Dagblaðið - 02.02.1978, Side 7
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1978.
SADAT Á FARALDSFÆH
— För Egyptalandsforseta til átta
landa hefstídag
Sadat Egyptalandsforseti
hefur í dag för sína til átta
landa, þ.á m. Bandaríkjanna,
en mikið er undir henni komið
varðandi áframhaldandi friðar-
viðræðurí Miðausturlöndum.
Að loknum viðræðum sínum
í Bandaríkjunum mun Sadat
heimsækja Bretland, V-
Þýzkaland, Austurríki,
Rúmeníu, Frakkland og Ítalíu.
Viðræður Sadats og Carters
eru mjög mikilvægar og Sadat
álítur að Bandaríkjastjórn geti
haft áhrif á Israelsstjórn í
tveimur þýðingarmestu málum
samningaviðræðnanna, þ.e.
búsetu ísraelsmanna á hertekn-'
umsvæðum frá 1967 og framtíð
sjálfstæðs Palestínuríkis á
vesturbakka Jórdanár og á
Gaza svæðinu.
I dag hittast í Alsír þeir
Arabaleiðtogar, sem eru and-
vígir friðarumleitunum Sadats
Egyptalandsforseta. Þeir sem
sækja ráðstefnuna eru leið-
togar Alsír, Sýrlands, Líbýu,
Suður-Jemen og frelsissamtaka
Palestínumanna, PLO. Ekki er
gert ráð fyrir því að Gaddafi,
leiðtogi Líbýu, geti verið við-
staddur vegna lasleika en hann
mun senda fulltrúa sinn.
Sadat Egvptalandsforseti mun i fiir sinni til Bandaríkjanna revna að fá Carter Bandaríkjaforseta til
þess að beita áhrifum sínum á ísraelsmenn. þannig að friðarviðræður þjóðanna geti hafizt á nýjan
Ieik.
Er það mögulegt að þessi hvíti fólksvagn hafi staðið þarna svo lengi að tréð hafi vaxið upp í gegnum
bílinn. Nei varla. Þótt fólksvagnar hafi verið framleiddir í 40 ár þá hlýturtréð að vera eldra.
Skýringin á þen;u er raunar einföld. I skjóli nætur höfðu nokkrir prakkarar í skóla einum í
Svíþjóð tekið aðra hurðina af fólksvagninum og gert gat á topp og botn þar sem tréð passaði i. Síðan
settu þeir allt saman á ný.
Þetta tré hefur reyndar áður fengið að kenna á prökkurum úr sama skóla. Þeir hafa tekið sig til og
vafið allt tréð með klósettpappír og einnig hafa vaxið á því blöðrur.
AFSAKIÐ HR. EN BILLINN
HEFUR STAÐIÐ ÞARNA
200 ÁRUM 0F LENGI
Norðmönnum bjargað
af strönduðum
olíuborpalli
Brezkar þyrlur björguðu 33
manna áhöfn af norskum olíu-
borpalli, sem strandaði nálægt St.
Peter Port á Guernsey í nótt, í
miklum stormi og stórsjó. Flestir
mannanna á borpallinum voru
Norðmenn og voru þeir fluttir á
hótel. Aðeins einn maður
slasaðist lítillega.
V-þýzkur dráttarbátur var með
inótt
borpallinn í togi á leið til Rotter-
dam þegar dráttarlínan slitnaði
og borpallurinn hraktist stjórn-
laus undan veðri og tók að snúast
ákaflega. Borpallurinn, sem er
3600 tonn að stærð, átti að fara til
Brasilíu. Verðmæti pallsins er
rúmlega fjórir milljarðar
islenskra króna.
JAPANIR MESTA FISK-
VEIÐIÞJÓÐ HEIMS
— veiða sjöunda hluta sjávarafla
— Sovétmenn f ylgja fast á ef tir
Japan hefur aftur náð forystu
sem mesta fiskveiðiþjóð heims
árið 1976. Það ár veiddu Japanir
alls 10.455.000 tonn af fiski. Þetta
aflamagn er um einn sjöundi af
heildarsjávarafla alls heimsins á
árinu, en hann var 73.467.000
tonn.
Önnur mesta fiskveiðiþjóð
heimsins eru Sovétmenn en þeir
fylgja fast á hæla Japönum með
rúmlega 10.1 milljóna tonna.
Að sögn japanskra yfirvalda er
gert ráð fyrir að afli þeirra hafi
verið mun minni á sl. ári, þ.e.
1977, vegna útfærslna fjölmargra
ríkja í 200 mílur á árinu, en
endanlegar aflatölur liggja enn
ekki fyrir.
Blaðburðarbörn óskast strax í
STÓRH0LT,
STANGARHOLT.
Upplýsingor í sfma 27022
mmmD
Viljumráða
STARFSKRAFT
til starfa á verkstæði voru. Þarf að
hafa meistararéttindi í bifvélavirkj-
un.
Umsóknum ekki svarað í síma.
J. SVEINSS0N & C0.
Hverfisgötu 116, Revkjavík.