Dagblaðið - 20.12.1978, Page 36

Dagblaðið - 20.12.1978, Page 36
t ■■ .... 4dagar tiljóla Ruth Reginalds, söngkonan unga og vinsæla, er jólasveinn dagsins þegar fjórir dagar eru til jóla. Jólasveinasérfræðingum blaðsins þótti við hæfi að kalla hana Stúf — eða jafnvel „Stýfu”! Ruth var spurð hvað hún vildi helzt i jólagjöf og það stóð ekki á svarinu: „Segulbandstæki.” DB-mvnd Hörður. Þær voru heldur einmanalegar endurnar á Tjörninni i Reykjavík, i nepjunni í gær, enda fáir til að gauka að þeim brauðmol- 1 um. „Andavinafélagið” treystir því að endurnar fari ekki í jólaköttinn og verði ekki svangar um jólin. DB-mynd Magnús Hjörleifsson. Stjórnarfrumvarpið virðist vera fallið „Mér sýnist það vera fallið” sagði þingmaður einn í neðri deild, sem var að reyna að telja hvernig atkvæði mundu skiptast um stjórnarfrumvarpið um hækkun verðjöfnunargjalds á rafmagni, þegar DB leit þar inn í gærkvöldi. Stjórnarsveitin hafði þá klofnað í iðn- aðarnefnd, svo að meirihluti nefndarinn- ar snerist gegn hækkun gjaldsins en vildi framlengja það óbreytt. Gjaldið hefur verið 13% en stjórnarfrumvarpið gerði ráð fyrir hækkun i 19%. Eðvarð Sig- urðsson (AB) og Gunnlaugur Stefánsson (A) snerust gegn hækkun ásamt sjálf- stæðismönnunum Gunnari Thoroddsen og Jósef H. Þorgeirssyni. 1 minnihlutan- um, sem studdi frumvarpið óbreytt, eru Kjartan Ólafsson (AB), Ingvar Gíslason (F) og Árni Gunnarsson (A). Árni styður þó frumvarpið með fyrirvara, meðal annars um að fresta skuli um að minnsta kosti eitt ár fyrirhuguðu framlagi á láns- fjáráætlun til Bessastaðaárvirkjunar, 800—900milljónum'. -HH samkomulag lækna er komið um nýtingu fyrsta áfanga geðdeildar hússins á Landspítalalóðinni Unnið er af fullum krafti við frágang fleiri deilda i hinu nýja geðdeildarhúsi og vænta læknar Landspítalans þess að gott samkotnulag verði við lækna Kleppsspitalans um samnýtingu. DB-mynd Sv. Þorm. Nú hefur yfirstjórn mannvirkjagerðar á Landspítalalóðinni afhent stjórnar- nefnd Ríkisspítalanna til rekstrar þann hluta nýju geðdeildarbyggingarinnar á Landspítalalóðinni sem tilbúinn er. Var það gert með bréfi dagsettu 12. des. sl. Þetta kom fram i viðtali við Jónas Har- alz, formann yfirstjórnar mannvirkja- gerðar á Landspítalalóðinni, er DB ræddi við hann í gær. Svo sem DB skýrði frá fyrir skömmu, er allnokkuð síðan ein deild byggingar- Þorskflökin hækkaáBanda- ríkjamarkaði Tilkynnt hefur verið um töluverða hækkun á þorsk- og ýsu- flökum á Bandaríkjamarkaði. Á mikilvægustu tegundunum er hækkunin 11,5%. en á öðrum allt að 14,5%. Að sögn Þorsteins Gislasonar, forstjóra Coldwater Seafood fyrirtækisins. sem er i eigu íslendinga. er nokkur óvissa hvort tekst að halda þcssu verði uppi og ntá búast við að einhverjir kaupendur dragi úr kaupum sínum. Þorsteinn sagði að verðhækkunin gæti verið vegna huganlegs samdráttar frani- leiðslunnar á næstu mánuðum. Verðhækkunin á þorskflökunum nemurfrá 15 til 20 sentum á hvert pund. -ÓG. innar var fullbúin en vegna ágreinings læknaráða Landspítalans og Kleppsspít- alans um samnýtingu húsnæðisins dróst að afhenda húsnæðið til notkunar. Jónas skýrði svo frá að í upphafi, eða í nóvember 1973, hafi verið gert sam- komulag um samnýtingu, jtess efnis að. Landspítalinn nýtti 40 prósent nýbygg- ingarinnar og jafnframt þjónuðu hinar ýmsu deildir Landspítalans Kleppsspítal- anum, eða geðdeildinni þar. Þetta var miðað við geðdeildina