Dagblaðið - 02.02.1978, Síða 8
8
r
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 2. FEBRUAR 1978.
Sjálfstæðismenn með prófkjör í Reykjaneskjördæmi:
Stórt og fjölmennt kjördæmi með
mörg vandamál en fáa þingmenn
— atvinnumál í af turför, sjávarútvegurinn f brennidepli
en uppbygging annarra atvinnuvega nauðsyn
Sjálfstæöismenn i Reykja-
neskjördæmi ganga til próf-
kosninga um næstu helgi og
munu vel.ja frambjóðendur til
alþingiskosninga í vor.
Mörg sveitarfélög í kjör-
dæminu hafa verið meðal
sterkustu vígja flokksins um
árabil og því ekki vafi að fylgzt
verður með úrslitum próf-
kjörsins með athygli.
Kjördæmið er stórt og nær
allt frá botni Hvalfjarðar til
yzta odda Reykjaness. Sveitar-
félögin eru margs konar og þar
er Hafnarfjörður fjöl-
mennastur með Kópavog alveg
á hælunum en síðan má nefna
fámennari byggðarlög eins og
Hafnirnar.
Háværar raddir hafa krafizt
fjölgunar þingmanna Reykja-
neskjördæmis og víst er um það
að miðað við fjölda kjósenda
eru fulltrúar þeirra á Alþingi
færri en nokkurs annars
kjördæmis.
Atvinnumál eru mjög á
oddinum í kjördæminu um
þessar mundir. Sjávarútvegur
og fiskvinnsla á þar mjög í vök
að verjast og mikið er rætt um
fjölþættari atvinnutækifæri í
byggðum Reykjanes-
kjördæmis.
-ÓG.
„RÉTTLÁTARISKATTA
OG BETRIVEGI” — baráttumál Ólafs G. Einarssonar
Eiríkur Alexandersson bæjarstjóri í Grindavík:
„Suðurnesjakjördæmi t d.!”
,,Innan kjördæmisins myndi ég
beita mér fyrir úrbótum í
sjávarútvegi og atvinnumálum
almennt," sagði Eiríkur Alexand-
ersson bæjarstjóri I Grindavík í
viðtali við DB en hann er í fram-
boði til prófkjörs sjálfstæðis-
manna vegna alþingis-
kosninganna í Reykjaneskjör-
dæmi í vor. Prófkjörið fer fram
núna um helgina. ,,Eins myndi
ég beita mér fyrir breytingu á
kosningalögum hér í kjördæminu
með tilliti til aukins lýðræðis
þannig að atkvæðafjöldi og þing-
menn haldist f hendur.“
Sagði Eiríkur að hann vildi
gera kosningar persónulegri en
þær væru, skipta kjördæminu
ríiður í smærri kjördæmi og
nefndi t.d. Suðurnesjakjördæmi I
því sambandi.
„Endurbætur á hinu svokallaða
kerfi eru einnig nauðsynlegar,“
sagði Eiríkur. „Það þarf að gera
manneskjulegra og að þar verði
sjálfstæðisstefnan, það er frelsi
einstaklingsins, meira í heiðri
höfð. Slagorðið Báknið burt —
það er mikið til í því.“ -HP.
Höfum frelsi einstaklingsins
meira í heiðri en verið hefur,
segir Eiríkur Alexandersson
sveitarstjóri í Grindavík.
„Eg hef nú verið að berjast
fyrir ákveðnum málum á þingi.
Ætli ég haldi því þá ekki bara
áfram, ef ég næ inn,“ sagði Ölafur
G. Einarsson alþingismaður þegar
4C
Ólafur G. Einarsson alþingis-
maður. DB-m.vnd Arni Páll.
hann var spurður hvað hann
hygðist gera á þingi næsta kjör-
tímabil fengi hann umboð
kjósenda til þess að starfa þar.
„Ég hef sérstakan áhuga á að
breyta verkaskiptingu ríkis og
sveitarfélaga þannig að sveitar-
félögin takist meira á hendur.
Svo eru það auðvitað skatta- og
efnahagsmálin. Eg vil láta bre.vta
fyrirkomulagi skatta þannig að
það verði einfaldara og réttlátara.
Þetta þarfnast auðvitað frekari
rökstuðnings en honum er ekki
Oddur Ólafsson ætlar að:
„Reyna að draga úr
veiðbólgunni”
„Ætli það verði ekki helzt at-
vinnuuppbyggingin í Reykjanes-
kjördæmi sem ég mun beita mér
fyrir að breyta,“ sagði Oddur
Ölafsson alþingismaður um það
hvað hann hygðist gera á næsta
þingi fengi hann umboð kjósenda
til að starfa þar.
„Efnahagsmálin yfirleitt eru
mér einnig hugleikin og ég ætla
að beita mér fyrir því að reynt
verði að draga úr verðbólgunni og
reyna að stöðva þann vítahring
verðhækkana og kauphækkana,
sem hefur valdið samfélaginu
miklu tjöni að undanförnu.
Einnig finnst mér að félags- og
heilbrigðismál í Reykjanes-
kjördæmi hafi orðið útundan og
þurfi að líta betur á þau. Mörgu
er þar ábótavant sem ég ætla að
beita mér fyrir að verði lagað,"
sagði Oddur Ölafsson. -DS.
