Dagblaðið - 17.07.1978, Blaðsíða 22
22
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 17. JÚLÍ 1978.
I
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
I
Matthias HaUgrtmsson sækir að Sveini Skúlasyni en Sveinn hafði þar betur. DB-mynd Hörður Vilhjilmsson.
Skagamenn þokuðu Blik-
unum feti nær 2. deild
— með 3-0 sigri í Kðpavogi á laugardag í 1. deild
Meistarar í A staðfestu enn það djúp,
sem er milii efstu og neðstu liða 1. deild-
ar er þeir sigruðu Breiðablik, 3—0 i
KópavogL Vonir BUkanna um að forðast
faU i 2. deild, eftir sigurinn á Akureyrí,
minnkuðu mjög með ósigrinum gegn
Skagamönnum. Þrátt fyrir að BreiðabUk
léki einn sinn bezta leik I sumar, fyrri
hálfleik sér i lagi, þá höfðu Skagamenn
ávallt undirtökin og sigur þeirra var
sanngjarn.
Það var þó ekki fyrr á 25. minútu síð-
Jafntefli á
Eskifirði
Austri og Ármann mættust á Eskifirði i
2. deild Íslandsmótsins i gær. Jafntefli
varð, 1-1. Austri sótti stift i fyrri hálfleik
en Vikingurinn Sigurður Gunnarsson
skoraði fljótlega fyrir heimamenn.
Raunar átti Austri að bæta við mörk-
um og Sigurður Gunnarsson fór illa með
tækifæri. En í siðari hálfleik sótti Ár-
mann meir og þeim tókst fljótlega að
jafna, 1-1. Þar við sat, jafntefli og bæði
lið geta vel við unað.
-VS
ÍBÍ vann
Völsung
Ísflrðingar blanda sér nú af alvöru i
baráttuna um sæti f 1. deild, með góðum
sigri, 4-1 á Völsung á föstudagskvöldið-
Hafa Ísflrðingar nú tapað fæstum stigum
f 2. deild, fyrir utan KR. Þeir Jón Odds-
son, 2, og Kristinn Pétursson skoruðu |
mörk ísflrðinga gegn Völsung.
ari hálfleiks að Skagamenn náðu for-
ustu. Karl Þórðarson tók homspymu,
varnarmenn Breiðabliks náðu ekki að
hreinsa nógu vel — knötturinn féll fyrir
fætur Áma Sveinssonar, fyrir utan vita-
teig. Ámi skaut þrumuskoti, Sveinn
Skúlason hálfvarði, knötturinn féll fyrir
fætur Matthíasar Hallgrimssonar en af
honum i þverslá. Þaðan hrökk knöttur-
inn til Kristins Björnssonar, sem skoraði
með skalla af stuttu færi, 0-1.
Þar með höfðu Skagamenn náð for-
ustu og eftir það aðeins spurning um hve
mörg mörk Skagamenn skomðu. Það
kom á 38. mínútu. Enn tók Karl Þórðar-
son hornspymu, sendi á Jón Alfreðsson
á stöngina nær — Jón hafði tima til að
snúa sér og sendi knöttinn fyrir. Þar var
fyrir Andrés Ólafsson, nýkominn inná
og Andrés skoraði með sinni fyrstu
spyrnu — skallaöi knöttinn i netið af
stuttu færi, 0—2.
Síðasta orð Skagamanna átti Pétur
Pétursson, á síðustu mínútu leiksins.
Enn tók Karl Þórðarson homspymu,
sendi vel fyrir og þar stökk Pétur Péturs-
son hæst, skallaði knöttinn i netið —
0—3 og öll mörk Skagamanna skomð
með skalla. Það var raunar réttlæti að
Pétur skoraði — hann hafði verið
óheppinn upp við markið og hefði með
heppni getaö skorað 2—3 mörk.
Skagamenn réðu lögum og lofum í síð-
ari hálfleik og munur liðanna kom þá
berlega í ljós. Leikurinn var hins vegar
jafnari i fyrri hálfleik og þrátt fyrir að
Skagamenn hefði undirtökin fengu Blik-
amir engu að síöur góö tækifæri — voru
raunar óheppnir. Á 28. minútu fékk Þór
Hreiðarsson góða sendingu inn I vítateig
Skagamanna, alveg óvaldaður. Þór hafði
nægan tíma, þurfti einungis að glima við
Jón Þorbjömsson — og vissulega virtist
Þór gera allt rétt, eða þar til skot hans
hafnaði i stöng. Óheppinn þar og Skaga-
menn sluppu með skrekkinn.
Á siðustu minútu fyrri hálfleiks var
aftur hætta á ferðum við mark Skaga-
manna er Sigurður Halldórsson náði
ekki að stýra knettinum I markið og
ágætt tækifæri rann út I sandinn. En
sigur Skagamanna var verðskuldaður og
Blikarnir því skrefi nær 2. deild.
