Dagblaðið - 02.02.1978, Page 4
4
DACKI.AniR KIM.MTl'DACl'K 2. FKBIU'AK 1978
Bnru:iil>iKir Hykkjast i Bláf.jöll þe«ar fa>rl er á skirti —oj> vinnudeilan þar hefur verið levst. DB-mvnd: R.Th.
í ,.Um næstu helxi verða allar
Íyfturnar í Bláfjöllum í gangi.
(Gífurleg aðsókn að skíðalandinu
hefur verið undanfarið. Við minn-
umst þess ekki að aðsóknin hafi
áður verið eins mikil á þessum
árstíma," sagði Stefán Kristins-
son, íþróttafulltrúi Reykjavíkur-
borgar, í samtali við Dagblaðið.
,,Það var einhver óánægja með
launin, að minnsta kosti hjá hluta
starfsfólksins, þannig að
l.vftunum var ekki haldið opnum
eitt kvöld og einn dag. Við teljum
þetta óhapp. Við vissum ekki einu
sinni um þetta," sagði Stefán.
,.Við héldum síðan fund með
starfsfólkinu og niðurstaða fund-
arins var að starfsfólkið ákvað að
starfrækja lyfturnar á meðan
væri verið að ræða málin," sagði
Stefán.
Alltaf er verið að smábæta
laðstöðuna í skíðalandinu. Raf-
fnagnsvandræði ollu því, að ekki
var hægt að koma I gagnið spjald-
braut, sem komið hafði verið fyrir
rétt neðan við Eldborgarlandið.
En rafmagnsmenn voru þar efra í
gær og virtist vandinn leystur.
Brautin verður því komin í gagn-
ið fyrir næstu helgi.
Ráðnir voru fimm starfsmenn í
Bláfjöll um áramótin en einn
þeirra veiktist þannig að starfs-
mennirnir eru fjórir. Vinna þeir
undir stjórn Ásgeirs Eyjólfs-
sonar. Þar að auki kemur
ákveðinn hópur manna sem
vinnur um helgar þegar mest er
að gera.
-A.Bj.
Utsala, útsala
Útsalan er byrjuð, mikil
verölækkun
ELÍZUBÚÐIN,
SKIPHOLTI5
Skóbúóin Suðurverí
Stigam 45 - Sfmi83225
Útlit fyrir aukinn
ferðamannastraum
— enáhrif verkfalla óljós
,,Við höfum gert lítið af því
að kaupa auglýsingar í erlend-
um blöðum vegna þess gífur-
lega kostnaðar sem því er sam-
fara. Við höfum aftur á móti
reynt að koma að kynningu í
gegnum tengsl við erlenda
blaðamenn," sagði Heimir
Hannesson formaður Ferða-
málaráðs í samtali við DB.
..Nýlega höfum við sett
okkur bréflega í samband við
ferðamálaritstjóra allra stærstu
blaðanna í Bandaríkjunum og
Bretlandi og eru fleiri lönd á
dagskránni hjá okkur,“ sagði
Heimir.
Ferðamálaráó hefur skrif-
stofur í New York og Los
Angeles, sem reknar eru í sam-
starfi við Norðurlönd. Ferða-
málaráð er einnig aðili að ferða-
málaráði Evrópu sem stundar
kynningarstarfsemi víða um
heim, bæði í Bandaríkjunum,
Japan, Kanada og víðar.
Sagði Heimir að margt benti
til þess að aukning yrði á ferða-
mannastraumi til landsins á
komandi sumri. ,,En verkföllin
á sl. ári gerðu verulegt bakslag.
Öll óvissa í samgöngumálum
skapar niikla hættu í þessum
efnum," sagði Heimir Hannes-
son.
-A.Bj.
N
Þetta er algeng sjón á götum
höfuðborgarinnar á aðalferða-
mannatímanum, — erlendur
ferðamaður með úttroðna
innkaupapoka af íslenzkum
varningi. Útlit er fyrir að marg-
ir erlendir ferðamenn leggi
leið sína til landsins á næstu
„vertíð", þrátt fyrir að margir
hafi hætt við fvrirhugaða
íslandsför vegna verkfallanna
á sl. ári sem stöðvuðu sam-
göngur erlendis frá. Lítið
eyland í norðri hefur ekki efni
á að láta verkföll lama sam-
göngukerfið við útlönd!
DB-Hörður.
BORÐA VILLIBRÁÐ
OG KAUPA MÁLVERK
Lionsklúbburinn Fjölnir hefur
um árabil haft sem aðalverkefni
stuðning við vistheimilið að
Víðinesi á Kjalarnesi. Þar eru
teknir til dvalar drykkjusjúkling-
ar sem af eigin hvötum leita sér
lækninga á drykkjuskap sínum.
Klúbbfélagar heimsækja v.ist-
heimilið reglulega og hefur
skapast náið sámband við vist-
menn og félaga úr líknarsjóði
Fjölnis. Hefur verið lagt mikið fé
af mörkum til viðhalds. hljóð-
færakaupa og uppb.vggingar
bókasafns. Líknarsjóður Fjölnis
hefur einnig lagt verulegt fé af
mörkum til annarra líknarmála.
En til þess að Fjölnismenn geti
verið hlutverki sínu vaxnir þurfa
þeir að afla sér fjár. í því skyni er
stofnað til áríegs villibráðaráts,
sem verður á morgun kl. 19 i
Átthagasal Hótel Sögu,
Þar verður á boðstólnum sú
villibráð sem er að fá á íslandi
eða gæsa. anda. lunda, svartfugla.
rjúpna og hreindýrakjöt og allir
Lionsfélagar sem vilja slíkar
krásir eru velkontnir.
Um kvöldið verður listaverka-
uppboð á verkum éftirtaídra lista-
manna: Báltasar. Guðmundar
Karls Asbjörnssonar. Hrings
Jóhannessonar. Jóhamiésar
Geir's, Ragnars Lár og Valtýs
Péturssónar. Ómar Ragnarsson
verður skemmtikraftur kvöldsins
og aðalræðumaður verður Pétur
Guðjónsson. Veizlustjóri verður
Riehard Hannesson.
Formaður Lionsklúbbsins
Fjölnis er Birgir Jóhannsson
tannlæknir.
-A.Bj.
Tilboð opnuð í fyrsta áfanga Hrauneyjafoss
virkjunar
Tilboð í vélar. rafbúnað, lokur,
þrýstivatnspípur og stöðváfhúSS"-
krana væbtanlegrar Hraun|y||-^ís lS
fossvjrkjú.nar^ vérða ■QþgyaJtwja*^
morgun.
Tilboðin eru samkvæmt tveim-
ur útboðum. Eru þau miðuð við
kaup Landsvirkjunar á vélum.
búnaði, tækjum og efni fvrir 140
megawatta virkjun með tveim
vélasamstæðum, sem hvor verður
70 megawött. í útboðunum er gert
ráð fyrir, að Landsvirkjun sé
gefinn kostur á að festa kaup á
þriðju, jafn stóru vélasam-
stæðunni, komi síðar meir til
stækkunar virkjunarinnar aó
fengnum nauðsynlegum leyfum.
að þvi er segir i frétt frá Lands-