Dagblaðið - 21.03.1978, Síða 9
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 21. MARZ 1978
9
Ný verksmiðja Sambandsins:
77 ÞÚSUND
KEXKÖKURÁ
KLUKKUSTUND
Kexkökurnar streyma í endalausri röö: 77 þúsund á klukkustund.
í febrúar siðastliðnum hóf kex-
verksmiðjan Holt, sem er eign Sam-
bands Ísl. Samvinnufélaga, starfsemi
sina. Undangenginn mánuður hefur farið
i prófanir á tækjakosti og endurbótum
en nú er framleiðslan komin I eðlilegt
horf.
Blaðamönnum var gefinn kostur á að
kynna sér hina nýju verksmiðju og þrir
ungir nemar, sem verið hafa i starfs-
kynningu á Dagblaðinu að undanförnu,
þau Helga Sveinsdóttir, Indriði Jónsson
og Bjarni Bjarnason heimsóttu staðinn
fyrir hönd Dagblaðsins:
Verksmiðjan er til húsa í 86 metra
löngum, mjög snyrtilegum sal, sem
liggur með norðurhlið Holtagarða og
var verksmiðjunni gefið nafnið Kex-
verksmiðjan Holt.
Með annarri hlið salarins stendur
bakaraofninn, sem er engin smásmiði,
en hann var keyptur frá lrlandi á siðasta
ári. Við enda ofnsins er deigið hrært 1
þar til gerðri hrærivél, en hún tekur um
400 kg. Úr henni er deiginu lyft upp I
bökunarvélina, þar er jafnað úr þvi og
það gert að sléttri samhangandi lengju,
en hún fer síðan inn i sérstaka vél, sem
heggur úr henni hráar kexkökur.
Afgangurinn rennur til baka inn i
bakaraofninn á ný. Síðan renna kök-
urnar á hægri ferð í gegnum bakaraofn-
inn og koma fullbakaðar út
um hinn endann. Þaðan er þeim lyft upp
á kæliband, og kólna fyrst á bakhliðinni
sn fara siðan á annað band og kólna þá á
hinni hliðinni, en þetta band er 75
metrar á lengd. Þegar þær koma út af
oandinu fara þær í pökkunarvélina, en
það er eina stigið í framleiðslunni sem
þkki er sjálfvirkt, þar taka starfsmenn
iverksmiðjunnar við kexinu og raða því í
pökkunarvél sem er frönsk, en hún setur
það siðan inn í sellófanbréf. Þessi vél af-
kastar um 2400 pökkum á klst. eða milii
15000 og 16000 pk. á dag.
1 kexverksmiðjunni Holti vinna núna
við kexframleiðsluna 12 manns og er
verksmiðjustjóri örnólfur Ornólfsson
bakarameistari. Eru framleiddar þrjár
tegundir af kexi, kornkex, vanillukex og
imjólkurkex. Er áætlað að setja á markað
Iþrjár tegundir af kexi til viðbótar á
Iþessu ári, kremkex, súkkulaðihúðað
Ikornkex og hafrakex.
Kornkexið má telja nokkra nýjung hér
á markaðinum en i þvi eru fjórar
tegundir af grófu korni sem er
blandað saman. I uppskriftinni eru 17-
18 efni. Vanillukexið hefur ekki verið
framleitt lengi eða síðan Kexverk-
smiðjan Esja hætti starfsemi.
í byrjun var fengin danskur kex-
verksmiðjustjóri frá FDB, sambands-
>verksmiðjunum dönsku, Georg
Engstup, til aðstoðar við uppbyggingu
verksmiðjunnar. Hann telur þetta vera
með bezta kexi sem hann hafi framleitt,
enda notað í það bezta hráefni.
„Nei, en ef um einhvern útflutning
verður að ræða þá kom Færeyjar einna
Lengsti bökunarofn á Norðurlöndum: 56
metrar. DB-mynd Hörður.
helzt til greina,” sagði Hjalti Pálsson
t'ramkvæmdastjóri innflutningsdeildar
LÍS i viðtali við DB. „Hins vegar
leggjum við hvað mesta áherzlu á innan-
landsmarkaðinn til þess að byrja með.
Samkvæmt tölum er talið að við
Íslendingar neytum um 2100 tonna af
kexi árlega og af því eru tæp 1300 tonn
flutt inn," sagði Hjalti ennfremur. „Það
er gegn þessum 1300 tonnum sem við
miðum framleiðslu okkar.”
Hjalti upplýsti á fundi með blaða-
mönnum að Sambandið hygðist verja
um einni og hálfri milljón króna til
auglýsinga á hinni nýju framleiðslu og
vonaðist hann til að henni yrði vel tekið.
HS/IO/BB.
FERMINGARGJAFIR
Skrifborðsstolar styðja t/el
við bakið á skólafólkinu.
8 gerðir. x
LUXO lampar, 4 gerðir
Bakpokar.
Nýja „línan“
í skólatöskum.
Jarðlikön.
Margar stœrðir.
Vasatolvur.
Margar gerðir
Taflmenn
m
I
OLIVETTI skolaritvelar
WINSOR &
NEWTON
olíulitasett