Dagblaðið - 12.02.1979, Blaðsíða 27

Dagblaðið - 12.02.1979, Blaðsíða 27
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 12. FEBRÚAR 1979. 27 Það sannaðist á miðvikudagskvöldið að Lögfræðingar erubeztumenn — eða að minnsta kosti sumir þeirra hugsa eins og danski heiðursmaðurinn sem stofnaði sjóð til að kosta efniiega menn til framhaldsnáms. Hann tók sér- staklega fram að úr honum gætu „júr- istar og aðrir skúrkar” ekki fengið græn- an eyri. En sannleikurinn er sá að langflestir lögfræðingar eru strangheiðarlegir. Og lögmannafélagið hefur samþykkt þessa ókeypis ráðgjöf. „Hún er okkur einungis til þæginda,” sagði reyndur lögmaður við DB. Þeir sem eru í smávandræðum fá þau leyst með einu símtali en þeir sem raunverulegt erindi hafa fyrir dómstól- ana veröa sendir þangað. Ástæðan fyrir því að „ráðgjafarnir” óska að vera nafnlausir er meðal annars sú að þeir vilja ekki nota starfsemi sem þessa til að hæna að sér einkaskjólstæð- inga. Það var stórfróðlegt að fylgjast með fyrirgreiðslunni þetta fyrsta kvöld. Nokkrir punktar sem maður var fróðari um á eftir: Þeir sem vinna mál fá oftast máls- kostnað greiddan úr hendi hins seka. Honum á að hefnast fyrir að halda fast við rangan málstað. Verðbólgan rýrir skaðabótakröfur svo mjög að stundum er ráðlegra að semja strax upp á minna heldur en fara í mál sem tekur þrjú fjögur ár. Óvígð sambúð er varasöm að þvi leyti að um hana gilda mjög fáar réttarreglur. Ef slitnar upp úr slíku sambandi fara allar eignirnar til þess aðilans sem skrif- aður er fyrir þeim. Gerið þvi sérstakan samning til vonar og vara. Standi þannig á að þú sért yfir miðjum aldri og búir í eigin íbúð og takir þar inn kærasta eða kærustu, sem þú vilt að fái að búa þar áfram, ef þú skyldir deyja á undan, en vilt samt að börnin þín erfi þéssa ibúð, geturðu bjargað því. Þú lætur þá þinglýsa því fyrir smáa upp- hæð að íbúðin erfist með þeirri kvöð að ákveðin persóna fái að sitja þar áfram til æviloka. Margt kom fleira fram sem hér er ekki rúm til að rekja. En það er svei mér óhætt að virða þessa framtakssemi — og sjálfboðavinnu — hinna löglærðu. - IHH Eskifjörður: Blótað f ram undir morgun Þorrablót var haldiö á Eskifirði sl. má með sanni segja að hver hafi laugardag og hófst það kl. 20. Fjöl- sungið með sínu lagi þar sem í kómum ■ mennt var við borðhaldið eða um 400 var fólk sem ekki hefur lag. Þá var 1 manns. Þorramaturinn var góður að skammdegistízkan sýnd og var fatn- ógleymdu brennivíninu og hákarlin- aðurinn fenginn úr Pöntunarfélaginu. um. Borðhald stóð til 11.30 um Karlar voru í kjólum og konur í bux- ikvöldiðogvarmikiðumskemmtiatriði um og var mikil skemmtun af sýning- meðan á borðhaldi stóð. Síðan var unni. dansað til kl. 4.30 um nóttina og er Öll skemmtiatriði voru heimagerð, það heldur hressilegra en almennt nema hljómsveitin sem kom frá Egils- geristá höfuðborgarsvæðinu. stöðum. Það hefur verið venja að Droplaug Pétursdóttir talaði fyrir bjóða gömlum brottfluttum Esk- minni þorra og mæltist mjög vel. firðingum á blótið. Að þessu sinni var Ragnar Hall las annál ársins og Úlfar hjónunum Kristínu Þorsteinsdóttur og Sigurðsson fór með nefndarvisur. Var Viggó Loftssyni boðið en Viggó var mikið hlegið og dátt að fyndni áður- lalltaf matvælaráðherra hjá þorrablóts- nefndra manna. Hilmar Bjarnason nefndinni þegar hann átti heima á flutti gaman og alvöru og alltaf er Eskifirði. . áheyrilegt að hlusta á Hilmar. Ragnar Skemmtunin fór í alla staði mjög vel Ingi Aðalsteinsson flutti bæjarbrag. 