Dagblaðið - 12.02.1979, Blaðsíða 18
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 12. FEBRÚAR 1979.
18
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
Iþróttir
Reykvíkingar
sigruðu stórt
í íshokkí
— á Akureyri, 7-1
Reykvikingar sigruðu Akureyringa
stórt i ishokkey um helgina á Akureyri,
7—1. Það voru átta ár síðan þessi bæjar-
keppni fðr siðast fram og Akureyringar
höfðu sigrað þrivegis, Reykvikingar
aðeins einu sinni — en um helgina tókst
Reykvikingum að vinna sinn annan sigur
og var sá mun öruggari en fyrirfram var
búizt við. St.A.
Öruggur
sigur ÍR
á Akureyri
ÍR sigraði Þór 101—86 i Bikarkeppni
KKÍ á Akureyri á laugardag. ÍR-ingar
höfðu yfirburði, höfðu yfir i leikhléi,
52—35. Mark Christiansen skoraði 29
stig fyrir Þór og Jón Indriðason 27. Hjá
ÍR skoraði Jón Jörundsson 26 stig og
Kristinn Jörundsson 18. St.A.
Völsungur
meistari
íblakinu
— í 1. deild kvenna eftir
sigurá Breiðabliki
Völsungur tryggði sér Íslands-
meistaratitil i blaki kvenna með sigri á
Breiðabliki i 1. deild fyrir norðan um
helgina, 3-1. Í raun vakti það mesta at-
hygli að Blikarnir sigruðu eina hrinu en
stúlkurnar af Húsavik höfðu annars yfir-
burði þó ekki hafi alveg verið fullskipað
lið.
Völsungur vann tvær fyrstu hrinurn-
ar, 15-3, 15-4 en nokkuð óvænt vann
Breiðablik hina þriðju, 16-14: En stúlk-
urnar af Húsavik sönnuðu yfirburði sína
meðsigri í þriðju hrinunni, 15-3.
lMA Sigraði síðan Breiðablik í 1. deild
kvenna, 3-1,9-15, 15-3, 15-5,15-8. Stúd
entar fóru norður í 1. deild karla og sigr-
uðu Eyfirðinga örugglega, 3-0, 15-6, 15-
5,15-10. Staðan í l .deild karlaernú:
Þróttur 11 9 2 29-12 18
ÍS 118 3 28-14 16
Laugdælir 10 7 3 22-17 14
UMSE 9 1 8 9-26 2
Mímir 9 0 9 8-27 0
Þá fóru fram tveir leikir í 2. deild
karla. KA sigraði lBV 3-1 og sama tala
kom upp þegar lMA sigraði Eyjamenn,
3_1______________________
Staðan í
l.deild
Þrír leikir voru háðir 11. deild tslands-
mótsins 1 handknattleik um helgina. Úr-
slit urðu þessi:
ÍR - Víkingur 20-24
Fram—HK 22—21
FH—Valur 16—20
Staðan er nú þannig — og þá er reikn-
að með sigri Vals gegn HK I leiknum,
sem ekki fór fram.
Valur
Vikingur
FH
Fram
Haukar
Fylkir
ÍR
HK
9
9
10
10
9
9
10
8 1 0 157-127 17
7 1 1 213-182 15
196-190 11
193-204 11
182-181 8
164-175 5
179-197 5
145-172 4
Staðan í
2. deild
Úrslit leikja I 2. deild um helgina:
Stjarnan — Ármann
KR-KA
Ármann — KA
Staðan I 2. deild er nú:
KR
Ármann
Þór, Eyjum
Þór, Ak.
KA
Þróttur
Stjarnan
Leiknir
10
11
10
9
10
8
8
9
19-18
22-28
24-18
241-191 14
232-208 14
182-189 12
171-159 11
185-171 10
191-168 9
173-173 6
130-238 0
Viggó tekinn úr umferð
- skoraði samt sjö mörk
— þegar Víkingur sigraði ÍR 24-20 í 1. deild handboltans í Laugardalshöll
Bikarmeistarar Vikings sigruðu ÍR
24-20 i 1. deild tslandsmótsins i hand-
knattleik á laugardag. Vikingar höfðu
ávallt undirtökin i viðureign sinni við ÍR
án þess þó nokkurn tima að ná yfir-
burðastöðu. Án nokkurs vafa var Viggó
Sigurðsson maður leiksins. Hann var
tekinn úr umferð allan leikinn en skoraði
þrátt fyrir það sjö mörk — eftir að Vik-
ingar höfðu sett upp skemmtilegar leik-
fléttur til að losa um Viggó. Kraft hans
og snerpu réðu ÍR-ingar ekki við.
