Dagblaðið - 17.07.1978, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 17.07.1978, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 17.JÚL1 1978. 7 Strákarnir brugðu á glens 1 Ólafsvík. Hér heldur einn tilvonandi aflakóngur fyrir- lestur um siglingafræði í Norðursjónum. Meðan á langri bið stóð var marg til gamans gert. — DB-myndir R.Th. Sig. „Þetta er sko hreinasta þjóðhátíð,” heyrðist ungur Ólsari tauta á hafnar- kantinum, þegar íbúar bæjarins, flestir hverjir, voru samankomnir til að bíða rallbátanna tveggja, Hafrótsins og Signýjar. Það var dráttur á að þeir kæmu til hafnar. Enda þótt sól og hlýja sleikti kauptúnið og gerði lífið í bænum i senn notalegt og skemmtilegt þennan laugar- dagseftirmiðdag var ekki hið sama að segja um hafið sem blasir við hinum fræknu fiskimönnum Ólafsvikur. Þreyttari menn en sjórallkappana er vart hægt að hugsa sér. Höfðu þeir þá verið að í 27 klukkutíma samfellt í barn- ingi við vonda sjói á Húnaflóa, við Horn og Látrabjarg. En það hafðist. Köppun- um var einkar innilega fagnað og Ólafs- víkingar afhentu þeim fallega diska með mynd af bænum en þar skipar kirkjan stóran sess. Kirkjan var kennileitið Gott í landi — úfiðásjó Á hitamælinum hjá Kristni á Ólafs- víkurradíói mátti lesa að hitinn var 17 gráður um miðjan daginn, en hann sagði okkur að í röstinni við Hornbjarg væri ekki um slík notalegheit að ræða. Þeir Hafsteinn og Runólfur á Hafrót- inu og Gunnar og Björn á Signýju voru líka I erfiðum sjó og áttu hreint ekkert auðvelt með að berjast áfram, en það hafðist. Sannarlega enn einn sigurinn fyrir hina ungu bátasmiðju Flugfisks, því íslenzku bátarnir virðast sanna að þeir eru i senn kraftmiklir og sterkir. Biðin á bryggjunni var orðin talsvert löng. Fólk skimaði út i sjóndeildarhring- „Það var nú einmitt kirkjan sem við sáum fyrst,” sagði Runólfur Guðjóns- son, þegar hann tók við minjagjöfinni. Frá bátum var haldið til Hótel Sjó- búða, snyrtilegs hótels sem rekið er I ver- búðarhúsnæði staðarins. Þar var hraust- lega tekið til við heitan og góðan mat- inn. „Réttast að fara á sveitaball á Lýsu- hóli,” sagði einn rallkappanna en það sáu allir að þar fylgdi sannarlega ekki hugur máli, svefninn var það sem þeir þráðu mest. Og fljótlega voru þeir svifnir í draumalandið piltarnir og ekki vanþörf á. Bæring Cecilsson frá Grundarfirði var eini kvikmyndtökumaðurinn sem tók myndir af sjórallinu fyrír sjónvarpið, sem nú er I sumarfríi. Fjölmiðlar hafa lítt getið sjóralls- ins, nema hvað útvarpið hefur staðið sig með miklum ágætum og ekki brugðizt for- vitni hlustenda sinna. inn. Sjónaukar og aðdráttarlinsur á lofti. Ekkert sást. Skyndilega færðist kurr í liðið, hraðbátur kom af hafi. Rauður. Það er þá Gunnar, sagði einhver. En því miður, hér var á ferð hraðbátur úr Grundarfirði sem villti mönnum sýn um stundarsakir. Farstöðvamenn voru viðs vegar við ströndina og reyndu að ná sambandi en það hafðist ekki. t ljós kom að bátsverjar höfðu stundum heyrt köllin en ekki getað komið frá sér svörum. Loks birtast þeirl Það var loks um 7-leytið að bátamir birtust. Voru þeir þá búnir að villast dálitið vestur fyrir bæinn. Enn einu sinni hafði þokan gert þeim skráveifur. Merkilegt hversu grimm þokan getur verið rétt við ströndina, enda þótt sól- baðsveður sé inni í byggð. Á bryggjunni voru nokkrir ungir gár- ungar sem settu svip sinn á staðinn, þeyttu