Dagblaðið - 17.03.1978, Blaðsíða 19
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 17. MARZ 1978.
19
Hvað getum við verið
þekkt fyrir að gefa?
Þá er komið að þeim liðnum sem mestu hugarangri veldur oftast við fermingar,
gjöfunum, Setningar eins og „ég veit ekkert hvað við getum gefið honum Sigga í
fermingargjöf, frændi hans í hina ættina kevpti eitthvað svo voðalega dýrt,“ hevrast oft.
Margir virðast oft leggja meira upp úr því að gjafirnar kosti eitthvað visst en að þær séu
eitthvað sem fermingarbarnið langar til þess að eignast.
Til eru þeir hlutir sem kalla má klassískar fermingargjafir. Þetta eru bækur (aðallega
trúarlegar), rafmagnstæki, úr og skartgripir og húsgögn af minni gerðinni. A síðustu
árum hafa síðan bætzt við hljómflutningstæki og það sem þeim he.vrir til,‘skífur og
snældur.
ÚR OG
SKARTGRIPIR
Ur er einhver sjálfsagðasti
hlutur sem um getur til ferm-
ingargjafa. Yfirleitt eru það for-
eldrarnir sjálfir sem færa barni
sínu það. Sífellt færist þó i vöxt
að börnin eignist úrið fyrir
ferminguna og aðrar gjafir séu
því gefnar. Okkur fannst samt
rétt að telja úrið með í þessum
gjafalista okkar. Gott kvenúr
kostar á milli 20 og 30 þúsund. Er
þá átt við venjulegt úr. Handa
stúlkum eru þau oftast látin duga
þar sem þróunin í tölvuúrum er
ekki komin eins langt á þeirra
sviði og í karlmannsúrunum. En
strákum eru oftar en ekki gefin
tölvuúr og kosta þau þá 25-35
þúsund.
Stúlkurnar fá mjög oft skart-
gripi sem endast þeim út ævina í
Verð á rafmagnsvekjaraklukk-
um er mjög mismunandi. Fer það
meðal annars eftir því hvort þær
ganga fyrir rafhlöðu, eru settar í
samband, eða hvort tveggja. Ódýr-
ustu klukkurnar kosta tæp 4
þúsund en þær dýrustu eru vart
undir tíu þúsundum.
VIÐLEGUÚTBÚNAÐUR
Fyrir þá unglinga sem duglegir
eru að prfla upp um fjöll og firn-
indi kemur góður viðleguútbún-
aður eins og sending af himnum
ofan. Og þó að unglingarnir fari
ekki mikið í augnablikinu koma
þeir tímar víst örugglega þegar
svefnpoki, tjald og prímus koma
sér vel. Svefnpokar eru mjög mis-
jafnlega’ dýrir. Pokar úr svoköll-
uðu^íolen, sem mikið eru keyptir
handa fermingarkrökkum, kosta
á milii 9 og 10 þúsund. Tjöldin
eru hins vegar dýrari. Þannig
kostar 4 manna tjald um 24
þúsund núna. Prímusar eru hins
vegar á fremur viðráðanlegu
verði. Þannig kosta góðir gas-
prímusar á milli 3 og 4 þúsund.
HÁVAÐAGJAFAR
Popptízkan vill sitt og þá ekki
síður á fermingardaginn en aðra
daga. Margir foreldrar eru farnir
að vinna það til að gefa börnum
Sumir táninganna vilja ekkert fá nema peninga.
fermingargjöf. Oftast eru gefnir
hringir og hálsmen en armbönd
sjaldnar. Fallegur hringur úr
silfri kostar á milli 7 og 10
þúsund. Sé hins vegar keyptur
gullhringur fer verðið upp í 15-
30 þúsund. Fallegt hálsmen
kostar svona 14-15 þúsund.
Strákum eru oft gefnir hringir
úr gulli eða silfri í fermingargjaf-
ir en fátt er annað keypt handa
þeim af skarti. Silfurhringirnir
kosta svona 10 þúsund en gullið
30-40 þúsund.
RAFMAGNSTÆKI
Þau rafmagnstæki sem börnum
eru gefin í fermingargjafir eru
oftast annaðhvort til hár- eða
skeggsnyrtingar. Rafmagns-
vekjaraklukkur eru nær eina
undantekningin.
