Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 08.05.1978, Qupperneq 3

Dagblaðið - 08.05.1978, Qupperneq 3
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 8. MAÍ 1978. Spurning dagsins Hvernig finnst þér umferðarmenningin á íslandi? Valgeröur Jónsdóttir húsmóðir: Hún mætti vera betri. Menn eru ekki nógu tillitssamir og fara ekki nógu vel að um- ferðarreglunum. Vala Möller nemi í M.S.: Frekar slæm. Allir eru að flýta sér svo mikið og reyna alltaf að troðast. Jakob Jakobsson fiskifræðingur: Hún er ekki góð en hefur samt skánað mikið. Sennilega þarf strangara eftirlit og að framfylgja lögunum af meiri hörku. Mfa Katrin Óskarsdóttir teiknarí: Eftir aðstæðum sæmileg. Ætli hún geti verið mikið betri. Ólafur Magnússon starfar i gleriðnaði: Mér finnst hún heldur hafa batnað en er samt ekki nógu góð. Notkun stefnu- Ijósa hefur mjög aukizt og er það spor i rétta átt. Arngrimur Jónsson prestur: Hún gæti verið betri. Tillitssemi er nokkuð ábóta- vant. \ NETA- VEIÐIN ILL- SKÁST Svar vlð andsvari um kópaveiði Játvarður Jökuil Júliusson skrifar: Guðjón V. Guðmundsson birtir stutt andsvar í DB 27. apríl við grein minni: Sitt af hverju um selveiði, sem birtist í DB 22. apríl. Ekki held ég að rétt sé hjá honum að ég hafi rangtúlkað mál hans eða gert-honum upp skoðanir. Því til sönn- unar vil ég benda á hve afdráttarlausar skoðanir hans eru og skýrt orðaðar. Hann segir: „------fór ég fram á það, já krafðist þess að selveiðimenn hættu að drekkja selnum, þaö er og verður illmennska að lífláta dýr á þann hátt” -----Áður segir: ------þykir mér rétt að koma því enn á framfæri, raunar er skömm að því að ekki skuli fyrir langa löngu vera búið að gera eitthvað í málinu”. Þetta er opinská og einörð afstaða. En góði maður: Hvernig ætti að lif- láta kópana á annan hátt? Það er spurningin. Ég veit ekki hvað við er átt, nema meint sé að skjóta þá. Það átti að vera aðalboðskapur míns svars og þungamiðja greinarinnar, að veiða með skotum kemur ekki til greina, má ekki eiga sér stað. „Ekkert vekur selnum meiri skelfingu en ’skotadrápið” sagði ég og endurtek nú. Athugum hvað verður ef á að leita kópa uppi á hraðfara bátum. Yrði ekki skotið á kópa hjá mæðrum sínum? Mér er ógerlegt að sjá meiri mannúð í þvilíku. Og hvað ætti að takmarka þá veiði: Það fæ ég ekki séð I fljótu bragði. Nú vill svo sérkennilega til, að ein- mitt Guðjón V. Guðmundsson túlkar vel viðskipti skotmanna við skepnur (fugla) i andsvari sinu. Skoðanir mínar um seladráp með skotum gæti ég sem bezt sagt með hans hnitmiðuðu orðum og gert þau að mínum: „Iðju, þessara.... drápara fordæmi ég og hefi lengi gert, þetta athæfi er þeim er það stunda til ævarandi skammar, því að sjálfsögðu drepst aðeins hluti þeirra.... samstundis sem á er skotið" o.s.frv., sem lesa má. Hví ekki að endur- sýna bíó- mynd- irnar? G.Þ. hringdi: Hvernig stendur á því að sjónvarpið getur ekki sýnt fleiri biómyndir en það gerir? Væri nokkuð úr vegi að endur- sýna þessar tvær biómyndir sem sýnd- ar eru á föstudags- og laugardags- kvöldum einhvem eftirmiðdaginn i næstu vikunniáeftir? Stundum kemur fyrir að þeir slysast til þess að hafa bærilegar bíómyndir og því alls ekki úr vegi að endursýna þær. Þetta er, eða a.m.k. var alltaf gert í Kanasjónvarpinu á meðan það var og hét aðalsjónvarp suðvestur- hornsins". Ég hygg mála sannast að netaveiðin sé illskásta og eina boðlega veiðiaðferðin, ef á að veiða kópa á annað borð. Og ég sé ekkert á móti því að veiða þá, en vitanlega í hófi. Eitt með fleiru sem er blátt áfram lokkandi við að veiða vorkópa í net, það er að sjá og vita suma sleppa, hafa vit á að forðast netin, komast upp, lifa og viðhalda stofninum, synda sinn sjó þegar síðasta selabandið er dregið upp.” Raddir lesenda w. Laugavegi 69 simiiböbU Miðbæjarmarkaði — simi 19494 ''\\ Brúnt og * svart - f í leður. Verðkr. 18.980.- Póstsendum i/ .....' Smurbrauðstofon BJORNINN NjóUgötu 49 — Sími 15105 MARGIR mim AD NÁTALARAR SELI AÐEINS FYRIR ATVINNLMENN... H JB en auðvitað geta allir þeir sem vilja vandaða og nákvæma hátalara, notið þess að hlusta á AR hátalara í stofunni heima hjá sér. Það eru góð meðmæli að atvinnumenn eins og Judi Collins, Miles Davis og Herbert von Karajan skuli velja sér AR til einkanota, því þeir vilja aðeins það besta, hin þjálfaða heyrn þeirra krefst þess. AR hátalarar eru á góðu verði - gæðin getur þú verið viss um - VELJIÐ AR HÁTALARA. FALKIN N SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670 SENDUM BÆKLINGA

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.