Þrátt fyrir það, að Blikamir væm sigr-
aði, og það með þremur mörkum þá
náðu þeir oft að sýna góðan leik i fyrri
hálfleik. Þór Hreiðarsson var þá bezti
maöur liðsins og eins Einar Þórhallsson,
sem var traustur i vöminni. Sveinn
Skúlason varði vel fast skot úr vítateign-
um frá Matthíasi Hallgrimssyni og hann
verður ekki sakaöur um mörkin. Fram-
linan er máttlaus, þar eru ungir leik-
menn, sem enn hafa ekki öðlazt nauð-
synlega reynslu. Það stefnir þvi í 2ra
deild — ekkert nema kraftaverk og það
stórt getur komið i veg fyrir það.
Skagamenn unnu sinn niunda sigur i
1. deild. Karl Þórðarson og Jón Alfreðs-
son réðu miðju vallarins og i sókninni
var Pétur Pétursson ávallt hættulegur.
Hið sama gilti um Matthias Hallgrims-
son, markakóng Skagamanna. Hann átti
tvö góð skot, og í bæði skiptin var
Sveinn Skúlason á réttum stað. Þaö kom
því á óvart er George Kirby kippti
Matta útaf, og það eftir að hann hafði
rétt áður leikið laglega á vamarmann,
brunað inní vítateig Blikanna og skotið
föstu skoti sem Sveinn Skúlason varði
vel. Matthias var greinilega ekki ánægð-
ur með ákvörðun Kirbys og strunsaði í
bað. En skiptingin bar árangur, Andrés
Ólafsson skoraöi með sinni fyrstu
spyrnu, skallaði knöttinn í netið.
Leikinn dæmdi Róbert Jónsson og
gerði hann hlutverki sínu góð skil.
H.Halls.
KA hlaut bæði
stigin gegn FH
— áAkureyri, 1-0.
Jóhannes Atlasongerði miklar
breytingará liðinu ogþað gaf góða raun
KA vann þýðingarmikinn sigur á FH i
1. deild tslandsmótsins i knattspyrnu á
Akureyri, 1-0. Fyrir leikinn var KA i
næstneðsta sæti, með aðeins sex stig svo
það var barátta upp á lff og dauða fyrir
KA. Og leikmenn náðu einum sinum
bezta leik i sumar. Jóhannes Atlason,
þjálfari KA, gerði þrjár breytingar á Uði
KA, setti inn þrjá unga leikmenn i stað
Jóhanns Jakobssonar, Sigbjöms Gunn-
arssonar og Ármanns Sverrissonar —
það gekk upp hjá KA. NýUðarnir
bórðust af krafti, svo og allt Uðið. Allt
annar bragur á Uði KA, og boðar
væntanlega betri tið fyrir liðið.
Leikur KA og FH var leikur hinna
glötuðu marktækifæra, sér í lagi voru
leikmenn KA iðulega nærri að skora.
Þegar á 4. minútu var Óskar Ingi-
mundarson i góöu færi, skaut góöu skoti
en Þorvaldur Þórsson, markvörður FH,
varði vel. Óskar var aftur á ferðinni á
15. minútu en aftur varði Þorvaldur vel.
Skömmu siðar skall hurð nærri hælum
við mark KA en tókst að hreinsa. Bezta
tækifæri leiksins kom á 22. minútu er
Gunnar Blöndal komst einn i gegn, lék á
Þorvald og markið blasti við en á hreint
ótrúlegan hátt tókst Gunnari að skjóta
framhjá. Á 30. mínútu átti Ólafur Dani-
valsson skot i þverslá. Hann hugðist
senda fyrir, að því er Þorbergur Atlason
hélt svo greinilega, hljóp út í teig, en
boltinn skrúfaði sig að markinu og i
þverslána. Elmar Geirsson komst tvíveg-
is i góð færi en tókst ekki að nýta þau og
á 40. minútu átti Óskar hörkuskot er
strauk þverslá. Sannarlega viðburða-
rikur hálfleikur, leikur hinna glötuðu
marktækifæra.
KA byrjaði síðari hálfleik af krafti og
sótti stift mestan hluta leiksins er eftir
var. Á 17. mínútu small knötturinn í
þverslá marks FH eftir skot Ólafs Har-
aldssonar og aðeins minútu siðar náði
KA loks að skora. Gunnar Gunnarsson
tók hornspymu, sendi á kollinn á
Óskari, sem skallaði að marki FH. Þar
var fyrir Gunnar Blöndal, er skallaði
áfram — fast og í netinu hafnaði knött-
urinn.
Næstu mínútur drógu leikmenn KA
sig nokkuð aftur en sókn FH fjaraði út
og KA tók siðan öll völd.
Því sigur KA, sanngjarn sigur er færir
liðinu ferskar vonir um betri tið. Leik-
menn börðust mjög vel, unnu vel
saman. Ólafur Danivalsson bar af í liði
FH, Janus Guðlaugsson var óvenju-
daufur, enda i strangri gæzlu.