Þegar undirrituð fermdist
fengu nær allar fermingarstúlkur
hárþurrku. Slíkt hefur minnkað
verulega með tilkomu hárblásara
og upphitaðra krullupinna eða
járna. Hárþurrkur kosta núna um
14 þúsund. Blásararnir kosta
aðeins minna, eða frá 12 þúsund-
um. Krullujárn fást bæði með
gufublæstri og án. Gufujárnin
kosta 8-10 þúsund en þau gufu-
lausu um 5 þúsund. Rafhitaðar
rúllur fást í gjafapakkningum og
kosta á milli 8 og 14 þúsund eftir
fjölda þeirra.
Strákarnir fá ennþá rakvélar í
fermingargjafir þó fæstir hafi
þeir skeggvöxt til baga. Eru slíkar
gjafir þá miðaðar við lífstíð. Góð
rafmagnsrakvél kostar núna á
milli 15 og 20 þúsund. Það færist í
vöxt að strákarnir fái líka hár-
snyrtitæki en þó mun það fremur
í jóla- og afmælisgjafir eftir að
þeir komast aðeins af fermingar-
aldri og þykir slíkt ekki eins
kver.legt og þeim þótti þá.
sínum hljómflutningstæki til þess
eins að fá að vera f friði með sín
eigin. En slfk tæki eru fremur
dýr, margir myndu eflaust segja
mjög dýr. Þannig kostar snældu-
band með viðbyggðu útvarpi
76.600 krónur á einum stað hér í
borg og svipað annars staðar.
Ferðasegulbönd eru heldur
ódýrari, kosta 48.200. Plötuspilari
með magnara og tveim litlum
hátölurum kostar 74.200. Er þá átt
við mjög lítinn spilara og þeim
mest þróuðu í músfkinni finnast
þeir eflaust ómerkilegir. En
hinum sem eru í þessu svona rétt
Skartgripir fyrir lífstíð.
að gamni sfnu finnst eflaust flott-
heitin nóg.
En eitthvað verður svo að leika
á þessi dýru tæki. Plötur og
snældur færast f vöxt f hlutfalli í
fermingargjöfum. Meðal popp-
skffa eða snælda kostar núna 4-5
þúsund. Skffur með sígildri tón-
list eru hins vegar heldur ódýrari.
Leiktæki sem tengja má við
sjónvörp eru einnig talsvert
keypt til þess að gleðja jafnt
fermingarbörnin sem aðra
unglinga með. Slfk tæki kosta rétt
tæplega 27 þúsund.
Strákunum eru frekar gefin
tölvuúr en stelpum.
BÆKUR
Bækur þær sem börnum eru
gefnar í fermingargjafir eru eins
og áður sagði mest kristilegs eðlis.
Skipar Biblian þar háan sess
ásamt Passíusálmum séra Hall-
gríms og venjulegum sálmabók-
um. Til eru myndskreyttar út-
gáfur bæði af Biblíu og Passfu-
sálmum og er mikið keypt af þeim
til fermingargjafa.
Myndskreytt Biblfa kostar 4560
krónur. Hægt er að láta árita hana
og er það misjafnlega dýrt eftir
gerð leturs. Fremur er mælt með
þvf að fólk láti ekki árita bæk-
urnar þar sem alltaf getur komið
fyrir að börnin fái fleiri en eina
af hverri gerð og getur þá verið
erfitt um skipti. Hins vegar má
vel láta fylgja með innleggsnótu
upp á áritunina. Myndskreytt út-
gáfa af Passíusálmunum kostar
2880 en án mynda fást þeir á 1320.
Ljóðasöfn og skáldverk þekktra
íslenzkra höfunda eru einnig oft
keypt handa fermingarbörnum.
Verðið er mjög misjafnt á Ijóða-
söfnunum eins og vænta mátti. Þó
má telja að svona 5-7 þúsund
krónur sé nálægt miðju. Nýjustu
bækur snillinganna okkar kostar
svipað og ódýru ljóðasöfnin, eða
um 5 þúsund krónur.
Orðabækur eru svo einn enn
flokkur fermingarbóka. Þá eru
helzt keyptar tslenzkar-enskar,
enskar-íslenzkar, fslenzkar-
danskar og danskar-íslenzkar
bækur. Þar sem þetta eru vandað-
ar bækur og nýendurútgefnar eru
þær talsvert dýrari en skáldverk-
in, kosta um 10 þúsund krónur.
En slíkar bækur eiga eftir að vera
mikið notaðar, sérlega þó af til-
vonandi langskólafólki.
