Dagblaðið - 18.10.1978, Page 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 18.QKTÓBER 1978
7
HEIMSMEIST ARAEINVÍGIÐ:
KARPOV MEÐ PALMANN
í HÖNDUNUM QG100
MILUÓNUM RIKARI
Þreyttur og leiður viðurkenndi
Viktor Kortsnoj i morgun að Anatoly
Karpov andstæðingi hans hefði tekizt
að verja titil sinn sem heimsmeistari í
skák. Hann gaf þritugustu og aðra
skák sína í morgun, án þess að tefla
hana frekar. Fór því eins og sér-
fræðingar spáðu, að skákin væri gjör-
töpuð fyrir Kortsnoj. Ekki verður þó
annað sagt en að áskorandanum hafi
vel tekizt að endurvekja spennuna í
einviginu við Karpov. Eftir að hafa
verið undir að vinningatölu með
aðeins tvo vinninga á móti fimm tókst
honum að jafna, fimm gegn fimm og
einvigið var orðið æsispennandi. Þeirri
spennu lauk í morgun er Karpov
krækti sér í sjötta vinninginn.
Viktor Kortsnoj sakaði fulltrúa
Sovétrikjanna í Baguio á Filippseyjum
um að hafa beitt sig sviksamlegum
brögðum og andlegu álagi áður en
síðasta skákin hófst. Bretinn
Raymond Keene tilkynnti fyrir hönd
áskorandans að i mótmælaskyni
mundi hann ekki mæta til að undirrita
leikina í skákinni og þar með formlega
viðurkenna sig sigraðan.
Viktor Kortsnoj ætlar heldur ekki
að mæta við verðlaunaafhendinguna,
pe zar '. natoly Karpov verður formlega
krýndur heimsmeistari i skák i annað
skipti og fær afhent verðlaunin. jafn-
virði rúmlega eitt hundrað milljóna
islenzkra króna. Þessi hegðan áskor-
andans er raunar ekkert annað en
áframhald þeirra stöðugu deilna og
rifrildis, sem hófst jafnhliða heims-
meistaraeinviginu 17. júli síðastliðinn.
Síðan þá eru níutíu og tveir dagar.
Litið hefur heyrzt frá hinum nýja
heimsmeistara en tilkynnt hefur verið
að hann muni halda blaðamannafund
fljótlega.
Viktor Kortsnoj ntun fara næstu
daga frá Filippseyjum, en hann
mun tefla í sveit Svisslendinga
á ólympiuskákmótinu, sem haldið
verður i Argentinu og hefst í næstu
viku. Hann verður einnig á þingi
Alþjóðaskáksambandsins. sem hefsi
fimmta nóventber. Þar segist hann
ætla að mótmæla slæmri meðferð á sér
af hendi stjórnenda heimsmeistara
einvigissins á Filippseyjum. Eirinig
framkomu Sovéunanna.
Raymond Keene, aðstoðarmaður
Kortsnojs, sagði að Florencio
Campomanes.. aðalstjórnandi
keppninnar i Bagiuo. hefði gert mjög
rangt með þvi að ákveða á formlegum
fundi mótsstjórnar i gær. að tveir
Ananda Marga munkar skyldu yfir-
gefa sveit Kortsnojs rétt áður en loka-
skákin hófst.
„Þar notaði Campomanes svo
sannarlega sovézkar aðferðir." sagði
Keene og hélt frant að þessi ákvörðun
hefði haft mjög slæni áhrif á áskorand-
ann er hann tefldi skákina.
JÓN L. ÁRNASON
CI/DICAD lllVfl CI/ÁI/
Anatoly Karpov virðist vera á góðri
leið með að verja heimsmeistaratitil sinn
í einvíginu við Viktor Kortsnoj á
Filippseyjum. 32. skákin fór í bið í gær
og telja sérfræðingar og aðrir, að staða
Karpovs sé auðunnin. Það er ekki nóg
með það, að hann hafi tvo samstæða
frelsingja á drottningarvængnum,
heldur standa menn hans að öllu leyti
betur en menn áskorandans og manns-
fórn vofir yfir svörtu kóngsstöðunni.
