Dagblaðið - 02.02.1978, Page 6
Skotland:
Mestu snjóar
íþrjátíu ár
— þorp og bæir einangraðir og víða ríkir neyðarástand
Þyrlur vörpuðu niður fóðri
til skepna á Skotlandi í gær en
þar ríkir nú mikið neyðar-
ástand vegna snjóa. Ekki hefur
snjóað svona mikið á Skotlandi
sl. 30 ár. Samgönguerfiðleikar
eru miklir þar sem vegir og
járnbrautarlínur eru tepptar
vegna snjóalaganna. Veðurfar
þetta hefur þegar kostað fjögur
mannslíf.
Björgunarstarfi var haldið
áfram í gær og voru aðallega
notaðar þyrlur, sem fluttu mat-
væfi og eldsneyti til einangr-
aðra þorpa og bæja. Allar götur
eru fullar af bílum sem ekki
hafa komizt leiðar sinnar. I nótt
var gert ráð fyrir enn meiri
snjókomu.
Ástandið er viða ömurlegt og
á eftir að versna þar sem mikil
flóðahætta fylgir í kjölfar snjó-
komunnar, þegar aftur tekur að
hlána.
Kanada:
Vísindamenn
athuga brak
sovézka gervi-
hnattarins
Bandarískir og kanadískir vís-
indamenn hafa nú tekið brak úr
sovézka gervihnettinum Cosmos
954, sem hrapaði yfir Kanada, til
athugunar.
Þeir hlutir sem enn hafa fund-
izt eru fremur lítið geislavirkir og
ekki hefur orðið vart við kjarna-
hleðslu hnattarins eða úraníum
sem er mjög geislavirkt. Flug-
vé|ar kanna svæðið ennþá með
lágflugi þar sem mælingartæki
kanna alla geislavirkni.
Sovézkur Cosmos gervihnöttur.
Nákvæmt
eftirlit
með
appelsínum
f rá ísrael
Israelsmenn hafa nú náið eftir-
lit með útfluttum Jaffa appelsín-
um eftir að upp komst um eitr-
aðar appelsínur í Hollandi og V-
Þýzkalandi.
Hreyfing sem kallar sig Arab-
íska byltingarherinn hefur sagzt
vera ábyrg fyrir eitruninni í
appelsínunum, en kvikasilfri
hefur verið dælt í þær. Jaffa
appelsínur eru mikilvægasta
landbúnaðarútflutningsvara Isra-
elsmanna.
Israelsk yfirvöld hafa vísað
þeim staðhæfingum samtakanna
á bug sem segja að eitrinu hafi
verið dælt í appelsínurnar á ísra-
elsku landsvæði, þ.e. herteknú
svæðunum, heldur hafi það verið
gert eftir að ávextirnir komu til
Evrópu.
Palestínska fréttastofan Wafa í
Beirút hefur neitað því að Palest-
inumenn hafi eitrað appelsínurn-
ar, sem fluttar voru til Evrópu og
talsmaður opinberra aðila í Alsfr
sagði að þetta væru nýjar ,,'við-
bjóðslegar tilraunir“ til þess að
sverta nafn Araba.
Aköf leit lögreglumanna er nú
gerð að ræningjum belgíska
iðjuhöldsins Edouard-Jean
Empain, en þeir hafa gert kröfur
um lausnargjald sem nemur 2.2
milljörðum ísl. króna.
Talið er að pólitískir öfgahópar,
sem lýstu sig ábyrga á ráni
Belgans eigi engan þátt í ráninu,
heldur hafi þeir auglýst sig með
blekkingum.
Þungunarprófanir heima
Bandaríkjamenn ætla nú að fara að dæmi Evrópumanna og hefja
notkun á „gerðu það sjálf“ þungunarprófunum, þ.e. konan getur
gengið úr skugga um það sjálf hvort hún er þunguð eða ekki en þarf
ekki að leita læknis.
Með þessum heimaprófunum á konan að geta séð hvort um
þungun er að ræða aðeins níu dögum eftir að hún hefur sleppt úr
eðlilegum tíðum. Lyf þctta, sem heitir E.P.T., er hægt að fá í
lyfjaverzlunum vestra án lyfseðils og er litið og handhægt og ekki
þarf að ge.vma það í kæliskápum.
Areiðanleiki þessara prófana hefur verið reyndur af læknum og
hafa þeir staðfest notagildið eins og revndar þa*r konur sem revnt
hafa.
DAGBLAniÐ. FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1978.
Erlendar
fréttir
Brezkaþingið:
Alíir flokkar
sammála um
fiskveiðimál
— John Silkin sjávarútvegsráðherra
vel fagnað við komuna f rá Brussel
Sjávarútvegsráðherra Breta
fékk góðar viðtökur er hann
kom heim frá Brussel eftir að
samningaviðræður Efnahags-
bandalagsríkjanna sigldu í
strand vegna þess að Bretar
samþ.vkktu ekki tillögur hinna
bandalagsþjóðanna.
Leiðtogar allra flokka á
brezka þinginu voru sammála
um að þessi stefna væri rétt og
Polanski flúði land
Hinn heimskunni leikstjóri,
Roman Polanski, kom til London í
gær og lét þar með undir höfuð
leggjast að mæta fyrir rétti í Cali-
forníu til þess að hlýða á dóms-
uppkvaðningu í máli gegn
honum. Polanski á yfir höfði sér
dóm vegna ólöglegs kynferðis-
sambands við 13 ára gamla stúlku
á heimili leikarans Jacks Nichol-
son. Þar sem Romanski mætti
ekki við réttarhaldið hefur rétt-
urinn í Santa Monica í Kaliforníu
gefið út handtökuskipun á
hendur honum.
Leikstjórinn kunni virtist láta
sér þetta málafjas í léttu rúmi
liggja og ferðaðist á fyrsta far-
rými á leið sinni til London.
brezkum fiskimönnum að
skapi. ,,Það er tími til kominn
að Bretar sýni EBE löndunum
svipaða hörku og þau hafa oft
áður sýnt í samningamálum.
Samningaviðræðurnar sem
sigldu i strand í gær hafa staðið
í nærfellt eitt ár. Bretar krefj-
ast 12 mílna einkalögsögu og
yfirráðaréttar út að 50 mílna
markinu.
Stuðningur
við Bardot
Samþvkkt hefur verid einróma að stvðja haráttu Brigitte Bardot.
Engir seðlar auðir eða ógildir. Baráttuhópurinn.