Dagblaðið - 28.11.1978, Síða 7
7
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 28. NÓVEMBER 1978
Erlendar
fréttir
REUTER
Sjálfsmorðin í
Guyana:
Jim Jones
hugleiddi að
flytja til
Sovétríkjanna
Trúarleiðtoginn Jim Jones gerði sér
nokkrar vonir um að geta flutt með
söfnuð sinn til Sovétríkjanna. Að sögn
félaga í flokknum átti hann tvo fundi
með sovézkum sendimönnum i marz
siðastliðnum og ráðlagði fólki sinu að
þeim loknum að snúa sér að rúss-
neskunámi.
Bretland:
Var lofað 10.000pund-
um fyriraö drepa Scott
segir höf uðvitnið í málinu gegn
Thorpe þingmanni og f élögum en
þeir neitaallir
Fyrrum flugmaður, Andrew Gino
Newton að nafni, bar fyrir rétti í
Minehead i Englandi i gær að hafa
tekið að sér fyrir 10.000 sterlings-
punda greiðslu að ráða Norman Scott
sýningarmanni bana. Jeremy Thorpe,
fyrrum Ieiðtogi brezka Frjálslynda
flokksins, er sakaður um að hafa
ásamt þrem öðrum mönnum staðið
fyrir samsæri um að myrða Scott. Á
það að hafa gerzt vegna fyrra
kynvillusambands Thorpe við Scott
snemma á sjöunda áratugnum.
Thorpe og þremenningamir neita
öllum ásökunum um samsæri.
Newton segist hafa gert tvær
tilraunir til að ráða Scott af dögum.Sú
fyrri hafi verið þannig, að hann hafi'
boðað Scott til sin á hótelherbergi
undir því yfirskini að hann ætlaði að
ráða hann til sýninga hjá fyrirtæki
einu. Scott hafi þá ekki komið. 1 siðara
skiptið hafi hann mætt Scott á fáförn-
um vegi og skotið hund hans en siðan
miðað byssunni á Scott en látið sem
hún bilaði og sagt Scott að þeir
mundu hittastsíðar.
Newton hlaut dóm fyrir að bera
byssu i óleyfi en sagðist loks hafa
fengið greiddan helming hinnar lofuðu
upphæðar er hann losnaði eða 50000
sterlingspund.
Flugmaðurinn fyrrverandi var
spurður að þvi hvort honum hælti
stundum til að rugla saman
staðreyndum og hugarburði
Viðurkenndi hann aö slikt kænti
stundum fyrir hann.
Nixon lofar að
svara öllum
spumingum í
franska
sjónvarpinu
Nixon fyrrum forseti Bandarikjanna og fyrri daga til fólks sem hefur gengið
mun koma fram í franska sjónvarpinu í
kvöld. Þar er talið vist að hann muni
verða spurður náið út i Watergate-
hneykslið sem hrakti hann úr forseta-
embættinu.
Nixon sem verið hefur i Paris siðan á
Iaugardag i einkaheimsókn hefur sýnt
gamla takta eins og til dæmis þegar
hann tók i hendur fólks á götunni fyrir
utan hótelið þar sem hann býr. Einnig
hefur hann veifað báðum höndum eins
fram hjá.
Að sögn þeirra sem stjórna eiga sjón-
varpsþættinum þar sem Nixon mun
koma fram i kvöld hefur forsetinn fyrr-
verandi lofað að svara öllum spurning-
um. Nixon sagði fréttamönnum i gær að
hann hefði ekki uppi ráðagerðir um að
hverfa aftur að stjórnmálum. Hann
sagðist aftur á móti mundu láta í sér
heyra um bæði alþjóðamál og innlend
málefni þegar hann sæi ástæðu til.
Þessi unga lafði Tryon var ein af gestunum i 30 ára afmælisveizlu Charles Breta-
prins og aðspurð sagði hún að það hefði verið alveg svakalega gaman.
Gripið simann
Serið góð
kaup
Smáauglýsingar
BIADSINS
Þverholti11 sími 2 70 22
Opið til kl.10 í kvöld