Dagblaðið - 17.07.1978, Blaðsíða 21
■
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 17. JÚLÍ1978.
Iþróttir
iþróttir
iþróttir
Iþróttir
Sigur Nicklaus
í Skotlandi
— „gullbjörninn” Jack Nicklaus sigraði
í opna brezka meistaramótinu í golfi
Bandarikjamaðurínn Jack Nicklaus
sigraði á laugardag í opna brezka
meistaramótinu. Hann fór siðustu um-
ferðina á 69 höggum — alls fór hann þvi
holurnar 72 á 281 höggi, sjö undir pari.
Jack Nicklaus vann þvi sinn fyrsta
AllanWells
náði beztum
tíma í Evrópu í
lOOmíár
Skotinn Allan Wells náði beztum tima
i 100 metra hlaupi í Evrópu i ár er hann
sigraði á brezka meistaramótinu i Edin-
borg. Wells hljóp á 10.15 en annar varð
Peter Radford á 10.29.
Það sem vakti hvað mesta athygli í
Edinborg var ósigur Evrópumeistarans i
5000 metra hlaupi, Brendan Foster.
Aðeins viku fyrir samveldisleikana í
Kanada varð Foseter að láta í minni
pokann fyrir Mike McLeod, eftir mikinn
endasprett McLeod. McLeod vann á
13:25.20 og hann varð þar með fyrsti
Bretinn til að sigra Brendan Foster i
5000 metra hlaupi í átta ár. Tími
McLeod var bezti tími Breta i ár.
Allan Wells sigraði einnig i 200 metra
hlaupi á 20.70. Sebastian Coe sigraði
örugglega í 800 metra hlaupi en sigurinn
var dæmdur af honum þar sem hann fór
of snemma af braut sinni. Sigurinn var
dæmdur Peter Hoffmann er hljóp á
1:48.30. Það vakti athygli á meistara-
mótinu að Colin Sutherland, kringlu-
kastarinn sem nýlega var meinuð þátt-
taka i keppni vegna þess að hann hafði
neitað að fara i „dóp-prufu”, mætti i
Edinborg. Hann byrjaði að hita upp en
var beðinn að fara, hvað hann gerði.
Hann sagðist hafa verið að mótmæla
banninu.
„stóra” titil i þrjú ár en undanfarin þrjú
ár hafa verið fremur mögur, á hans visu.
Jack Nicklaus fór fyrstu umferðina á
71 höggi, aðra á 72 höggum og fáir gáfu
honum þá mikia möguleika. En Nick-
laus fór síðan þriðju umferðina á 69
höggum og hann var kominn meðal
fremstu. Simon Owen frá Ástralíu var í
miklu stuði lengi framan af. Hann fór
þriðju umferð á 67 og á 15. holu fór
hann sitt fimmta „birdie” í röð. Báðir
áttu góð upphafshögg á 16. holu i sið-
ustu umferð. Nicklaus fór inná „green-
ið" í öðru höggi sínu, aðeins um tvo
metra frá holunni. En Owen mistókst
hrapallega i sínu næsta, högg hans fór
fram fyrir „greenið” og á teiginn á 17.
holu. Nicklaus „púttaði” — fór á
þremur höggum en Owen á fimm
höggum. Nicklaus fór 17. holu á
þremur, Owen lenti i vandræðum. Fór
yfir „greenið" með annað högg sitt,
þriðja högg hans kom kúlunni inn á
„green”, sex nietra frá holunni. Honum
mistókst púttið og sigur Nicklaus var i
höfn — báðir fóru 18. holuna á pari.
Það kváðu við mikil fagnaðarlæti er
Nicklaussetti kúluna niðurá 18. holu —
sigur Nicklaus var í höfn.
Röðefstu manna varð:
1. J. Nicklaus, USA281-71,72,69,69
2. -5. Simon Owen, Ástralíu
283-70,75,67,71
2.-5. Tom Kite, USA
283-72,69,72,70
2.-5. Ben Crenshaw, USA
283—70,69,73,71
2.-5. Ray Floyd, USA
283— 69,75,71,68
6. Peter Osterhouis, England
284— 72,70,69,73
7. -11. Nick Faldo, England
285— 71,72, 70,72
7.-11. Bob Shearer, Ástralíu
285—71,69,74,71
7.-11. Isao Aoki, Japan
285—68,71,73,73
7.-11. John Schröder, USA
285-74,69,70,72
BJORN B0RG KOM
SVÍUM í ÚRSUT
— B-riðils Evrópu í Davis-keppninni
Svtinn Björn Borg kom Srium áfram I
úrstit B-riðils I tennis I Davis-keppninni.
