Dagblaðið - 25.10.1978, Blaðsíða 20

Dagblaðið - 25.10.1978, Blaðsíða 20
20 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 1978. r Veðrið ^ Suöuustan kuldi og rígning vMJa á Suflvesturíandi en þurrt afl mestu fyrir norflan. Holdur hlýnundi veflur um allt land, hlti verflur senniloga 5- 6 stíg. Klukkan 6 i morgun var 1 stígs hiti I Roykjavik og skýjafl, hlti var 2 stíg á Gufuskákim og skýjafl, 4 stíg á Golturvrta og skýjafl, 2ju stíga frost og skýjafl á Akureyri, 0 stíg og látt- skýjafl á Raufarhöfn, 2 stíga hiti og lóttskýjafl á Dalatanga, 1 stíg og skýjafl á Höfn iHomaflrfli, 3 stíg og skýjafl i Vostmannaeyjum, 4 stíg og léttskýjafl I Þórshöfn, 8 stíg og skýjafl I Kaupmannahöfn, 6 stíg og lóttskýjafl I Osló, 13 stig og skýjafl I London, 10 stig og skýjafl I Hamborg, 6 stíg og hoiösklrt i Madrid, 13 stíg og heiflskirt i Lbsabon og 10 stíg og lóttakviuö I New Yotk. Andtát Hulda Brynjólfsdóttir, sem fædd var 30. júní I9l l i Reykjavik,er látin. Foreldrar hennar voru Brynjólfur Magnússon og kona hans Katrín Jónsdóttir. Hulda giftist Magnúsi Valdimarssyni rakara- meistara, sem látinn er fyrir nokkrum árum. Þau eignuðust tvö börn.Hörð og Ólafiu. Halldóra Ólafsdóttir, sem fæddist 20. júll 1915, lézt hinn 12. október sl. Hall-' dóra hafðj hjúkrun að ævistarfi. Ólafur Jónsson stórkaupmaður, sem fæddur var 3. marz 1907 lézt 16. október sl. Foreldrar hans voru hjónin Sesselja Stefánsdóttir og Jón Hjaltalín Brandsson að Kambi i Reykhólasveit. Ólafur lauk prófi frá Samvinnuskólan- um 1930 og var síðan við nám i Köb- mandsskolen í Kaupmannahöfn 1932— 33. í ársbyrjun 1940 stofnaði hann fyrir- tækið Electric hf. ásamt Hans R. Þórðarsyni. Ólafur rak fyrirtækið þar til það var selt á siðasta ári. Ólafur kvæntist Arnþrúði Jónsdóttur og eign- uðust þau þrjú börn, Snjólaugu lög- fræðing, Jón Hjaltalin lækni og Öm sál- fræðinema. Útför Ólafs verður gerð kl. 13.301 dag frá Dómkirkjunni. Svava Berentsdóttir, sem fædd var 1. júli 1909, lézt 14. október sl. Foreldrar hennar voru hjónin Sigríður Ólafsdóttir og Berent Sveinsson. Svava setti á stofn hárgreiðslustofuna Feminu. Svava gift- ist Ólafi Jónssyni og eignuðust þau tvö börn, Sverri og Sigríði Jónínu. Valgeröur Ingimundardóttir, Geitastekk 2, lézt 1 Borgarspítalanum 23. október sl. Bernódus Benediktsson stýrimaður, Lönguiilið 23, lézt aðfaranótt 24. október. Sigurður Árnason frá Stóra-Hruna, Stórholti 32, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 27. október kl. 15. Bjarni Andrésson, Hraunbæ 154, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtu- daginn 26. október kl. 15. Frá presti Óháða safnaðarins Sr.