Dagblaðið - 02.02.1978, Page 12
12
lJACiBI.AÐIÐ. FIMMTUDAGUR 2. FEBRUAR 1978.
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
FerTueart
til Cosmos?
Þekktasta knattspyrnufélag
Bandaríkjanna, New York Cos-
mos, stendur nú i samningum við
Manch. City. Hefur hug á því að
kaupa Dennis Tueart, enska
landsliðsmanninn hjá Man-
chester-félaginu — og hefur
boðið því 300 þúsund sterlings-
pund í Tueart. Leikmaðurinn
hefur verið nokkrar vikur á sölu-
lista, Maneh. Utd. vildi kaupa
hann — en Tueart neitaði.
Sagðist vilja fara til félags utan
Englands.
Þá eru allar líkur á því að
kunnasti knattspyrnumaður
Frakklands, Patini, sé á förum til
Barcelona á Spáni. Bareelona,
sem missir Johan Crijuff í vor,
hefur boðið 500 þúsund sterlings-
pund í hinn frábæra, franska
framvörð.
VerðurSten-
mark heims-
meistari?
— þríríslendingar
meðal keppenda í
stórsvigi á HM í dag
Ingemar Stenmark, Svíþjóð,
revnir í dag til að vinna sinn
fvrsta beimsmeistaratitil í alpa-
greinum, þegar keppt verður í
stórsvigi karla á HM í Garmiseh-
Partenkirschen. Stenmark, sem
náð hcfur betri árangri en
nokkur skíðamaður fyrr eða
síðar, er talinn mjög sigurstrang-
legur þrátt fyrir þá staðreynd, að
hann hefur tapað í þremur síð-
ustu mótunum.
Stenmark hefur alveg náð sér
eftir inflúensu, sem hann fékk
fyrir tveimur vikum og erstaðráð-
inn í að þurrka út slæmar minn-
ingar frá Olympíuicikunum í
Innsbruek 1976, þegar hann hlaut
aðeins bronsverðlaun í störsvigi.
Lauk þar ekki keppni í svigi.'
Brautin i dag verður mjög erfið. "
1355 inetrar að lengd. i sömu
hraut í keppni heimsbikarsins í
fyrra féll Stenmark. Allir heztu
skíðamenn heims verða meðal
keppenda — og þá keppa þar
einnig þrír íslenzkir skíðamenn.
Þjálfari
Feyenoord
látinn hætta
Hollenzka liðið fræga,
Fe.venoord, Rotterdam, hefur
ákveðið að segja upp samningi
sínum við þjálfara liðsins,
Vujadin Boskov, sem er júgó-
slavneskur. Hann mun hætta hjá
félaginu í vor. Það þarf ekki að
gera því skóna hvers vegna.
Feyenoord hefur gengið illa í 1.
deildinni í Hollandi í vetur.
Hefur tapað þremur síðustu leikj-
um sínum og er nú í sjötta sæti í
1. deildinni. Sú staða er engan
veginn viðeigandi hjá þessu
fræga liði, sem hefur orðið
Evrópumeistari.
Hoffmann með
bezta árangur
Jan Hoffmann, Austur-
Þýzkalandi, náði forustu í list-
hlaupi á skautum í Strassborg i
gær — en hann er þar að verja
titil sinn. Keppninni lýkur í dag
með frjálsum æfingum. Hoff-
mann hefur 83.60 stig. í öðru sæti
er Vladimir Kovalev, Sovétríkj-
unum, með 83.28 stig, svo litlu
munar. 1 fyrra varð hann í öðru
sæti. Þriðji nú er Igor Bobrin,
Sovétríkjunum, með 79.96 stig og
fjórði Robin Cousins, Bretlandi,
með 79.88 stig. Cousins var eini'
skautamaðurinn í gær, sem hlaut
hámarkseinkunn, eða sex, hjá
einum dómaranum — þeim
austurriska.
Danski landsliðsþjálfarinn, Leif Mikkelsen, og fyrirliðinn. Anders-Dahl Nielsen. fagna eftir sigurinn
gegn Póllandi á þriðjudag. Nú drevmir Dani um gull í heimsmeistarakeppninni
Bikarmeistarar Man
Utd. úrleikíWBA!
— og Derby sigraði Birmingham í gærkvöld
Öll vi
dæmd
— sagðiJerzyKle
Danirískýjunu
á gullverðl
Fyrir fimm dögum var það
aðeins von um þokkalegan árang-
ur í heimsmeistarakeppninni í
handknattleik — í dag dreymir
okkur um gullið í kcppninni,
nokkuð, sem ekki einu sinni
danskir sérfræðingar þorðu að
taka með í reikninginn, skrifar
eitt af dönsku blöðunum eftir
sigur Dana á Pólverjum á þriðju-
dagskyöld. Danir eru í skýjunumj
vegna árangurs danska landsliðs-
ins á HM — og um annað er vartl
rætt í Danmörku nú en mögu-
leika liðsins. Danska liðið hefúr
þegar náð því takmarki, sem sett
var í upphafi. Það getur ekki
orðið neðar en í sjötta sæti og
hefur þar með tryggt sér rétt í
úrslitakeppni Ol.vmpíuleikanna í
Moskvu 1980.
