Dagblaðið - 17.07.1978, Side 27

Dagblaðið - 17.07.1978, Side 27
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 17.JÚLÍ 1978. 27 Saltverk- smiðja á Reykja- nesi: 500 HLUTHAFAR í SALTVERKSMHMUNNI — beðið eftir heimild til raf magnsf ramleiðslu Saltverksmiöja á Reykjanesi er nú ris- in af grunni. Unniö er nú að ýmsum undirbúningsstörfum, svo sem virkjun gufuholu og útvegun vélabúnaðar sem er í pöntun og er áætlað að síðustu stykkin komi í næsta mánuði. Vonast er til að hægt verði að fara af stað í september eða október í haust að því er segir i Suð- urnesjatiðindum. Langur aðdragandi DB sneri sér til Baldurs Líndals, efna- verkfræðings og spurði hann um að- draganda þessa máls. Baldur sagði að salt- vinnslumálið ætti sér langan aðdrag- anda. Það hefði í upphafi verið hjá raf- orkumálastjóra er þessar rannsóknir byrjuðu fyrir 1950. „Þá beindust þær að þvi að vinna salt beint úr sjó með jarð- hita. Þá var ekki með vissu vitað um aðra saltlind hér, a.m.k. ekki þannig, að hægt væri að treysta á það. Hveravatn sem hráefnislind Á þessum tima beindist strax athyglin að Reykjanesi og þeim möguleika að hveravatn kynni að vera heppilegt sem hráefnislind i staðinn fyrir sjó. Á Reykjanesi var um þetta sáralítið vitað og var fyrst 1956 boruð hola. Þetta salt- vinnslumál var síðar tekið upp á breiðari grundvelli af Rannsóknarráði ríkisins sem veitti því forystu frá 1966. Fleira var þá tekið inn í, ýmiss konar önnur efnisvinnsla úr sjó. Þeirra seinasta skýrsla kom út 1969. Rannsóknarráð skilaði síðan vissum niðurstöðum um saltrannsóknir til atvinnumálaráðuneyt isins gamla ásamt meðmælum um að frekari athugun færi fram á þessum salt- vinnsluþætti og tilheyrandi efnavinnslu. Atvinnumálaráðuneytið tók svo við málinu og lét enn gera rannsóknir. 1 skýrslu ráðuneytisins frá því i marz 1974 kemur fram að verulega hefur verið bætt_ við fyrri athuganir. M.a. var Baldur l.índal. Vantar ný/ega bí/a á söluskrá Mikilsala BÍLA- MARKAÐUR/NN Grettisgötu 12—18 Sími25252 Svipmyndir á svipstundu Svipmyndir í hvert skfrteini Svipmyndir sf. Hverfisgötu 18 ■ Gegnt Þjódleikhúsinu Tilraunahúsið er risið af grunni. DB-mvnd. Hörður. bandarískt fyrirtæki fengið til að gera ýt- arlega rannsókn. Jákvæðar niðurstöður Niðurstöður allra þessara rannsókna voru jákvæðar og gáfu til kynna að þarna mætti vinna sait og fleiri efni á hagkvæman hátt. Ekki má gleyma aðeinnig höfðu verið gerðar mjög verulegar jarðvegsrann- sóknir sem beinlinis staðfestu að grund- völlur væri fyrir langvarandi vinnslu á þessum söltum úr hveravatninu sjálfu. Síðan skeður það að farið er að semja um þetta sérstök lög. Vorið 1976 eru af- greidd um þetta sérstök lög frá Alþingi sem heimiluðu og gerðu ráð fyrir bygg- ingu tilraunaverksmiðju og stofnun und- irbúningshlutafélags sem undanfara væntanlegs reksturs á þessu. Þetta félag var stofnað i febrúar á sl. ári og nú er verið að byggja þessa tilraunaverk- smiðju undirbúningsfélagsins. Þetta fé- lag er hlutafélag. Meirihlutann eiga ein- staklingar og félög en rikið á tæpan helming. Hluthafar munu vera um 500,” sagði Baldur að lokum. Stjórn félagsins hefur nú sótt um heimild til iðnaðarráðuneytisins til þess að framleiða rafmagn úr þeirri gufu sem jarðefnin verða unnin ur. Svar hefur ekki borizt frá ráðuneytinu enn en von ast er til að það verði jákvætt. Stjórn félagsins skipa: Skipaðir af iðn- aðarráðuneytinu: Guðmundur Einars- son formaður og Ingvar Jóhannsson varaformaður. Skipaðir af fjármálaráðu- neytinu: Jón Armann Héðinsson og Oddur Ólafsson, varamaður. Kjörnir af hluthöfum: Gunnar Sveinsson, Finn- bogi Björnsson, Friðrik Á. Magnússon, Ellert Eiríksson ogOddbergur Eiríksson. —GAJ— Starfsemi borgarstofnana fryst? Óvissa ríkjandi hjá Þróunarstofnun „Jú það er nokkur óvissa rikjandi hér á stofnuninni um það hver framtíðar- verkefnin kunni að verða. Sem kunnugi er mun stefna Alþýðubandalagsins vera nokkuð önnur i skipulagsmálum en Sjálfstæðisflokksins." tjáði Hilmar Ólafsson forstjori Þróunarstofnunar Reykjavikurborgar DB i gær. „Við ein- beitum okkur nú að langtímaverkefn- um. Þau sem meiri hætta er á að sæta muni breytingum eru þvi látin biða." Skipulagsnefnd nýja borgarstjórnar- meirihlutans. undir formennsku Sigurð- ar Harðarssonar arkitekts, hefur ekki tekið neinar ákvarðanir varðandi skipu- lagsmál ennþá. „Á því er þóenginn vafi að ný skipulagsnefnd nýs meirihluta hefur hafið störf og nu cr að biða og sjá til.”sagði Hilmaraðlokiim I \. rpca/nc BJÓÐUM ÞESSI GLÆSILEGU SETT MEÐ MJÖG GÓÐUM GREIÐSLUKJÖRUM MEÐAN BIRGÐIR ENDAST BYGGINGAMARKAÐURINN hf GRETTISGÖTU 11. RVK. SlMI 13285 J.L. HÚSIÐ HRINGBRAUT 121. RVK. SÍMI 10600

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.