Dagblaðið - 12.02.1979, Blaðsíða 11

Dagblaðið - 12.02.1979, Blaðsíða 11
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGÚR 12. FEBRÚAR 1979. 11 Erlendar fréttir REUTER Danmörk: Síðasta ósk morð- ingjans uppfylit Betra er seint en aldrei er orðtæki sem vel á við þegar fjallað er um síðustu ósk manns eins sem tekinn var af lifi i Dan- mörku fyrir eitt hundrað þrjátíu og átta árum. Var þetta dæmdur morðingi en hann hafði ritað ævisögu sina fyrir dauða sinn og hafði óskað þess að hún kæmi fyrir almenningssjónir, svo líf hans mætti verða öðrum til viðvörunar. Höfundurinn, Ole Kolleröd, samdi sögu sína serrí nokkurs konar dagbók árið 1840 og kom hún út í fyrra og þá fyrir forgöngu stofnunar sem nefnd er Danmarks Folkeminder. Ekki verður annað séð en að varn- aðarorð morðingjans frá þvi á fyrri hluta nitjándu aldar eigi fullt erindi til danskra lesenda í dag. Fyrsta upplagið var eitt þúsund og fimm hundruð eintök. Undir siðustu áramót var aftur á móti búið að prenta og nær því selja upp fimm þús- und eintök. Nýtt þrjú þúsund eintaka upplag er nú að koma út. Þykir það tíðindum sæta og óvenjulegt í Dan- mörku að slík frásögn frá fyrri tið seljist svo vel. Fjórir milljarðar fyrir demant Einn verðmætasti demantur, sem vitað er um og fannst i námu i Suður- Afríku i fyrra. hefur nú verið seldur til, bandarisks auðmanns sem ekki vill að nafn hans komi fram. Kaupverðið mun hafa verið jafnvirði um það bil fjögurra milljarða íslenzkra króna. Demanturinn mun vera 137,02 karöt. Bandaríkin: Ekki hvort, heldur hve- nær bensínskömmtun veröur tekin upp vestra — segir Henry Jackson formaður orkumálanef ndar öldungadeildarinnar Ný orkukreppa í uppsiglingu vegna ástandsins ííran Henry Jackson, formaður orku- málanefndar öldungadeildar banda- ríska þingsins, sagði I gær að hið fyrsta yrði að grípa til bensínsölubanns á sunnudögum þar vestra. öldunga- deildarþingmaðurinn sagði að spurn- ingin væri ekki hvort koma þyrfti á olíuskömmtun heldur væri einungis spurt um hvenær hún yrði. Hann tók ennfremur fram að mikil þörf væri á þvi, að Jimmy Carter Bandarikjafor- seti skýrði þjóð sinni frá því, hve alvar- legt ástand væri nú i orkumálum Bandaríkjanna. Jackson sagði þetta í sjónvarpsvið- tali, en undanfarna viku hafa sér- fræðingar kannað hve mikil áhrif stöðvun olíusölu frá íran og hugsan- legar truflanir á olíusölu frá öðrum olíusöluríkjum í Miðausturlöndum mundi hafa vestra. Ætlun orkumála- nefndar öldungadeildarinnar er að hafa til reiðu áætlun um orkumálin í ljósi nýrra upplýsinga i lok þessa mán- aðar. Síðan er búizt við að það muni taka um það bil tvo mánuði að af- greiða málið i deildinni. 1 viðtalinu kom fram að Henry Jackson, sem talinn er í hópi herskárri áhrifamanna í Bandaríkjunum, taldi koma til greina að grípa til hernaðar- aðgerða til að tryggja olíuflutninga frá Miðausturlöndum. Hann sagði að við núverandi aðstæður hefðu skæruliðar Palestínuaraba möguleika á að stöðva olíuviðskiptin. Hann taldi einnig að samvinna lsrael, Egyptalands og Saudi-Arabiu mundi koma sér vel til að koma i veg fyrir of mikil áhrif Sovétríkjanna í þessum heimshluta. Hestar postul- anna vél- knúnir Nú gefst trimmurum kostur á að notfæra sér véltæknina við iðkun- ina. Sá sem stendur fyrir þ\1 er Bandarikjamaðurínn Burt Shul- man, sem sést á myndinni á nærri þrjátiu kilómetra hraða á klukku- stund, en óneitanlega aðeins gang- andi. Hann ber gönguvélina á bak- inu og sést vel hvernig hún er siðan tengd niður i fæturna. Uppfinn- ingamaðurínn telur að vélin geti komið heilbrigðu fólki að góðum notum. Aftur á móti segist hann binda miklar vonir við að hún geti orðið hreyfihömluðum að ómetan- legu gagni þegar reynsla verði komin á notkun hennar. Vélin gengur fyrir gasi. GERVI-PRESLEYAR í LÖNGUM RÖDUM Þó Elvis Presley sé látinn er hann samt sprelllifandi í hugum fólks i Bandaríkjunum og viðar. Ekki var í það minnsta annað að sjá, þegar kvik- myndafyrirtæki eitt þar vestra auglýsti eftir ungum mönnum til að leika stjörnuna í kvikmynd. Frakkland: STÁLVERKA- MENN MÓT- MÆLA Valery Giscard d’Estaing forseti Frakklands fær nógu að sinna, þegar hann snýr aftur til Parísar í dag eftir ferð um Afríku. Mikill órói hefur verið viðs vegar um Frakkland siðustu viku vegna vaxandi atvinnuleysis. Búizt er við að þetta ástand muni halda áfram í þessari viku og hámark mótmælanna mun væntanlega verða sólarhringsvinnu- stöðvun verkamanna I stáliðnaðinum en hún verður á föstudaginn kemur. Fyrir helgina efndu stálverkamenn í Lorraine- héraði til mótmælaaðgerða. Stöðvuðu þeir lest sem var með farm af hrájárni og dreifðu um það bil 1500 tonnum af þvi á járnbrautarteina. Rúmur fjórðungur af stálframleiöslu Frakka fer þar fram. Talið er að 1,3 milljónir atvinnulausra séu I Frakklandi um þessar mundir. Verkamenn I stáliðnaði eru I mjög öflug- um samtökum og hafa lýst þvi yfir að þeir muni ekki samþykkja áætlanir um að fækka störfum í grein þeirra.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.