Dagblaðið - 22.05.1978, Síða 16

Dagblaðið - 22.05.1978, Síða 16
16 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 22. MAÍ 1978. JónDýrfjörð (A-lista): Siglu- fjörður tengist orkukerfi landsins „Ég hef áhuga á bæjarmálum al- mennt en þó fremur öðru á skipulags- málum, orku- og atvinnumálum,” sagði Jón Dýrfjörð, 2. maöur á A-lista sem hefur 2 menn i bæjarstjórn. „Skipulag fyrir framtiðina er á eftir hjá okkur og setur það nútiðinni vissar skorður. Til þess að leysa þessi mál í bili þyrfti bæjarfélagið að eignast þær lóðir sem eru ónýttar innan byggðar- kjarnans og hafa verið árum saman. Undirstaða nútima vinnubragða er orkan ásamt þekkingunni. Orkulindir Siglfirðinga eru núna fullnýttar og ekki færar um að taka við neinni aukningu að ráði og er þvi nauðsynlegt að rafveit- an hér tengist rafveitukerfi landsins. Orka er forsenda þess að hér fjölgi iðn- fyrirtækjum og um leið að atvinnulíf verði fjölbreyttara og henti betur þeim ungu og öldnu. Kyndistöð hitaveitunnar þyrfti að vera knúin raforku því það þýðir minni mengun og sparnað á gjald- eyri. Auður framtiðarinnar er samt aðallega fólginn í æskunni og verður að skapa henni holla lifshætti enda skilar það mestum arði," sagði Jón. - DS Jóhann Möller vió dælur hjá Slldarverksmiðju ríkisins. Jóhanni finnst skvlda bæjar- ins að búa iþróttafólki góð skilyrði. „Það hefur alltaf veriö mín skoðun að gott atvinnuástand sé undirstaða alls sem gert verður í málefnum bæjarins. Án nægrar atvinnu verður kyrrstaða eða afturför og slikt þekkja Siglfirðingar allt of vel,” sagði Jóhann Möller verk- stjóri sem er i cfsta sæti A-listans. „Margir vinnustaðir hér i bænum eru sóðalegir og illa hirtir og því ekki mönn- um sæmandi. Einnig er ekki tekið nægi- legt tillit til hollustuhátta eða öryggis við störf. Við verðum að leggja á þetta meiri áherzlu í bæjarstjórn. Uppbygging varanlegra mannvirkja við höfnina er eitt brýnasta verkefni næstu bæjarstjórnar. íbúðir á félagslegum grundvelli mega heldur ekki gleymast, né heldur mál þeirra sem minna mega sín, aldraðra, öryrkja ogekkna ásamt fleira fólki. í rekstri bæjarins verður að gæta hag- sýni og fara betur með peninga en gert hefur verið," sagði Jóhann. - DS við væntanlegar stoðir þess. Jón vill með auknum iðnaði skapa fleiri atvinnutækifæri. Runólfur Birgisson (D-lista): Allir geti fengið húsnæði eftirþörfum „Ég vil leggja mikla áherzlu á hús- næðismál. Á málum verði haldið þannig að allir eigi kost á lóðum eftir eigin þörfum og að byggð verði fjölbýlishús, sérstaklega með þarfir ungs fólks og aldins i huga,” sagði Runólfur Birgisson bankafulltrúi. Runólfur er i 3. sæti D- listans sem hefur 3 menn í bæjarstjórn. „Félagsmál skipa einnig mikinn sess i huga minum og vil ég að unnið verði að þeim með sama hugarfari og öðrum málum. Stefna verður að byggingu félagsheimilis þar sem flest félög gætu fengið aðstöðu. Halda verður áfram stuðningi við iþróttahreyfinguna og koma upp fullkorhnum iþróttavelli. Ég vil einnig beita mér fyrir þvi að tengsl bæjarfulltrúa við aðra ibúa staðarins aukist frá því sem þau eru núna,"sagði Runólfur. - DS Runólfur Birgisson er mikill iþróttaunnandi og var nýkominn af skíðum. Hann er for- maður knattsp.vrnufélags Siglufjarðar. VILJA ÞEIR? Siglufjörður Rústir síldaráranna til mikilla vandræða Siglufjörður minnir örlitið á drauga- bæ sem er þó að vakna til lifsins aftur eftir