Dagblaðið - 28.01.1978, Page 6
6
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 28. JANUAR 1978.
KÓPAVOGSBÚAR!
Munið prófkjör Alþýðuflokksins
Kosningasímar
Pálma og Steingríms
eru 40650,41151,41255 og 45901.
- KOSIÐ ER AÐ HAMRABORG1 -
SKÁKSTYRKIR ERU SKATTFRJÁLSIR
SKÁKSAM BAIMD
GIRO 625000 ISLAIM DS
Föndurverkf œrin — nýkomin
Föndurverziun
S. Sigmannsson & co.
Suðurgötu 3a. Sími 11926
Limbvssa fyrir módclsmíði
<(K fiindur. Lím som límir
tré, járn. stein, plast o.m.fl.
Lóóboltinn fvrir útvarpsvirkjann ok áhugamanninn.
Utsölustaður fvrir utan umboðið Ingþór Ilaraldsson Armúla 1
Rvk.
Ryksiifían so«ár hefilspæni
ofí stóra kubba. Fvrir verk-
stæði, hílinn og hílskúrinn.
Sterkur soskraftur.
ttandsöKin með fylKihlutun
lipur <>k létt, stendur
borði, saKar upp í 3" tré o
1“ stál.
Útskurðartækið vinsæla.
hæKt er aö skera út í tré ok
járn, Rera mvndir í Rler, eir
<>k skinn or marRt fleira.
Bonkofrumvörp:
LÚÐVÍK VARD Á
UNDAN ÓLAFI
„Peninga- og lánastofnanir hér-
lendis eru miklu fleiri en hag-
kvæmt getur talizt,“ segir Lúðvík
Jósepsson (AB) í greinargerð
með frumvarpi sínu um nýja
bankalöggjöf og vitnar til sam-
hljóða umsagnar opinberrar
bankanefndar 1972-73. ,,Nú munu
starfsmenn í bankakerfinu vera
komnir talsvert á þriðja þúsundið
og fer enn fjölgandi. Tilgangslaus
innbyrðis barátta peningastofn-
ana um sparifé gerir engum gagn
en veldur því ásamt með öðru, að
þjónustukostnaðurinn verður
stöðugt meiri og meiri og stækkar
í sífellu yfirbyggingu þjóðfélags-
ins sem orðin er augljóslega allt
of mikil,“ segir Lúðvík.
Frumvarp hans er samhljóða
stjórnarfrumvarpi sem var lagt
fram í ráðherratíð Lúðvíks í marz
1974. Þá náði það ekki fram að
ganga vegna andstöðu ýmissa
þingmanna Framsóknarflokksins
sem þó voru í stjórnarsamstarfi
við Lúðvík.
Lúðvík vill fækka viðskipta-
bönkum ríkisins úr þrem í tvo
með sameiningu Búnaðarbankans
og Utvegsbankans í einn banka.
Gert er ráð fyrir fækkun útibúa.
Á eftir eiga að koma, telur flutn-
ingsmaður, ráðstafanir til að
fækka einkabönkum og endur-
skipuleggja sparisjóði.
Samræmd löggjöf skuli sett um
viðskiptabanka í stað margra og
ósamræmdra laga sem nú gilda.
Lögin verði gerð nútímalegri.
Endurskoðun og eftirliti skuli
breytt en Lúðvík segir að senni-
lega þyrfti þó að ganga lengra i
þeim efnum en gert er í frum-
varpi hans. Þá er gert ráð fyrir
formlegu samstarfi milli við-
skiptabanka rikisins.
LÚÐVÍK — varð á undan í kapp-
hlaupinu
* ® Stjórnarfrumvarp um nýja
ÓLAFUR — er með frumvarp i bankalöggjöf mun koma á
erminni íiæstunni. Lúðvík varð hins
vegar á undan Ölafi Jóhannessyni
að koma með frumvarp. - HH
BAÐSTOFAIÐNAÐARMANNA
Meðal alelztu félaga í Reykja-
vík er Iðnaðarmannafélagið i
Reykjavík en það verður senn 111
ára gamalt. í upphafi gekkst
félagið fyrir sunnudagaskóla
fyrir iðnaðarmenn og gekkst fyrir
sameiginlegum vörukaupum er-
lendis frá. Upp úr
fræðslustarfinu varð Iðnskólinn
til og félagið byggði það fræga
hús Iðnó sem nú hefur verið
friðlýst. t risi þessa húss var á
sínum tíma innréttuð forláta
bað'stofa að gamalli fyrirmynd.
Ríkarður Jönsson myndhöggvari
annaðist útskurð af mikilli
smekkvísi eins og sjá má af þess-
ari mynd af stjórn Iðnaðarmanna-
félagsins í Reykjavík. Á myndinni
eru talið frá vinstri: Benóný
Kristjánsson, Siguroddur
Magnússon, Gissur Símonarson
formaðpr, Halldór Magnússon og
Sigríður Bjarnadóttir.
Þrdtt fyrir
allt bruggið:
ENN EYKST SALA
ÁFENGRA DRYKKJA
Þrátt fyrir greinilega tilburði
landsmanna til að brugga sitt
eigið öl og áfengi vex áfengis-
neyzlan stöðugt. Samkvæmt upp-
lýsingum frá áfengisvarnarráði
var neyzluaukning 1977 6.9%.
Það ár seldust af áfengisútsölun-
um 3.08 lítrar á hvert mannsbarn
ef miðað er við 100% áfengi.
Arið 1977 var heildarsala
áfengis frá ATVR rúmar 8182
milljónir miðað við 6192 milljónir
árið þar á undan en verulegar
verðhækkanir urðu. Langmesta
salan varð í útsölunum í Reykja-
vfk í fyrra, hátt í sex milljarðar
króna, eða stærstur parturinn af
allri sölunni. >RP