Dagblaðið - 25.10.1978, Blaðsíða 24

Dagblaðið - 25.10.1978, Blaðsíða 24
Sjónvarpsleysi Svartdælinga og Blönddælinga leysist ekki fyrir veturinn: Verða áfram að horfa á end- urvarpsstöðvarbygginguna —í stað sjónvarpsins „Við hérna í sveitinni erum dálítið sumar. Þá var húsið reist, undrandi á þeirri kokhreysti ráðamanna sjónvarpsins, þegar þeir fullyrða að við fáum sjónvarp fyrir veturinn,” sagði Sólveig Friðriks- dóttir, húsfreyja i Bólstaðarhlíð i Svartárdal. seinna 1 sumar komu menn með einhvern staur. Svo virtist sem eftir væri að setja upp tækjabúnað og einnig að leiða rafmagn aö mannvirkinu. Sólveig kvað húsið fyrir endur- varpsstöðina i Botnastaðabrekkum að vísu sjást frá bæ hennar, en þar hefði lítið verið gert frá því einhvem tíma í Forsendurtollsins fyrir hátollun heyrnartækja: Óttast að danskenn- arar muni misnota þau — dansnemar heyrðu þá enga tónlist, en orð ogandardrátt kennarans Smátt og smátt eru að skýrast alls kyns vitleysisatriði kerfisins varðandi innflutning heyrnar- tækja af sérstakri nýrri gerð, heymarskertum til mikilla hags-' bóta. Eins og DB hefur skýrt frá sá kerfið ástæðu til að leggja svo há gjöld á tækin að þau hækkuðu um helming. Þar á meðai er hár tollur. Eftir áreiðanlegum upplýsingum er blaðinu nú kunnugt um að tolla- yfirvöld gáfu þá skýringu að þau óttuðust að danskennarar kynnu aö misnot slík tæki. Tæki þessi eru i þvi fólgin að t.d. við almenna kennslu hefur kennarinn litiö þráðlaust senditæki um hálsinn sem sendir í móttökutæki, sem tengt er heymartæki þess heymarskerta. Danskennarar nota gjaman létta hátalara, sem þeir bera á sér, en vægast sagt verður að telja óliklegt að dansnemar uni þvi aö bera á sér móttökutæki og heymartæki, sem útiloka þá tónlistina en flytja hins vegar dyggilega orð og andardrátt dans- kennarans. -GJS. I Svartárdal og Blöndudal eru tuttugu bæir, sem aldrei hafa notið sjónvarps. Þá hefur rafmagn aldrei verið lagt til fimm bæja í sveitinni, en svarið sifellt verið hið sama: „Þetta er að koma, það er á áætlun.” Dagblaðið sneri sér til Landssíma lslands, sem sér um dreifingu á efni út- varps og sjónvarps, og spurðist þar fyrir um málefni fólksins í Húnavatns- sýslu. Hans Þormar tæknifræðingur sagði stofnunina nýverið hafa fengið nauðsynleg tæki en afgreiðsla loftneta hafi gengið treglega. Von væri á þeim eftir næstu mánaðamót. tJr því yrði veðrátta og staðhættir að ráða. Þar átti hann við að allnokkr- ar stöðvar væru á sama byggingastigi og yrðu þær teknar fyrir eftir hentugleikum. Varðandi rafmagnið að stöðinni sagði hann að af viðtölum við rafmagnsveituna ætti ekki að verða mikil fyrirstaða á því. Ekki vildi hann lofa neinu um lok verksins þar sem það væri undir veðrum og efndum ýmissa aðila komið, en vonaðist til að þvi yrði lokið fyrir jól. -JBP/GS. Það er þröngt á þingi þegar reknetabátarnir flykkjast til Hafnar til löndunar. — DB-mynd: Ragnhildur Ragnarsdóttir. Sfldarævintýri söltunarstúlkna á Höfn: Yfir 50 þúsund krónur á dag „Jú, það er rétt, þær geta komizt upp í liðlega 50 þús. króna tekjur á dag með löngum vinnudegi og óvenju mikilli verklagni,” sagði Kristján Þórarinsson, framkvæmdastjóri hjá Kaupfélagi Austur-Skaftfellinga á Höfn í Hornafirði er DB spurði hann í morgun um hugsan- lega þénustu söltunarkvenna í síldar- Tímaspursmál hvenær neyzluvatn skemmist Og atvinnlíf Suðumesja lagt í rúst, segir Gunnlaugur Stefánsson alþingismaður ® ....... n ii- i _ _i A A I/ rtflni.:i/iir nmViirarfic Vaflo viVnrfliinuftll „Þama standa vatnsból og olíutankar hlið við hlið. Þarna hafa þúsundir lítrar af olíu runnið út í jarðveginn. Það er þvi aðeins spuming um tima, hvenær neyzluvatn á Suöur- nesjum, verður ónothæft og beinlínis hættulegt og allt atvinnulíf á Suður- nesjum endanlega i rúst,” segir i greinargerð með þingsályktunar- tillögu, sem Gunnlaugur Stefánsson leggur fram á Alþingi í dag. í svari utanríkisráðherra, Benedikts Gröndal, við fyrirspurn Óiafs Ragnars Grimssonar um olíumengun í jarðvegi á Keflavíkurflugveili, kom m.a. fram: Að mál þetta væri nýtilkomið, um það bil mánaðargamalt. Ekki hefði því unn izt timi til þess að kanna hverjir