Dagblaðið - 20.12.1978, Page 4

Dagblaðið - 20.12.1978, Page 4
r» 'fj viöurkennd varahluta- og viögeröarþjónusta f Austurveri, Háaleitisbraut 68, sími 84445 og 86035 Auðvelt að búa til hyasintuskreytingu Kaupið blómið f rekar f knúpp JiAGJBLAÐlD MinviKHDAGUR2(LDESEMBER19I8. „Það er auðvelt fyrir fólk að skreyta sjálft skálar með hyasintum. Það sem þarf, fyrir utan blómið, er skál, mosi, nokkrir könglar, fáeinar grenigreinar og slaufa,” sagði Hendrik Berndsen í Blómum og ávöxtum I samtali við DB. „Fólk verður bara að gæta þess að kaupa hyasintuna í knúpp en ekki alveg útsprungna. Það vill brenna við að fólk vill heldur þessar sem eru alveg útsprungnar, finnst þær vera eitthvað stærri. En að sjálfsögðu standa þær miklu styttra en þær sem eru i knúpp þegar þær eru keyptar. Blómið er síðan látið standa í mosanum, grenigreinunum er stungið ofan í og slaufan lá'un með. Gæta verður einnig að vökva vel í mosann. Einnig er- betra að geyma blómin á köldum stað yfir nóttina. Nota má hvaða skálar sem vera skal, — margir eiga gamlar leirskálar eða potta. Skreytingin þarf heldur alls ekki að vera i skál. Skreytt kanna getur verið smekkleg og vel viðeigandi í eldhúsinu,” sagði Hendrik. Hyasinturnar eru til í tveimur litum, bláar og bleikar. Þær kosta 980 kr. Þá eru til túlipanar í tveimur stærðum og kosta 600 og 640 kr. eftir suerð. Hendrik sagði að væntanlegir væru túlipanar á lauk, en þá er einnig algengt að nota I jólaskreytingar. Heimatilbúin blómaskreyting þarf því ekki að kosta nema rétt um 1100 kr. Mikið úrval er af kertaskreytingum í Blómum og ávöxtum og kostuðu þær frá 3000 kr. „Við höfum farið út i að hafa nýja liti á skreytingunum okkar. Í fyrra vorum við mikið með brúnt og gyllt, en í ár erum við með vinrautt og silfur. Við höfum skreytingarnar yfir- leitt grenilausar en bætum því í ef viðskiptavinirnir óska eftir því. Kúluskreytingar til að hengja í glugga eða á dyr voru meðal skreytinganna og kostuðu 2000 kr. Elzta blómabúðin Blóm og ávextir er elzta blómabúð borgarinnar, stofnuð árið 1929. Fyrir utan blóm og skreytingar eru þar á boðstólum gjafavörur ýmiss konar. Verzlunin er meðlimur í alþjóðlegum samtökum blómaseljenda er nefnast „Interflora”. í gegnum „Interfloru” er hægt að senda blóm til vina og kunningja hvar sem er i heiminum. Það hefur aukizt mikið á undan- förnum árum að fólk sendi blóm I gegnum „Interfloru”. Sagði Hendrik að ef blómasending er ákveðin I tæka tíð, þannig að hægt er að afgreiða hana I gegnum venjulegan póst, kostar mjög þokkalegur blómvöndur til Norðurlanda um 5.200 kr. en 6.200 kr. til Bandaríkjanna. Hins vegar bætist skeytakostnaður við ef tíminn er naumur og er hann hærri vestur um haf en til Norðurlanda. Viðurkennt fyrír gæði. Mikið úrval af margskonar PROGRESS heimilistækjum. Glansandi jólakúlur I mislitu* bandi eru vinsælar nú sem endranær. Þessar kota 2000 kr. og er vinsælast að hengja þær I glugga eða á hurðir. DB-mynd Bjarnleifur. Hendrik Berndsen, skreytingameistari I Blómum og ávöxtum, heldur þarna á hyasintu I knópp, það er sú til vinstri, og annarri sem er aiveg útsprungin. Hann ráðleggur fólki eindregið að kaupa þá sem er ekki útsprungin. Hún getur staðið I minnst átta daga með góðri mcðferð, i mosató, I skál. Fjölhæfi brauö- og á- leggshnífurínn K62 er þarfaþing á hverju heimili. Spilanlegur hraði — stillanlegar þykktir. Gerð K62 Meðal annars: Grillofn fyrir ál- pappír og meö sjá/fvirkum