Sviar sigruðu Spánverja 3—2 i Bostad i
Sviþjóð. Þegar aðeins einn leikur var
eftir var staðan 2—2 — og Björn Borg
mætti Jose Higueras. Borg vann i þrem-
ur lotum, 3—0,6—1,6—4,6—2.
Sigur Svians unga, sem á dögunum
vann sinn þriðja Wimbledon sigur í röð,
var sannfærandi en hann þurfti þó fyrir
sigrinum að hafa. Fyrir leik Borg og
Hugueras hafði fremsti leikmaður Spán-
verja, Manuel Orantes, sigrað Kjell
Johanson 6—4, 6—4, 7—5 og jafnað
leikinn, 2—2.
„Björn Borg er bæði andlega og lík-
amlega uppgefinn. Hann hefur leikið 25
leiki á tveimur mánuðum og má ekki um
tennis hugsa,” sagði þjálfari Borg, Lenn-
art Bergelin. En engin hvild er framund-
an hjá Birni Borg — á morgun hefst
sænska meistaramótið og þar er Borg
talinn sigurstranglegastur.
Svíar hafa einu sinni sigrað í Davis-
bikarnum. Það var 1976 og þá vann
Borg titilinn nánast upp á eigin spýtur.
Sviar mæta Ungverjum i úrslitum B-
riðils Evrópu. Ungverjar sigruðu itali,
3—2. Óvænt úrslit því ftalir eiga góðum
tennisleikurum á að skipa. i A-riðli eru
Bretar í úrslitum. Þeir sigruðu Frakka
3—2 i Paris.
Ódýrir en góðir
æfinga-
skór
Litur: Blátt m/tveim
hvítum röndum.
Stærðir 27-33 kr. 3.100.-
Stærðir 34-39 kr. 3.200.-
Stærðir 40-45 kr. 3.495.-
PÓSTSENDUM
Sportvöruverzlun Ingólfs Óskarssonar
Klapparstig 44. — Simi 11783.
„Gullbjörninn” Jack Nicklaus sýnir íslenzkum áhorfendum sveiflu og fylgzt er með
af athygli. Hann sigraði á opna brezkameistaramótinu.
Þeir Mike Cahill, Ástralíu, Orville
Moody, USA og Dale Hayes, Ástraliu,
fóru á 286 höggum. Mark Hayes, USA,
Masahashi Ozaki, Japan, og meistarinn
frá i fyrra, Tom Watson, fóru á 287.
Watson gerði út um möguleika sína á
sigri er hann á fyrstu niu holunum i
síðustu umferð fór fjórum sinnum á einu
yfir pari — síðustu umferðina á 76.
Annar sem fór illa að ráði sinu var Spán-
verjinn ungi, Severino Ballesteros —
hann fór þriðju umferð á 76 og hina
síðustu á 73 höggum.
"HafiÖ þið heyrt um hjónin sem
mátuöu húsiö sitt
með HRAUNI fýrh 12 ánun,
03 ætla nú að endutmála þaö t sumat
bara til aö bteyta um Ht.”
Sögurnar um ágæti þessarar
sendnu akrýlmálningar,
HRAUN-málningarinnar frá
Málningu h/f magnast með
árunum,og hróður hennar
eykst með hverju árinu, sem
líður.
Nú, eftir að HRAUN hefur
staðið af sér íslenska veðráttu í
rúmlega 10 ár, er enn ekki
vitað um hinn raunverulega
endingartíma þess, sé það
notað rétt í upphafi.
Þess vegna gerir þú góð kaup,
þegar þú velur HRAUN á
húsið.
HRAUM málning'f
Island
ífimmtasæti
íDanmörku
ísland hafnaði I fimmta sæti á Norður- !
landamóti drengja I Danmörku. t gær |
sigruðu tslendingar Finna 2-1 I baráttu I
um fimmta sætið. Sigurjón Kristjánsson !
