Dagblaðið - 22.05.1978, Page 10
10
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 22. MAÍ 1978.
Dagblaðið vantar umboðsmann í
Hveragerði
frá 1. júní. Upplýsingar hjá Sigríði Kristjáns-
dóttur í síma 99-4491 og afgreiðslunni í síma
91-22078.
Otsölustaðir:
Rafha> Háaleitisbraut 68
sími 8-44-45
Stapafell h.f., Keflavík
símj 1730
Kjarni h.f., Vestmanna-
eyjum, sími 1300
Kr. Lundberg, Norðfirði
sími 7179
og hjá okkur á Ægisgötu
sími sölumánna 1-87-85.
Creda
tauþurrkari
er nauðsynlegt hjálpar-
tæki á nútíma heimili.
20 ára farsæl reynsla
sannar gæðin.
Um 4 gerðir er að ræða
af TD 300 og TD 400
Góð ábyrgðar-, viðgerðar
og varahlutaþjónusta.
Raftækjaverslun (slands h.f.
Ægisgötu 7 - Sírriar 17975 - 17976
MILLJÓN í
VERÐLAUN
Skilafrestur í ritgerðasamkeppni Sam-
bands íslenzkra samvinnufélaga hefur
verið framlengdur til 15. júní nk. Rit-
gerðarefnið er: Samvinnuhreyfingin á
Islandi — hlutverk hennar og starfsemi.
Verðlaunin nema alls einni milljón
króna. Öllu æskufólki á aldrinum 14—
20 ára er boðin þátttaka. Nánari upplýs-
ingar veittar á Fræðsludeild Sambands-
ins, Suðurlandsbraut 32, sími 81255.
Samvinnan
TRC 2000
ferðadiktafónn
fyrir venjulegar kass-
ettur. Hleöslutæki fylgir
og eyrnatæki. Hægt að
tengja við síma og fá auka
hljóðnema. Hefur alls
staðar hlotið verðlaun
fyrir hljómgæði-
SKRIFSTOFUT ÆKI
Garðastræti 17. Simi 13730.
Aðför að banka-
leynd Svissara
Svissneskir bankamenn eru uggandi
um sinn hag og banka sinna ef tillaga
sem borin hefur verið fram af þarlend-
um jafnaðarmönnum nær fram að
ganga. í henni er gert ráð fyrir að
skylda verði til að gefa meiri
upplýsinga'r um bankareikninga en
tíðkað hefur verið fram að þessu.
Bankamennirnir telja að vegur Sviss
sem miðstöð fjármála yrði litill og
efnahagslif þess hryndi ef tillagan yrði
að lögum en fyrsta skrefið í þá átt mun
vera að fá eitt hundrað þúsund
kjósendur til að undirrita ósk um alls-
herjar atkvæðagreiðslu. Telja banka-
mennirnir að samþykkt tillagananna
væri fyrsta skrefið i þá átt að áhrif
erlendra gjaldmiðla og skattalaga
mundu ná til Sviss, efnahag þess til
tjóns. Hingað til hafa skattsvik ekki
verið talin til þeirra afbrota, sem gerðu
bankastjómum skylt að gefa upp um
innstæðurerlendra ríkisborgara.
Afleiðingamar yrðu sem sagt mjög
slæmar fyrir Sviss ef hugmyndir
jafnaðarmanna ná fram að ganga.
Mcðal annars mundi kostur þeirra til
að krækja sér i hagstætt erlent fé
mjög þrengjast.
Geimfar á leið til
Venusar
— kannaríleiðinni
einkennilega gammageisla
Hin ómannaða geimflaug Venus 1,
sem skotið var á loft frá Canaveral-
höfða i Bandaríkjunum á laugardag,
mun í dag hefja rannsóknir á orsökum
leyndardómsfullra gammageisla, sem
koma inn í gufuhvolf jarðar.
Geimflaugin mun fara um 650 millj-
ónir kilómetra og verður komin að reiki-
stjörnunni Venus 4. desember nk. Peter
Waller, talsmaður Pioneer áætlunarinn-
ar, sagði að tæki um borð i geimskipinu
yrðu sett í gang til þess að reyna að finna
orsakir gammageislanna. „Þessir
gammageislar eru einstaklega kraftmikl-
ir”, sagði Waller. „Þeir voru uppgötvað-
ir árið 1973 og enginn veit hvaðan þeir
koma. Geislabylgjur þessar koma
óreglulega u.þ.b. tíu sinnum á ári,” sagði
Wallerennfremur.
Visindamenn velta því fyrir sér hvort
geislunin stafi af einhverjum meiri hátt-
ar viðburði i geimnum, svo sem árekstri
tveggja hnatta. Að sögn Wallers eru
þessar gammageislabylgjur, sem til jarð-
ar berast, ekki hættulegar.
Moshe Dvan utanrikisráðherra Israels hefur verið á ferð i Evrópu og heimsótti meðal annars Norðurlöndin fjögur. Á
mvndinni er hann að skoða safn um minjar frá vikingatimanum i Hróarskeldu i Danmörku í fylgd með forstjóra safnsins.
Sovétnjósnarar
gripnir
i Bandaríkjunum
Tveir sovézkir starfsmenn Samein-
uðu þjóðanna i New York voru hand-
teknir á laugardaginn og sakaðir um
að hafa stundað njósnir um bandarísk
hemaðarleyndarmál. Að sögn banda-
risku rannsóknarlögreglunnar FBI
fóru Sovétmennirnir ásamt einum
l'élaga sinna úr sovézka sendiráðinu
vestra nokkrum sinnum til ýmissa
staða i New Jersey ti! að afla sér upp-
lýsinga um nýja tegund vopna til að
vinna á kafbátum.
Sovétmennirnir tveir sem hand-
teknir voru, eru báðir allháttsettir
starfsmenn hjá Sameinuðu þjóðunum.
Hinn þriðji þeirra varekki handtekinn
vegna starfs sins hjá sendiráði lands
sins sem tryggði honum friðhelgi.
Aftur á móti eiga félagar hans á hættu
að verða dæmdir I ævilangt fangelsi
fyrir vikið.
Bandarisk stjórnvöld hal'a mótmælt
þessu framferði Sovétmannanna
harðlega og farið fram á að sendiráðs-
maðurinn fari úr Bandaríkjunum eins
og venja mun í slikum málum.
Upp komst um Sovétmennina
vegna upplýsinga. sem lögreglunni
bárust frá óbreyttum borgara, sem
siðan lék tveim skjöldum og aðstoðaði
yfirvöld, sem rannsökuðu málið i tiu
niánuði áður en til skarar var látið
skríða.