Dagblaðið - 28.01.1978, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 28. JANUAR 1978.
Q
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
Iþróttir
í)
ISLENDINGAR EIGA
SNJALLA LEIKMENN
— sogði danski landsliðsþjálfarinn
' Frá Halli Hallssyni, Arósum.
„Leikurinn við Islendinga verð
ur áreiðanlega ákaflega erfiður.
ísland á svo marga góða leikmenn
og þeir spila mun fastar og eru
taktiskari en Spánverjar,“ sagði
danski landsliðsþjálfarinn Leif
Mikkelsen í gær, en hann héit þá
blaðamannafund ásamt fyrirliða
danska landsliðsins, Anders-Dahl
Nielsen, sem þá átti afmæli, varð
27 ára.
Það var greinilegt á þessum
fundi, að Danir eru síður en svo
sigurvissir gegn íslandi í Randers
í dag og Mikkelsen sagði:
„ísland á svo marga snjalla
leikmenn, sem við verðum að
hafa góðar gætur á. Þar er fyrst
að telja Björgvin Björgvinsson —
snjall og sterkur línumaður, sem
aldrei má lita af. Axel Axelsson
og Geir Hallstei nsson þekkjum
við vel og þeir eru báðir mjög
snjallir leikmenn. I leiknum við
Sovétríkin kom vel í ljós hve
Einar Magnússon er sterkur og
hættulegur. Þrumuskot hans eru
vissulega umhugsunarefni," sagði
landsliðsþjálfarinn danski.
Anders-Dahl Nielsen sagði, að
leikurinn við ísland yrði erfiðari
en leikurinn við Spán. Báðir
[spáðu þeir skiljanlega dönskum
sigri gegn Islandi. Annað hefði
ekki verið sæmandi hjá þeim
frammi fyrir öllum dönsku blaða-
mönnunum.sem þarna voru, auk
okkar íslendinganna.
I viðræðum við dönsku blaða-
mennina eftir fundinn sögðu þeir
okkur að dönsku leikmennirnír
iog stjórnendur þeirra væru mjög
taugaóstyrkir í sambandi við leik-
inn við Island í dag.
Björgvin Björgvinsson svífur inn í teiginn hjá sovézkum í HM-
leiknum á fimmtudag. En það var brotið á honum, viti dæmt. (Jr því
skoraði Axel Axelsson sjöunda mark Íslands. Ljósmynd Ib Hansen.
Sdralitlar líkur á að
Jön H. Karlsson leiki
— Söknarkerfín miðuð við Geir, Axel,
Einar og Björgvin
Frá Halli Hailssyni, Arósum.
Sáralitlar likur eru á því, að
Jón H. Karlsson, fyrirliði íslenzka
landsiiðsins, leiki gegn Dönum í
Randers í dag. Hann hefur engan
veginn náð sér á strik eftir hin
erfiðu meiðsli í baki, sem tóku sig
upp í ieik gegn Fram heima í
Laugardalshöll — kveðjuleik
landsliðsins fyrir HM-förina.
Líklegt er því, að landsliðið
gegn Dönum í dag verði hið sama
og lék gegn Sovétrikjunum. ís-
lenzka landsliðsnefndin vildi ekki
gefa upp skipan liðsins í gær.
Sagði að það yrði tilkynnt á
hádegi í dag.
Blaðamaður DB fylgdist með
æfingu islenzka landsliðsins í gær
í Arósum. Gunnar Einarsson
markvörður á við ' tognun að
striða í læri, sennilega ekkert al-
varlegt, og vonandi kemur hún
Vikufólkið
með óheit
á Íandsliðið
Aheit kennara Víghóla-
skóla í Kópavogi á ísienzka
landsliðið — 1000 kr. fyrir
unninn leik frá hverjum
þeirra — hefur vakið at-
hygli. Starfsfólk Vikunnar
fylgdi fordæmi kennaranna
og áheitalisti gekk meðal
þess í gær. Þegar síðast
fréttist í gær höfðu 15 af
starfsmönnum Vikunnar
skrifað sig á lista — og hver
um sig heitir á íslenzka
iandsliðið 1000 kr. fyrir
unninn leik. Eru kannski
fleiri með í áheitaleikinn?
’ekki niður á leik hans i dag. Á
æfingunni var greinilegt, að
sóknarleikurinn hjá íslenzka
liðinu í dag á að byggjast á þeim
Geir, Axel, Einari og Björgvin. ÖIl
leikkerfin miðuðust við það og í
hornunum voru Gunnar Einars-
son og Janus Guðlaugsson.
Áreiðanlegt, að það eru þeir sex
útispilarar, sem Janus Czerwinski
ætlar að láta mest mæða á í dag.
Þá voru hraðaupphlaup æfð af
krafti — vopn sem vonandi
reynist íslenzka iiðinu vel, þegar
það mætir Dönum í Randers.
Hélt Dani
sterkari
— segir Gunnar Einarsson
Frá Halli Halissyni, Árósum.
„Eg átti von á því, að Danir
væru sterkari en það, sem þeir
sýndu í leiknum við Spánverja —
sérstaklega þó vörnin,“ sagði
Gunnar Einarsson, vinstri handar
skotmaðurinn í islenzka liðinu,
sem leikur með Göppingen í
Vestur-Þýzkalandi.
