Dagblaðið - 28.01.1978, Qupperneq 15
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 1978.
BROTHERHOOD OF MAN naut ekki neinna verulegra vinsælda
fyrr en flokkurinn sigraöi í Eurovision-söngvakeppninni árið 1976
meö laginu Save Your Kisses For Me. Síðan hefur fólkið haldið
vinsældunum við — en ekkert meira.
MULL OF KINTYRE
SETTISÖLUMET
— sem Beatles áttu áður fyrir She Loves You
Paul McCartney og Wings
eru fallin úr fyrsta sætinu á
enska vinsældalistanum. Fallið
er að vísu ekki hátt, aðeins
niður í annað sætið. I staðinn
eru tiltölulega óþekktir tónlist-
armenn, Althea og Donna,
komnir í fyrsta sæti með ágætis
lag, sem nefnist Up Tovvn Top
Ranking.
Lögin Mull Of The Kintyre
og Girls School komust á topp-
inn 3. desember síðastliðinn.
Þangað flugu þau rakleiðis úr
átjánda sæti og sátu sem fastast
þar til í þessari viku. Svo
rammt kvað að sölu plötunnar
að hún setti nýtt enskt sölumet
um síðustu helgi. Þá hafði selzt
1.8 milljón eintaka af plötunni
eða 200.000 meira en af þeirri
plötu, sem átti fyrra metið. Það
setti hljómsveitin Beatles fyrir
fimmtán árum með laginu She
Loves You.
Up Town Top Ranking, sem
leysti Mull Of Kintyre og Girls
School af hólmi er með
skemmtilegum reggaetakti. Það
á vel við að það komist á topp-
inn um sama leyti og reggae-
guðinn sjálfur, Bob M-arley,
kemst á topp tíu. Marley og
hljómsveit hans, Wailers, er nú
í níunda sæti í Englandi með
tvö lög, Jamming og Punky
Reggae Party.
Gamli söngflokkurinn,
Brotherhood Of Man, er enn á
ferðinni. Nýjasta lag flokksins,
Figaro, geysist þessa vikuna úr
25. sæti upp í sjötta. Því er spáð
enn meiri velgengni og gæti
það því allt eins verið komið í
fyrsta sæti í næstu viku.
Það er öllum vinsældalistun-
um fimm sameiginlegt þessa
viku, að ný lög komast í fyrsta
sæti. I Bandaríkjunum leysir
Randy Newman hljómsveitina
Player af hólmi. Einnig má
vekja athygli á því, að Bee Gees
eru komnir með nýtt lag á lista
í Bandaríkjunum. Það ber
nafnið Stayin’ Alive og er nú í
fjórða sæti. Bee Gees eru
einnig í áttunda sæti með lagið
How Deep Is Your Love. Bæði
eru þessi lög úr kvikmyndinni
Saturday Night Fever, sem
gerist að mestu á diskóteki í
New York. Bee Gees flytja
nokkur lög í þessari mynd,
bæði gömul og ný. Þar eru
einnig á ferðinni nokkrar
diskótekstjörnur til viðbótar.
Það telst til stórtíðinda að
Needles And Pins er komið í
annað sæti í Vestur-Þýzkalandi.
í staðinn er annað gamalt lag í
„nýjum“ búningi í fyrsta sæti.
Þetta er Beach Boys lagið
Surfin’ USA, sem nú er flutt
af Leif Garrett.
Hollentfingar fá lagið If I
Had Words i efsta sætið í stað
Mull Of Kintyre. Og gamall
kunningi, How Deep Is Your
Love,' er kominn á toppinn í
Hong Kong.
