Dagblaðið - 28.01.1978, Blaðsíða 24
ÖLL ATKVÆÐI í PRÓFKJÖRI
FRAMSÓKNAR ENDURTALIN
17 atkvæðum of mikið og i
þriðja sætið 6231, eða 4 atkvæð-
um of mikið.
Fjórða sætið á listanum til
borgarstjórnarkosninganna er
rétt miðað við kosningaþátt-
töku.
„Það voru mörg holl sem sem
unnu að þessu og þetta hefur
getað skolazt til,“ sagði Jón
Abraham ennfremur. „Satt að
segja á ég ekki von á því að
neinar breytingar verði á
listanum en það kemur i ljós á
*mánudaginn.“ HP
— 50-60 atkvœðum of mikið ífjórum efstu sœtunum
— „Mistök" segir f ormoður kjörst jornor
„Okkur er ljóst að hér hafa
orðið einhver mistök og
munum þvi telja upp á nýtt öll
atkvæði, bæði I prófkjöri vegna
borgarstjórnar og alþingis-
kosninganna,“ sagði Jón Abra-
ham Ölafsson formaður kjör-
stjórnar i prófkjöri Fram-
sóknarflokksins i Reykjavik
sem fram fór um sfðustu helgi.
„Þetta verður talið núna um
helgina, til þess fengnir vanir
menn og ættu niðurstöður að
liggja fyrir á mánudaginn.“ '
Komið hefur I ljós að töluvert
fleiri atkvæði hafa verið greidd
i fyrstu fjögur sætin á listanum
en kosningaþátttaka segir til
um alþingiskosningarnar og
einhver ruglingur er einnig á
listanum til borgarstjórnar-
kosninganna.
Ef atkvæði f fyrsta sæti á
alþingislistanum eru lögð
saman, samkvæmt þeim tölum
sem Timinn gaf út eftir próf-
kjörið, kemur í ljós að þau eru
6275. Hins vegar greiddu
aðeins 6227 atkvæði í prófkjör-
inu og er þar 48 atkvæðum of
mikið. í öðru sæti eru atkvæðin
6287, og því 60 atkvæðum of
mikið, f þriðja sæti 6272, eða 45
atkvæðum of mikið. í fjórða
sæti á listanum eru atkvæðin
6281, eða 54 atkvæðum of
mikið. I atkvæðafjöldann er
þarna reiknað með 373 at-
kvæðum sem voru ógild eða
auð.
A borgarstjórnarlistanum er
ástandið skárra en krefst samt
endurskoðunar. I fyrsta sætið
þar eru 6144, eða 83 atkvæðum
of lítið, í annað sætið 6244 eða
DB-mynd Hörður.
Jofnvel Ford hefði stoðið agndofa...
Nýtt áhugamál hefur skotið
upp kollinum síðustu árin — bíla-
iðja. Hafa ungir menn margir
hverjir náð mjög langt á þessu
sviði. Jafnvel Henry heitinn Ford
hefði staðið agndofa ef hann
hefði fengið að sjá bílismíði hinna
ungu manna. En vitaskuld standa
þeir ungu í þakkarskuld við
brautryðjandann i bilasmfðum.
Þennan vagn sáum við fyrir utan
Landsbankann í Pósthússtræti. —
hjilat, ikái dagblað
LAUGARDAGUR 28. JAN. 1978
Þeir gera
það gott
fyrir austan
Þeir eru að gera það gott austur
á Eskifirði. Skiptaverð afla togar-
ans Hólmaness SU I var á sl. ári
209.610.000 kr. og aflamagnið
2733 tonn. Hásetahlutur á Hólma-
nesinu var 4.024.500 kr.
Skiptaverð afla togarans.
Hólmatinds SU 220 var á sl. ári
179 milljónir, aflamagnið 2380
tonn og hásetahluturinn
3.437.000.
Regfna/abj.
Gíf urleg örtröð hjd
Fasteignamatinu:
„Eins og í
réttunum"
— sagði einn
starfsmanna
„Þetta er búið að vera eins og
í réttunum," sagði Kristin
Ingunnardóttir hjá Fasteignamati
ríkisins i viðtali við DB í gær en
þá hafði fjöldi manns komið á
skrifstofur embættisins til þess að
fá botn í fasteignamatsseðla sína
sem sendir voru út núna fyrir
skömmu og greint var frá í
blaðinu í gær. „Það er skráin frá
Reykjavíkurborg, sem við fórum.
eftir, sem virðist hafa verið röng í
mörgum tilfellum en við höfum
reynt að leiðrétta hér allt,“ sagði
Kristfn ennfremur.
