Dagblaðið - 02.02.1978, Page 24
Verðlagið um aldamótin, verði verðbólgan áf ram eins
og verið hefur síðustu ár:
FRANSKBRAUÐW
Á124ÞÚSUND —
VÍNFLASKAN
Á6MIIUÓNIR
Hvernig lízt mönnum á að
borga hundrað tuttugu og fjög-
ur þúsund krónur fyrir eitt
franskbrauð og rúmar sex
milljónir fyrir flösku af kiára-
víni? Þannig verður verðlagið
orðið árið 2000, ef verðbólgan
verður jafnmikil á ári og hún
hefur verið síðustu fjögur ár að
meðaltali.
Verðbólgan hefur verið 38,5
prósent á ári að meðaltali
síðustu fjögur ár og síður en
svo er lát á henni. Ef verðbólg-
an yrði slík öll árin fram til
aldamóta, yrði verðlagið árið
2000 1293 sinnum hærra en nú
er. Þannig hleður óðaverðbólg-
an upp á sig.
Sígarettupakkinn, sem nú
kostar 390 krónur, yrði árið
2000 kominn í rúma hálfa millj-
ón króna. Mjólkurfernan yrði
komin í 147 þúsund krónur.
Lítil kókflaska mundi um alda-
mótin kosta 51 þúsund krónur.
Kílóið af súpukjöti mundi kosta
tæplega eina og hálfa milljón,
miðað við óbreytt hlutfall
niðurgreiðslna. Fólk verður þá
farið að reikna bílverðin í millj-
örðum. Bíll, sem nú kostar tvær
milljónir, mundi þá kosta um
tvo og hálfan milljarð og íbúð,
sem nú kostar tíu milljónir,
yrði komin í tæplega þrettán
milljarða króna.
Haldi verðbólgan áfram eins
og verið hefur mundi verðlagið
tuttugu og fimmfaldast um
1988 og tæplega hundraðfaldast
1992. Þetta margfeldi magnast
svo hratt og verður tæplega 550
falt árið 1997 og nærri þúsund-
falt 1999.
- HH
„MÉR ÞYKIR AFAR VÆNT UM ÞETTA LAND”
„Skákirnarverða
miklu skemmtilegri
fyriráhorfendur,”
sagðiHorf um
nýju reglurnar
,,Mér sýnist þú hafa lagt af,“
sagði Einar S. Einarsson, forseti
Skáksambandsins, er hann hafði
boðið Vlastimil Hort stórmeistara
velkominn til íslands í gærkvöldi.
„Já, kannski svolitið," sagði Hort,
„en það ætti ekki að koma alvar-
iega að sök.“ Svo brosti Hort sínu
breiðasta.
„Island skipar alveg sérstakan
sess í mínum huga,“ sagði Hort í
viðtali við fréttamann DB í gær-
kvöldi. „Ég er ósköp ánægður yfir
að vera kominn hingað aftur.“
Hort kvaðst hafa kynnt sér
hinar nýju reglur sem teflt
verður eftir á 8. Reykjavíkurskák-
mótinu. „Þær eru mjög athyglis-
verðar. Það verður gaman að sjá,
hvernig þær falla að taflmennsku
þátttakenda. Þær gera trúlega
aðrar kröfur en hinar gömlu. Eitt
er alveg víst að fyrir áhorfendur
verða skákirnar miklu skemmti-
legri," sagði Hort.
„Velkominn hingað aftur. Við
vonum að dvöl yðar hér verði
ánægjuleg," sagði Guðrún Ölafs-
dóttir í gestamóttöku Hótel Loft-
leiða er hún afhenti Hort her-
bergislykilinn. Hort leit á númer-
ið. Enn færðist bros yfir andlitið.
„Þetta var elskulegt af ykkur.
„Ég held að ég hafi ekki lét/.t svo mikið að það komi að sök.“ sagði Hort við forseta Skáksamhandsins. við
komuna á Hótel Loftleiðir i gær.
Trilla týndist í Arnarfirði — enfannst fljótt aftur
Mér leið vel í þessu herbergi
þegar ég var hér síðast. Ég vona
að heppnin verði mér meira inn-
an handar nú en þá,“ sagði stór-
meistarinn tékkneski og tók
strikið á lyftuna öllum húsum og
högum kunnugur á einhverju
bezta hóteli heimsins, eins og
hann sagði þegar hann háði
keppnina við Spassky á dögunum.
- BS
Trilla frá Lokinhömrum í Arn-
arfirði týndist í gær en kom fram
um kl. 19 í gærkvöld, þegar björg-
unarsveitarmenn frá Bíldudal og
víðar voru að tygja sig af stað til
leitar.
Hannes Friðriksson á Bíldudal
sagði í samtali við DB í morgun að
trillan — með einum manni inn-
anborðs — hefði verið á leið að
Auðkúlu við Rafnseyri þegar bil-
un hefði orðið í vél. „Honum tókst
þó að komast á land i Stapadal,
þar sem hann komst í síma og lét
vita af sér,“ sagði Hannes.