Tækist Karpov að vinna, yrði einvíginu
lokið, þvi hann hefði þá fengið hinn
langþráða 6. vinning, gegn 5 vinningum
Kortsnojs.
I upphafi einvígisins var Karpov
álitinn mun sigurstranglegri. Hann hafði
náð frábært m árangri á skákmótum
fyrir einvígið og auk þess bjuggust menn
við, að aldursmunurinn myndi vega
þungt á metunum. Ekki breyttist álit
manna mikið, þegar Karpov var kominn
i 5—2 og sigur í einviginu blasi við. En
þá fóru undarlegir hlutir að gerast. í
aðeins 4 skákum fékk Kortsnoj 3 1/2
vinning og hafði þannig tekist að jafna
metin. Karpov var gjörsamlega
óþekkjanlegur. Hann tefldi mjög
þreytulega og virtist eiga í mestu
erfiðleikum, með að einbeita sér. Það
var svo ekki fyrr en í skákinni í gær, sem
honum tókst að sýna sitt rétta andlit og
tefla markvisst og örugglega.
Kortsnoj tefldi óvenjulegt afbrigði af
Pircvörn og notaði mikinn tima á
byrjunina. Karpov byggði upp trausta
og örugga stöðu og eftir skemmtilegt
gegnumbrot i 25. leik fór staða áskor-
andans — og tími — sífellt versnandi.
Hann tapaöi peði fyrir lítið og eins og
áður sagði á hann við ýmis erfið vanda-
mál að glima í biðstöðunni, sem e.t.v.
eru óleysanleg. Biðskákin verður tefld
áfram i dag.
32. einvigisskákin
Hvitt: A. Karpnv
Svart: V. Kortsnoj
Pic-vörn
1. e4
Karpov snýr sér nú aftur að e-peðinu,
eftir nokkrar „enskar” skákir. Vafalaust
hefur hann nú fundið pottþétta áætlun
gegn spánska leiknunt, sern Kortsnoj
hefur svo mjög notað í þessu einvigi.
Kortnoj hefur hins vegar engan áhuga á
að komast að þvi hvers sú áætlun er og
hverfur aftur til Pirc-vamarinnar, sem
hanri beitti i 18. skákinni.
1. — d6 2. d4 Rf6 3. Rc3 g6 4. RD Bg7
5. Be2 0—0 6.0—0 c5!?
Skemmtilegur leikur, sálfræðilega séð.
1 18. skákinni lék Kortsnoj 6. — Bg4,
sem af „teóríufræðingum" er talinn
traustari leikur. Eftir textaleikinn telja
þeir hvítan fá betri stöðu með 7. dxc5
dxc5 8. Dxd8 Hxd8 9. Be3 o.s.frv. Með
tilliti til frábærrar endataflmennsku
Kortsnojs í síðustu skákum, hefur
Karpov hins vegar engan áhuga á þessu
framhaldi.
7. d5
Staðan sem nú er komin upp
minnir að mörgu leyti á Benóni-vörn (1.
d4 Rf6 2. c4 c5 3. d5 e6 4. Rc3 exd5 5.
xcd5 o.s.frv.). Sá er hins vegar
munurinn, að nú hefur svartur ekki
peðameirihluta á drottningarvæng og
þvi verður mótspil hans þar ekki eins
hættulegt.
7. - Ra6 8. Bf4 Rc7 9. a4 b6 10. Hel
Bb7
Biskupinn stendur ekki mjög vel á
þessari skáklínu. Til greina kom einfald-
lega strax 10. —a6, ásamt 11. — Hb8
o.s.frv.
11. Bc4 Rh5?! 12. Bg5 Rf6
Taflmennska Kortsnojs er ekki mjög
sannfærandi. E.t.v. hefur hann nú
vonast eftir þrátefli með 13. Bf4 Rh5, en
Karpov er ekki á þeim buxunum.
Biskupinn stendur síst verr á g5, auk
þess sem heimsmeistarinn er í vígahug.
13. Dd3 a6 14. Hadl Hb8
Kortsnoj bindur mótspilsvonir sinar
RAI=VÖRUR 51=
LAUGARNESVEG 52 - SlMI 86411
við framrásina b6 — b5, en hann hefur
þegar tapað of miklum tíma til að hún
verði hvítum hættuleg.