bæru ábyrgð á því slysi, sem varð þeg- ar olia rann þama út og niður i jarðveginn. Ólafur Ragnar Grimsson boðaði tillögu um rannsóknamefnd þingsins og þá meðal annars þingmanna. Væri henni ætlað það hlutverk að rannsaka olíumengun frá Keflavikurflugvelli og jafnframt að kanna það, hvort kjam- orkuvopn væru geymd á Keflavíkur- flugvelli. Gunnlaugur Stefánsson sagði að athugun á olíumengun þarna hefði verið gerð 1972 á vegum Njarðvíkurhrepps. Skýrsla um þá könnun hefði verið send Vamarmála- deild utanríkisráðuneytisins. Þetta væri því síður en svo nýtt mál. Gunnlaugur leggur fram á Alþingi i dag þingsályktunartillögu um rannsókn á oliumenguninni þarna. Leggur hann áherzlu á, að haft verði sem mest samráð við sveitarfélögin umhverfis Keflavíkurflugvöli, þegar sú rannsókn verði gerð. Jafnframt verði kannað, hversu mikið af oliu hefði þarna runnið út í jarðveginn. í greinargerð með þings- ályktunartillögu Gunnlaugs er skýrt frá þvi, að ekki tugir eða hundruð lítrar af ollu hafi runnið þarna á mörgum undanförnum' árum, heldur þúsundir lítra. Frá þessu hafi fulltrúar sveitarstjórna í nágrenni Vallarsins skýrt, en ekkert verið aðhafzt. -B.S. frfálst, nháð dagblað MIÐVIKUDAGUR 25. OKT. 1978 — þegar mesti hamagangurinn er í akkorðinu ævintýrinu. og eru þvi ekki á kauptryggingu þegar Til þess að ná þessum afköstum þurfa ekkert er að gera og dregur það nokkur þær að salta upp undir fjórar tunnur á úr þessum toppum þegar á heildina er klukkustund, en 1200 til 1700 krónur litið. Hvað sem því liður er þetta vinsæl fást fyrir hverja tunnu eftir stærð síld- uppgripavinna, en því aðeins er hún arinnar. Algeng afköst eru tvær til þrjár uppgripavinna að unnið sé rösklega. tunnur á klst. 1 nótt var þokkaleg veiði hjá rekneta- Söltunarkonur vinna akkorðsvinnu bátum að sögn Kristjáns. -G.S. Iscargo leigir vðru- flutningavél Vöruflutningaflugfélagið Is- cargo í Reykjavík hefur tekið á leigu DC-6B flugvél til að annast vöruflutninga til og frá landinu á meðan flugvél þeirra er bundin við flutningaverkefni í Eþiópíu. Að sögn Lárusar Gunnarssonar var fyrst áformað að leigja vél og vél eftir flutningaþörfmni en það fyrirkomulag reyndist ekki nægi- lega liðugt þegar á reyndi svo vél var tekin á leigu um tíma. þetta er farþegaútgáfan af DC-6, breytt í flutningavél, en vél Iscargo er DC- 6A, upphaflega smíðuð fyrir vöru- flutninga. Meðal flutninga félags- ins héðan um þessar mundir eru hestar á fæti, lopi, ferskur fiskur o.fl. en mikið er um heimflutning heimilistækja. Vélina hefur félagið á leigu hjá spönsku fyrirtæki. - GS „Símasjálf- salarnir tæmdir reglulega” — segir símstöðvar- stjórinn íReykjavík. „Það er misskilningur hjá lög- reglunni aö símasjálfsalamir séu ekki tæmdir reglulega,” sagði Haf- steinn Þorsteinsson símstöðvar- stjóri í Reykjavík. í DB á mánudag var greint frá því að tólinu hefði verið tolið af sjálfsalanum við mið- borgarlögreglustöðina. „Ég hef fyrir framan mig bilana- skýrslu frá 12. janúar til 23. október. Bilanir á þessum sjálfsala eru á tímabilinu 28. Þar af eru aðeins þrjár vegna þess að sjálfsal- inn var fullur af peningum. Sjálf- salinn er reglulega tæmdur á þriðjudögum og fimmtudögum í hverri viku. Stundum er eldspýtum stungið í sjálfsalann og hann stíflaður og stundum er tólinu stolið eða það brotið. Ef sjálfsalinn er stiflaður með eldspýtum t.d. getur það virzt svo sem hann sé fullur af pening- um. Það er ákaflega slæm reynsla af þessum símasjálfsölum hér í Reykjavik. Þeir eru þrír í slíkum klefum og alltaf meira og minna bilaðir vegna skemmda. Slíkur sími er t.d. við hiið Landsimahússins og heita má aö hann sé skemmdur um hverja helgi. Þar sem ég þekki til erlendis,” sagði Hafsteinn, „er mjög vel um þessa símaklefa gengið. Fólk þar veit að þessir símar eru settir upp til þæginda fyrir almenning. Ég vil hvetja fólk til þess að láta simana í friði og vinna ekki skemmdarverk á tækjunum eða simaklefunum. Þessir símar eru til þæginda og öryggis fyrir menn,” sagði Hafsteinn Þorsteinsson sím- stöðvarstjóri. - JH y Kaupio TÖLVUR • OG TÖLVUUI BANKASTRÆTI8

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.