DB-mvnd Arni Páll.
Sigurpáll Einarsson skipstjóri:
„Sjávarútvegurinn á
síðustu andartökum”
„Það er ljóst að sjávarút-
vegurinn í þessum landshluta er
að taka síðustu andartökin og
gegn því vil ég beita mér,“ sagði
Sigurpáll Einarsson skipstjóri í
viðtali við DB. „Það tekur okkur,
sem unnið höfum við þetta alla tið
og komum sennilega til með að
gera það áfram, sárt að sjá
hvernig málunum er komið."
Sigurpáll sagði að gömul skip
og gamlar vinnslustöðvar væru
ein aðalorsökin fyrir því hvernig
væri komið og taldi mikið átak
framundan í þeim málum, ef
betur ætti að fara.
„t landsmálum mun ég fylgja
ungum sjálfstæðismönnum að
málum um það að fá báknið burt,
enda hef ég setið i stjórn SUS hér
t nokkur ár,“ sagði Sigurpáll.
„Réttast væri að umbvlta öllu
þessu bákni og b.vrja upp á nýtt,
alla vega er ekki um neinar
smáaðgerðir að ræða ef koma á
þessu þjóðfélagi á réttan kjöl,“
sagði Sigurpáll ennfremur.
-HP.
Helgi Hallvarðsson skipherra:
Hvernig hagkvæmast
verðurstaðiðað
fiskfriðunarmálum
hægt að koma að í svona stuttu
spjalli.
Eg hef einnig mikinn áhuga á
vegamálum og vil aó gert verði i
þeiin stórátak.
'■f®
ÁsthildurPéturs-
dóttir fulltrúi:
„Ef málin skipuðust þannig að
ég fengi tækifæri, þá mundi ég
beita mér fyrir öllu því sem til
framfara horfir í sjávarútvegi
og sjómennsku," sagði Helgi
Hallvarðsson skipherra en hann
býður sig fram í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjanes-
kjördæmi.
„Að sjálfsögðu mun ég styðja
öll þau mál sem ég tel landi og
þjóð til heilla.
Þar vildi ég til dæmis nefna
nauðsyn þess að komast að niður-
stöðu um hvernig bezt og hag-
kvæmast er að standa að fisk-
friðunarmálum þannig að fisk
stofnar megi sem skjótast vaxa
upp og verða okkur íslendingum
til sem mestrar hagsældar."
Spurningu um hvers vegna
hann b.vði sig fram til prófkjörs.
svaraði Helgi:
„Ég hef lengi haft áhuga á
landsmálapólitík og fylgzt með
henni eftir beztu betu. Þar af
leiðandi hef ég áhuga á því að
spreyta mig á þessum vettvangi."
-OG.
Varðandi kjördæmi mitt þá vif
ég mikka breytingu í atvinnu-
málum. Sjávarútvegur yfirleitt
hefur dregizt aftur úr á Suður-
nesjum miðað við aðra landshluta
og þarf að bæta það, Stöðu
iðnaðarins þarf einnig að bæta,“
sagði Ölafur G. Einarsson.
-DS.
Mun beita mér f.vrir framförum í
sjávarútvegi og sjómennsku al-
mennt, segir Helgi Hallvarðsson
skipherra en á m.vndinni með
honuni er Pétur Sigurðsson, for-
stjóri Landheigisgæzlunnar.
(t.h.).
, : |I '■
; J ii
Réttast væri að uinbyita öiiu
hákninu og bvpja upp á nýtt, segir
Sigurpáll Einarsson skipstjóri í
Grindavík.
„Að koma
fjármálum
þessa þjóð-
félags á
réttan kjöl”
„Ég held að ég eins og svo
margir aðrir muni styðja
einhverja þá stefnu sem komið
getur fjármálum þessa lands á
réttan kjöl,“ sagði Ásthildur
Pétursdóttir, fulltrúi hjá Félags-
málastofnun Kópavogs í viðtali
við DB. „Efnahagsmál þessarar
þjóðar eru ákaflega aðkallandi og
það held ég að allir geti verið
sammála um.“
Asthildur sagði sín aðalmál þó
vera félagsmálin almennt en vildi
leggja áherzlu á aðbúnað eldra
fólksins. „Ég tel það mjög
áríðandi að eldri borgararnir geti
fengið að eyða ævikvöldi sinu á
Asthildur Pétursdóttir starfar
mikið að félagsmálum í Kópavogi
og á mvndinni er hún í einhvers
konar leik og unglingarnir horfa
greinilega á með athvgli.
skemmtilegan og áhyggjulausan
hátt og að því ber að stuðla af
alefli." sagði Ásthildur.
„Þá má nefna skólamálin, sem
eru gífurlega stór þáttur í lífi
okkar," sagði Ásthildur enn-
fremur. „Þar stöndum við alger-
lega á gati, sérstaklega hvað
varðar alla framhaldsmenntun.
Það ber að leggja mikla áherzlu á
endurbætur á sviði verk-
menntunar, sem látin hefur verið
sitja á hakanum alltof Iengi.“ -HP.