Dagblaðið - 18.10.1978, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 18.10.1978, Blaðsíða 12
12 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 18-OKTÓBER 1978 ERFIÐUR RODUR HJA KEFLVIKINGUNUM — Atli Þór Héðinsson skoraði tvö mörk fyrir Herfölge B1901 frá Falstri, sem Keflvikingarnir Einar Ásbjörn Ólafsson og Sigurður Björgvinsson leika með, fékk slæman skell í 1. deildinni dönsku á sunnudag. Tapaði þá 5—2 i Esbjerg og er I alvar- legri fallhættu. B1901 komst þó í 2—1 í leiknum og skoraði Henning Skouboe bæði mörk liðsins. Hann var stigahæstur hjá Ekstrablaðinu eftir leikinn með 4 stig en aðrir leikmenn liðsins fengu 3 — þar á meðal Einar Ásbjörn. Forusta Velje minnkaði í þrjú stig en liðið tapaði 3—0 í Árósum fyrir AGF, sem er í öðru sæti. Velje hefur 38 stig. AGF 35 stig og Esbjerg er í þriðja sæti með 34 stig. Þrjár umferðir eru eftir. Staða neðstu liðanna er þannig: Skovbakken Kastrup Næstved Fredrikshavn B1901 Köge Randers í 2. deild 27 9 6 12 40—45 24 27 8 6 13 35—37 22 27 8 5 14 32—42 21 27 7 7 13 37—48 21 27 7 7 13 41—55 21 27 7 6 14 24—44 20 27 6 4 17 37-73 16 lék Holbæk, liðið, sem Borg nældi sér í 35 þúsund dollara Björn Borg sigraði Vitas Gerulaitis, landsliðsmanninn bandariska, 6—4 og 7—6 i úrslitum á fjögurra manna móti i Essen í V-Þýzkalandi í gær. Fyrir sigurinn hlaut Sviinn 35 þúsund dollara fyrstu verðlaun. Hann er nú lang-tekju- hæstur tennisleikaraheims. Gerulaitis, sem aldrei hefur sigrað Borg i keppni, hlaut 22 þúsund dollara fyrir annað sætið. 1 keppninni um þriðja sætið sigraöi ítalinn Adriano Panatta Ástraliumanninn Rod Lave 6—1 og 6— 4. ítalinn fékk 14 þúsund dollara i sinn hlut — Laver niu þúsund dollara. á sunnudag Stefán örn Sigurðsson leikur með, við AB og varð jafntefli 2—2. Stefán var ekki á markalista Holbæk. Liöið er í sjötta sæti með 28 stig. Lyngby efst með 32 stig. Hvidövre, Nakskov og Fremad hafa 31 stig. í 3. deild hefur Herfölge fimm stiga forustu eftir 26 umferðir af þrjátíu og virðist öruggt um sæti í 2. deild næsta keppnistímabil. Herfölge sigraði næst- neðsta liði, Skamby, 8—0 á heimavelli á sunnudag. Atli Þór Héðinsson skoraði tvö af mörkum Herfölge. Hann hefur nú skorað 10 mörk í 3. deild á keppnistíma- bilinu og er annar markhæsti leikmaður- inn hjá liði sínu. Herfölge hefur 40 stig. Næst kemur Roskilde með 35 stig og Viborg er í þriðja sæti með 34 stig. APffttfÍs| Heler ia« iur ★★ ★ Þið munið hann Geira ★ ★ Fljugandi furðuhlutir ★ Plakat: Þokkabót Jón Pétur Jónsson var markhæstur Valsmann snúið á FH-inga. — sagði Jón H. Karlsson á sunnudag—Hilmar Bj< „Þetta verður eflaust mjög jafn leikur en ég vona þá að Valur sigri með fjögurra til flmm marka mun,” sagði Hilmar Björnsson, þjálfari Vals í handknattleiknum, þegar hann ræddi við blaðamenn um siðari leik Vals og norska liösins Refstad í gær. Sá leikur verður á sunnudag i Laugardalshöll. Hefst kl. 15.00 og Valsmenn þurfa að sigra með þriggja marka mun til að komast i aðra umferð Evrópukeppninnar — keppni meistaraliða. „Valsliðið lék að ýmsu leyti vel í fyrri leik liðanna i Osló,” sagði Hilmar ennfremur „en illa var þó farið með góð færi. Ellefu sinnum mis- notuðu Valsmenn dauðafæri — það er þegar þeir áttu aðeins markvörðinn eftir. Fjórum sinnum var stigiö á linu. Tvisvar skotið í stangir og þrjú vítaköst voru ekki nýtt. Ég vona að það gangi betur i slíkum færum í Laugardalshöll á sunnu- daginn. Refstad er allgott lið og efst i 1. deildinni norsku. Það er erfitt að leika gegn því. Það leikur skynsamlegan bolta hefur sterka vörn og góða markverði. Heldur boltanum lengi — biður. Við munum leika eðlilega framan af leiknum — leika þann leik, sem Valsliðið oftast leikur — en við þurfum að vinna upp tveggja marka mun. Það getur orðið til þess, þegar líður á leikinn, að við þurfum að gripa til ýmissa ráða — og lagt verður kapp á hröð upphlaup. Ég vcit ekki ennþá hvernig endanleg skipan Valsliösins verður á sunnudag. Brynjar Kvaran, markvörður, og Gisli Blöndal eiga við meiðsli að striða — Císli meiddist fljótt í leiknum í Osló — og ekki er alveg vist að þeir geti leikið. Við eigum hins vegar leynivopn. Stefán Gunnarsson, fyrirliði Valsliðsins, lék ekki með í Osló en verður með á sunnudag — og þá eru líkur á að Ólafur Benediktsson, landsliðsmarkvörður, verði í marki Vals. Ólafur er ekki i mikilli æfingu en mun leika sinn fyrsta leik með Val eftir Sviþjóðardvölina gegn Víking í úrslitum Reykjavikurmótsins á fimmtudag. Ef hann stendur sig vel þar eru allar líkur á að hann leiki gegn Norðmönnum,” sagði Hilmar Björnsson ennfremur. „Norska liðið er með sterka hornamenn og við þurfum að hafa góðar gætur á þeim. En leikurinn á sunnudag leggst vel í mig. Ég held að við sigrum með fjögura marka mun,”sagði Jón H. Karlsson, sem var fyrirliði Valsliðsins í leiknum i Osló. „Við þekkjum leikmenn norska liðsins nú

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.