Dagblaðið - 18.10.1978, Síða 3
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 18.0KTÓBER 1978
Skipulögð glæpastarf-
semi tryggingafélaga
— baktryggð af Hæstarétti
Krístján Tómasson Ránargötu Sa
skrifan
Vegna skrifa dagblaðanna undan-
farið um tjón er verða á bifreiðum i
árekstrum get ég ekki setið hjá án þess
að segja frá minni eigin reynslu. Þar er
þó ekki um tjón á bifreið að ræða
heldur varð ég fyrir bifreið er ég var á
gangi yfir götu.
örorka mín er metin 10% eftir
slysið en ég var frá vinnu í 16 mánuði.
Vottorð frá Birni önundarsyni yfir-
lækni hjá Tryggingastofnun fékkst
fyrir fjórum mánuðum. Sem betur fer
fyrir mig var aðeins um 10% örorku
að ræða hjá mér en því miður fyrir
Almennar tryggingar. Slys þetta varð
á Tryggvagötu gegnt Hafnarhúsinu
þann 7. september 1976.
Þeir sem reka augun í það að ég
skrifa: því miður var ekki um nema 10%
örorku að ræða fyrir tryggingafélagið,
hafa ekki kynnt sér starfsemi hinna
íslenzku tryggingafélaga. Ef • til er
skipulögð giæpastarfsemi á Islandi þá
er hún rekin af Almennum
tryggingum, sem og öðrum trygginga-
félögum, með Hæstarétt sem
málsvara.
Bætur þær sem félagið býður eru
miðaðar við verðlagið eins og það var
í september 1976. Að dómi félagsins
voru hæfilegar bætur fyrir vinnutap í
16 mánuði og 10% örorku taldar
2.3 milljónir kr. Frá þvi drag-
ast 570 þúsund kr. vegna þess að
þeir segja að ég þurfi ekki að borga af
þessu skatta. Bætur fyrir 100% örorku
voru í september 76 2.4 milljónir kr.
10% af því er 240 þúsund kr. en þær
bætur eru innifaldar í þeirri upphæð
sem ég nefndi áður.
Síðan er dreginn frá ýmis kostnaður
sem þeir segjast hafa orðið fyrir og
ýmsir aðrir liðir sem ég botna ekkert í.
Eftir standa 1300 þúsund sem þeir
bjóðast til að borga. Það sjá allir að
1300 þúsund eru litlar bætur fyrir 16
mánaða vinnutap, hvað þá þjáningu
og annað. Verðbólgan sér um að gera
þessar bætur að engu.
Það sem vakir fyrir forkólfum
tryggingafélaganna er að draga bóta-
greiðslur eins lengi og þeir geta til þess
að halda bótafénu í veltunni. Hæsti-
réttur styður við bakið á glæpastarf-
semi þessari með því að dæma félögin
til að borga eftir verðlagi sem gilti er
slysið varð, auk 13% vaxta til þess
dags er greiðsla fer fram.
1 framkvæmd er þetta þannig að því
alvarlegra sem slysið er, því lengri
tíma tekur að fá örorkuna metna. Það
getur tekið allt að 10 árum að fá þessi
mál í gegn. Síðan dæmir Hæstiréttur
bætur á því verðlagi sem gilti er slysið
varðog bætir við 13% vöxtum.
Það væri gaman að vita hvort það
fæst kaskótrygging á bifreið árið 1986
fyrir 2.4 milljónir en það er sú
upphæð sem borguð var fyrir 100%
örorku árið 1976. Ef þetta er ekki
glæpastarfsemi, hvað er það þá?
Hringiö í síma
27022 TfoglS
Mælaborð eins leigubilstjórans gefur til kynna óskir hans.
DB-mynd Ragnar Th.
Þakkir
til leigu-
bfl-
stjórans
— sem vill leyfa
reykingar í sfnum bíl
Vilborg Gunnarsdóttir og Jóhanna
Gunnarsdóttir vilja koma á framfæri
þökkum til leigubílstjórans, sem
skrifaði nýlega í DB og vill leyfa
reykingar í bíl sínum.
„Það er ekki nema sjálfsagt,” sögðu
þær stöllur, „að hver bílstjóri ráði
þessu sjálfur og vonandi fara fleiri að
dæmi þessa bílstjóra.”
Heimilis-
/æknir
svarar
Raddir lesenda taka við
skFaboðum tii umsjónar-
manns þáttarins „Heim-
ilislæknir svarar" í síma
27022, kl. 13-15 alla
virka daga.
FISHER
I- - I
D
(\dOIO
m
i r
ARMÚLA 38 (Selmúla megin) 105 REYKJAVlK
á^FISHER SIMAR: 31133 83177 PÓSTHÓLF 1366
FISHER
FISHER
Ný sending af Fisher hátölurum. Stærðir: 30 w — 50 w — 75 w
100 w - 130 w - 90 w - 125 w - MJÖG GOTT VERD:
Eigum einnig til nokkra útvarps-
magnara á„gamla verðinu".
Allt til hljómflutnings fyrir:
HEIMILID — BÍLINN OG DISKÓTEKID
Hvað finnst þér um
verðhækkun síðdeg-
isblaðanna?
Olafur Sigurðsson simvirki: Mér finnst
það allt i lagi. Ég kaupi síðdegisblöðin
ekkert síður eftir hækkun.
Guðrhn Sigurjónsdóttir hósmóðir: Það
skiptir mig engu máli. Ég kaupi blöðin
alltaf í lausasölu.
Sigfús Haldórsson tónskáld: Ég renn
alveg rúnt í þessum peningamálum. En
eru þessi blöð nokkuð dýrari en hvað
annað núna?
Sonja Kristinsdóttir verzlunarmaðun Ég
hef ekki hugsað neitt um þessa hækkun.
Ég keypti Vísi áður og geri það enn.
Ester Guðmundsdóttir húsmóðir: Ég
kaupi ekkert blað. En mér fínnst þessi
hækkun ekki ósanngjörn miðað við
aðrar verðhækkanir.
Björn Guðmundsson múrari: Miðað við
aukinn kostnað á öllum sviðum finnst
mér þessi hækkun eiga fullan rétt á sér.
Blöðin eiga hana skilda.