'fram og að venju voru engir lögreglu- Milli atriða var almennur söngur og þjónar á staðnum. Það er ekki þörf lék Ævar Auðbjörnsson undir. Mikla fyrir þá á slíkri skemmtun svo hinir kátínu vakti er Bragi Haraldsson kom góðu lögregluþjónar Eskfirðinga gátu með 11 ára gamlan blandaöan kór iskemmt sér ekki siður en aðrir heima- sinn. Kórinn var margkallaður upp og menn. - Regina / JH „Við hefðum þurft annan síma og kaffivél,” var niðurstaðan eftir fyrsta kvöldið sem nokkrir lögfræðingar veittu almenningi ókeypis leiðbeiningar um rétt sinn — og skyldur — með símavið- tölum. Þeir höfðu auglýst að þeir svör- uðu í síma 27609 frá klukkan hálfátta til tíu á miðvikudagskvöld. Þegar DB kom á staðinn klukkan tvær mínútur yfir hálf sat einn þeirra þegar í simanum og lýsti svipur hans djúpri umhyggju fyrir spyrj- andanum á hinum enda línunnar. „Púnktaðu hjá þér að þetta heitir veð- bann,” sagði hann og lýsti síðan fyrir hinum ókunna skjólstæðingi (eða skjól- stæðu) á hvaða skrifstofur þyrfti að fara og í hvaða röð til að tryggja að eignar- hluti í ákveðinni sameign yrði ekki veð- settur. Að lokinni ráðgjöf lagði lögmaðurinn ungi símann á og þurrkaði svitann af enninu. En ekki gafst stundarfriður. Siminn glumdi samstundis á ný. Hann svaraði, hlustaði nokkra stund og sagði síðan: „Þetta er hið einfaldasta mál. Farðu beint til næsta lögfræðings og hann innheimtir þennan víxil fyrir þig eins og skot, úr því hann er fallinn. Víxlamál fara fljótar en nokkuð annað gegnum kerfið.” Várla hafði símtólið snert gaffalinn fyrr en enn heyrðist hringing. Og þannig gekk það allt kvöldið, unz klukkan var talsvert gengin í ellefu, svo þeir félagar neyddust til að daufheyrast við bænar- tóninum I siendurtekinni, þolinmóðri símhringingunni. Þeim var það greini- lega þvert um geð en einhvers staðar varð að hætta. Tugir manna höfðu fengið úrlausn og hinum er bent á að reyna næstu miðvikudagskvöld á SAMA tíma. „Júristar og aðrir skúrkar" Þeir sem að ráðgjöfinni standa eru allir fullnuma í lögfræði og hafa starfs- reynslu. Þeir vilja brúa bilið milli al- mennings og lögfróðra. Upplýsingastarf- semi sem þessi er bráðnauðsynleg. Margir þora ekki fyrir sitt litla líf inn á lögmannsskrifstofu af ótta við að koma út þaðan sem blásnauðir öreigar. Þeir Lagasafnið er um þrjú þúsund siður og ekki viðlit fyrir venjulegt fólk að tileinka sér allt sem þar stendur. DB-mynd Hörður Vinsælu Barnaog unglingaskriiboróin Ódýr, hentug og falleg. Gott litaúrval. Sendum hvert á land sem er. STÍL-HÚSGÖGN AUDBREKKU 63 KÓPAVOGI SiMI 44600 Creda Enskur antik arinn Creda Tau- þurrkara 3 GERÐIR 2 STÆRÐIR 20 ÁRA FARSÆL REYNSLA NAUÐSYNLEGT TÆKI Á NÚTÍMA HEIMILI SKOÐIÐ ÞESSI FRÁBÆRU TÆKI HJÁ OKKUR - SÍMISÖLUMANNS18785 R AFT ÆK J AVERZLU N ÍSLANDS H/F ÆGISGÖTU 7 - SIMAR17975 OG 17976 FLÖKTANDI RAFLOGINN EYKUR HLÝJU HEIMIL- ISINS Sá skal hafa happ er hlotið hefiir Colvic Seaworker, 22fet Þessi bátur er 6,6 m á lengd og 2,4 m á breidd. Verð á skrokk og yfirbyggingu er ca kr. 1.500.000. GlSU JÓNSSON OG CO. HF. SUNDABORG 41 - SÍMI86644

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.