Breiðabtik og Valur Valsson, FH, i
skoruðu mörk tslands.
V-Þjóðverjar sigruðu I keppninni,
sigruðu Svfa á vltaspymukeppni. Eftir
venjulegan leiktíma var staðan jöfn, 3-3
— og V-Þjóðverjar sigruðu í vitaspyrnu-
keppni, 3-1. Norðmenn höfnuðu I þriðja
sæti, sigruðu Dani 1-0. Raunar má segja
að tslendingar hafi verið óheppnir að
leika ekki um þríðja sætið, þvi drengirnir
yfirspiluðu Dani en jafntefli varð, 1-1.
Rivelino til
Saudi-Arabíu
Roberto Rivetino, þekktasti leik-
maður Brasiliu nú, mun á miðvikudag
fljúga til Saudi-Arabiu og lita á aðstæður
Helal Riyadh. Miktir peningar eru
knattspyrnu Saudi-Arabiu og hefur
Helal Riyadh samþykkt að borga um
300 milljónir króna fyrir hinn 32 ára
gamla Brasiliumann.
Fyrr I þessum mánuði fór prins Khalid
Bin Yazeed til Brasiliu beinlinis til að
ræða við Rivelino um hugsanlegan samn-
ing hans við félagið. Rivetino mun lita á
aðstæður og síðan ákveða sig. Fyrir
skömmu ákvað Sviinn Thomas Sjöberg
að fara til Saudi-Arabfu og leika þar i 8
mánuði — fyrir það fær Sjöberg, sem
skoraði eina mark Svfa á HM, gegn
Brasiliu, um 60 milljónir króna. „Ég
værí kjáni ef ég hafhaði þessu boði,”
sagði Sjöberg.
Öster missti
stigíVaxjö
Öster, tið Teits Þórðarsonar i Svi-
þjóð, varð að gera sér að góðu jafntefli
gegn Landskrona i Vaxjö, heimavelli
öster f gær. Látlaus sókn öster allan
leikinn gaf ekki mörk — leikmenn fengu
mörg tækifærí er ekki nýttust.
Meistárar Malmö eru þvi með þriggja
stiga forustu eftir nfu umferðir — hafa
hlotið 17 stig gegn 14 stigum Öster, sem
er i öðru sæti. Malmö sigraði Advita-
berg, 1-0, um helgina.
Sænski leikmaðurínn Thomas |
Sjöberg fór til Saudi-Arabiu f vikunni og
leikur þar i 8 mánuði. Fyrír þetta tímabil
fær Sjöberg um 60 milljónir króna. „Ég
væri vitlaus ef ég hafnaði þessu,” sagði
Sjöberg en hann leikur með meisturum
FF Malmö.
Reutemann
sigraði
á Englandi
Carlos Reutemann frá Argentinu
sigraði f brezka grand-prix kappakstrin-
um, sem fór fram i Brands Hatch á
Englandi i gær. Reutemann sigraði eftir
mikið einvigi við Nicki Lauda.
Reutemann byrjaði vel i vor, sigraði í
ameríska og brasiliska grand-prix en
dalaði og tókst ekki að verða meðal sex
efstu í síðustu þremur keppnum. Hann
náði að aka framúr Nicki Lauda, heims-
meistaranum, á 60. hring og þrátt fyrir
að Austurríkismaðurinn reyndi hvað
hann kunni til að ná forustinni aftur
tókst það ekki og Reutemann sigraði
eftir æðislega baráttu.
Þeir Mario Andretti og Ronnie Peter-
son, sem hafa verið svo sigursælir á
Lotusbílum sínum, urðu báðir að hætta
keppni vegna bilana. Þriðji á Englandi
varð írinn John Watson, fjórði Patrick
Depailler. Staða efstu manna i barátt-
unni um heimsmeistaratitilinn er:
1. Mario Andretti, USA 45
2. Ronnie Peterson, Svíþjóð 36
3. Nicki Lauda, Austurriki 31
4. Carlos Reutemann, Argent. 31
5. P. Depailler, Frakklandi 26
6. John Watson, N-írlandi 16
Bretinn James Hunt varð að hætta
keppni, fór út af, en hann hefur átt lítilli
velgengni að fagna, er aðeins með 8 stig.
BSSBBB