Dagblaðið - 28.11.1978, Side 4
4
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 28. NÓVEMBER 1978
DB á neytendamarkaöi
Amerísku styfturnar
fró Lee Borten nýkomnar
Þessi skaflajárn voru greinilega ónyt. Eftir fyrsta átak segir einn lesenda DB.
DB-mynd Hörður.
Nmg bllaitcsði a.m.k. á kvóldin
151OMÍAMMIH
HAFNARSTRÆTI Slmi 12717
Svaladrykkir úr mysu að ári
Eiga að keppa
við gosdrykkina
Allar líkur eru á að við getum farið
að gæða okkur á svaladrykkjum
unnum úr islenzkri skyrmysu um
þetta leyti á næsta ári. Núna stendur'
yfir könnun á mysunni og því hvað
bezt væri að nota með henni i svala-
drykkina. Hannes Hafsteinsson og dr.
Jón Óttar Ragnarsson matvæla-
fræðingar veita könnun þessari
forstöðu.
Eins og landanum hefur lengi verið
kunnugt er mysa afar hollur drykkur.
En ástæðan til þess að hann var
aflagður er fyrst og fremst hið súra
bragð. En meðblöndun ávaxtasafa má
kæfa það bragð og gera mysu að sann-
kölluðum gæðadrykk.
Árlega hendum við 7 milljónum
lítra af mysu. Það er ekkert smáræði
reiknað í næringarefnum, 270 tonn af
mjólkursykri, 42 tonn af eggjahvítu.
8,8 tonn af kalki, 8.6 tonn af kalsium,
7 tonn af natrium og fosfór og 0,8
tonn af magnesíum. Á meðan
drekkum við 12 milljónir litra af gos-
drykkjum, sem innihalda engin
næringarefni utan kolvetnis. Til
samanburðar má geta þess að á sama
tima drekkum við 45 milljón litra af
mjólk og 1.2 milljón lítra af ávaxta-
safa. Hinum væntanlegu svaladrykkj-
um úr mysu er ekki ætlað að keppa við
siðasttöldu drykkina heldur gos-
drykkina eingöngu.
Ekki góð sem G-vara
Við margar og flóknar tilraunir á
mysu hefur komið í Ijós að bezt er að
þykkja mysuna, þannig að fjórðungur
vökvans í henni sé skilinn frá og það
sem eftir er blandað með ávaxtasafa í
hlutföllunum 70: 30. Bezta raun hafa
appelsínu-, ananas-, tómat-, vinberja-
og apríkósusafar gefið. Aftur á móti
reyndist bragðið af peru- og eplasafa
hverfa I mysunni. Einnig var reynt að
bragðbæta mysuna með bragðefnum
en það gaf ekki eins góða raun og
safarnir.
Tilraunir voru gerðar til að pakka
mysunni sem G-vöru. En við langa
geymslu verður mysan Ijót á litinn og
bragðið ekki eins gott. Aftur á móti
versnaði mysan ekki við nokkurra
daga geymslu í kæli. Að öllu þessu
athuguðu þykir ekkert því til fyrir-
stöðu að hefja framleiðslu á svala-
drykk úr mysu. En þær aðferðir sem
sú framleiðsla krefst eru talsvert
flóknar og líður líklega ár þar til hægt
eraðfaraígang.
-DS.
S|1 Lausar
stöður
Aðstoðarlœknar
Tvær stöður aðstoðarlækna á Röntgendeild
Borgarspítalans eru lausar til umsóknar.
Umsóknir skulu sendar yfirlækni, sem^jafn-
framt gefur frekari upplýsingar.
Hjúkrunarfrœðingar
Grensásdeild
Staða aðstoðardeildarstjóra og staða hjúkrunar-
fræðings.
Hjúkrunar- og endurhæfingadeild, Heilsuverndar-
stöð.
Ein og hálf staða hjúkrunarfræðings.
Skurðlækningadeild
Tvær stöður hjúkrunarfræðinga
Geðdeild
Nokkrar stöður hjúkrunarfræðinga
Gjörgæzludeild
Þrjár stöður hjúkrunarfræðinga.
Reykjavík, 24. nóvember 1978.
Borgarspítalinn
Frá Strætisvögnum
Reykjavíkur
Óskum að ráða bifreiðasmið á viðgerðar-
verkstæði vort á Kirkjusandi.
Upplýsingar gefur Jan Jansen yfirverkstjóri í
síma 82533 milli kl. 13.00 og 14.00 á
mánudag.
NÝJU SKAFLAJÁRNIN ÓNÝT
EFTIR FYRSTA ÁTAKIÐ!
— 7.400 krónur fyrir litið
Þar fóru 7.400 krónur fyrir lítið.
Ungur maður í Kópavogi fór inn á
Shell-bensinstöðina við Miklubraut í
Reykjavík og keypti sér ný skaflajárn,
sem sagt var frá á Neytendasíðu DB.
Hann fór síðan heim með járnin sín
og setti undir bílinn eftir kúnstarinnar
reglum. Hann var á sléttu plani í
snjónum og tók af stað eins og allt
væri í lagi. Um leið fóru skaflajárnin
yfir landamæri lífs og dauða — ónýt.
„Það er dálítið grimmt að selja
manni svona ónýtt rusl dýrum
dómum,” sagði Kópavogsbúinn ungi.
„Nákvæmlega sams konar járn fást
hjá Esso við Háaleitisbrautina, en þar
kosta þau 9.260 krónur. Mér þótti rétt
aðlátafólkvitaafþessu.” .py.
Óvenjulegar vöfflur
Við þekkjum öll vöfflur með
þeyttum rjóma og sultu. Hérna koma
dálítið öðruvísi vöfflur, en þær eru
búnar til úr þeyttum rjóma, ósætar og
inni i þeim er rækjufylling. Þetta
sýnist vera tilvalinn réttur til þess að
gleðja „saumaklúbbinn” mcð.
Uppskriftin á að vera nóg fyrir fjóra.
Uppskrift
dagsins
V
Vöfflurnar
75 g hveiti
1/2 dl kalt vatn
2 dl þeyttur rjómi
Fyllingin
15 g smjör
15 g hveiti
ca 3 dl rjómi
3 msk. rifinn ostur
salt, pipar
350 g rækjur.
Skraut
Dill
(eða eitthvað annað grænt).
Hrærið hveiti, vatn og hluta af
þeytta rjómanum saman og látið biða
smástund. Látið þá afganginn af
rjómanum út í og bakið vöfflurnar.
Það eiga að fást þrjár vöfflur (12
„hjörtu") úr þessari uppskrift.
Fyllingin er búin til á hefðbundinn
hátt (bakað upp) og krydduð með salti
og pipar að vild. Rækjurnar eru síðan
látnar út í (geymið nokkrar til þess að
láta ofan á) og fyllingin síðan látin á
milli laga.
Þessi vöfflu-rækju-terta kostar i
kringum 1487 kr. eða 372 kr. á mann.
-A.Bj.