Dagblaðið - 12.02.1979, Blaðsíða 13

Dagblaðið - 12.02.1979, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 12. FEBRÚAR 1979. Trútt um talað Svolítil könnun á útvarpshlustun hefur verið gerð. Af rúml. 200.000 manns i landinu hafa 113 gefið tóninn, og sá tónn er úr popphorni og óskalögum sjúklinga, sem fá tifalt meiri hlustun en sinfóníutónleikar hjá þessum hópi. Þótt ekki sé af meira úrtaki að státa, er þegar tekið að draga laerdóma af þessari könnun, og hlakkar auðheyri- lega görnin í lágmenningarvitum blaðanna: „Áfall fyrir tónlistar- deildina” er 3ja dálka fyrirsögn eins þeirra. „örfáir vilja sinfóníurnar” heitir jafnstór fyrirsögn annars. lskyggilegra er þó, að formaður út- varpsráðs lætur hafa eftir sér í for- siðufyrirsögn: „Könnunin kallar á breytingar”. Einnig segir hann, að „könnunin megi teljast sæmilega marktæk” og að „búast mætti við til- færslum á þáttum og jafnvel að ein- stakir þættir yrðu lagðir niður.” Loks er haft eftir honum, að nýkjörið út- varpsráð sé um þessar mundir að fjalla um breytingar á dagskránni, sem sennilega komi til framkvæmda i mars. Hér eru að vísu engin handföst dæmi um það nefnd, hvaða þættir hugsanlega yrðu fyrir barðinu á þess- ari umfjöllun. En vegna hinnar „alþýðlegu” samsetningar útvarpsráðs læðist að sá ótti, að nú eigi að gripa tækifærið til að útþynna dagskrána enn meir undir því yfirskini, að það sé „vilji fólksins”, sem i þessu tilviki er 50—60 manns. Nú má vel vera, að útkoman og hlutföllin yrðu hin sömu, þótt þúsund sinnum fleiri segðu álit sitt. Enda er það ekki aðalatriðið. Meginatriðið er, að útvarpið má alls ekki beygja sig al- farið undir úrslit könnunar af þessu tagi, þótt hafa megi hliðsjón af henni t.d. við tímasetningu dagskrárliða. Skyldur útvarpsins Útvarpinu ber nefnilega engin laga- leg og þvi siður siðferðileg skylda til að vera fyrst og fremst einhver af- þreyingarstofnun, jafnvel þótt hug- stola mannfjöldinn æski þess. I út- varpslögunum segir svo um þetta i 3. 'gr.: „Ríkisútvarpið skal stuðla að almennri menningarþróun þjóðarinnar og efla islenska tungu. Það skal meðal annars flytja efni á sviði lista, bókmennta, visinda og trúarbragða, efla alþýðumenntun og veita fræðslu i einstökum greinum, þar á meðal umferðar- og slysavarnar- málum. Það skal kappkosta að halda uppi rökræðum um hvers konar málefni, sem almenning varða, á þann hátt, að menn geti gert sér grein fyrir mismunandi skoðunum um þau. Það skal halda uppi fréttaþjónustu og veita fréttaskýringar. Það skal flytja fjölbreytt skemmtiefni við hæfi fólks á öllum aldri. Útvarpsefni skal miðað við fjölbreytni íslensks þjóðlífs, svo og við þarfir og óskir minni hluta sem meiri hluta.” Með þessari óvenjugóðu lagagrein er útvarpsráði vissulega veitt töluvert vald til að hafa vit fyrir fólki. Ófáir gervilýðræðissinnar eiga sjálfsagt eftir að tryllast af vandlætingu yfir þvílikri andans kúgun. En ætli ráðið að afsala sér þessu forræði og hlaupa eftir úr- slitum hlustendakannana einsog bandarískar stöðvar, sem ganga einvörðungu fyrir auglýsingum, þá er líka eins gott að láta börnin ráða því, hvað kennt er og gert í skólum — og raunar miklu betra. Uppeldishlutverk Ég vil hér einungis taka dæmi af tónlistarflutningi i útvarpi, þar sem ég get trútt um talað. Þegar ég var barn og unglingur, hataðist ég og allt mitt umhverfi við sinfóníur, sónötur, prelúdíur, fúgur, allegró og alveg sér- staklega andante. Við elskuðum harmónikulögin og önnur danslög. Og við vorum ekki ein um þetta þarna fyrir vestan. Það var nefnilega gerð hlustendakönnun á vegum Útvarps- tíðinda haustiö 1942, og í henni tóku þátt rúml. 1500manns. Af margvíslegum niðurstöðum hennar má í þessu sambandi nefna, að af „tegundum tónlistar” kusu 471 gamansöngva, 287 danslög, en 29 Kjallarinn Árni Björnsson þjóðháttafræðingur „symfóníu tónverk”. Af einleiks- hljóðfærum kusu 976 harmóniku, 117 píanó og 7 gitar. Af einstökum hljómsveitum hlaut danshljómsveit Bjarna Böðvarssonar 710 atkvæði, en hljómsveit Tónlistarskólans 6 atkv. Af einsöngvurum hlaut Gunnar Pálsson flest atkv., 240, en Pétur Á. Jónsson 7 og Einar Kristjánsson 5 atkvæði. Og af „tvisöngvurum” var Jakob Hafstein atkvæðahæstur, með 227 atkv., en Guðmundur Jónsson og María Markan fengu eitt atkvæði hvort. Þetta eru ekkert undarlegar niður stöður. Þjóðin var alls óvön sigildri tónlist og hvorki tími né tækifæri hafði unnist til að þroska með henni tónsmekk. En það vita allir, sem reynt hafa, hvilík undraveröld opnast, þegar tónlistin tekur að ná til hjartans, svo að maður fær gæsahúð af hrifningu. Sem betur fer voru þeir Páll tsólfs- son, Jónas Þorbergsson og þáv. út- varpsráðsmenn ekki eftirlátir við okkur, heldur héldu áfram að hafa vit fyrir okkur, m.a. með því að dengja yfir okkur sígildri tónlist og bættu nú m.a.s. við passíum og óratórium. Með þessu ólu þeir a.m.k. nokkra hundr- aðshluta þjóðarinnar músíkalskt upp. Og án þessarar þrjósku þeirra ættum við líklega enn enga sinfóníuhljóm- sveit og engan pólifónkór eða fílhar- móniu, svo að fátt eitt sé nefnt. Og það væri ekki bættur skaðinn. Hlðleg örlög Síðustu 3—4 áratugi hefur þessi sama þjóð í yfirgnæfandi mæli verið fóðruð á bandarískri verslunarmúsík. Þetta er svo ísmeygileg innræting, að t.d. ungt fólk, sem þó telur sig vilja andæfa einhliða bandarískum áhrifum, liggur hundflatt fyrir hinu sama, þegar það fær þætti i útvarpinu til umsjónar. „Andóf’ þeirra birtist helst I þvi að spila grútmáttlausa gagn- irýni einhverra bandariskra músík- spekúlanta. Nú vill svo til, að sá stjórnmála- flokkur, sem telur sig berjast einarðast fyrir íslensku þjóðfrelsi, á bæði menntamálaráðherrann og formann útvarpsráðs. Hefur slíkt ekki átt sér stað í rúm 30 ár, eða siðan Brynjólfur Bjarnason og Jakob Benediktsson sátu í sömu stólum. Það væru kaldhæðnis- leg örlög, ef hið eina eftirminnilega, sem gerðist undir forræði þessara manna, væri að hlaupa eftir grunnfærnislegum niðurstöðum könnunar meðal hálfameríkaniseraðra hlustenda og láta rikisútvarpið gefast opinberlega upp fyrir forheimskandi innrætingu. Til eru þeir gervilýðræðissinnar, sem halda þvi á loft, að leggja beri aukna áherslu á allskyns lág- menningu, af því hún sé svo „alþýðleg”. Við hinir, sem teljum þetta móðgun við alþýðu manna, erum i munni hinna sömu „óvinir fólksins” (eins og sagt var hjá Stalín gamla og hans lærisveinum) eða jafnvel „menntamenn”, sem er víst enn verra skammaryrði, ef marka má ummæli sumra verkalýðsleiðtoga. En ég tek undir með Atla Heimi, sem sagði einhverntíma: Ekkert nema það besta er nógu gott fyriralþýðuna. „Nú læðist að sá ótti að nú eigi að gripa tækifærið til að útþynna dagskrána ...” „Nú vil! svo til að sá stjórnmálaflokkur sem telur sig berjast einarðast fyrir íslensku þjóðfrelsi á bæði menntamálaráðherrann og formann útvarpsráðs.” V Gjaldþrota gervibær Kópavogskaupstað hefur nokkuð borið á góma i dagblöðum landsins á undanförnum skammdegisdögum. í Þjóðviljanum 21. okt. er grein um fjár- hagsvandræði Kópavogs og segir þar að ástandið sé hrikalegt og að leitað hafi verið til ríkisstjórnarinnar um aðstoð og hafi hún hlutast til um að Seðlabankinn lánaði kaupstaðnum 200 milljónir tii að greiða úr bráðasta vandanum og afstýra gjaldþroti. í Dagblaðinu 14. nóv. er svo nokkuð vikið að þessum málum og segir þar meðal annars að 420 milljón- ir Vanti til þess að endar nái saman á þessu ári og að tilhlutan ríkisstjórnar hafi kaupstaðnum verið útvegað 200 milljóna gengistryggt lán til tveggja og hálfs árs. Þá hafi framkvæmdaáætlun verið skorin niður um 141 milljón en afganginum verði svo velt yfir á næsta ár. Engan skyldi undra þó að skatt- greiðendur