Dagblaðið - 12.02.1979, Page 14
,14.
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 12. FEBRÚAR 1979.
Peugeot 504 ðrg. 1977 station
Þessi stórglæsilegi Peugeot 504 station árg. 1977 er vinrauður og ek-
inn 18 þús. km. Vill skipta á nýlegum amerfskum bil, má vera dýrari.
Það er leitun að svona fallegum bil.
Tilvalinn til að ferðast á um alla Evrópu i sumar.
Til sýnis á staönum.
Ilj í
liliiiiii
i ! iii!
■ |i i Iglil ^..,^111 jjiuy nijji, L.ig.l.Mgin.|i:
BJLAKALIP
SKEIFAN 5 — SÍMAR 86010 og 86030
Sjómenn
Útgerðarmenn
Smíðum hvers konar
vindur og spil í minni fiski-
báta, svo sem:
línu- og netaspil,
löndunarspil,
rópaspil,
bómusvingara.
Bjóðum ennfremur:
Teleflex vökvastýri og
Benmar sjólfstýringar
á mjög góðu verði.
SJOVELARHF.
KÁRSNESBRAUT102 - SÍMI43802.
Einstaklingar og
félagasamtök
Höfum fyrirliggjandi timbur einbýlis- og sumarhús af
öllum stærðum og gerðum. Vanir menn sjá um uppsetn-
ingu og frágang ef óskað er.
Kynnið ykkur verð og gæði.
STOKKAHÚS?
Klapparstíg 8 105 Reykjavík
Sími 91-26550.
Vegurinn um
Þorlákshöfn til
Vestmannaeyja
A undanförnum árum hefur orðið
ör fólksfjölgun i Þorlákshöfn og eru
íbúar staðarins nú liðlega 1000. Þegar
talað er um samgöngumál Þorláks-
hafnar hljóta Vestmannaeyjar óhjá-
kvæmilega að koma inn í myndina því
sem kunnugt er hóf nýi Herjólfur
reglubundnar siglingar milli þessara
staða seinni part ársins 1976. Með til-
komu skipsins var brotið blað í sam-
göngumálum Eyjamanna og hafa
flutningar á fólki og bifreiðum stór-
aukizt á þessu tímabili, svo og vöru-
flutningar. Á síðasta ári flutti skipið
40.367 farþega í 350 ferðum sem
skipið fór, eða um 115 manns að
meðaltali í ferð. Þá voru fluttar með
skipinu 9027 bifreiðir og 8130 tonn af
ýmsum varningi. Sá akvegur sem
tengir Þorlákshöfn og Vestmannaeyj-
ar við Stór-Reykjavikursvæðið er
Þrengslavegurinn en hann hefur um
árabil veriö heldur leiðinlegur yfir-
ferðar sem kunnugt er.
Þessi vegur var þó í upphafi undir-
byggður fyrir varanlegt slitlag og þvi
má bæta hér við að þetta er sennilega
fyrsti vegarkaflinn á íslandi sem
byggður var á þennan hátt. Á síðustu
Kjallarinn
Guðmundur Sigurðsson
skrifstofustjóri
ekkert láta í sér heyra opinberlega um
þetta lélega vegasamband. En kannski
er skýringin sú að þeir eru að bíða eftir
—------------rThXunórun aö
V estmanna^,tta Ifetega vegasa_
hPriesa“l"'>e -------------
tveimur árum var svo ráðizt í að ýta
veginum saman, þ.e. mjókka hann
verulega, með ærnum tilkostnaði. Á
köflum er vegurinn svo mjór að hann
verður að teljast varasamur þegar
stórar bifreiðir þurfa að mætast, sér-
staklega þegar hálka er.
Mjög stórir flutningavagnar eru
notaðir í sambandi við Herjólf og hafa
þeir stundum átt í erfiðleikum á vegin-
um, m.a. Ienti einn svo illa út af full-
hlaðinn á siðasta ári að mörg stórvirk
dráttartæki þurfti til að ná bifreiðinni
upp og tók það nokkrar klukkustundir
með miklum kostnaði.
Óneitanlega vekur það undrun að
frammámenn í Vestmannaeyjum skuli
að eitthvað heyrist frá þeim fjórmenn-
ingunum sem þeir eiga á Alþingi
'lslendinga. En búast má við að sú bið
geti orðið löng því að á Alþingi virðast
vinnubrögðin þvi miður oft þannig að
stóru málin eru lögð til hliðar en aftur
á móti fengizt við ýmis minni háttar
mál af miklum eldmóði.
Því er hér með skorað á þingmenn
Suðurlandskjördæmis að þeir fylgi
eftir I sameiningu, þegar vegaáætlunin
kemur til endurskoðunar, að bundið
slitlag verði sett á veginn um Þrengsli
til Þorlákshafnar og sé miðað við að
framkvæmdum ljúki á árinu 1980.