Kristfn sagði að mikið væri um
að gamalt fólk kæmi og vildi fá
útskýringar á seðlum sfnum en
eins og fram kom i fréttinni f gær
var töluvert um það að fólk væri
krafið um skatt af erfðafestulönd-
um, sem fyrir löngu er búið að
taka af þeim. Brá því mörgum í
brún er þeir áttu jafnvel, sam-
kvæmt seðlinum, að greiða mill-
jóna upphæðir fyrir stór land-
svæði sem þeim voru eignuð.
HP
„SKIPULÖGÐ
RÓGSH ERFERÐ
n
Páll Líndal hefur óskað að
tekið yrði fram vegna fréttar i
DB í gær um meintan fjárdrátt
hans úr sjóðum Reykjavíkur-
borgar að hann mótmæli kröft-
uglega fullyrðingum borgar-
endurskoðanda, Bergs Tómas-
sonar, um málið i viðtólum við
blöð.
„Ég veit ekki til þess að
þetta mál hafi enn komið fyrir
stjórn borgarendurskoðunar
(enda „rannsókn" þess ekki
lokið),“ sagði Páll Líndal. „Það
liggur í rauninni ekkert fyrir
um þetta og ég hef ekki séð
gögn þessa svokallaða máls. Ég
hef aðeins einu sinni átt tal um
þetta við borgarendurskoðanda
og þá var það að beiðni hans til
að útskýra — í þrjá klukkutíma
— 22 blaðsíðna lista sem hann
skildi hvorki upp né niður í. A
þessum lista átti t.d. að hafa
verið haft fé af borgarsjóði í
sambandi við viðbyggingu hjá
sjálfum borgarstjóranum á
Fjölnisvegi 15. Eru öll vinnu-
brögðin eftir þvi.
Athyglisvert er að þetta
bjaðaviðtal á sér stað í fjarveru
borgarstjóra og borgarráðs.
Ég fæ ekki annað séð en að
hér sé um að ræða skipulagða
rógsherferð gegn mér af ein-
hverjum mönnum í borgarkerf-
inu sem mér er ekki kunnugt
um að ég eigi neitt sökótt
við.Mætti helzt ætla að ég væri
að fara í prófkjör!
Þar sem borgarendurskoð-
andi er svo fús að eiga viðtöl við
blöðin um árvekni sína í emb-
ætti væri fróðlegt ef blöðin
upplýstu hver hefur tekið við
bílstæðagjöldum af kvikmynda-
húsinu Hverfisgötu 54 og hver
ig þau hafa verið reiknuð út.
Ég hef hingað til ekki hirt
um að svara rógburði sem birzt
hefur um mig opinberlega en
ég álít að framkoman gagnvart
mér f þessu máli sé viðieitni til
Páll Líndal: „Mætti helzt'ætla
að ég væri að fara i prófkjör!"
— segir
Páll
líndal
að koma heiðarleikaorði á emb-
ættiskerfi borgarinnar sem
vonandi er verðskuldað. Fjas
borgarendurskoðanda um saka-
dómsmeðferð er ekki svaraverð
á þessu stigi en ef tilefni verður
til er ég fær um að gera grein
fyrir þeim þætti málsins.
Ég vil að lokum aðeins nefna
ofsóknarherferð endurskoð-
unardeildar gegn Reyni
Þórðarsyni, fyrrum forstöðu-
manni áhaldahúss borgarinnar.
Það mál er nú fyrir dómstólum.
Ég hef áreiðanlegar fregnir af
því að öll „rannsókn" endur-
skoðunardeildar á því máli hafi
reynzt allt að því markleysa og
að líklegt sé að Reynir fái sér
dæmdar stórar skaðabætur
fyrir afglöp endurskoðunar-
deildarinnar. Það var upp-
sláttarmál i blöðum með ekki
litlum fyrirsögnum fyrir nokkr-
um árum.“
-ÓV
Enn
slœr
Matthías
— núíJapan
Matthías Mathiesen fjár-
málaráðherra undirritaði í
gær fyrir hönd ríkissjóðs
lánssamning við japanska
fyrirtækið Nikko Securities.
Tekur íslenzka rikið 4.5.
milljarða króna lán hjá
fyrirtækinu til 12 ára með
7.3% vöxtum.
Segir í frétt frá fjármála-
ráðuneytinu að fyrirhugað
sé að nota peningana til
„framkvæmda á vegum rík-
isins samkvæmt lánsfjár-
áætlun."
Ráðuneytinu þykir einnig
rétt að taka fram að mark-
aður fyrir lántökur í Japan
hafi stóreflzt undanfarið.
Bent er á að m.a. öll Norður-
lönd muni bjóða þar út lán á
næstunni — og að þetta sé í
„fyrsta sinn“ sem íslenzka
ríkið slær lán í Japan.
-ÓV