Dagblaðið - 02.02.1978, Síða 1
4. ARq. — FIMMTUDAGUR 2. FEBRUAR 1978 — 28. TBL
RITSTJöRN SÍÐUMULA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIDSLA ÞVERHOLTI 11. — AÐALSÍMI 27022
Aðgerðirí efnahagsmálum:
Frystihúsamenn viidu meira
— hraða gengissigið heldur áf ram
Frystihúsamenn vildu meiri
hækkun í sinn hlut. Þeir sátu
hjá á fundi stjórnar Verö-
.jöfnunarsjóðs í gær, þegar
ákveðin var 20 prósent hækkun
á viðmiðunarverðí á freðfiski.
Ríkissjóður ábyrgist ' þetta
verð, þannig að hann tekur að
sér að sjá um að frystihúsin fái
greitt samkvæmt þvi.
Fjár til þess ætlar ríkis-
stjórnin að afla með gengis-
breytingum.
Ríkisstjórnarfundur hófst
fyrir hádegi í morgun. Þar voru
aðgerðir í efnahagsmálum enn
á dagskrá. Þá mun i dag á fundi
stjórnar Verðjöfnunarsjóðs
fjallað um viðmiðunarverð
fyrir saltfisk.
Hið hraða gengissig krón-
unnar heldur áfram, og fellur
hún um hátt i eina krónu á dag
gagnvart Bandaríkjadollar.
HH
Með
sigurbros
ávör
Það er svo að sjá af myndinni
að Geir Hallgrímsson forsætis-
ráðherra hafi fundið ráð við
efnahagsvandanum. Skiptar
skoðanir geta verið um hvernig
hann sómir sér í þeim félags-
skap er myndin sýnir, en þar
blandast forsætisráðherra í hóp
Jóns Sigurðssonar forseta og
annarra þjóðfundarmanna
1851, þegar hin frægu orð „Vér
mótmælum allir“, voru sögð. —
Ljósmynd Arni Páll.
Drengurféllframaf
Húsavíkurhöfða:
„KRAKKAR
FARA ÞAÐ
SEM ÞEIR
ÆTLA SÉR”
„Það þarf nú varla að hugSa um
það hvað hefði komið fyrir ef
strákurinn hefði faliið alla leið
fram af. Petta eru um 40 metrar
niður í sjó,“ sagði lögregluþjónn-
inn á Húsavík í morgun.
Atvikið sem um var rætt
gerðist i gærdag. Þá féll 3ja ára
drengur fram af Húsavíkurhöfða
en lenti á örmjórri svllu um
10 metra neðan við brún höfðans
og lá þar í klukkutíma áður en
hann fannst. Þykir mönnum
ganga kraftaverki næst að hann
skyldi ekki fara alla leið niður en
eins og lögregluþjónninn sagði er
það um 40 metra fall í sjó niður og
mjög aðdjúpt.
„Hestar eru í girðingu uppi á
höfðanum. En það hindrar ekki
krakka að komast fram á hann
ef þau ætla sér. Þau skríða ýmist
undir girðinguna eða á milli
víra,“ sagði lögregluþjónninn.
Litli drengurinn sem varð fyrir
þessu heitir Sævar Pétursson og
býr á Sólbakka 4. Móðir hans fór
að undrast um hann þegar
krakkar sem hún hélt að hann
væri að leika sér með hringdu að
spyrja eftir honum. Hafin var leit
og fannst drengurinn fljótlega.
Þá hafði hann legið grafkyrr á
syllunni í klukkutima og þykir
einsýnt að það hafi bjargað
honurn. Syllan var það mjó að ef
hann hefði hreyft sig mikið hefði
hann fallið fram af. Logi Sigurðs-
son, nágranni Sævars litla kleif
niður í bjargið og aðstoðaði við að
ná honum upp. Sævar litli var
nær ekkert meiddur og mátti
strax fara heim úr læknisskoðun
þeirri sem hann var sendur í.
DS
í einu af aðalvígjum sjálfstæðis- manna vevður próf kjör um helgina. Margir eru kallaðir en fáir útvaldir. — sjábls.8 Allar lyfturí gangiíBláfjöllum um helgina — Aðsóknin meiri en nokkru sinnifyrr — sjá bls. 4 Nokkuð hertá eftirlitiíbönkum — samkvæmt nýju bankafrumvarpi Ólafs — sjá bls. 5
Margir Bandaríkjamenn voru ginntir á fund galdra- læknis á Filippseyjum. Ætla nú nokkrir íslendingar ífótsporþeirra? — sjá lesendabréf á bls. 2 Neyðarástand vegna snjóa íSkotlandi Polanski flúði landígær — sjá erL fréttir á bls. 6 og7 Páll Líndal telur ekki allt með felldu íkringum borgarráð — sjá tvö bréf hans ábls.5
„GJÖRIÐISV0 VEL, ÞARNA ER KIRKJUGARÐURINN” — segir Þorgeir Þorgeirsson í kjallaragrein—sjá bls. 11