flautur án afláts skreyttir merkj- um Sjóralls 78. Litlir bátar — hugdjarft f ólk Skipverjamir á Láru, hjónin Lára Magnúsdóttir og Bjarni Björgvinsson, og á Hafdisi, Hallur Fr. Pálsson og Brynjólfur Brynjólfsson, áttu ekki eins gott þá stundina. Þau höfðu lagt upp frá Skagaströnd fyrr um daginn, og nú var það baming- urinn fyrir Horn. Það er hreint ótrúlegt hvað þessar litlu skeljar þola — eða mannskapurinn, sem er næsta lítt varinn gegn boðaföllunum, hundblautur og kaldur. En þetta tókst — og það má hrópa mörg húrrahróp fyrir þessu hug- djarfa fólki. Til Isafjarðar var komið undir morgun og sannarlega áttu þeir skilið að hvíla lúin bein, bátsverjarnir, þurrka klæði sín og fá ærlegan bita I Mánakaffi. Þaðan var svo haldið eftir hádegi i gær og barningurinn hélt áfram suður á bóginn. Þau lögðu kapp sitt á að komast áfram til Ólafsvikur og slást. i hópinn með hinum tveim bátunum. 27 tíma hvíldar- laust í ólgandi Dumbshafinu — og litlu bátarnir berjast við rastir og boðaföll — Ólafsvik, og síðan í heimahöfn í dag Hlýr og góður koss frá konunni. Hvað er huggulegra eftir langa og stranga siglingu á Iftilli skel um Dumbshaf, rastir og boðaföll? — Runólfur Guðjónsson fær þarna hlýlegar móttökur I Ólafsvik. Veður leyfði það ekki og um það leyti, sem hinum tveim bátunum var fagnað i Reykjavik af þúsundum áhorfenda sem dreifðust um strandlengjuna, voru litlu bátarnir tveir að bíð^ færis fyrir röstina við Látrabjarg. Voru þeir búnir að koma skilaboðum til farstöðvamanna um að þeir mundu biða til 5 í morgun, ef með þyrfti. Síðar kom boð frá báti að lóðsa þá yfir til Ólafsvíkur, en óljóst hvað úr yrði. 1 dag fáum við væntanlega að fagna þessum hugdjörfu keppendum, þvi þá er þeirra von til Reykjavikur. Aðrir kepp- endur, þ.e. á Signýju og Hafróti, munu þá sigla á móti þeim og sigla með þeim inn á Reykjavíkurhöfn. Þá munu báts- verjar á Má, þeir Hermann Jóhannsson og Baldur Jóhannsson verða viðstaddir, en þeir voru óheppnastir allra i rallinu, með beztan árangur á Akureyri, brotinn kjöl á Skagaströnd og úr leik. Það voru leið endalok hjá góðum keppnismönn- um. JBP — Ólafsvík NÝJUSTU TÖLUR! 9060 HESTÖFL Á undanförnum 4 árum höfum við fjutt inn yfir 9000 hestöfl af Chrysler utanborðsmótorum, sem er meira en nokkur annar, innflytjandi utanborðsmótora getur státað af. Við höfum lagt mikið kapp á að hafa góða varahlutaþjónustu, því sumarið okkar er stutt, og mikilvægteraðgetaþjónaðviðskiptavinum okkar vel. Gott verð og góð þjónusta gerir meðal annars það, að bestu kaupin eru í Crysler utanborðs- mótorum. Fást í stærðunum frá 4 HP upþ í 140 HP. 12 BÁTAR Shetland Boats Ltd. er stærsti framleiðandi á fjölskyldubátum í stærðunum 14-21 fet í Evrópu. Shetland framleiðir hvorki meira né minna en 12 báta á dag. Við höfum flutt inn Shetland báta í meira en 4 ár og eru nú milli 40 til 50 bátar frá Shetland í notkun um allt land. Shetland eru framleiddir í verksmiðjum sem uppfylla Lloyds kröfum. Shetland hefur bát fyrir þig og það á góðu verði. Einnig seljum við Fletcher hraðbáta, bátavagna fyrir þá báta sem við seljum og ýmsan varning fyrir bátaáhugafólk, svo sem kompása, lensidælur, flotvesti, mæla af ýmsum gerðum, botnlit, ankeri, bátastýringar, stjórnkapla, stjórnbox, dýptarmæla, siglingarljós o.fl. TRYGGVAGATA 10, REYKJAVÍK, SÍMAR 21460 - 21286

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.