Víkingar voru án þriggja lykilleik-
manna í viðureign sinni við tR. Eggert
Guðmundsson brákaðist illa á hendi
gegn Breiðabliki, Skarphéðinn Óskars-
son komst ekki til leiks og landsliðs-
maðurinn ungi, Sigurður Gunnarsson,
er enn meiddur. Þrátt fyrir það voru
Víkingar of sterkir fyrir lR. Með þá
Viggó, Pál Björgvinsson og Ólaf Einars-
son í broddi fylkingar — þeir skoruðu 19
af 24 mörkum Vikings — höfðu Vík-
ingar ávallt leikinn i hendi sér, aðeins í
Stórsigur hjá Dankersen
Dankersen vann stórsigur á Hiitten-
berg 1 Bundesligunni I Vestur-Þýzka-
landi á laugardag. Lokatölur 21—9 cftir
11—51 hálfleik. Hiittenberg, sem var án
þriggja beztu leikinanna sinna, veitti
aldrei neina mótstöðu að ráði f leiknum.
Busch átti mjög góðan leik með Dank-
ersen og skoraði sjö mörk. Waltke skor-
aði þrjú — Axel Axelsson og von Oepcn
tvö hvor. Ólafur H. Jónsson lék lltið
með — hefur verið með flensu. Danker-
sen hefur nú 20 stig eftir 17 umferðir, og
um fallhættu getur varla orðið um aö
ræða hjá liðinu.
Göppingen tapaði á heimavelli fyrir
Þýzkalandsmeisturum Grosswallstadt
11—13. Þá vann Gummersbach öruggan
sigur á heimavelli gegn Milbertshofen.
Rheinhausen, sem er i fallhættu, kom á
óvart og vann Nettelstedt á heimavelli
21—17. Grambke, liðið, sem Björgvin
Björgvinsson leikur með, lék ekki um
helgina.
byrjun að jafnræði var með liðunum. lR
skoraði fyrsta mark leiksins eftir að Páll
Björgvinsson hafði misnotað viti en Er-
lendur Hermannsson svaraði fyrir Vík-
ing, 1-1. Brynjólfur Markússon kom lR
yfir, 2-1, en í kjölfarið fylgdu þrjú mörk
Víkings, 4-2. ÍR náði að jafna, 4-4, en
aftur komu þrjú mörk frá Víkingi I röð
— og þar með var lagður grunnur að
sigri Víkings. Þennan mun réð ÍR ekki
við þó tvívegis hafi ÍR náð að minnka
muninn i eitt mark, 7-6, og 8-7 en Vík-
ingar höfðu yfir i leikhléi, 11-8. Þegar í
upphafi síðari hálfleiks komst Víkingur i
fimm mörk yfir, 14-9. ÍR-ingar neituðu
þó alveg að gefast upp — þeir börðust
vel og ungu leikmennirnir, Hafliði Hall-
dórsson, bróðir Víkingsins Stefáns sem
nú er í Svíþjóð, og Guðmundur Þórðar-
son, áttu sína beztu leiki fyrir ÍR. lR
náði að minnka muninn i þrjú mörk —
en ekki meir. Mestur varð munurinn 24-
18, en lokatölur urðu 24-20.
Einvígi meistara Vals og bikar-
meistara Vikings heldur því áfram. Þessi
tvö lið bera ægishjálm yfir önnur í 1.
deild. Það er greinilegt að Bogdan
Kowalczyk leggur mikla áherzlu á
Sparkaði í mótherja
og var rekinn af velli
—Týr sigraði Gróttu 21-15 í 3. deildinni
Týr þokaði sér nær sæti i 2. deild með
örruggum sigri gegn Gróttu i 3. deild ís-
landsmótsins i handknattleik I Eyjum,
21—15. Það fór aldrei á milli mála hvort
liðið var sterkara — Eyjamenn höfðu
yfirburði en staðan I leikhléi var 10—5.