fullbúna. Þegar svo að því var komið að hluti geðdeildarinnar var fullbúinn, þurfti að endurskoða það samkomulag í Ijósi breyttra viðhorfa. Snemma á þessu ári hófust athuganir og viðræður læknaráðanna um þetta mál, en gengu erfiðlega. Yfirstjórn mannvirkjagerðar fylgdist með þessum viðræðum og reyndi að leiða þær til skynsamlegra lykta. í lok október sl. setti hún á fót fjög- urra manna starfshóp. skipaðan for- manni yfirnefndar mannvirkjagerðar. Jónasi Haralz, nefndarmanninum Páli Sigurðssyni (ráðuneytisstjóra i heilbrigð- isráðuneytinu), og formönnum lækna- ráða beggja spítalanna. Gerði sá starfshópur tillögur þess efn- is að göngudeildarstarfsemi Landspítal- ans fengi húsrými á I. hæð geðdeildar- byggingarinnar, þar af hluta alveg sér fyrir handlækningadeild og sykursjúka. Að nokkru verður um sameiginlega nýt- ingu að ræða. Þessar tillögur staðfesti læknaráð Kleppsspitalans I. des. sl. En læknaráð Landspítalans ályktaði sama dag að það lýsti ánægju sinni yfir flutningi göngu- deildar Landspitalans yfir í geðdeildar- bygginguna og lítur á það sem vænlegt upphaf að samnýtingu nýbyggingarinn- ar. Með jjeim tilmælum að nýtingunni verði háttað á þann veg sem áðurnefnd- ar tillögur gera ráð fyrir á þessum hluta byggingarinnar, afhenti nefndin bygg- inguna nteð þvi bréfi sem i upphafi var nefnt. -G.S. GLEYMUM EKKIONDUNUM Ef tir ónyt jað spítalapláss í kjölfar deilna lækna á Kleppi og landspítlanum:_ Geðdeildin loks af hent Verðjöfnunargjald frýálst, óháð dagblað MIÐVIKUDAGUR 20. DES. 1978. Enn ein íkveikjan: Kveikt í dvalar- heimili aldraðra Eldur kom upp í Lönguhlíð 3 i Reykjavík laust fyrir kl. 1 í nótt. Húsvörður tilkynnti um að eldur væri laus í gardínum á 2. hæð í húsinu sem er heimili fyrir aldrað fólk. Þegar slökkviliðið kom á staðinn var töluverður reykur en ekki mikill eldur og gekk cnda mjög vel að slökkva hann. Skemmdir urðu ekki miklar en rúður sprungu af völdum hitans. Að sögn lögreglunnar í morgun var ýmislegt sem benti til að um íkveikju hefði verið að ræða, m.a. hefði mannaferða orðið vart rétt áður en eldurinn kom upp. Taldi lögreglan að sá er íkveikjunni olli hafi farið inn um svaladyr á 2. hæð. Hjá slökkviliðinu fengust hins vegar þær upplýsingar, að ekkert benti til að um íkveikju væri að ræða. -GAJ- Loftleiða- og Flugfél- agsfólk í sömu fötin Nú er verið að hanna nýjan búning fyrir allt Flugleiðafólk, þannig að Loftleiða- og Flugfélags- fólk mun klæðast sömu búningunum. Fyrirtæki i París hefur þetta verk rneð höndum og er tillagna frá því að vænta alveg innan tíðar. Hið nýja Flugleiðamerki verður notað á búningana, en DB hefur áður skýrt frá því og birt af þvi myndir. Engar ákvarðanir hafa verið teknar um hvenær hinir nýju búningar verða teknir í notkun. 1 Paris er einnig verið að „dubba upp„ hina nýju breiðþotu Flug- leiða. Hún kom þangað i gær og verður hún máluð þar í litum Flugleiða með hinu nýja merki, semer sterkblátt á hvítu stélinu. ____________________ Innbrot í Borgarfirði — Þjófarnir náðust Innbrot var framið í verzlun í Borgarfirði aðfaranótt laugardags- ins sl. Stolið var milli I50og200 þúsund kr. i peningum og unt 30 kartonum af sígarettum. Rann sóknarlögreglan hefur nú haft upp á þeim er þarna voru að verki. Reyndust það vera tveir piltar úr Reykjavík. -GAJ- ÞaO Kaupio ^ TÖLVUR í f* OGTÖLVI BANKASTRÆTI8

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.