Brúin
Fyrir síðustu alþingiskosningar
gengu sumir frambjóðendur jafnvel
svo langt að þeir nánast lofuðu að
koma brúarmálinu i höfn. í því efna-
hagsástandi sem nú ríkir er vart við
því að búast að hægt verði að ráðast í
þessa stórframkvæmd alveg á næst-
unni. Þetta vissu menn líka fyrir kosn-
ingar.
Fyrir nokkrum árum töldu menn að
skynsamlegra væri að vinna að bygg-
ingu brúar við ölfusárósa og koma þar
með útgerðarstöðunum austan ár í
samband við fyrirhugaða höfn hér i
Þorlákshöfn, frekar en að eyða miklu
fjármagni í hafnarframkvæmdir á
þessum stöðum sem ekki gætu koniið
að tilætluðum notum vegna hinna
kunnu erfiðleika sem eru við að
komast inn og út úr höfnunum á þess-
um stöðum. Með þessu er ekki verið
að segja að láta eigi þau hafnarmann-
virki drabbast niður sem fyrir voru.
Síðan bættist það við á seinustu árum
að fiskibátar stækka og það þýddi að
þeir urðu að hafa fasta viðlegu i Þor-
lákshöfn. Þetta er staðreynd í dag og
þróun þessara mála var öllum ljós sem
á vildu hlusta.
Þrátt fyrir þessar augljósu stað-
reyndir komu fram raddir á þessum
tíma, og það úr þorpunum fyrir austan
ölfusá, að með smiði brúarinnar
myndi fólkið úr þorpujum flytjast til
Þorlákshafnar og þar með myndu þau
leggjast niður.
Þá geystust einnig ýmsir snillingar
fram á ritvöllinn varðandi þetta mál
og einn teiknaði stóra höfn á Eyrar-
bakka með tilheyrandi fiskvinnslu-
stöðvum og fiskimjölsverksmiðjum,
þrátt fyrir að innsiglingin væri aðeins
fær minni skipum við góð skilyrði.
Þann vanda átti að leysa með því að
dæla sandinum undan klöppunum í
innsiglingunni og fella þær síðan niður
eins og spilaborg. Þetta er ótrúleg saga
en sönn engu að siður.
Kannski á þetta'sem ég hef rakið
hér að framan sinn þátt í því að brúin
yfir ölfusárósa er ókomin. Og
erfiðleikarnir í okkar efnahagslífi nú
gætu hæglega seinkað brúarsmíðinni
enn um sinn.
Guðmundur Sigurðsson,
skrifstofustjóri
Meitilsins hf.
AFTUR OFUGÞROUN
í BÍLAINNFLUTNINGI
— Aðeins 880 nýir bílar fluttir inn síðustu þr já mánuði 1978
Aðeins 880 nýir bílar voru fluttir til
íslands síðustu þrjá mánuði ársins 1978.
Nemur það um 10,5% af heildarbílainn-
flutningi alls ársins. Árið 1977 voru á
sama tímabili fluttir inn 1440 nýir bílar
eða um 20% heildarinnflutnings nýrra
bíla allt það ár og það hlutfall er talið
eðlilegt.
Heildarbílainnflutningurinn 1978 er,
þrátt fyrir lágt hlutfall siðasta ársfjórð-
unginn, þó í meðallagi og vel það.
Ástæða minnkandi bílainnflutnings á
þessu tímabili er rakin til lækkandi
gengis og ört hækkandi bílaverðs af
þeim sökum. Verði lækkun á gengi er
slíkt fljótt að hlaða utan á sig þvi hluti
Söngmenn
Karlakór Reykjavikur
óskar eftir söngmönn-
um.
Upplýsingar í síma
35612, 81018 og
18499. !
rikisins í nýjum innfluttum bíl er um
60% af verði hans þá er bíllinn er af-
hentur kaupanda. Af bil sem kostar hér
з. 5 milljónir fær þvi ríkið i sinn hlut
и. þ.b. 2.1 milljón.
1974 var heildarinnflutningur nýrra
bíla 508 stykki, 1975 alls 3150 bílar, 1976
4100,1977 7200 og 1978 voru fluttir inn
7466 nýir bílar. Meðaltal innfluttra
nýrra bíla á tímabilinu 1971—1978 var
6400 bílaráári.
Á landinu öllu eru nú um eða yfir 70
þúsund bílar. Þykir sérfróðum aö inn-
flutningur megi ekki vera minni en 10%
af þeim fjölda svo að ekki sé um að ræða
afturför með bílaflota landsmanna.
Af jressu má ætla að þróun gjaldeyris-
mála og álögur ríkis á bilainnflutning
hafi í för með sér lægri tekjur ríkis af
bílainnflutningi en oröið hefði við eðli-
lega þróun mála.
- ASt.