hér i Kópavogi óskuðu eftir nokkrum skýringum frá stjómend- um bæjarins eftir slikan fréttalestur. Ekki er vitað til þess að hér hafi verið farið vægilegar í skattheimtu en ann- ars staðar né innheimta verið slælegri. Þvert á móti hafi tekjustofnar bæjar- ins verið nýttir eins og lög frekast leyfa og gengið feti framar en víðas annars staðar. Ekki vitum við heldur til þess að bærinn hafi staðið í fjárfrekum stórframkvæmdum eða orðið fyrir óhöppum af náttúruhamförum. Hitt vita Kópavogsbúar að bæjarfélagið hefur notið þess á margan hátt að vera úthverfi Reykjavíkur og því losnað viö fjölmörg af þeim verkefnum sem öðrum bæjarfélögum hafa verið hvað þyngst i skauti. Engan þarf að undra þó okkur Kópavogsbúum bregði dálítið í brún þegar á okkur dynja fréttir um gjald- þrot okkar eigin bæjarfélags. Við teljum okkur hafa innt af höndum borgaralegar skyldur eigi lakar en aðrir þegnar þjóðfélagsins og við vitum líka að við höfum þurft að sækja til annarra margt af því sem sjálfsagt þykir í nútima samfélagi. Benda má á að Kópavogur á ekkert sjúkrahús eða slysavarðstofu. Ekki heldur elliheimili. Ekki hefur hann Byggt ioúðir til að leigja húsnæðis- lausu fólki. Ekki hefur verið lagt fé í V hafnarmannvirki og þvi síður í upp- byggingu atvinnutækja, svo sem tog- arakaup eða byggingu frystihúss. Ekki hefur hann heldur lagt fé I hitaveitu ;ða til annarrar orkuöflunar og neysluvatn er keypt í heildsölu af Reykjavikurborg. Ekki hefur heldur verið lagt fé í slökkvistöð eða aðra eld- varnaþjónustu, það kaupum við sinnig í höfuðstaðnum. Hér skal nú ekki fleira talið að sinni enda nóg komið til að sýna að Kópa- vogur er gervibæjarfélag sem aldrei hefði átt að öðlast sjálfstæða tilveru en samdinast heldur þeirri heild sem hann var sprottinn af eins og Kópavogsbúar vildu almennt fyrir 25 árum. En stjórnmálamenn hafa gjarnan önnur sjónarmið en fólkið sepi þeir eiga að vinna fyrir. T.d. virðast þeir hafa endalausan áhuga á stofnun nýrra bæjarfélaga þó engin rök mæli með því nema gömul hreppamörk sem voru góð og gild fyrir 100 árum. Með sama áframhaldi verða innan tíðar 6—7 bæjarfélög á hinu svokallaða Stór-Reykjavíkursvæði, náttúrlega með jafnmörgum bæjarstjórnum, jafnmörgum bæjar- og borgarstjórum, innheimtuskrifstofum, verkfræðiskrif- stofum, skipulagsfræðingum, rekstrar- stjórum, bæjarriturum, fræðsluráðum o.fl. o.fl. Ofan á allt þetta bætist svo hús- næðiskostnaður og illa nýttur tækja- búnaður jafnt úti sem inni. Þannig má á Reykjavíkursvæðinu einu koma á fót 6—7 gjaldþrota gervibæjum á borð við Kópavogskaupstað. í siðasta tölublaði „Kópavogs” skrifar Ólafur Jónsson grein um fjár- málastjórn fráfarandi bæjarstjórnar- meirihluta sem samanstóð af ihaldi og framsókn. Ekki er um að ræða hald- góðar skýringar hjá þeim gamalreynda bæjarstjórnarmanni. Sökinni er ein- faldlega skellt á íhaldið en framsókn ekki nefnd á nafn og var þó talið að hún ætti ekki síður vaska menn og vel Kjallarinn Gunnar Eggertsson Kópavogi gefna í þeirri sæng, auk þess sem bæjarstjórinn hefur ævinlega verið færðurá þeirra reikning. En framsókn er nú gengin í endur- nýjun lífdaganna og komin i nýja sæng með Ólafi, krötum og co, svo best er að styggja hana ekki. 1 grein Ólafs er meðal annars að finna þessa skýringu á óförunum: „Byrjað hefur verið á hverri stórfram- kvæmdinni af annarri, skipulagslaust og án nokkurrar fyrirhyggju. Þannig hefur að minnsta kosti verið tekin skóflustunga að flestum stórbygging- um sem hér eiga að rísa á næsta ára- tug.” Dýr mundi Hafliði allur ef skóflu- stungur einar setja 13 þúsund manna bæjarfélag á hausinn. En mundi ekki rétt að leita haldbetri skýringa? Kópavogi, 3. febrúar 1979, Gunnar Eggertsson r er gervite'jarfclag sem aldrei heffti fttt álfstseöa tilveru...”

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.