Dagblaðið - 28.11.1978, Page 3
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 28. NÓVEMBER 1978
Alltaf eru einhverjir sem standa I þvi að berjast gegn alkóhólismanum. Hér er Pjetur Þ. Maack, guðfræðingur og félagi I SAA, ásamt öðrum félögum ISAA og
JC Breiðholti að kynna áfengisvandamálið fyrir nemendum i Ármúlaskóla. DB-mynd Hörður
Áfengisbölið:
Leigubflstjórar kaupa áfengi
handa alkóhólistum
Húsmóðir hringdi:
Maðurinn minn er alkóhólisti og
geri ég allt sem ég get til að halda
honum frááfenginu. Þessi barátta mín
er oft heldur vonlítil. ekki sízt þar sem
maðurinn minn á mjög auðvelt með
• að útvega sér áfengi þegar ég er farin
út. Hann þarf ekki annað en að
hringja á leigubifreið og leigubílstjór-
arnir eru alltaf svo „hjálplegir” að
sækja áfengi handa honum. Nú er
bannað að reykja i leigubilum en það
þykir ekkert athugavert við að þeir séu
að kaupa áfengi fyrir fólk.
Það er hagstættað verzlaí
(Hamrábora
Nýkomið
Stórglæsilegt úrval af inni-
sloppum (velour)fyrir dömur.
Við bendum góðum eigin-
mönnum á, að hlýlegri ogfallegri
jólagjöf er erfitt aðfmna. Einnig
geysimikið úrval af náttkjólum
og náttfötum fyrir börn og
fullorðna.
Verzlið meðan
úrvalið er
PÓSTSENDUM.
Hamríibora
FA TA VERZLUN
Hamraborg 14 — KÓP. Sími43412.
Bruggarðu?
Helga Haraldsdóttir, vinnur I verzlun:
Nei, það geri ég ekki og hef aldrei gert.
Ég drekk litið vín og fer sjaldan í Rikið.
Óskar Stcindórsson leigubilstjóri: Nei.
það geri ég ekki. Ég hef látið það alveg
eiga sig og býst ekki við að ég hefði
gaman af að standa í því.
Spurning
dagsíns
Ágústa Jónsdóttir húsmóðir: Nei. aldrei.
Ég bragða ekki vín.
Ileiðrún Guðmundsdóttir, vinnur á
skrifstofu og húsmóðir: Já, bjór og hvit-
vin. Ég var einmitt að koma frá því að
kaupa inn til þess. Ég fylgi uppskriftun-
um nákvæmlega og gæti þess að ekkert
verði of sterkt hjá mér.
Jóhanncs V. Jcnsson, fv. bóndi: Nci. það
hef ég aldrei fengizt við. Bændurnir
brugguðu i friði hér i gamla daga en það
var bara á meðan Blöndal var suður með
sjó.
Stcinunn Sigurðardóttir fréttamaður: Á
minu heimili er bruggað. bæði bjór og
rauðvin, einkum bjór. Það er langt frá
því að vera satt sem einn ráðamanna
sagði um daginn i útvarpið að allt brugg
væri sull. Hann hefur bara ekki bragðað
það hjá réttum mönnum.