandi snillingur hvita tjaldsins. Það er áreiðanlega engin lygi — og Louise Fletcher, sem leikur 1 yfirhjúkrunarkonuótætið Mildred Ratched, stendur hon- p um ekki langt að baki. Þá er I Milos Forman, tékkneski leik- | stjórinn, heldurenginn aukvisi. [ Einhver okkar muna kannski eftir annarri mvnd hans. Tak- | ing Off sem sýnd var i Laugar- j ásbíói fyrir nokkrum árum við j fádærha aðsókn. Það er ástæðulaust að fara ntörgum orðum um þessa kvik- mynd. Gífurleg aðsókn og fantagóð stemning í Tónabíói undanfarnar vikur talar fvrir I sig. Okkur þ.vkir full ástæða til að vara fólk Við að missa af þessari m.vnd — skólar ættu að í efna til hópferða með nemendur. -<>• vald.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.