Dagblaðið - 08.05.1978, Side 5

Dagblaðið - 08.05.1978, Side 5
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 8. MAl 1978. 5 8. maí—AlþjódadagurRaudakrossins: VIÐ ERUM ALLIR BRÆÐUR —þessi einkunnarorð hafa fylgt Rauða krossinum allt f rá því að kveikjan að stofnun hans varð til á vfgyellinum við Solferino árið 1859 Hugmyndin að stofnun Rauða krossins fæddist árið 1859 þegar ungur Svisslendingur, Henri Dunant (fæddur 8. mai 1828) átti leið um Norður-ltalíu í viðskiptaerindum. Á Langbarðalandi hafði geisað stuttur en mjög harður ófriður milli Frakka og Austurríkis- manna. Þann 24. júní var háð þar ein blóðugasta orrusta sögunnar við Solferino. íslendingar þekkja þessa orrustu úr skoplegri frásögn Benedikts Gröndals af Heljarslóðarorrustu, en í augum Dunants var þessi atburður ekki jafn skoplegur, en hann sá að gífurlegur fjöldi særðra á vigvellinum naut engrar hjálpar. Gizkað er á að um 40 þúsund manns hafi fallið og særzt í þessari orrustu, sem Austur- rikismenn biðu algeran ósigur í. Ásamt fólki i Solferino og Castiglione hóf Dunant að veita hinum særðu hjálp án nokkurrar manngreiningar. Sjálfboðaliði sem tók þátt i þessu starfi endurtók stöðugt við vinnu sina orðin „Tutti fratelli” sem þýðir allir eru bræðúr, og hafa þau einkunnarorð síðan fylgt Rauða kross- inum. Eymd sú sem Dunant varð vitni að kveikti hjá honum þá hugmynd, að stofnaðar yrðu um allan heim sveitir sjálfboðins liðs kvenna og karla sem á friðartimum byggju sig undir að veita aðstoð í ófriði og gerður yrði alþjóðlegur samningur um að sjúkir. særðir og hjálparliðar teldust hlut- lausir aðilar og væru undir hervernd. Hugmyndir sinar setti Dunant fram í bókinni „Minningar frá Solferino", sem gefin var út 1862. í bókarlok birtir hann áskorun til þjóða heimsins um aukna mannúð og mannréttindi. Bókin hafði slik áhrif, að almennings- álitið fór brátt að krefjast aðgerða. Góðgerðarsamtök i Genf hrifust af hugmyndum Dunants og skipuðu fimm manna nefnd árið 1863 til að leggja fram álitsgerð byggða á tillög- um hans og var Dunant sjálfur ritari nefndarinnar. Nefndin skipaði sjálfa sig sem alþjóðaráð til hjálpar særðum hermönnum, en vann einnig að því að koma á alþjóðlegum fundi, sem var svo haldinn 28.-29. október 1863 með fulltrúum 18 þjóða. Telst Rauði krossinn stofnaður þá. Fundurinn lagði til að stofnuð yrðu félög i sér- hverju landi, og hefðu þau það hlut- verk að búa sig undir hjúkrun særðra í styrjöldum. Skyldi einkenni starfsliðs félaganna vera rauður kross á hvítum grunni. Merkið var valið til heiðurs Sviss, vöggu félagsins, sem hefur hvítan kross í rauðum grunni i þjóðfána sínum. Þótt ætlazt væri til að eitt merki væri notað var síðar heimilað að nota Rauða hálfmánann i Múhameðstrúarlöndum og Rauðu sól- ina og Ijónið i tran. Ári eftir stofnfundinn, eða 22. ágúst 1864, gekkst svissneska rikisstjórnin samkv. tillögum fimm manna nefndar- innar fyrir ufndi í Genf. Fundurinn samþykkti sögufrægt plagg, fyrsta Genfarsáttmálann um vernd sjúkra og særðra hermanna á landi. Var sátt- málinn þegar undirritaður af 12 rikis- stjórnum. Þetta var í fyrsta skipti sem riki undirrita sáttmála á sviði mann- úðarmála. Síðan hafa verið gerðir fleiri slikir sáttmálar og eru þeir nú orðnir fjórir. 1. Vernd sjúkra og særðra hermanna á landi 2. Vernd sjúkra og særðra hermanna á sjó. 3. Verndstriðsfanga. 