15. h3 Rd7 16. De3Ba817.Bh6
Eftir uppskiptin á svartreita
biskupunum veikist kóngsstaða svarts.
Karpov hefur nú notað klukkustund og
15 mínútur, en Kortsnoj klukkustund og
45 mínútur. Kortnoj átti því aðeins eftir
45 mínútur af umhugsunartíma sínum
tilaðljúka 40. leiknum.
17. —b5 18. Bxg7 Kxg7 19. Bfl Rf6 20.
axb5 axb5 21.Re2.
Karpov flytur riddarann yfir á kóngs-
vænginn, þar sem hann verður meira
ógnandi en áður. Kortsnoj skiptir sér
hins vegar ekkert af þessu brambolti
heimsmeistarans og heldur áfram
áætlun sinni á drottningarvængnum,
eins og ekkert hafi í skorist.
21. — Bb7 22. Rg3 Ha8 23. c3 Ha4 24.
Bd3 Da8
Kortsnoj mátti nú þegar fara að flýta
sér, því hann átti aðeins 18 mínútur eftir
á klukkunni. Karpov átti hins vegar
nógan tíma eftir, eða rúmlega
klukkustund og gerir nú ekki sömu
skyssuna og fyrr i einvíginu, þ.e. að fara
sjálfur að leika hratt. Þess i stað íhugar
hann leiki sina af gaumgæfni og
árangurinn lætur ekki á sér standa!
31. — Dd8 32. Bfl Hc8 33. Dg5! Kh8
34. Hd2 Rc6
Timahrak Kortsnojs \ar nú orðið
mjög alvarlegt. Á næstu 6 leiki, átti
hann innan við 2 mír tur. Jafnvel
klukkustund nægir varla ti! að bjarga
þessari stöðu!
35. Dh6 Hg8
Hvítur hótaði 36. Rxg6!
36. Rf3 Df8 37. De3!
Ekkert endatafl, takk!
37. — Kg7 38. Rg5 Bd7 39. b4!
Frelsingjarnir hafa eitthvað til
málanna að leggja. 39. — Rxb4 gengur
auðvitað ekki vegna 40. Dxa7.
39.—Da8 40. b5Ra5 41.b6.
25. e5!
Með þessu skemmtilega gegnumbroti
tryggir hvítur sér betri stöðu. — 25. —
Rfxd5 er einfaldlega svarað með 26. Rf5
(eða h5) +! gxf5 (26. — Kh8 27. Dh6
Re6 28. Rg5 og mátar) 27. Dg5+ Kh8
28. Dxf5 og hvítur vinnur.
25. —dxe5 26. Dxe5 Rcxd5 27. Bxb5
Ha7 28. Rh4 Bc8 29. Be2.
Hér hefði Karpov getað unnið peð,
með 29. c4 ásamt 30. Dxc5. Við það
myndi biskupinn á b5 hins vegar lokast
úti og þvi kemur Karpov honum í spilið
fyrst. /
29. — Be6 30. c4 Rb4 31. Dxc5
Þar með er peðið fallið fyrir borð og
hvítur kominn með tvo samstæða
frelsingja á drottningarvæng.
Hér fór skákin i bið og lék Kortsnoj
biðleik. 1 fljótu bragði virðist hann vera
á barmi glötunnar. Hvitur hótar ekki
einungis hróknum á a7, heldur líka 42.
Rxf7! þvi 42. — Kxf7 er auðvitað
banvænt, vegna 43. Dxe7 og svartur er
mát. Eins og Mikhael Tal orðaði það:
„Þú þarft ekki að vera stórmeistari til að
skilja stöðuna.” — Frekari skýringar
ættu því að vera óþarfar.
V "" \
ÍTÖLSKU HREINL/ETISTÆKIN
FÁIÐ
BÆKLINGA
OG
VERÐ
J.L. HÚSIÐ
REYKJAVÍK / STVKKISHÓLMI
BYGGINGA
MARKAÐURINN
VER2LANAHÖLLINNI / GRETTISG.
/