„En það er mikil seigla í danska
liðinu og við þurfum að hafa sér-
stakar gætur á fyrirliðanum,
Anders Dahl-Nielsen og Michael
Berg. Anders stjórnar öllum leik
liðsins og skot hans eru ávallt
hættuleg — og Berg er
hættulegur skotmaður, sem nánar
gætur þarf að hafa á,“ sagði
Gunnar ennfremur.
Þorbergur Aðalsteinsson hefur sloppið framhjá þremur varnarmönnum Sovétríkjanna og sendir knött-
inn í gegnum klofið á markverðinum og í markið. Ljósmynd IB Hansen.
KÆRUM SILKIBORG EF
LIÐIÐ KÆRIR 0KKUR
— leikurinn við Dani barötta upp á líf og dauða, sagði Birgir
„Leikurinn við Dani verður
barátta upp á iíf og dauða fyrir
bæði Iið,“ sagði Birgir Björnsson,
formaður iandsliðsnefndar. „Eg
áiit, að Danir eigi ekki möguieika
gegn Sovétmönnum — og jafn-
tefli gæti nægt okkur gegn Dön-
um, því við eigum eftir leikinn
við Spánverja. Danir unnu Spán
ekki svo stórt, að þar megi ekki
um bæta. Sovétmenn munu
leggja áherziu á að sigra Dani i
C-riðlinum þvi stigin teija í inn-
byrðisviðureign landanna í riðlin-
um, — þeirra sem komast áfram
í miliiriðiiinn. Sovétmenn leika
þvi upp á sigur gegn Dönum — og
ef við fylgjum þeim í milliriðil-
inn þá hafa þeir þegar tvö stigin á
okkur,“ sagði Birgir ennfremur.
„Það hefur komið fram, að for-
ráðamenn Silkiborgar ætla að
kæra okkur — og krefja island
um 3000 krónur danskar fyrir að
vilja ekki leika æfingaleikinn á
þriðjudagskvöld. En við erum
ákveðnir að kæra þá á móti — ef
kæran verður lögð fram — fyrir
1 að reyna að koma á gróðaleik
fyrir félagið, þegar aðeins var
beðið um lokaðan æfingaleik. Það
náði ekki nokkurri átt að leika
við þær aðstæður, sem félagið
bauð upp á, með njósnara Dana,
Sovétmanna og Spánverja i öllum
hornum. t dönsku blöðunum
|hefur komið fram, að Silkiborg
ætlaði sér að græða 5000 danskar
á leiknum — en þegar íslenzka
liðið mætti ekki tii leiks var boðið
upp á hraðkeppni í Silkiborgar-
íþróttahöllinni," sagði Birgir enn-
'fretnur.
Mál Árna hjá aganefnd HM:
IN ALLT BENDIR TIL AÐ HANN
VERDIEKKISETTUR f LEIKBANN
Frá Halli Hallssyni, Árósum.
Mál Árna Indriðasonar var
tekið fyrir hjá aganefnd heims-
meistarakeppninnar í gær —
og í gærkvöld átti að dæma í
málinu. Sá dómur hafði ekki
verið uppkveðinn, þegar Dag-
blaðið fór í prentun i gærkvöld
— snemma að venju á
föstudagskvöldum.
Allar líkur voru taldar á því í
gær, að Árni léki gegn Dönum í
Randers I dag þó sum dönsku
blaðanna hafi verið að bolla-
leggja í gær, að hann yrði
settur í leikbann. Jafnvel alla
HM-keppnina. Við skulum
vona, að það hafi aðeins verið
óskhyggja dönsku blaðamann-
anna.
Islenzku landsliðsnefndar-
mennirnir þrír, Birgir,
Gunnlaugur og Karl, sögðust
vera öruggir um, að Arni yrði
ekki settur i leikbann — og að-
hann mundi leika gegaDönum.
Sjálfur er Arni niðurbrotinn
vegna atviksins í leiknum við
Sovétríkin. Hann var á vara-
mannabekkjum, þegar sovézkir
náðu skyndisókn — hljóp upp
og stöðvaði hraðaupphlaupið.
Sænsku dómararnir viku hon-
um samstundis af leikvelli
allan leikinn. „Þetta var óafsak-
anleg heimska," var allt og
sumt sem Árni vildi um málið
segja.
Atta leikir verða á dagskrá
heimsmeistarakeppninnar í
handknattleik í dag. Áthyglin
beinist auðvitað að leik Isiands og
Danmerkur, sem verður í
Randers kl. 16.00 að islenzkum
tíma. Sovétríkin og Spánn leika í
Alaborg í C-riðlinum og hefst
leikurinn kl. 14.00.
I A-riðlinum leika Vestur-
Þýzkaland og Kanada í Ringe og
Júgóslavía og Tékkóslóvakía í
Vejle. I B-riðli leika Ungverja-
land og Austur-Þýzkaland í Es-
bjerg og Rúmenía og Frakkland í
Aabenraa. I D-riðli leika Svíþjóð
og Japan í Köge og Pólland og
Búlgaria í Kalundborg. Allir leik-
irnir hefjast kl. 14.00 nema leikur
Islands og Danmerkur, sem hefst
tveimur klukkustundum síðar.
Þorbjörn Guðmundsson iyftir sér upp og reynir markskot gegn Sovét-
ríkjunum en tókst ekki að skora. Ljósmynd IB Hansen.