Björgunarmenn frá Bíldudal
fóru á vettvang og hjálpuðu sjó-
manninum með bát sinn að Auð-
kúlu, en talsverður sjór var þá í
Arnarfirði og erfitt um vik. Allt
gekk þó slysalaust, að sögn
Hannesar Friðrikssonar.
-ÓV
Fjárdrátturinn hjá útvarpinu
rúm 970 þúsund á 3 árum
Samkvæmt skýrslu ríkis-
endurskoðanda til menntamála-
ráðuneytisins virðist Rós
Pétursdóttir,' fyrrum auglýs-
ingastjóri útvarpsins, liafa
dregið sér. rúmar 970 þúsund
krónur, að sögn Birgis
Thorlacius. ráðuneytisstjóra i
menntamálaráðuneytinu. Hún
hefur þegar endurgreitt allt
það fé.
Skýrslan barst ráðuneytinu á
mánudag. Er nú í athugun hjá
ráðunevtinu hvert verður fram-
hald málsins. — hvort það
verður sent sakadómi Reykja-
víkurtil frekari meðferóar.
Fjárdrátturinn nær yfir þrjú
síðustu ár, 1974-1977, að báðum
árum meðtöldum, sagði Birgir
Thorlacius. Við endurskoðun
hefur komið í ljós að nokkuð
vantar af nótum frá f.vrri árum
og eitthvaö árið 1974. en ekki er
vitað hvort auglýsingastjórinn
fyrrverandi á nokkurn þátt i
því hvarfi.
Upp um þjófnaðinn komst
við endurskoðun ríkisendur-
skoðunar, sjóðtalningu og
samanburð reikninga.
ÓV
frjálmt, áhái dagblað
FIMMTUDAGUR 2. FEB. 1978
SKIPS-
STRAND
— sex mönnum bjargað
Rétt fyrir klukkan fjögur i nótt
strándaði vélbáturinn Hafrún frá
Bolungarvík á Mónesi sem er
skammt fyrir innan Selárdal í
Arnarfirði sunnanverðum. A
bátnum voru sex menn og björg-
uðust þeir allir. Hafrún er 207
lesta skip.
Slysavarnafélagið kallaði út
björgunarsveit sína á Bíldudal en
varðskip var skammt undan og
fór til aðstoðar. Þeir voru komnir
um borð í Hafrúnu klukkan rúm-
lega fimm og komu þeir fyrir vír-
um og bíða nú eftir flóðinu sem
verður seinni partinn.
Agætisveður var fyrir vestan í
gær en töluverð alda.
Hafrún hefur stundað dagróðra
fráBíldudal. - A.Bj.
Sáralítil
loðnuveiði
Loðnuveiði i nótt var sáralítil
þrátt fyrir prýðilegt veður á mið-
unum norður af Langanesi.
Um hálfníu í mofgun höfðu
aðeins sex bátar af 63 tilkvnnt um
afla — samtals 3.480 tonn. Um
frekari afla var Loðnunefnd ekki
kunnugt frá miðnætti síðastliðnu.
Nær látlaust mun vera kastað
eftir loðnu á veiðisva^ðunum fvrir
norðan land, svæðum 7-13-og 7-15.
en loðnan vill ekki í netin. ÓV
Vestmannaeyjar:
22 árekstrar
í janúar sL
Arekstrartíðni í Vestmannaeyj-
um er ótrúlega há miðað við alíar
aðstæður og lengd vegakerfisins.
Þannig hafa 22 árekstrar orðið í
janúarmánuði, samkvæmt upplýs-
ingum lögreglunnar í Eyjum.
Arekstrar urðu 152 allt árið i
fyrra og þykja lögreglumönnum
þetta ill tíðindi. t þessum 22
árekstrum urðu ekki mikil slys á
fólki, en skemmdir á bílum,
hversu smávægilégar sem þær
teljast, kosta nú orðið stórfé.
HP
Setning kvik-
myndahátíð-
arinnarídag
Fyrsta kvikmyndahátíðin sem
haldin er á Islandi veróur sett í
Háskólabíói kl. 15.30 í dag af
Birgi ísleifi Gunnarssyni borgar-
stjóra. Menntamálaráðherra, Vil-
hjálmur Hjálmarsson,- flytur
ræðu. Menntamálaráð afhendir
kvikmyndastyrk ársins 1978.
Gestur - hátíðarinnar, Wim
Wenders, flytur ávarp og sýnd
verður fyrsta kvikmyndin á hátfð-
inni, Der Amerikanische Freund
eftir Wenders. Kynnir er Davíð
Oddsson, formaður framkvæmda-
stjórnar Listahátíðar 1978.
Tvær sýningar verða í Háskóla-
blói í dag: Strozek kl. 19.00 og
Ameríski vinurinn kl. 21.00.
- A.Bj.
Blaðamennog
útgefendurhjá
sáttasemjara
Blaðamenn og útgefendur voru
á fyrsta samningafundi hjá sátta-
semjara ríkisins í gær. Blaða-
menn kynntu enn sjónarmið sín.
Stóð fundurinn í röska tvo tíma.
Næsti fundur er boðaður á
mánudaginn. - DS
t
i
i
i
i
i
i
i
I
i
i
i
\
\
5