MYNDAVÉLAR
0G ALBÚM
Myndavélar eru æðsti draumur
margra unglinga. En góðar,
alvörumyndavélar eru mjög
dýrar. Hins vegar má fá vasa-
myndavélar og snöggmyndavélar
fyrir nokkuð viðráðanlegt verð og
má með góðum vilja ná alveg
sæmilegum myndum á þær.
Vasamyndavélarnar kosta núna
á milli 7485 og 11.235 eftir
gerðum. Snöggmyndavélar
(Instamatik) kosta hins vegar frá
6145 til 13.675. Er þá miðað við
vélarnar í gjafaumbúðum og fylg-
ir þá ein filma og einn flasskubb-
ur.
Til þess að ekki fari illa um
tilvonandi myndlistaverk þarf
albúm (fslenzkulegra orð fannst
ekki). Þau eru misjafnlega dýr
eftir þvf hvort þau eru sjálflím-
andi og hversu mikið er lagt f
útlitið. Þegar albúmið er ætlað til
gjafa er miðað við í verzlunum að
það kosti í kringum 3 þúsund
krónur.
HÚSGÖGN
í rauninni eru ekki nema fáir
hlutir sem til greina kemur að
gefa og kalla má húsgögn, einfald-
lega verðsins vegna. Eru það aðal-
iega skatthol og svefnbekkir sem
keyptir eru handa fermingar-
börnum, stundum stóll og borð í
stíl við svefnbekkinn. Eins er
ekki fráleitt að kaupa skrifborð
eða stól við handa þeim sem eiga
slfka hluti ekki fyrir.
Skattholin sem keypt eru nær
eingöngu handa fermingarstúlk-
um eru í stórum dráttum öll eins.
Þau eru þó misjafnlega dýr eftir
því hvaða viður er notaður f þau.
Ödýrast er tekkið og kosta skatt-
hol í því 75.800. Séu skattholin
hins vegar úr dýrasta viðnum
palesander, er verðið komið upp í
nærri hundrað þúsund.
Góðir svefnbekkir kosta á milli
60 og 70 þúsund. Þó er hægt að fá
þá allt niður f 35 þúsund en þá á
kostnað bæði gæða og útlits, þá
aðallega þess síðarnefnda.
Sæmilegur hægindastóll f stfl
sem táningar sækjast eftir kostar
28.500 og borð við ýmist 15.500
eða 28.500 eftir stærð.
Skrifborð eru misjafnlega dýr
eftir stærð þeirra og skúffufjölda.
Þau minnstu kosta nærri þrjátíu
þúsund en hin stærstu um 50
þúsund. Skrifborðsstólar kosta
um 25 þúsund krónur.
PENINGAR í
ÝMSUM FORMUM
Margir eru þeir unglingarnir
sem þrá það heitast að fá ekki
einn einasta hlut gefinn á ferm-
ingardaginn en fá þess í stað
peningana sem eytt hefur verið f
að kaupa hlutinn. En margir eru
hræddir við að gefa peninga,
oftast vegna þess að þeir vita ekki
hversu mikið þeir eiga að gefa. Er
Rakvél, jafnvel þó skeggvöxtur sé
ekki til baga.
þá ágætt ráð að miða við þann
hlut sem annars hefði verið
keyptur og gefa peninga sem
nægja myndu fyrir honum. Eins
má miða við stærsta seðilinn á
markaðnum og gefa hann einan
sér.
Skuldabréf rfkissjóðs hafa
einnig verið lausn á þessum
vanda. En þau fást ekki núna.
Hins vegar eru til spariskírteini
ríkissjóðs á 10 þúsund krónur.
Skírteini þessi eru nokkurs konar
sparisjóðsbækur, munurinn er sá
að þau eru með lágum vöxtum en
verðtryggð.
Þessir 8 flokkar vara eru það
sem fólk kaupir aðallega til ferm-
ingargjafa. En ekki er þar með
sagt að aðrir hlutir komi ekki til
greina. Má þar til dæmis nefna
fatnað. En hann er erfiðara að
meta til verðs. Þannig er einnig
með aðra þá hluti sem til greina
koma. Þetta' verður því Iátið
nægja að sinni.
DS
ÖftBCE
EOETOfLE
ENROUUefFAaií
GRACE
AU MANCHE AMCMBLF
Imt roifsnQ
towtnoMöte Itítidíe
liiturte: duftfi '
aíwhtnlww fr*.
IES LAMEU.ES
en mit
CONTROLfNT
LA Ff.NEJWinp
Rafhitaðar rúllur koma sér vel.
i