ENGLAND — MEL0DY MAKER AT
1. (4) UPTOWNTOP RANKING ALTHEA AND DONNA
2. ( 1 ) MULL OF THE KINTYRE/GIRLS SCHOOL ........WINGS
3- ( 2 ) LOVE’S UNKIND DONNA SUMMER
4. (11) NATIVE NEW YORKER ODYSSEY
5. ( 3 ) IT’S A HEARTACHE BONNIE TYLER
6. (25) FIGARO .......................BROTHERHOOD OF MAN
7. ( 7 ) DON’T IT MAKE MY BROWN EYES BLUE..CRYSTAL GAYLE
8. (1 8) LOVELY DAY BILL WITHERS
9. (13) JAMMING /PUNKY REGGAE PARTY BOB MARLEY AND THE WAILERS
10. ( 6 ) DANCE DANCE DANCE .........................CHIC
BANDARÍKIN — CASH B0X
1. (2) SHORT PEOPLE...........................RANDY NEWMAN
2. ( 1 ) BABYCOME BACK ..............................PLAYER
3. ( 3 ) WE ARE THE CHAMPIONS QUEEN
4. (14) STAYIN’ ALIVE...............................BEE GEES
5. ( 4 ) YOU’RE IN MY HEART ....................ROD STEWART
6. (8) JUST THE WAY YOU ARE .......................BILLYJOEL
7. ( 7 ) HERE YOU COME AGAIN....................DOLLY PARTON
8. ( 5 ) HOW DEEP IS YOUR LOVE......................BEE GEES
9. (10) DESIREE.................................NEIL DIAMOND
10. (13) SOMETIMES WHEN WE TOUCH DAN HILL
VESTUR-ÞYZKALAND
1(3) SURFIN’ USA LEIF GARRETT
2. ( 1 ) NEEDLES AND PINS SMOKIE
3. (2) ROCKIN’ ALL OVER THE WORLD................STATUS QUO
4. ( 5 ) DON’T STOP THE MUSIC BAY CITY ROLLERS
5. (6) DON’T LET ME BE MISUNDERSTOOD
SANTA ESMERALDA/ LEROY GOMEZ
6. ( 4 ) THE NAME OF THE GAME .........................ABBA
7. ( 7 ) BLACK IS BLACK LA BELLE EPOQUE
8. (8) WE ARE THE CHAMPIONS QUEEN
9. ( 9 ) BELFAST....................................BONEY M
10. (11) TS AMO UMBERO TOZZI
HOLLAND
1. ( 2 ) IF I HAD WORDS ....YVONNE KEELtY AND SCOTT FITZGERALD
2. ( 1 ) MULL OF KINTYRE ....................... WINGS
3. ( 3 ) EGYPTIAN REGGAE...................JONATHAN RICHMAN
4. ( 5 ) SINGING IN THE RAIN SHEILA AND BLACK DEVOTION
5. ( 6 ) IT’S A HEARTACHE .......................BONNIE TYLER
6. (15) SHE’S NOTTHERE .............................SANTANA
7. (14) LAILOLA ..............................JOSE Y LOS REYES
8. (4 ) HET SMURFENLIED VADER ABRAHAM
9. (16) ONLY A FOOL.............MIGHTY SOARROW AND BYRON LEE
10. ( 9 ) ISN’T ITTIME .............................THE BABYS
HONG KONG
1. (2) HOW DEEP IS YOUR LOVE BEE GEES
2. ( 3 ) IT’S SO EASY LINDA RONSTADT
3. (5) MULL OF KINTYRE ................................WINGS
4. ( 4 ) YOU MAKE LOVING FUN ..................FLEETWOOD MAC
5. ( 7 ) HERE YOU COME AGAIN ....................DOLLY PARTON
6. ( 1 ) YOU LIGHT UP MY LIFE DEBBY BONNE
7. ( 8 ) SWINGTOWN STEVE MILLER <
8. ( 9 ) MY WAY..................................ELVIS PRESLEY
9. (10) NAME OF THE GAME ABBA
10. ( 6 ) BABY, WHAT A BIG SURPRISE CHICAGO
Fyrsta plata
Hljómplötuútgáfunnar
hf. á þessu ári:_
Hópur
tónlistar-
manna,
hverúr
m m
smm
áttínni
ÞÓRHALLUR
(iRAFALVARLEGUR —
I.addi. sem er þekktastur sem
sprellikarl við hlið Halla
bróður síns, hvggst nú freista
ga'funnar sem alvarlega
þenkjandi tónlistarmaöur,
— í hóp með fjölda annarra
tónlistarmanna.
DB-mynd: Ragnar Th.
Fríður hópur hljóðfæra-
leikara, lagasmiða, söngvara
og söngkvenna hófst handa á
mánudaginn við að taka upp
fyrstu plötu Hljómplötuút-
gáfunnar hf. á þessu ári. Engar
áætlanir eru uppi um, hvenær
upptökum eigi að ljúka né
heldur hvenær platan skuli
koma út.
Er Dagblaðið leit inn í
Hljóðrita á miðvikudaginn var
hafði hópurinn lokið við
grunnspil á fjórum lögum
Hljóðfæraleikararnir Sigurður
Karlsson, Pálmi Gunnarsson og
Magnús Kjartansson voru þá að
störfum, ásamt Þórhalli
Sigurðssyni. Síðar bætast gítar-
leikararnir Þórður Árnason og
Magnús Eiríksson í hópinn.
Stjórn upptökunnar er í
höndum Magnúsar Kjartans-
sonar og upptökumaður er
Jónas R. Jónsson.
Söngkonurnar Sigrún Hjálm-
týsdóttir og Ragnhildur Gísla-
dóttir munu sjá um söng á
plötunni, sem ekki hefur hlotið
neitt nafn ennþá, ásamt Pálma
Gunnarssyni og Þórhalli
Sigurðssyni. Þau Ragnhildur,
Magnús Kjartansson og nafni
hans Eiríksson og Þórhallur
munu öll eiga lög á plötunni.