Árellus Níelsson ætlar góðfúslega að vinna emb- ættisverk fyrir safnaðarfólk mitt, er þess óskar, i veik- indaforföllum minum um óákveöirin tíma. Einnig mun hann á sama tlhia annast barnaspumingar fyrir mig og eru væntan'Ieg fermingarbörn ársins 1979 beðin að koma til viðtals við hann i kirkju óháða safnaðarins nk. fimmtudag 26. október kl. 5 siödegis. — Sr. Emil Bjömsson. Kirkjuþing 1978 kemur saman fimmtudaginn 26. október. Það hefst með guðsþjónustu í Hallgrimskirkju kl. 14 þann dag. Viö guðsþjónustuna prédikar sr. Pétur Þ. Ingjaldsson, prófastur og kirkjuþingsmaður. Fundir kirkjuþings verða haldnir i fundarsal Hall- grimskirkju. öllum er heimilt að hlýöa á almennar umræður kirkjuþings. Sctningarguðsþjónustan kl. 14 á fimmtudag er að sjálfsögðu opin öllum. Háteigskirkja Fermingarbörn komi til viðtals i kirkjuna miðvikudag 25. október kl. sex. Prestamir. Náttúruverndarfálag Suðvesturiands efnir til almenns fundar fimmtudagskvöldið 26. október kl. 20.30, i Norræna húsinu. Þar verður fjall- aö um útivistarsva^ði og náttúruvemd i nágrenni Reykjavikur og fjallað meðal annars um Heiðmerkur- svæðið, ástand Rauöhólanna og leiðir til endurreisnar þeirra, jarðfræði Reykjanessvæðisins og spjöll vegna efnistöku þar. Frummælendur verða Jón Jónsson jarðfræðingur og Hákon Bjamason, fv. skógræktarstjóri. öllum er heimill aðgangur og skorað er á áhugafólk um náttúruvemd að koma til fundarins og gefa inn- legg i umræðuna og ábendingar er varða náttúruvemd á Reykjavikursvæðinu og á Suðumesjum. Fuglavemdarfélag íslands Fyrsti fundur félagsins á þessu starfsári verður í Norræna húsinu þriðjudaginn 31. október 1978 kl. 8.30. Dagskrá: Formaður félagsins flvtur ávarp. Sýndar verða úrvals náttúrulifsmyndir frá brezka fuglavernd- arfélaginu. öllum heimill aðgangur og félagsmenn taki með sér gesti. Sölumannadeild VR. Kvöldveröarfundur Miðvikudaginn 25. okt. nk. kl. 19.00 verður haldinn deildarfundur í Kristalsal Hótel Loftleiða. Snorri Jónsson forseti ASÍ flytur framsöguræðu um afstöðu ASÍ til kjaramálanna eftir setningu bráða- birgöalaga rikisstjórnarinnar. Magnús L. Sveinsson flytur framsöguræðu um bar- áttu verzlunarfólks fyrir nýrri flokkskipan. Aðalfuncfir Aflalfundur Meitilsins hf. verður haldinn i Þorlákshöfn mánudaginn 30. október og hefst hann kl. 2 siðdegis. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnmálafundir Alþýflubandalagið Kópavogi Aðalfundur Alþýðubandalagsins i Kópavogi verður haldinn i Þinghól, miðvikudaginn 25. okt. nk. kl. '2Ö.3Ö. Dagskrá samkvæmt lögum félagsins. Sjálfstœðiskvenfélag Árnessýslu Aðalfundur félagsins verður haldinn 25. október kl. 21 í Sjálfstæðishúsinu, Tryggvagötu 8, Selfossi. Venjuleg aðalfundarstörf. Fálag sjálfstæflismanna {Laugarneshverfi Aðalfundur félagsins, verður haldinn miðvikudaginn 25. okt. í Valhöll, Háaleitisbraut l. Fundurinn hefst kl. 20:30. Dagskrá: Venjuleg aöalfundarstörf. Ræða: Birgir ísleifur Gunnarsson, borgarfulltrúi. Málfundafélagið Óðinn Aðalfundur félagsins verður haldinn i Valhöll, Háa- leitisbraut l, fimmtudaginn 26. október 1978 kl. 20.30. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. Kosning stjórnar og endurskoðendr Lagabreytingar ef fram koma. 2. Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, flytur ræðu. Þrjú önnur mál. Alþýðuflokksmenn Hafnarfirfli Aðalfundur Alþýðuflokksfélags Hafnarfjarðar verður haldinn I Alþýðuhúsinu Hafnarfirði miðvikudaginn 25. október kl. 20.30. Dagskrá: l. Venjulegaðalfunda- störf. 2. Kosning fulltrúa á flokksþing Alþýðu- flokksins. 3. önnur mál. Kerlingarfjallahátíð Skiöaskólinn I Kerlingarfjöllum efnir til skemmtunat fyrir nemendur skólans (fullorðna) föstudaginn 27. •október í Súlnasal Hótel Sögu. Húsið verður opnað kl. 20.00. Sýnd verður kvikmynd frá sl. sumri, sungnir Kerlingarfjallasöngvar og dansað til kl. 2. — Allir nemendur skólans fyrr og siðar, sem aldur hafa til, eru velkommr og gestir þeirra. —Forsala aðgöngumiöa verður á fimmtudaginn milli kl. 17 og 19 á Hótel Sögu. Skemmtanir fyrir börn og unglinga verða auglýstar siðar.Að gefnu tilefni skal þess getið aö hægt er að vitja óskilamuna frá sumrinu i íþróttahúsi Háskólans virka daga frá kl. 9—22 og á laugard. milli kl. 9 og 17. FjöImennumáSögu. Félag óháðra borgara, Hafnarfirði Aðalfundur Félags óháðra borgara verður haldinn að Austurgötu 10, næstkomandi fimmtudagskvöld 26. októhber og hefst kl. 20.30. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. Hringsbasarinn Kvenfélagið Hringurinn heldur basar að Hallveigar- stöðum laugardaginn 28. október nk. kl. 2 e.h. Á basamum verða meðal annars handavinna, jóla- dúkar, jólatrésteppi, leikföng, bama- og unglingateppi, svunturo.fi. Þá verður einnig kökubasar. Sjálfstæflisfélögin í Breiðholtshverfum Miðvikudaginn 25.10. verður framhald spilakeppn- innar I félagsheimili sjálfstæðismanna aö Seljabraut 54, húsi Kjöts& Fisks. Góð verðlaun. Húsið opnaö kl. 2Ó. Sjálfstæðisfólk, fjölmennið og takið með ykkur gesti. „Old boys" leikfimi er i Breiðagerðisskóla á mánud. kl. 19.00 og fimmtud. kl. 19.15. Innritun i timunum. Fimleikar i Fellaskóla Fimleikar fyrir drengi 10—12 ára á miðvikud. kl. 19.10 og laugard. kl. 18.10 i iþróttahúsi Fellaskóla. Innritunitimunum. Kvennaleikfimi Æfrngar eru í Breiðageröisskóla á mánud. kl. 19.50 og fimmtud. kl. 20.05. Innritun i timunum. Knattspyrnufélagið Víkingur, skifladeild Þrekæfingar verða þriðjudag og fimmtudaga kl. 20.15 undir stúkunni við Laugardalsvöll, Baldurshaga. Takið með útigalla. Erindi og kvikmyndasýning um glerlist og glerhönnun Danski listamaðurinn og glerhönnuðurinn Per Llltken flytur erindi og sýnir litskyggnur og kvikmynd um glerhönnum i samkomusal Norræna hússins miðviku- dagskvöld 25. okt. kl. 20.30. Per Llitken hefur veitt dönsku glerverksmiöjurnii Holmegaard listræna forystu siðan 1942. Glermunir hans, sem framleiddir eru i Holmegaard-verksmiðj- unni, eru þekktir um allan heim, og stöðugt sýndir á söfnum í Evrópu og Ameriku. Per LUtken kom hingað til lands í tilefni glersýninga innar, sem sett hefur verið upp I sýningarsölum Norræna hússins, og stjórnaði hann uppsetningu á dönsku sýningardeildinni. Sýningin Norræn glerlist er opin daglega kl. 14— 19 til 12. nóvember. Skíðadeild Ármanns Munið Bláfjöllin um helgina. Mætingar alltaf skráðar. Komizt öll á blað fyrir reisuhátíðina. Ferðafélag íslands Miövikudagur 25. okt. kl. 20.30. Myndakvöld I Lindarbæ (niöri). Guðmundur Jóelsson og fleiri sýna myndir frá gönguleiðinni Landmannalaugar— Þórsmörk. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Aðgangur ókeypis. Kaffi selt í hléinu. ATH.: Allmikið af óskilafatnaði úr sæluhúsunum er á skrifstofunni og væri æskilegt að viðkomandi eig- endur vitjuðu hans sem fyrst. Sýning Sigurðar Eyþórssonar Um þessar mundir stendur yfir sýning Sigurðar Eyþórssonar í Gallerí SÚM. Sigurður lauk prófi úr Myndlista- og handiðaskólanum árið 1971 og stundaði framhaldsnám erlendis, m.a. í Stokkhólmi og Austurríki. Sigurður sýnir málverk og teikningar, samtals 28 verk, frá síðustu 4—5 árum. Sýning hans er opin frá kl. 4— 10 virka daga og 2— 10 um helgar til 25. október. Norræn glerlist Sýning 1 sýningarsölum í kjallara Norræna hússins 21. október — 12. nóvember 1978. Holmegárd I Danmörku, Iittala og NuutajSrvi 1 Finnlandi, Hadeland í Noregi og Kosta-Boda i Svíþjóð sýna úrval glermuna. Sýningin er opin daglega kl. 14— 19. Sýning afl Kjarvalsstöðum sýning á grafíkverkum eftir Salvador Dali að Kjarvals- stöðum á vegum Myndkynningar og mun hún standa til 5. nóvember. Á sýningunni eru um 100 grafik- myndir, svo og góbelinteppi og tvær styttur eftir Dali. Eru margar grafikmyndirnar gerðar i kringum klassískar bókmenntir, svo sem Tristan og ísold og Tidægru Boceaccios, að ógleymdum Guðdómlegum gleðileik Dantes. Eru öll verkin til sölu. Kaffisamsæti Rangæingafélagsins Starfsemi Rangæingafélagsins i Reykjavík hefst að venju með samkomu fyrir eldra fólkið í Bústaðakirkju sunnudaginn 29. október níestkomandi og byrjar hún með messu kl. 14. Séra ólafur Skúlason predikar. Að messu lokinni verður eldra fólkinu boðið til kaffisamsætis i safnaðarheimilinu, en yngra fólk af rang^eskum ættum er jafnframt hvatt til að koma og kaupa sér kaffi til styrktar starfsemi félagsins. Kvennadeildin dér um kaffiveitingarnar undir forustu Sigriðar Ingimundardóttur. Bridgedeild félagsins hóf vetrarstarfið með tvímenningskeppni og verður næsta umferð spiluð i Domus Medica miðvikudagskvöldið 25. október. Eftir áramót fer fram sveitakeppni. Föstudaginn 24. nóvember verður spilakvöld og dans- skemmtun i Hreyfilshúsinu við Grensásveg. K væðamannaf élagið Iflunn Vetrarstarf Kvæðamannafélagsins Iðunnar hefst laug- ardaginn 28. október klukkan 8 að Hallveigarstöðum. Þetta er 50. starfsár félagsins. Fjölmennið og takið með ykkur gesti. Allir velkomnir. Frá skrifstof u borgarlæknis Farsóttir i Reykjavík vikuna 24.