þyrnirósarsvefn. Sá svefn er þó ólíkur hinum eina sanna að þvi leyti að hlutirnir hafa látið á sjá. Minnis- varðar ym síldarárin sem fluttu gull í hrúgum til Siglufjarðar eru um allan staðinn en gyllingin er horfin. Gamlar bryggjur eru komnar að falli og gömlu. íbúðar- og söltunarskúrarnir fúnir og götóttir. Börn leita i þessar rústir til leikja og eru foreldrarnir ekki of hrifnir og furða sig i rauninni stórum á að ekki skuli hafa orðið slys við þessa leiki. Vandi bæjarfélagsins er mikill þvi þrátt fyrir að síldarspekúlantarnir hafi fengið húsin og lóðirnar undir þau fyrir nánast ekki ncitt eiga þeir þetta samkvæmt lögum og ekki má skerða þelta án þeirra samþykkis. Ef til vill eru upphaflegir byggjendur látnir og erfingjamir koma sér ekki saman um hvað við rústirnar eigi að gera. Þeir sem búsettir eru fjarri Siglufirði halda ef til vill að húseignir þar hljóti að vera eins og annars staðar, verðmætari en allt annað. En engum á Siglufirði dettur slik fásinna í hug. Þeir sem hafa kofarústirnar fyrir augunum láta sér ekki detta i hug verðmnæti. Erfitt er um vik að gera nokkuð á meðan svona stendur. Að visu segir einhvers staðar i lögum að bærinn geti fjarlægt hús á kostnað eigenda séu þau til lýta. En samt eru húsin eign manna og ekki má taka hana án gjalds fyrir. Þykir mönnum hart að gjalda fyrir slikt, fyrir utan kostnað við að rifa niður, þvi eigandinn er oft ekki viðlát- Siglufjörður. Nýtt og gamalt blandast þar saman svo ýmsum finnst það hinn mes hrærigrautur. Menn hrósa sér þó af því að úr lofti séð eru allar götur beinar. DB- mynd Bjarni Árnason. inneða til viðræðu. Eitt helzta málið í pólitikinni á Sigló er þvi umhverfið og lagfæring þess. En leiðirnar að því marki eru misjafnar. 4 flokkar keppa um hylli 1333 kjósenda og rúmra 700 annarra bæjarbúa um það hvaða leiðir á að fara að þessu marki sem öðrum i bænum. Á Siglufirði vinna langflestir i eða við fisk. Þó er risinn þar ýmiss konar smáiðnaður og svo húseiningasmiðja semmennerumjöghreykniraf. - DS GunnarRafnSigur- björnsson (G-lista): Sorpið öllum til skammar Jóhann Möller (A-lista): Aðbúnaður á vinnu- stöðum slæmur — hannþarfaö bæta „Umhverfismálin og rafveitan og hita- veitan eru mér efst í huga og hyggst ég beita mér að þeim af krafti,” sagði Gunnar Rafn Sigurbjörnsson skóla- stjóri, 2. maður á G-lista sem hefur 2 menn i bæjarstjórn. . „Umhverfinu í viðasta skilningi þess orðs verður að koma í viðunandi horf. Það sér á bænum að hann átti í erfiðJeik- um í langan tima og er okkar átak meira en víða i öðrum bæjum. Meðal annars þurfum við að setja varanlegt slitlag hér á allar götur. í því efni verður hið opin- bera að vera mun jákvæðara i styrkjum en það hefur verið. Er ekki nóg að okkur sé útvegað fé til sjálfrar malbikunarinn- ar heldur þarf að undirbyggja hér allar götur. Þetta þarf að gera í stærri áföng- um en gert hefur verið. Mjög brýnt er að koma upp fullkom- inni sorpeyðingu. Ástandið fram að jyessu hefur verið öllum sem nálægt hafa komið til stórskammar. Geysimiklar framkvæmdir eru fram- undan við rafveitu og hitaveitu og kemur ekki til mála að láta neytendur borga þann aukakostnaö sem af sliku leiðir heldur verður rikið að hlaupa undir bagga,” sagði Gunnar Rafn. - DS Gunnar Rafn Sigurbjörnsson á kosningaskrifstofu Alþýðubandalagsins: verður að hjálpa okkur.” ,Ríkið

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.