En sigurinn gegn Gróttu getur orðið
dýrkeyptur. Helzti markaskorari Týr-
ara, Sigurlás Þorleifsson, gerði sér lítið
fyrir og sparkaði í andstæðing og mun
að líkindum fara í leikbann, þá væntan-
lega gegn Aftureldingu en þessi tvö lið
berjast um efsta sætið.
Sigurlás skoraði 7 mörk fyrir Tý,
Snorri Jóhannsson 6. Hjá Gróttu skor-
aði Grétar Vilmundarson 4 mörk. Þá fór
fram leikur suður með sjó i 3. deild —
Keflavik sigraði Njarðvik 19—16 í bar-
áttuleik.
Staðaní3.deild er nú:
Afturelding 11 8 2 1 194-175 18
Týr 9 8 1 0 194-151 17
Grótta 10 6 0 4 217-203 12
Akranes 10 5 0 5 202-189 10
Breiðablik 10 3 2 5 205-214 8
Keflavík 10 2 2 6 190-213 6
Njarðvik 10 2 1 7 189-210 5
Dalvík 10 1 2 7 204-240 4 FÓV.
varnarleik Víkinga. Vörnin er nú mun
þéttari en hún hefur verið en hins vegar
var markvarzlan í molum gegn ÍR.
Kristján Sigmundsson virðist alveg heill-
um horfinn í marki Víkings. Skortir
greinilega alla trú á sjálfan sig — og
þegar svo er þá dettur markvarzlan
niður. Hann hefur þó sýnt að hann á að
geta verið í fremstu röð markvarða
okkar, nær sér greinilega ekki upp. Þeir
Ólafur Einarsson, Viggó Sigurðsson og
Páll Björgvinsson voru drýgstir við að
skora gegn ÍR. En styrkur Víkings er
breidd liðsins — Árni Indriðason ávallt
sterkur i vörn og þó hann skori ekki
mörg mörk i sókninni þá var hann engu
að síður ákaflega þýðingarmikill í leik-
kerfum við að losa Viggó. Ólafur Jóns-
son, hornamaðurinn snjalli, skoraði
aðeins 2 mörk — en hann fékk 4 viti.
Það lokaðist nokkuð fyrir Erlendi Her-
mannssyni við að Viggó Sigurðsson var
tekinn úr umferð — og óvenjulítið bar á
honum. Hann var í vikunni valinn til að
fara til Spánar með islenzka landsliðinu.
ÍR á fyrir höndum sér harða fallbar-
áttu, og miklu minna kemur út úr liðinu
en efni standa til. Þó hlýtur það að vera
iR-ingum fagnaðarefni hve þeir Guð-
mundur Þórðarson og Hafliði Halldórs-
son stóðu sig vel — framtíðarleikmenn
þar. En vörn lR er ekki eins þétt og oft
áður, ef til vill munar þar mestu að Jens
Einarsson hefur alls ekki náð sér á strik i
marki lR í vetur, viðlíka og í fyrra er
hann sýndi hvern stórleikinn á fætur
öðrum.
Þeir Jón Friðsteinsson og Árni Tóm-
asson dæmdu viðureignina.
Mörk Víkings skoruðu: Ólafur
Einarsson 8, 3 viti, Viggó Sigurðsson 7,
1 viti, Páll Björgvinsson 4, Ólafur Jóns-
son 2, Steinar Birgisson, Árni Indriða-
son og Erlendur Hermannsson 1 mark
hver.
Mörk ÍR: Hafliði Halldórsson og
Guðmundur Þórðarson 5 hvor, Sigurður
Svavarsson 4, 2 viti, Guöjón Marteins-
son 3, Bjarni Bessason 2 og Brynjólfur
Markússon 1 mark.
- H Halls.
Viggó Sigurðsson hefur oft fengið óbUðar móttökur hjá andstæðingunum I leikjum vetrarins. Hér er hann á hnjánum i leik Vikings og ÍR —
brotnaði hann fyrr i vetur.
og þuklar á nefinu. Þar
DB-mynd Hörður