-30. september 1978, samkvæmt skýrslum 7 (7) lækna: Iðrakvef 20 (18), kíghósti 3 (3), heimakoma 1 (0), hlaupabóla 2 (1), mislingar 1 (0), rauðir hundar 1 (0), hettusótt 2 (0), hvotsótt 1 (0), hálsbólga 19 (21), kvefsótt 85 (54), lungnakvef 15(18), infiúensa 4 (4), kveflungnabólga 3 (3), blöðrusótt ungbarna 1 (0), gigtsótt 1 (0), virus 16 (12). Minningarspjöld Minningarkort Styrktar- og minningarsjóðs Samtaka asma- og of næmissjúklinga fást hjá eftirtöldum: Skrifstofu samtakanna Suðurgötu 10, simi 22153, og skrifstofu SÍBS, simi 22150, Ingjaldi, sími 40633, Magnúsi, sími 75606, Ingibjörgu, simi 2744 lm i Sölubúðinni á Vifils- stöðum, sími 42800, og Gestheiði, simi 42691. Minningarkort Flugbjörgunarsveitarinnar fást hjá eftirtöldum: Bókabúð Braga, Laugavegi 26, Amatörverzluninni, Laugavegi 55, Húsgagnaverzlun Guðmundar, Hagkaupshúsinu, sími 82898, Sigurði Waage, simi 34527, Magnúsi Þórarinssyni, simi 37407, Stefáni Bjarnasyni, simi 37392, og hjá Sigurði Þorsteinssyni, simi 13747. Minningarkort Líknarsjóðs Áslaiígar K. P. Maack fást á eftirtöldum stöðum i Kópavogi: Sjúkrasamlagi Kópavogs, Digranesvegi 10, Verzluninni Hlíf, Hliðar- vegi 29, Verzluninni Björg, Álfhólsvegi 57, Bóka- og ritfangaverzlunini Veda, Hamraborg 5, Pósthúsinu i Kópavogi, Digranesvegi 9. Minningarkort Byggingarsjóðs Breiðholtskirkju fást hjá Einari Sigurðssyni, Gilsárstckk I, simi 74130 og Grétari Hannessyni, Skriðuslekk 3, simi 74381. Minningarkort Kvenfélags Háteigssóknar eru afgreidd hjá Guðrúnu Þorsteinsdóttur, Stangar- holti 32, simi 22501, Gróu Guðjónsdóttur, Háaleitis- braut 47, simi 31339, Sigriöi Benónýsdóttur, Stiga- hlið 49, simi 82959, og i Bókabúð Hliðar, simi 22700. Minningarkort Sjúkrahúsjóðs Höffla- kaupstaðar Skagaströnd fást hjá eftirtöldum: Blindravinafélagi fslands lngólf- stræti 19, Rvik, Sigriði Ólafsdóttur, sími 19015, Rvik, Birnu Sverrisdóttur, sími 8433, Grindavik, Guðlaugi óskarssyni skipstjóra, Túngötu 16, Grindavik, önnu Aspar, Elísabetu Ámadóttur og Soffiu Lárusdóttur Skagaströnd. Minningarkort Hallgrímskirkju í Reykjavík fást i Blómaverzluninni Dómus Medica, Egilsgötu 3,1 Kirkjufelli, verzl. Ingólfstræti 6, verzlun Halldóru Ólafsdóttur, Grettisgötu 26, Erni & örlygi hf., Vestur- götir 42, Biskupsskrifstofu Klappastíg 27 og i Hallgrimskirkju hjá Bibliufélaginu og kirkjuverðinum. GENGISSKRÁNING Nr. 192 —24. október 1978. Ferðamanna- gjaldeyrir Eining KLT2.000 Kaup Sala Kaup Sala 1 Bandaríkjadollar 308.00 308.80* 338.80 339.68* 1 Stariingspund 618.60 620.20* 680.46 682.22* 1 Kanadadollar 260.20 260.80* 288.22 286.88* I00 Danskar 6091.50 8107.30* 6700.65 6718.03* 100 Norskar krónur 6290.80 8307.20* 6919.88 6937.92* 100 Saanskar krónur 7236.30 7255.10* 7959.93 7980.61* 100 Finnskmörk 7867.20 7887.60* 8653.92 8676.36* 100 Franskk 1 rankar 7346.45 7385.55* 8081.10 8102.11* 100 Balg.frankar 1076.20 1079.00* 1183.82 1186.90* 100 Svissn. frankar 20091.30 20143.50* 22100.43 22157.85* 100 Gyllini 15596.50 15637.00* 17156.15 17200.70 100 V.-Þýzk mörk 16965.00 17009.10* 18661.50 18710.01* 100 Urur 38.04 38.14* 41.84 41.95* 100 Austurr. Sch. 2317.50 2323.50* 2549.25 2555.85* 100 Escudos 689.00 690.80* 757.90 759.88* 100 Pesatar 445.00 446.10* 489.50 490.71* 100 Yan 168.67 189.11* 185.54 186.02* Braytíng frá »jflu»tu skréningu Sbnsvari vegna gengbikráMÍnga 22190.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.