tíma- stilli — Tvær gerðir — Afkasta- geta: 2 kjúklingar í einu Orka: 1400 w Gerð KF 48 GerðSuper91 Áratuga reynsla á ryksugum frá Progress Gerö Super 91 Automatik er ætiuð stórum heimilum — Mjög góður sogkraftur — 900 w mótor. Enn fremur fleiri gerðir — Hagstætt íforð. „Eftirlæti” var eftirlæti allra Búðingur handa þeim hjartveiku, sósa með hamborgarhryggnum og salat í jólaboðið Til okkar hringdi frú Kristín Bjarnadóttir frá Húsavík og gaf okkur nokkrar uppskriftii, tvær af ábætis- réttum, eina af sósu sem hún sagði að væri mjög góð með hamborgar- hrygg, og loks salati, sem er tilvalið í jólaboðið. Kristín sagðist hafa vanizt mjög góðum mat er hún var í föður- garði á Húsavik en móðir hennar var einkar flink í matreiðslu. Annar ábætisrétturinn heitir einfaldlega „eftirlæti”, enda sagði Kristín að hann hefði verið eftirlæti allra á bernskuheimili hennar og siðan er hennar eigin börn uxu úr grasi varð „eftirlæti” einnig þeirra eftirlæti. lábætinnfara: 5 egg 250 gr sykur safi úr tveimur sítrónum 8 blöð matarllm. Rauðurnar eru þeyttar vel með sykrinum, sítrónusafinn látinn saman við. Matarlímið er bleytt I köldu vatni en siðan brætt og látið út I. Loks eru stífþeyttar hviturnar látnar varlega út I. Kristín sagðist jafnan búa þennan ábætisrétt til kvöldið áður en hún not- ar hann og geyma yfir nótt I is- skápnum. Skálin er siðan skreytt með þeyttum rjóma áður en rétturinn er borinn fram. Þetta er drjúgur búðingur. Kristín sagði að hann dygði vel handa allt að 8—9manns. Verð: um 840 kr. Ábætir handa þeim hjartveiku Mörgum sem eru hjartveikir er ráðlagt að borða ekki egg, eða sem minnst af þeim. Þeir vilja hins vegar kannski gjarnan fá eitthvað gott í ábæti og hérna er uppskrift að prýðis- góðum búðingi fyrir þá: Búinn er til jellóbúðingur úr pakka eftir leiðar- visinum á pakkanum. _ Þegar búðingurinn er farinn að þykkna dá- litið er niðurskorið epli og bananar látnir út í og 2 dl af þeyttum rjóma hrært saman við. Þetta er látið þykkna vel. Kristín sagðist jafnan búa þennan búðing til kvöldið áður en hún ætlaði að nota hann og geyma i isskáp yfir nótt. — Verð um kr. 550.- Uppskriftir frá lesendum Sósa með ham- borgarhryggnum Þá kemur hér uppskrift að mjög góðri sósu sem Kristín sagðist jafnan nota með hamborgarhrygg. í sósuna fer: 1/2 bolli púðursykur, 1/2 msk. sinnep, 1 msk. hveiti, 1/4 bolli rúsínur, 1/4 bolli edik (Katrine Bjerg kryddedik), 1 3/4 bolli vatn. Þurrefnunum er blandað saman, síðan rúsínurnar látnar út í og vatnið. Sósan er soðin niður við vægan hita, þar til hún er mátulega þykk. Kristín sagðist jafnan sjóða ham- borgarhrygginn, en ekki nota til þess rauðvin eins og margir gera. Finnst henni rauðvínið þurrka kjötið. Með honum er borin kartöflustappa, soðið grænmeti og ananassneiðar til skrauts. ILL* Amerísku stytturnar frá Lee Borten nýkomnar Ncag bilastcsBi a.m.lc. ó kvöldin HIOMÍWIXIIH HAFNARSTRÆTI Slmi 12717 Gott salat í jólaboðið Hér kemur loks enn ein uppskrift frá Kristínu að hænsnasalati sem hún sagði að væri tilvalið til þess að bera fram í jólaboðinu. í salatið fer: Ein soðin hæna, frekar stór, ein dós af aspas, ein dós af ananas, örl. laukur, pipar og salt. Allt er brytjað smátt og látið út í mayones, sem blandað er með þeyttum rjóma að einum þriðja hluta. Salatið er borið fram kalt i tartalettum. Beztur árangur næst ef salatið er geymt yfir nótt í ísskápnum.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.