Rafn Hjaltalín dæmdi leikinn og
áhorfendur voru um 600. - SLA.
Dómarinn kom
ekki til Eyja
og fresta varð leik ÍBV og ÍBK í 1. deild
Sérkennilegt mál kom upp i sambandi
viö fyrirhugaðan lelk ÍBV og ÍBK í 1.
deild um helgina. Fjöldi áhorfenda var
mættur á tilskildum tima klukkan átta á
grasvellinum i Eyjum á laugardagskvöld-
iö. Veöur var hiö ákjósanlegasta, völlur-
inn iðjagrænn. Einungis beðið eftir
flautu dómarans. En aöeins annað liöiö
mætti til leiks — og engir dómarar.
Að sögn Húnboga Þorkelssonar,
knattspyrnuráðsmanns i Eyjum, höfðu
Vængir lofað flugi kl. 16.45 með lið ÍBK
til Eyja en þegar til átti að taka var vélin
fyrir norðan og kom þaöan loks kl.
19.30. Þá voru flugskilyrði orðin erfið til
Eyja og því nauðsynlegt að fljúga blind-
flug. Ekki reyndist tiltækur maður með
réttindi og varð þvi að ná i hann út
í bæ. Keflvikingar komust þó i loftið um
siðirog lentu i Eyjum kl. 21.
En ekki var öU sagan sögð enn — þvi
miður. Því nú var komið að þætti dóm-
ara leiksins, Eysteins Guðmundssonar
og hans manna. Þeir voru tilbúnir með
sina vél á sama tima og Keflvíkingar, kl.
16.45. En er dómararnir fréttu af óför-
um þeirra ákváðu þeir að biða einnig.
BLÖNDUÓS SAUÐÁRKRÓKUR SIGLUFJÖRÐUR AKUREYRh
SNYRTIVÖRUKYNNING
Fegrunarsérfræóingur okkar kynnir hinar vinsœlu
Phyris snyrtivörur og leiðbeinir um meðhöndlun
húðarinnar.
Blönduós þriðjudagl8.júlí
Sauðárkrókur miðvikudag 19.
júlí
fimmtudag 20. júlí
Apótek Blönduóss
Sauðúrkróks Ap-
ótek
Siglufjarðar Apó-
tek
Vörusalan s/f
Siglufjörður
Akureyri fostudag 21.júlí
Phyris er húðsnyrting og hörundsfegrun með hjálp
blóma ogjurtaseyða.
Phyris fyrir allar húðgerðir. Fegrun úr blómum ogjurtum.
Svanborg Daníelsdóttir
fegrunarsérfrœðingur.
PHYRIS Umboðið.
Þeir biðu einmitt nógu lengi, eða þar til
orðið var ófært fyrir þeirra vél. Ekki
reyndist unnt að útvega aðra fyrr en aUt-
of seint. Keflvikingar, sem dvalið höfðu í
hinni ágætu flugstöð í Eyjum, sem þjón-
að hefur svo vel frá því á striðsárunum,
flugu því um tíu-leytið án þess að tapa
stigi en sjálfsagt um 100 þúsund krónum
fátækari.
Flogið var áætlunarflug Flugfélags Is-
lands. — Þar stóðust aUar áætlanir aUan
daginn — aUt er málið hið furðulegasta.
FÓV.
StórsigurKR
KR heldur áfram sigurgöngu sinni i 2.
deild tslandsmótsins f knattspyrnu. Á
föstudagskvöldið vann KR öruggan sigur
á Fylki, 4-0 i Laugardal. Birgir Guðjóns-
son, Vilhelm Fredriksen, Stefán Örn
Sigurðsson og Sigurður Indriðason
skoruöu mörk KR.
skildu jöf n
Þór og Reynir Sandgerði sklldu jöfn,
1—1 I 2. deild íslandsmótsins á föstu-
dag. Sanngjörn úrsUt en leikmenn Þórs
náðu sér aldrei á strik og Reynir var ivið
sterkari.
Hjörtur Jóhannsson náði forustu fyrir
Reyni á 19. minútu en Óskar Gunnars-
son jafnaði fyrir Þór á 25. minútu. Þar
við sat, jafntefli — 1—1. StA.
Haukarunnu
Haukar sigruðu Þrótt 2-0 i Neskaup-
stað á laugardag. Þar með bundu
Haukar enda á sigurgöngu Þróttar, en
þeir höfðu fengið sjö stig úr fjórum sið-
ustu leikjum sinum.
Haukar skoruðu fyrra mark sitt um
miðjan fyrri hálfleik og bættu við öðru
marki undir lokin. Þróttarar voru meir
með knöttinn, spiluðu iðulega ágætlega
en er að marki Hauka kom fjöruðu
sóknir þeirra út. Haukar voru mun
hættulegri við mark andstæðinganna —
og þar skildi, 2-0. . VS