Draumur leikmanna Maneh.
Utd. að komast þriðja árið í röð
i úrslitin í ensku bikarkeppninni
varð að engu í West Bromwich í
gærkvöld — eftir framlengingu.
WBA sigraði bikarmeistarana 3-2
eftir að jafntefli hafði verið 2-2
eftir venjulegan leiktíma. Þá
sigraði Derby Birmingham 2-1 í
bikarkeppninni og í næstu um-
ferð — þeirri fimmtu — leika
Derby og WBA saman í Derby.
WBA náði forustu í leiknum i
gær á 13. mín., þegar Tony Brown
skoraði. Stuart Pearson jafnaði
fyrir Manch. Utd. á 20. mín. — en
eftir fjórar mín. í síðari hálfleik
komst WBA aftur yfir með marki
svertingjans C.vrille Regis.
Þannig stóð þar til tvær mín. voru
til leiksloka, að Gordon Hill jafn-
aði fyrir United með hörkuskoti
af 25 metra færi.
Jafntefli því eftir venjulegan
leiktíma og því framlengt. Þá
skoraði Regis fljótlega aftur og
þrátt fyrir mikla viðleitni tókst
Manch. Utd. ekki að jafna mun-
inn. Liðið er þvi úr leik i bikar-
í kvöld leika Danir við Svía í
Herning og þurfa að sigra í þeim
leik — helzt með talsverðum mun
til þess að hafa möguleika á að
komast í úrslitaleikinn á HM. Á
sama tíma leika Sovétríkin og Pól-
land i Árósum. Þar verða Pólverj-
arnir á ,,heimavelli“ — nær allir
áhorfendur munu hvetja Pól-
keppninni og leikmenn geta
aðeins sjálfum sér um kennt. Þeir
fengu fjölmörg góð tækifæri gegn
WBA á laugardag í Manchester,
sem þeir misnotuðu.
Þá léku Derby og Birmingham í
bikarkeppninni í gær. Strax á 2.
mín. náði Derby forustu með
marki Gery Daly og komst síðan í
2-0 með marki Don Masson. t
siðari hálfleiknum sótti Birming-
ham mjög en tókst aðeins að skora
eitt mark — Keith Bertschin.
John Wile, fyrirliði WBA, varð
að yfirgefa völlinn í West Brom-
wich eftir 60 mín. leik. Talinn
kjálkabrotinn og kom varamaður
í hans stað.
Einn leikur var í 4. deild.
Sóuthend sigraði Crewe Alex-
andra 1-0 í Crewe og er i öðru sæti
í deildinni á eftir Watford. Leikj-
um Wrexham — Newcastle, Stoke
— Blyth í bikarkeppninni var
frestað til næsta mánudags — og
öllum.leikjum, sem fara áttu fram
á Skotlandi var frestað. Þeir voru
margir. Hið slæma veður undan-
farið á Skotlandi hefur heldur
betur sett strik í reikninginn í
sambandi við knattsp.vrnuna.
Meðal leikja, sem frestað var, var
leikur Celtic og Dundee. Ákveðið
hefur nú verið að hann fari fram
mánudaginn 6. febrúar.
Skautakonan glæsilcga, Irena Rodnina.Sovétrikjunum vann sinn ti
parakcppni i listhlaupum á skautuni í Strassborg i gær — í sjiitta sinn
Alexander /aitsev. Þá fjóra fvrstu með Alexei Ulanov. Þá hefur hún i
tvívegis ðlympískur meistari. Mvndin að ofan er af Irenu og Zaitsei
Strassborg i gærkvöldi.
Anna-María Moser Pröll— enn heimsmeistari.
Anna-María
meistari
„Það voru margir, sem sögðu að
ég mundi aldrei verða fyrst á ný
eftir að ég hætti keppni um tima.
En mér tókst það og er glöð með
árangurinn,“ sagði hin 24ra ára
Anna-María Moser-Pröll eftir að
hún sigraði í bruni heims-
meistarakeppninnar í Garmisch-
Partenkirchen í Vestur-
Þýzkalandi i gær. í heims-
meistarakeppninni 1974 varð hún
einnig sigurvegari í bruni — og
samanlagt. Mesta skíðakona, sem
uppi hefur verið — ein af átta
börnum austurrískra hjóna. Anna
María fór brautina á 1:48.31 mín.
og var fagnað vel af 30 þúsund
áhorfendum, þó svo hún kæmi í
veg fyrir sigur vestur-þýzku
stúlkunnar, Irena Epple (systur
Maríu Epple, sem er mun þekkt-
ari skíðakona). Hún sagði: „Ég
bjóst aldrei við að vinna til verð-
launa í keppninni — alls ekki
silfur.“ Irena var sjö sekúndu-
brotum á eftir Önnu Maríu. í
þriðja sæti i keppninni varð Doris
de Agosti, Sviss, og olvmpíu-
meistarinn María-Theresa Nadig,
Sviss, varð í fjórða sæti. í fimmta
sæti kom Cindv Nelson, USA.