Dagblaðið - 17.07.1978, Qupperneq 1
4. ÁRG. — MÁNLDAGUR 17. JÍJLÍ1978- 152. TBL.
RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11. — AÐALSÍMI 27022.
myndirá bls.
6f7,8og9
og baksíðu
Heima!
Samhliöa koma þcir „flugfiskarnir” dl
hcimahafnar i Reykjavik. Hringnum var
lokað af þeirra hálfu. t dag munu tveir
aörir bátar Ijúka þessari einstxðu hring-
ferð. — DB-mynd Hörður.
S jórall DB og Snarfara 78:
Mörgþúsund manns fögnuðu
rallköppunum í gærkvöld
— úrslit kunngjörð viö verðlaunaaf hendingu í Sýningarhöllinni 9 [ kvöld og þar eru allir velkomnir
Mörg þúsund manns tóku á móti
tveimur fyrstu bátunum í Sjóralli Dag-
blaðsins og Snarfara þegar þeir komu til
Reykjavíkur kl. nákvæmlega 21:51.27 I
gærkvöld. Renndu bátamir — Hafrót
05 og Signý 08 — hnífjafnir inn um
hafnarkjaftinn og lögðu upp að Lofts-
bryggju neðan við Hafnarbúðir.
Þegar upp úr kl. 20 fór fólk að safnast
saman á bryggjunum i kring og þegar
nær dró komutima bátanna frá Ólafsvik
var bilalestin orðin þétt allt inn að
Sundahöfn, fyrir utan mannfjöldann,
sem beið á bryggjunum.
Var keppendunum á bátunum, Gunn-
ari Gunnarssyni og Birni Árnasyni á
Signýju og Hafsteini Sveinssyni og
Runólfi Guðjónssyni á Hafróti, fagnað
vei og innilega með blómum, kampavíni
oggjöfum.
Hinir tveir bátamir, Lára 03 og Haf-
dís 09, eru væntanlegir til Reykjavikur
frá Ólafsvik um kl. 17 í dag. Fimmti bát-
urinn, Már 04, brotnaði á siglingu frá
Höfðakaupstað á laugardaginn. Botninn
í bátnum sprakk og þverband losnaði,
þannig að ekki var annað að gera en
sigla aftur í land. Var báturinn fluttur
landleiðina til Borgamess í gær — en
áhöfnin, bræðurnir Hermann og Baldur
Jóhannssynir, voru báðir mættir á Lofts-
bryggju í gærkvöld til að taka á móti
mótherjum sínum. Voru þessi endalok
ekki sizt leiðinleg fyrir það, að bræðurnir
voru fyrstir til Akureyrar i síðustu viku
og höfðu staðið sig með prýði í keppn-
inni þar til óhappið varð.
t dag verða reiknuð út stig í keppninni
en í kvöld verða þau tilkynnt i Sýningar-
höllinni á Bíldshöfða og þá jafnframt af-
hent glæsileg verðlaun: sigurvegarinn
fær gylltan og silfraðan bikar og allir
keppendurnir fá fallega áletruð tölvuúr
frá Dagblaðinu til minningar um Sjórall
78.
Allir eru velkomnír i Sýningarhöllina
í kvöld og er aðgangur að sjálfsögðu
ókeypis.
-ÓV
VIÐRÆÐUR UM VINSTRI
STJÓRN HÓFUST í MORGUN
„Við ætlum í fyrsta lagi að eiga
stuttar formlegar viðræður við Fram-
sóknarflokkinn um stjórnarmyndun Al-
þýðuflokks. Alþýðubandalags og Fram-
sóknarflokksins.” sagði Benedikt Grön-
dal, formaður Alþýðuflokksins, i viðtali
við DBí niorgun.
„Framsóknarflokkurinn hefur þegar
lýst þvi yfir, að hann sé reiðubúinn að
taka þátt i slíkri stjórn. Ef afstaða hans
verður óbreytt á fundinum, sem hefst
núna kl. 10, mun ég óska eftir formleg-
um viðrtvðum þessara þriggja flokka um
stjórnari ndun,” sagði Benedikt.
Hann sagði að á flokksstjórnarfundi
Alþýðuflokksins siðastliðinn föstudag
hefði verið einróma samþykkt að reyna
næst þann kost sem að framan greinir.
„Þetta er liðin tíð,” sagði Benedikt, er
fréttamaður spurði hann um deilur
þeirra Lúðvíks Jósepssonar vegna til-
raunar til viðræðna Alþýðuflokks, Al-
þýðubandalags og Sjálfstæðisflokks.
„Um þær er ekki ástæða til að ræða
frekar heldur að snúa sér að könnun á
þeim möguleikum sem ég gat um,” sagði
Benedikt Gröndal.
„Ef bréf berst frá Benedikt með form-
legu tilboði um viðræður, liggur Ijóst
fvrir, að við munum svara því játandi,”
sagði Ólafur Ragnar Grímsson, þing-
maður Alþýðubandalagsins, i morgun.
„Ég held ekki að þær hafi nein áhrif, að
minnsta kosti ekki hvað Alþýðubanda-
lagið snertir,” sagði Ólafur Ragnar um
deilur Alþýöuflokks og alþýðubanda-
lagsmanna síðustu daga. Alþýðuflokks-
menn móðguðust við synjun Alþýðu-
bandalagsins á viðræðum um ný-
sköpunarstjórn. Þeir báðu um frekari
skýringar á þvi og alþýðubandalags-
menntölduþábeiðniútíhött. BS/HH
„Það verðurað taka upp nýja efnahagsstefnu”
— segir Lúðvík Jósepsson í viðtali við DB — Sjá bls. 24
Nóg að gera í garðinum núna
— sjá garðyrkju bls. 34-35
Enn eitt gassprengjuslysið:
Fimmtán látnir og eitt
hundrað ogfimmtíu
mikið brunnir er bifreið
sprakkíMexico
— sjá erL fréttir bls. 10 og 11
68 ára meistari á Húsavík
— Hart bariztí golfinu um land allt
— íþróttirbls. 18
GUÐBJARTSMÁLIÐ
OG SAMVINNUBANKINN
— sjá kjallaragrein Halldórs Halldórssonar
á bls. 12 og 13