4. Vernd borgara í ófriði. Megininntak Genfarsáttmálanna er að allir þeir sem ekki taka þátt i bein- um striðsaðgerðum skuli hljóta mannúðlega meðferð. Þetta á við her menn sem hafa lagt niður vopn, sjúka og særða hermenn, herfanga, borgara og þá sem hafa orðið fyrir barðinu á styrjöldum. Mest framför varð við siðasta Genfarsáttmálann, sem fjallar um bann við misþyrmingum, gisla- töku. skyndiaftökum o. fl. Langt er þó i land að allir virði þessar reglur og enn er unnið aðendurbótum á þeim. Þegar talað er um Alþjóða Rauða krossinn er átt við Alþjóðaráð RK, Alþjóðasamband RK félaga, Alþjóða- fundi RK og starfslið stofnana RK í Genf. Alþjóðaráðið var stofnað 1863 og er það skipað 25 Svisslendingum. Skal það gæta þess að reglur Rauða krossins og Genfarsáttmálans séu haldnar.Þótt ráðið sé skipað borgurum eins lands er það alþjóðlegt í starfi sinu. Jafnframt því að gæta þess að sáttmálarnir séu haldnir skal ráðið breiða út þekkingu á þeim og starfa að hjálparaðgerðum við fólk á ófriðartim- um. Alþjóðaráðið og landsfélögin hófu þegar að undirbúa hjálparstörf til að vera viðbúin þegar ófrið bæri að hönd- um og 1870 hófst hjálparstarf fyrir alvöru. Siðan tók við hver hjálparað- gerðin af annarri. Starfið fer nú sivax- andi, bæði vegna ófriðar og ofbeldis- aðgerða. Eftirlit er haft með fanga- búðum, unnið að fangaskiptum, sáttarorð borin á milli og þannig rhætti lengi telja. Þá er unnið að endurbótum á Genfarsáttmálunum, sem verður sífellt erfiðara því ofbeldisaðilar og hermdarverkamenn vilja ekki láta binda hendursínar. Alþjóðaráðið er viðurkennt af rikis- stjórnum og standa þær undir föstum kostnaði ráðsins. Ef til meiri háttar skyndilegra aðgerða kemur af hálfu ráðsins leitast landsfélögin við að afla fjártilaðgerðanna. Sem fyrr segir voru verkefni Rauða krossins í fyrstu bundin við ófrið. Þeg- ar leið að lokum fyrri heimsstyrjald- arinnar þótti mönnum fráleitt að nota sama skipulag á friðartímum og notað hafði verið I styrjaldarhjálp. Því var ákveðið að stofna Alþjóðasamband Rauða kross félaga árið 1919. Hefur sivaxandi starf farið fram á vegum þess, einkum til að efla landsfélögin til starfa. Starf Alþjóðasambandsins er fyrst og fremst fólgið i því að auðvelda landsfélögunum starf þeirra auk þess sem sambandið stendur fyrir stofnun nýrra landsfélaga og eflingu neyðar- hjálpar og neyðarvarnastarfa. Alþjóðasambandið hefur einnig haslað sér völl áTieilbrigðissviðinu og hin síðari ár hefur það haft forystu um blóðsöfnunarmál og skyndihjálp og i beinu framhaldi af þvi um sjúkra- flutninga. Meginþunginn i starfi sambandsins er fólginn í neyðarvörn- um og neyðarhjálp. Það hefur sýnt sig að Rauði krossinn hefur sérstöðu í ver öldinni vegna þess hve fljótur hann er til með aðstoð, yfirleitt skjótari en aðrar stofnanir. Hann er óháður stjórnmálaástandi og ákvörðunarvald hans er lipurt og laust við tregðu. Með bættu skipulagi neyðarvarna hefur þeim þjóðum fjölgað, sem eru sjálf- bjarga á neyðartímum. Hins vegar hefur orðið fjölgun á atvikum í heim- inum, sem leiða til neyðarástands. einkum af völdum náttúrunnar. Talið er að neyðarhjálparbeiðni sé send út á 14 daga fresti. Er þá gjarnan efnt til fjáröflunar eða fé sent úr hjálpar- sjóðum. Er mikil áherzla lögð á að slíkir sjóðir séu efldir. HENRI DUNANT — eftir blóðbaðið í Solferino stofnaði hann Rauða krossinn. Nokkrum áratugum siðar átti hann í erfiðleikum með að fá menn til að trúa því að hann hefði stofnað til þessara góðu samtaka. Með aðstoð gitðra manna tokst það þó um síðir.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.