Þar verður einnig að finna eitt
eða tvö erlend lög.
Þórhallur sá, er hér hefur
verið nefndur að framan, er sá
sami og almennt er kallaður
Laddi. Hann hefur nú gerzt
alvarlegur tónlistarmaður, í bili
að minnsta kosti.
„Eg átti þrjú lög á Fyrr má
nú aldeilis fyrrvera og þótti
þau koma svo vel út, að ég
ákvað að prófa meira," sagði
Þórhallur/ Laddi, er DB spúrði
hann um þessa stefnubreyt-
ingu.
„Sömuleiðis ætla ég að semja
textana við lögin. Nei, nei, ég á
engan stóran lager af ónotuðum
lögum, eins og til dæmis
Magnús Eiríksson, ég er svo
tiltölulega nýbyrjaður.”
Að sögn Jóns Ólafssonar
framkvæmdastjóra Hljóm-
plötuútgáfunnar hf. var
nann farinn að gæla við
hugmyndina um þessa plötu
löngu fyrir jól. Það er frekar
sjaldgæft að plötur sem þessi
séu gerðar, það or að hópi
tónlistarmanna sé srhaíað
saman hverjum úr sinni áttinni
og látnir flytja eigin lög.
Sennilega er þessi plata sú
fyrsta sinnar tegundar hér á
landi.
Ekki kvaðst Jón neitt vera
farinn að hugsa fyrir nafni á
nýju plötuna. „Ætli maður kalli
hana ekl<i bara vöfflur," sagði
hann og hló ótuktarlega. ..en
blessaður skrifaðu það ekki.“
-AT-
Byrjað á nýrri
Fleetwood Mac-
plötu í marz?
Ef allt fer eins og ætlað er
byrja upptökur á nýrri
Fleetwood Mae plötu í marz
næstkomandi. Hljómsveitin
lagði fyrir nokkru af stað í
heljarmikla reisu um
Austurlönd og ríki Suður-
Kyrrahafsins. Áætiað er að
fara beint í stúdíóið, er með-
limirnir hafa hvílt sig nægi-
lega eftir ferðina og æft
nýju lögin svolítið.
„Við eigum nóg orðið af
lögum núna,“ sagði Mick
Fleetwood trommuleikari
og hljómsveitarstjóri Fleet-
wood Mac í stuttu viðtali,
sem bandaríska tímaritið
Rolling Stones átti við hann
i fyrsta tölublaði ársins. 1
sama blaði birtust úrslit í
vinsældakosningum blaðs-
ins. Þar bar Fleetwood Mac
sigur úr býtum sem hljóm-
sveit ársins og meðlimirnir
sem tónlistarmenn ársins.
Rumours var kosin vinsæl-
asta LP platan, Dreams vin-
sælasta lagið, Stevie Nicks
hafnaði í öðru sæti sem
söngkona á eftir Lindu Ron-
stadt og hljómsveitin í heild
varð númer fjögur sem upp-
tökustjórar.
En nánar um nýju plöt-
una:
„Stevie Nicks á nú þegar
fleiri tonn af lögum,“ sagði
Mick Fleetwood. „Hún
semur stöðugt á meðan við
ferðumst um. Það hefur
komið til álita hjá okkur að
gera tvöfalda plötu, — svo
mikið er til af lögum.
Ég býst þó ekkert frekar við
því að sú verði raunin. Þetta
hefur aðeins komið til um-
ræðu.“
Fleetwood vildi ekkert
um það segja, hvort hann
teldi að nýja platan ætti
eftir að njóta jafn mikilla
eða meiri vinsælda en
Rumours. Er sú piata var
tilbúin lét hann hafa eftir
sér, að hann byggist við að
hún myndi seljast í svo sem
átta til níu milljónum ein-
taka. Piatan hefur nú náð
því marki í Bandaríkjunum
einum saman og er enn
númer eitt. Mick Fleetwood
er því ekki sérlega mikill
spámaður!
En þó að Fleetwood Mac
hefji vinnu við nýju plötuna
í marz, er ekki þar með sagt
að hún komi á markað fljót-
lega í sumar. Það tók hljóm-
sveitina nefnilega heila ell-
efu mánuði að gera
Rumours.
„Svipurinn á ráðamönn-
unum hjá Warner Bros. var
orðinn anzi skrítinn, þegar
fram liðu stundir,” sagði
Mick Fleetwood. „Ef við
hefðum ekki gert söluhæstu
piötu allra tíma hjá fyrir-
tækinu næst á undan hefð-
um við áreiðanlega verið
rekin.”
Fleetwood Mac þarf ekki
að óttast brottrekstur frá
Warner Bros. úr þessu. Þau
geta nú leyft sér hvað sem
er.
Or ROLLINC. STONE